Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 34
MORGUNBJÍAÐIÐ. MIÐVIKGDAGUR ;20, MARZ,1991
3.4
p
^ / ir^i'v,(^it\ir^.Aí?
JHH^^iHHk, BHB «HHr HHH HHH %HHi HHH %HHi * m ^****-^^ *■«■ * m m .^.i •» »m %«
Hárgreiðslunemi
óskast
Óskum að ráða nema á hárgreiðslustofu
okkar í Ármúla 15, Reykjavík.
Upplýsingar gefnar á staðnum.
72!
Heimilisþjónusta
Kópavogs
Starfsmann vantar í 100% starf hjá heimilis-
þjónustu. Til greina kemur að ráða í tvö hálfs-
dagsstörf. Laun samkvæmt sérkjarasamn-
ingi Sóknar og Kópavogskaupstaðar.
Nánari upplýsingar gefurforstöðumaður í síma
45700 milli kl. 10.00-12.00 og 13.00-14.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félags-
málastofnun Kópavogs, Fannborg 4.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Nuddnemi óskast
Þarf að geta byrjað sem fyrst.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf, sendist auglýsingadeild Mbl., merktar:
„Nemi - 6882“, fyrir 27/3.
Kokkur/þjónn
Viljum ráða unga og áhugasama fagmenn á
sumarhótel, einn kokk og einn þjón. Þurfa
að vera duglegir, vinnufúsir og eiga gott með
að umgangast fólk.
Lysthafendur leggi nafn, síma og helstu upp-
lýsingar á auglýsingadeild Mbl. fyrir 28.
mars merkt: „KÞ - 12078“.
Afgreiðslu- og
lagerstarf
Traust heildsölufyrirtæki, sem selur járnvör-
ur og verkfæri, óskar að ráða starfskraft til
fjölbreytilegra starfa á lager og við afgreiðslu.
Áskiiið er sérstaklega að viðkomandi sé
reglusamur og umfram allt þægilegur í við-
móti. Meðmæli nauðsynleg.
Viðkomandi þyrfti að hefja störf sem fyrst
og eigi síðar en 1. maí.
Tilboðum sé skilað til auglýsingadeildar
Mbl.fyrir27. marsmerktum: „Lager- 8833“.
Frá menntamálaráðuneytinu
Skólameistari
Við Framhaldsskólann á Laugum er laus
staða skólameistara.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eigi síðar
en 15. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið.
G/obus
Sölumaður
Bifreiðadeild Glóbus hf. selur Citroén- ,
Saab- og Ford-bifreiðar. Vegna aukinna um-
svifa deildarinnar þarf að ráða sölumann til
starfa sem allra fyrst.
Starfssvið sölumanns: Dagleg sala á nýjum
og notuðum bifreiðum. Skipulagning á af-
hendingu bifreiða í samráði við sölustjóra.
Aðstoð við gerð pantana og innkaup bifreiða.
Við leitum að manni sem hefur áhuga á
markaðssetningu og sölu bifreiða. Reynsla
af sölu bifreiða æékileg. Viðkomandi þarf að
geta starfað sjálfstætt. Enskukunnátta nauð-
synleg. Laust strax eða eftir nánara sam-
komulagi.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um, sem liggja frammi á skrifstofu okkar, merkt-
ar: „Sölumaður Glóbus", fyrir 28. mars nk.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður hald-
inn laugardagjnn 6. apríl nk. kl. 14.30 á
Hótel Sögu, 2. hæð.
Dagskrá samkvæmt grein 5.6 í samþykktum
sparisjóðsins.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
ábyrgðarmönnum eða umboðsmönnum
þeirra fimmtudaginn 4. apríl og föstudaginn
5. apríl í afgreiðslu sparisjóðsins, svo og á
fundarstað.
Stjórnin.
Tilkynning um breyttan
fundartíma
Fyrirhuguðum aðalfundi Heilsugarðsins hf.,
er halda átti 21. mars nk. kl. 17.15 í Faxa-
feni 14, Reykjavík, erfrestað af óviðráðanleg-
um orsökum til þriðjudagsins 9. apríl ki. 17
í Faxafeni 14, Reykjavík.
Stjórn Heilsugarðsins hf.
Mígrensamtökin
Aðalfundur félagsins verður haldinn miðviku-
dagskvöldið 20. mars kl. 20.30 í Hlaðvarpan-
um, Vesturgötu 3.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Fræðsluerindi: Eirikur Örn Arnarson, sál-
fræðingur, talar um sálrænar hliðar höf-
uðverkja.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórnin.
| , TILBOÐ - ÚTBOÐ
fÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. gatna-
málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum
í frágang, ræktun og stígagerð meðfram
Sæbraut, Suðurlandsbraut og Bústaðavegi.
Helstu magntölur eru:
Gangstéttar u.þ.b. 3.000 m2
Gangstígar u.þ.b. 4.500 m2
Ræktun u.þ.b. 95.000 m2
Verkinu skal lokið fyrir 1. september 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðju-
deginum 19. mars, gegn kr. 15.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 3. apríl kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 -r- Sími 25800
ÝMISIEGT
Hestamenn - hagaganga
Boðið er upp á úrvals land til hagagöngu í
120 km frá Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Til leigu er velgróið land allt að 150 hektara.
Til greina kemur að leigja landið út í smærri
einingum, ca 10-50 ha.
Á landinu er gott vatnsból.
Til greina kemur að selja landið á leigu til
lengri tíma, 5-10 ár.
Hægt er að bjóða upp á aðstöðu til íveru.
Möguleikar eru á samningum um langtíma
heykaup.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Kristjáns Stefánssonar hri,
Ránargötu 13, 101 Reykjavík.
Símar: 16412/27765.
Ert þú höfundur að kennslubók eða
öðrum námsgögnum?
Hefur þú skrifað fræðigreinar,
fræðibækur eða vísindarit?
Höfundar fræðirita og kennslugagna hafa
með sér samtök, sem þeir nefna Hagþenki.
í þessum samtökum, sem berjast fyrir hags-
munamálum höfunda fræðirita og kennslu-
gagna, eru nú rúmlega 200 félagsmenn.
Félagið sér m.a. um úthlutun fjár, sem það
færvegna samninga um greiðslur fyrir Ijósrit-
un í skólum (FJÖLÍS). A þessu ári verður
úthlutað 2 milljónum króna, m.a. í formi
ferða- og menntunarstyrkja, starfsstyrkja og
þóknana fyrir Ijósritun í skólum.
Stjórn Hagþenkis hvetur alla höfunda fræði-
rita og kennslugagna, sem ekki hafa þegar
gengið til liðs við félagið, að afla hið fyrsta
upplýsinga um það með inngöngu í huga.
Þeir höfundar, sem senda félaginu nafn sitt
og heimilisfang, fá sendan um hæl upplýs-
ingabækling um félagið, ásamt eyðublaði
fyrir inntökubeiðni.
Sendið tii Hagþenkis - félags höfunda
fræðirita og kennslugagna, pósthólf 8290,
128 Reykjavík.
ATVINNUHÚSNÆÐI j
Laugavegur
Verslunar- og þjónustubygging
Til leigu er 80-180 fm húsnæði á 3. hæð.
Aðkoma er bæði frá Laugavegi og Hverfis-
götu. Góð aðkoma fyrir hjólastóla.
I húsinu eru verslanir, kaffitería, líkamsrækt,
læknastofur, skrifstofur o.fl.
Sanngjörn leiga fyrir góða leigjendur.
Upplýsingar í síma 672121 á skrifstofutíma.