Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 56
— svo vel
sé tryggt
SIOVAljPÁLMENNAR
PC MAGAZINE UM
IBM OS/2:
„ÞETTA ER
FRAMTÍÐIN"
MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Ríkið kaupir
flugskýli á
45 milljónir
FJ ÁRMÁL ARÁÐUNEYTIÐ hefur
gengið frá kaupum á flugskýli
flugfélagsins Ernis á Isafirði.
Kaupverð skýlisins er 45 milljónir
króna.
Magnús Pétursson, ráðuneytis-
stjóri ijármálaráðuneytisins, sagði í
gær að kaupin væru gerð til að
styrkja sjúkraflutninga á Vestfjörð-
um. Hann sagði að ríkissjóður hefði
greitt 45 milljónir króna fyrir skýlið.
Skýlið mun hafa verið metið á 23
milljónir.
„í þessum kaupum felst tiltekinn
stuðningur við sjúkraflutninga á
Vestfjörðum. Þeir hafa verið mjög
erfiðir fjárhagslega og flugfélagið
sem hefur staðið að þeim hefur átt
í erfiðleikum og á því hafa hvílt
miklar kröfur. Ríkið notar heimild í
6. grein fjárlaga og kaupir skýlið á
þessu tiltekna verði,“ sagði Magnús.
Tveir rækju-
bátar fengu
í skrúfuna
RÆKJUBÁTURINN Kristján ÍS
fékk grandara í skrúfuna í Skötu-
firði í ísafjarðardjúpi um klukkan
18 í gær. Rækjubáturinn Dröfn
SI kom Krisljáni ÍS til aðstoðar
en fékk við það dráttartóg í skrúf-
una.
Björgunarbáturinn Daníel Sig-
mundsson frá ísafirði kom á staðinn
um klukkan 21 í gær. Kafari losaði
fyrst grandarann úr skrúfu Kristjáns
ÍS og síðan dráttartógið úr skrúfu
Drafnar SI.
Snjóflóð féllu á vegina í Óshlíð
og Súðavíkurhlíð í gær, einnig féll
snjóflóð á skíðalyftu ísfirðinga í
Seljalandsdal í gær.
Langt komnir með kvótann
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Mjög góð veiði hefur verið hjá netabátum frá Ólafsvík á vertíðinni.
Bátarnir hafa iðulega komið með tíu til þrjátíu tonn eftir daginn.
Nokkrir Ólafsvíkurbátar eru búnir með kvótann eða eru að klára.
Sumir eru búnir að fækka trossum til að treina sér kvótann. Meðfylgj-
andi myndir voru teknar í róðri með Tungufelli SH 31 og er það
Emil Kristinsson sem greiðir úr.
Fjallað er um aflabrögð í sérblaði Morgunblaðsins um sjávarút-
veg, Úr verinu, í dag.
Myndataka
á rauðu ljósi
LÖGÐ hefur verið fram í borgarráði
bókun frá umferðarnefnd, um að
komið verði upp búnaði til mynda-
töku við gatnamót þar sem umferð-
arljós eru. Lagt er til að búnaðinum
verði komið upp í tilraunaskyni og
kannað hvernig hann gefst til að
afla upplýsinga um þá sem aka yfir
gatnamót á móti rauðu ljósi.
Þingslit ákveðin klukkan 10 í dag:
Deilur um stj órnarsetu í
Landsvirkjun töfðu störf
EKKI tókst að Ijúka þingstörfum fyrir miðnætti í nótt og ákvað
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra þá að bíða með að rjúfa
þing þar til klukkan 10 í dag. Áður hafði verið áætlað að þingstörfum
lyki snemma í gærkvöldi, en ýmsar tafir, sem urðu m.a. vegna deilna
um kosningu í stjórnir fjögurra ríkisfyrirtækja og nefnda, komu í veg
fyrir að svo gæti orðið.
Samkomulag náðist í fyrrinótt um
framgang lánsfjárlaga og annarra
mála sem ríkisstjórnin lagði áherslu
á, gegn því að þingsályktunartillaga
iðnaðarráðherra um álviðræður færi
aðeins í gegnum fyrstu umræðu. En
þegar tekið var til við atkvæða-
greiðslu um lánsljárlagafrumvarpið
í neðri deild var ekki nægileg þátt-
taka vegna fjarveru þingmanna
Borgaraflokksins. í ljós kom að þeir
voru óánægðir með að ekki var fyrir-
hugað að kjósa í stjórnir Landsvirkj-
unar, Sementsverksmiðju ríkisins,
Kísiliðjunnar og í Orkuráð. Þing-
menn Kvennalistans kröfðust þess
einnig að kosið yrði í þessar stjórnir.
Miklar samningaviðræður voru í
gærkvöldi um hvort og þá hvernig
staðið yrði að þessum kosningum.
Fyrir lá að Sjálfstæðisflokkur og
Kvennalisti myndu bjóða fram sam-
eiginlegan lista, en ósamkomulag
var milli stjórnarflokka um hvort
þeir byðu fram sinn listann hver,
tveir eða fleiri sameiginlega eða all-
ir saman. Samkomulag um þetta lá
ekki fyrir um miðnættið en
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra sagði þó að kosning þessi
yrði á dagskrá þingsins fyrir þingrof.
„Ég er þeirrar skoðunar að kosn-
ingin eigi að fara fram. Ýmsir benda
þó á að vel megi fresta því þar til
nýtt þing verði kallað saman í vor.
Og þar sem kjörtímabil stjórnar
Landsvirkjunar, sem mestur áhugi
virðist vera fyrir, hefst ekki fyrr en
1. júlí, þá er það út af fyrir sig
rétt,“ sagði Steingrímur.
Fjöldi frumvarpa varð að lögum
í gær og nótt. Má þar nefna lánsfjár-
lög, lög um afnám húsnæðislána-
kerfisins frá 1986 og lög um ráðstaf-
anir vegna aflabrests í loðnuveiðum.
Einnig stefndi í um miðnættið að
grunnskólalög yrðu afgreidd með
töluverðum breytingum frá upphaf-
legu frumvarpi, eftir samninga
menntamálaráðherra við þingmenn
Sjálfstæðisflokks. Þá var frumvarp
um breytingu á stjórnarskránni sam-
þykkt í gærkvöldi en eftir slíka sam-
þykkt ber forsætisráðherra að ijúfa
þing og boða til kosninga svo nýtt
þing geti afgreitt þá breytingu.
Gengi Bandaríkjadollars hefur hækkað um 5,6% frá áramótum:
Dollaraskuldir Flugleiða
hækka um 700 milljónir
BANDARÍKJADOLLAR hefur hækkað undanfarna daga. í gærmorg-
un var sölugengi dollars 58,60 kr. og hafði hækkað um 74 aura frá
deginum áður. Var það rakið til bjartsýni í efnahagsmálum í Banda-
ríkjunum. Hækkun dollarans frá áramótum hefur þau áhrif að doll-
araskuldir Flugleiða hækka um rúmlega 700 milljónir íslenskra
-króna.
Gengi dollarans hafði ekki farið
yfir 58 kr. frá því í júlímánuði
síðastliðnum, það er áður en írakar
hernámu Kúveit. Dollarinn fór
lægst í Persaflóastríðinu, hinn 12.
febrúar var gengið 53,49 kr. Síðan
hefur dollarinn hækkað um 5,11
kr. eða um 9,5%.
Staða Bandaríkjadollars hefur
mikil áhrif á stöðu Flu^leiða eins
og stöðu ýmjssa annarra íslenskra
fyrirtækja. Á síðasta ári lækkaði
dollarinn um 9,6% sem hafði í för
með sér mikinn gengishagnað fé-
lagsins, aðallega vegna þess að
skuldir félagsins eru að stærstum
hluta í dollurum.
Dollarinn stóð í 55,47 krónum
um áramót. Síðan hefur hann
hækkað um 3,13 krónur eða um
5,6%. Við það hafa dollaraskuldir
Flugleiða hækkað í íslenskum krón-
um um rúmlega 700 milljónir, að
sögn Halldórs Vilhjálmssonar fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs Flug-
leiða. Á móti kemur að í ársreikn-
ingum Flugleiða er flugvélaflotinn,
sem stendur á bak við þessar skuld-
ir, endurmetinn miðað við stöðu
dollarans og hækkar því samsvar-
andi í verði þó tölurnar séu lægri.
Stærri hluti útgjalda en tekna Flug-
leiða er í dollurum og hefur hækkun
dollarans því einnig neikvæð áhrif
á hag félagsins að því Ieyti, að sögn
Halldórs.
Meirihluti fólks 1
fiskverkun leggur
niður vinnu í dag
STÓR hluti fiskverkafólks leggur niður vinnu í dag til að leggja
áherslu á kröfur sinar til stjórnvalda um hækkun skattleysis-
marka. Mikil samstaða virðist vera með fiskvinnslufólki um
vinnustöðvun á Austfjörðum, í Vestmannaeyjum, á Vesturlandi
og víða á Vestfjörðum og Norðurlandi. Á ýmsum stöðum hefur
fiskverkafólk ákveðið að mæta til vinnu í dag, m.a. í Grindavík,
Hnífsdal, Raufarhöfn, Bíldudal og hjá Granda hf. í Reykjavík.
Talið er að starfsemi leggist niður í meirihluta fiskvinnsluhúsa
á landinu en á niunda þúsund manns starfa við fiskvinnslu á
landinu.
Víða voru greidd atkvæði um
aðgerðirnar eða látnir ganga
undirskriftalistar þar sem starfs-
fólk tilkynnti þátttöku sína. Voru
aðgerðirnar m.a. samþykktar
með miklum mun í fiskvinnslu-
húsum á Neskaupstað, Eskifirði,
Vestmannaeyjum, Akureyri,
ísafirði, Bolungarvík, Höfn og á
Akranesi. Á nokkrum stöðum var
ákvörðunin tekin með óformleg-
um hætti. Yfirmönnum vinnslu-
húsanna hefur í flestum tilfellum
verið gert viðvart og hafa sumir
gripið til ráðstafana til að forða
afla frá skemmdum.
í nokkrum frystihúsum felldu
starfsmenn tillögu um vinnu-
stöðvun og samþykktu þess í stað
áskorun til stjórnvalda um að
vinna að hækkun persónuafslátt-
ar hjá .láglaunafólki.
Sjá ennfremur á bls. 24.