Morgunblaðið - 07.04.1991, Page 1
112 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
78. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 7. APRIL 1991
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Bandaríkjamenn senda flóttamönnum neyðaraðstoð:
Oryggisráð SÞ fordæmir að-
gerðir Iraka gegn Kúrdum
Sameinuðu þjóðunum, Washington, Nikósíu, Bagdad. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti á föstudag ályktun þar sem fram-
ferði íraskra stjórnvalda gagnvart Kúrdum er fordæmt og þess krafist að írakar
leyfi alþjóðlegum hjálparstofnunum að veita flóttamönnunum aðstoð. Tíu ríki greiddu
ályktuninni, sem Frakkar höfðu frumkvæði að, atkvæði sitt, en þijú ríki, Kúba, Jem-
en og Zimbabwe, greiddu atkvæði gegn henni. Indland og Kína sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Utanríkismálanefnd og laganefnd íraska
þingsins mæltu í gær, laugardag, með því
að þingið féllist á þá skilmála sem öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna hefur sett fyrir
vopnahléi.
James Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hélt í gær áleiðis til Mið-Austur-
landa. í dag hittir hann Turgut Ozal, for-
seta Tyrklands, í Ankara. Megináhersla
Bakers í ferðinni verður á samskipti ísraels
og arabaríkjanna, og mun hann eiga viðræð-
ur við ráðamenn í ísrael, Egyptalandi og
Sýrlandi í næstu viku, en einnig ætlar hann
að heimsækja kúrdíska flóttamenn við tyrkn-
esku landamærin á mánudag. Þetta er önnur
Mið-Austurlandaferð Bakers frá því að
Persaflóastríðinu lauk.
Bandaríkjamenn ætla um helgina að senda
flutningavélar til norðurhluta íraks með
ýmis hjálpargögn, mat, teppi og fatnað, sem
hent verður í fallhlífum til kúrdísku flótta-
mannanna. George Bush, Bandaríkjaforseti,
sagðiSt ganga út frá því að írösk stjórnvöld
myndu ekki reyna að hindra þessa aðgerð.
Hann sagði Bandaríkjamenn ætla að veita
tíu milljónum Bandaríkjadollara til aðstoðar
flóttamönnunum og að hann vonaði að önn-
ur ríki myndu einnig aðstoða Tyrki við að
bregðast við flóttamannastraumnum. ítrek-
aði forsetinn enn einu sinni að ekki kæmi
til greina að Bandaríkjamenn myndu veita
kúrdískum uppreisnarmönnum hemaðarlega
aðstoð.
Bretar ætla einnig að taka þátt í að senda
hjálpargögn til flóttamanna í norðurhluta
íraks en þeir hafa þegar sent tvær flutninga-
vélar með hjálpargögnum til Tyrklands.
írönsk stjórnvöld sögðu í gær að 300
þúsund kúrdískir flójttamenn væru komnir
yfir landamærin til írans og að ein til ein
og hájf milljón flóttamanna til viðbótar væri
á leiðinni. Iranir segjast ekki ætla að loka
landamærum sínum. Um 250 þúsund flótta-
menn eru komnir yfir landamærin til Tyrk-
lánds og um 150 þúsund til viðbótar eru
taldir vera á leið þangað. Mikill fjöldi flótta-
manna hefur látið lífið á flóttanum, jafnt
vegna stöðugra árása íraska stjórnarhersins
sem úr hungri og vosbúð.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
J HÚSDÝRAGARÐINUM
: ■. .. ,
• - r ^
Rafknúinn
gaffall fyr-
ir spagettí
ELLEFU ára breskur Iiugvitsmaður,
Matthew Spink, hefur hannað galdra-
tæki, sem gera mun unnendum spag-
ettís lífið léttara. Hér ræðir um rafknú-
inn gaffal sem vindur spagettíið upp
og gerir neyslu þess í senn ánægju-
legri og fljótlegri. Matthew lagði raf-
knúna, sjálfvindandi spagettí-gaffalinn
fram í samkeppni sem félag breskra
uppfinningamanna efndi til. Tækið
þótti bæði handhægt og sérlega frum-
Iegt og hlaut Matthew 100 sterlings-
pund í verðlaun. „Ég er annáluð spag-
ettí-æta en líkt og aðrir á ég í mestu
erfiðleikum með að fá það til að loða
með viðunandi hætti við gaffalinn. Mér
kom því til hugar að leita leiða til að
leysa þennan vanda,“ sagði Matthew
eftir að tilkynnt hafði verið að hann
hefði borið sigur úr býtum í keppninni.
Gætnin get-
ur komið
manni í koll
TÆPLEGA sextug norsk kona, Karen
Sortevik, hefur komist að því að það
borgar sig ekki endilega að sýna gætni
í akstri því hún var nýverið sektuð um
2.000 krónur norskar, röskar 18.000
ISK, fyrir að aka of hægt. Sortevik fór
í ökuferð í nágrenni heimabæjarins,
Floro, og átti sér einskis ills von.
Skyndilega sá hún þó að lögreglubif-
reið með blikkandi ljósum kom á fleygi-
ferð ogjfaf henni merki um að nema
staðar. I ljós kom að embættismaður,
sem lengi hafði ekið á eftir frú Sorte-
vik, hafði gripið til bílsímans og klagað
aksturslag hennar til lögreglu. Frúin
mótmælti fullyrðingum hans um að hún
hefði ekið á miðjum vegi og ekki hleypt
honum fram úr. Sagðist hún aka hægt
og varlega til þess að stofna hvorki sér
né öðrum í hættu. Lögreglan tók emb-
ættismanninn trúanlegan og krafðist
síðar að hún greiddi sekt. Brást hún
við með því að fá sér lögmann og stefna
bæði lögreglunni og embættismannin-
um fyrir rétt. Hún segist sem löghlýð-
inn borgari ekki sætta sig við slíkan
yfirgang og nú segir sagan að bæði
lögreglan og embættismaðurinn iðrist
athafna sinna.
HEILAGÖR SANNLEIKUR
EÐA ALLT í PLATI
Eryfirleitt mark takandi á skodana-
könnutium og ad hvad miklu leyti er
þeim þá ad treysta.
10
í BORGINNI 16
SORGMÆDDU
HEILSflN
HÖMDLUÐ
ÍNÍ 14
Sendiboöi leyni-
þjónustunnnr
reyndist vero
Sigurður
Þórurinsson
C blab