Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991 Þýskaland: Vaxandi atvinnu- leysi mótmælt Leipzig. Reuter. KOMIÐ hefur til mikilla mótmæla í austanverðu Þýskalandi að und- anförnu og í stað þess að hylla Helmut Kohl kanslara sem hetju, eins og gert var á samskonar fundum fyrir ári, snúast mótmælin gegn stjórn hans og því mikla atvinnuleysi sem sameining þýsku rikjanna hefur haft í för með sér. Fyrir ári greiddi austur-þýskur almenningur fyrir skjótri samein- ingu þýsku ríkjanna með því að efna til fjölmennra kröfufunda um það efni. Nú finnst sama fólkinu sem Kohl hafi ekki staðið við loforð um að sameiningin myndi leiða til mikillar grósku og uppgangs. „Kohl og hans menn eru í engum tengslum við fólkið. Þeir ættu að koma hingað,“ sagði Manfred Noki- elsky, 41 árs verksmiðjustarfsmað- ur í Leipzig, sem á atvinnuleysi yfír höfði sér, á útifundi í fyrradag. Hermt er að Kohl geri sér grein fyrir vaxandi óvinsældum sínum í austanverðu landinu og hefur hann því forðast að koma þar fram opin- berlega það sem af er ári. Hafnaði hann til að mynda beiðni um að halda ræðu á mótmælafundi í Leip- zig í fyrradag. Á vikulegum mánu- dagsfundum þar fyrir ári var hann hylltur sem hetja en sl. mánudag kröfðust tugþúsundir fundarmanna afsagnar hans. Mótmælin eru.. ekki bundin við Leipzig því í gær tóku 20.000 manns þátt í fundi í borginni Leuna þar sem mótmælt var fyrirhugaðri lokun efnaverksmiðja, sem flestar eru úr sér gengnar og óarðbærar. Mótmælin hafa hvarvetna farið friðsamlega fram en þó hefur borið á vaxandi öfgum og bent er á auk- ið ofbeldi í tengslum við knatt- spymuleiki að undanfömu sem vísbendingu um aukinn þjóðfélags- óróa í Þýskalandi austanverðu. Kaci Kullmann Five Hægriflokkurinn í Noregi: Kullmann Five nýtt leiðtogaefni NORSKI Hægriflokkurinn heldur landsfund í apríl og mun velja nýjan leiðtoga í stað Jans P. Syse. Ljóst virðist að nýi leiðtog- inn verði kona, Kaci Kullmann Five, sem var viðskiptaráðherra i stjórn Syse. Munu konur þá veita forystu tveim stærstu flokk- um landsins; fyrir jafnaðarmönnum fer Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra. Kullmann Five hefur að sögn Aftenposten lengi verið efst á blaði yfír væntanlega arftaka Syse hjá for- ystu flokksins og kjósendur hans eru ekki í vafa ef marka má skoðanakannanir. I könnun sem gerð var 11.-13. mars vildu 58% aðspurðra kjós- enda Hægriflokksins að Kullmann Five tæki við leiðtogaembættinu af Syse. Hann dregur sig í hlé, aðallega vegna gagnrýni á íjár- reiður hans; leiðtoginn hefur þótt vera trassi og er jafnvel sakaður um misferli f skattamálum. 10% lýstu stuðningi við Arne Skauge, fyrrverandi fjármálaráðherra, en Skauge skýrði frá því rétt eftir að könnunin var gerð að hann myndi hætta í stjórnmálum við lok kjörtímabilsins 1993 og taka við stjórnunarstöðu hjá Den norske Bank. I síðustu viku skýrði Kull- mann Five frá því að hún byði sig fram í leiðtogakjöri 20. apríl. Syse hefur lýst stuðningi við hana og Kaare Willoch, fyrrverandi for- sætisráðherra, segir að hún sé „frábær stjómmálamaður“. Búist er við að John G. Bernander verði nýr varaformaður og taki við af Svein Ludvigsen. Kaci (Karin Cecilie) Kullmann Five verður fertug eftir tæpan mánuð. Hún virðist njóta stuðn- ings um land allt og jafnvel and- stæðingar hennar fara margir hlýjum orðum um hana. Hún þótti standa sig mjög vel í starfí við- skiptaráðherra, sýndi samning- alipurð og einkum var henni hrós- að fyrir dugnað í viðræðum Fríverslunarsamtaka Evrópu og Evrópubandalagsins. En ríkis- stjórn Syse hélt ekki velli nema eitt ár og flokknum hefur vegnað illa í skoðanakönnunum að und- anförnu. Er Kullmann Five skýrði frá framboði sínu viðurkenndi hún að sér óaði við starfinu, hún vissi hve vanþakklátt það væri og er- fitt auk þess sem það kæmi niður á fjölskyldulífínu. Vitað er að Rolf Præsthus, fyrirrennari Syse, og Syse báðu hana á sínum tíma að gefa kost á sér í leiðtogaemb- ættið en hún hafnaði í bæði skipt- in. Reuter Um 30.000 manns mótmæltu vaxandi atvinnuleysi og versnandi kjörum í Þýskalandi austanverðu á útifundi í Leipzig í fyrradag. Helmut Kohl kanslari var sagður hafa svikið gefin loforð og var afsagn- ar hans krafist. A fremri borðanum stendur „Endurbyggjum í stað þess að bijóta niður“ og þeim aft- ari „Kerfiskarlar gærdagsins gullkálfar morgundagsins." Stríðið í Eþíópíu: Uppreisnarmenn búast til að einangra Addis Ababa Þúsundir manna falla í hörðum bardögum Nairobi. Reuter. SKÝRT var frá því í gær að uppreisnarmenn í Eþiópíu væru nú komnir að bænum Debra Sine, sem er aðeins 150 km norðaustur af höfuðborginni, Addis Ababa. Bærinn er einnig skammt frá þjóð- veginum frá borginni til einu hafnarinnar sem er enn á valdi stjórn- arhersins. Uppreisnarmennirnir hafa aldrei áður sótt jafn langt í átt að höfuðborginni. Talsmaður uppreisnarmanna í Tigray-héraði sagði að 978 stjórn- arhermenn hefðu fallið og 952 særst í bardaga um bæinn Mezezo í grennd við Debre Sina, þar sem stjórnarherinn hefur búið sig til vamar. Uppreisnarmennirnir hefðu einnig náð miklu af vopnum í bar- daganum. Debre Sina er við þjóð- veginn frá höfuðborginni til hafnar- bæjarins Assab og talsmaðurinn sagði að uppreisnarmennirnir myndu nú reyna að ná veginum á sitt vald. Uppreisnarmenn í Eritreu hafa einnig hafíð stórsókn úr norðvestri í átt til Assab. Ef uppreisnarmenn ná hafnarbænum á sitt vald, eða loka þjóðveginum, hefur stjórn landsins ekki lengur aðgang að höfn við Rauðahaf. Útvarp uppreisnarmanna skýrði frá því á sunnudag að 4.600 stjórn- arhermenn' hefðu fallið eða særst er þeir reyndu að ná Gojam-héraði á sitt vald á ný. Um 900 hermenn hefðu beðið bana í bænum Adwa, um 140 km suður af Asmera, höfuð- stað Erítreu, sem er enn á valdi stjómarhersins. Heimildarmenn í Addis Ababa segja að hundruð þúsunda manna varalið, einkum skipað skóladrengj- um, hefði verið sent gegn sveitum uppreisnarmanna til að veija höfuð- borgina. Sendiráð Bandaríkjanna, EB- ríkja og Svíþjóðar hafa gert ráðstaf- anir til að flytja útlendinga úr landinu þar sem óttast er að eini alþjóðaflugvöllurinn í landinu, sem er við Addis Ababa, kunni að lok- ast. íslensku hjónin Guðlaugur Gunnarsson og Valgerður Gísla- dóttir eru enn í Eþíópíu ásamt þremur börnum sínum og að öllum líkindum verður ákveðið í dag hvort þau fari úr landinu. Hjónin stunda trúboð syðst í Eþíópíu. Kínverjar ætla að veita Sovétmönnum stórlán Búist við að Pekingstjórnin kaupi sovéskar orrustuþotur Peking. Reuter. KÍNVERSKA stjórnin hyggst selja Sovétmönnum ýmsar vörur, einkum hráefni, að fjárhæð 730 milljónir Bandaríkjadollara (um 42.000 milljónir ÍSK) og verður veittur gjaldfrestur. Erlendir stjórnarerindrekar í Peking segja ljóst að lánið sé ekki síst veitt í því skyni að aðstoða Sovétstjórnina og Míkhaíl Gorbatsjov við að beijast gegn upplausn í landinu vegna efnahagsörðugleikanna. „Þetta sýnir þær áhyggjur sem stjómvöld í Kína hafa af því sem gerast kunni í Sovétríkjunum. Kína vili að ró og friður ríki í nágrannalöndunum og sú ósk verður ekki uppfyllt ef Sovétríkin hrynja,“ sagði erlendur stjórnarer- indreki. Landamæri Kína og Sov- étríkjanna eru hin lengstu í heimi. Li Peng forsætisráðherra ræddi nýlega skilmála lánsins við Júríj Masljúkov, aðstoðarforsætisráð- herra Sovétríkjanna, í Peking og skýrði flokksmálgagnið Dagblað alþýðunnar frá viðræðunum á forsíðu. Sovétmenn munu kaupa korn, kjötvörur, hnetur, te, hrá- silki, tóbak og sígarettur auk vefn- aðarvöru, að sögn blaðsins. Met- uppskera í Kína var á síðasta ári og mun mesta vandamálið vera að ekki eru til nægar geymslur fyrir framleiðsluna. Víðtækri einkavæðingu hefur verið hrint í framkvæmd í kínverskum land- búnaði síðastliðinn áratug og eru sumir bændur nú orðnir sterkefn- aðir. Að auki munu Sovétmenn geta keypt léttan iðnvarning en mörg kínversk fyrirtæki eiga veru1 legar birgðir af óseldum vörum vegna þess að kaupgeta hefur minnkað í kjölfar aðhaldsaðgerða stjórnvalda undanfarin tvö ár til að lækka verðbólgu. Sovétmenn munu sýna herflug- vélar á flugvelli í grennd við Pek- ing síðar í mánuðinum, að sögn ensku útgáfunnar af Dagblaði aI- þýðunnar. Erlendir stjórnarerind- rekar segja Kínveija hafa hug á að kaupa herflugvélar af Sovét- stjórninni og vitað er að tegundin sem þeir hafa mestan áhuga sýnt, orrustuvél af gerðinni SU-27 sem nefnd er á ensku Flanker, verður til sýnis. Flest vestræn ríki hættu að selja Kínveijum vopn 1989 í mótmælaskyni við morðin á um- bótasinnum sem safnast höfðu saman á Torgi hins himneska frið- ar í Peking. u . 1 i .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.