Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 30
 ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR ÍITVIHNIIA UGL YSINGAR miiim ERiiima igiiiiiii Frá Háskóla íslands Lausar stöður Við námsbraut í hjúkrunarfræði í Háskóla íslands eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður vegna viðbótar- og endurmenntunar: a) Staða lektors í geðhjúkrun. b) Hálf staða lektors í hjúkrun sjúkl- inga á handlækninga- og lyflækn- ingadeildum, með áherslu á hjúkrun bráð- veikra sjúklinga. Stöðurnar eru veittar til þriggja ára. Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um náms- feril, ritsmíðar, vísindastörf, kennslu- og hjúkrunarstörf umsækjenda, skulu sendar starfsmannasviði Háskólans, aðalbyggingu, fyrir 10. maí 1991. Sérstök tímabundin lektorsstaða f almennri jarðfræði og jarðsögu við jarð- og landfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla íslands er laus til umsóknar. Lektornum er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sérsviði sínu innan jarðfræðinn- ar, auk þess sem hann þarf að geta tekið að sér almenna kennslu í jarðfræði. Umsóknarfrestur er til 6. maí 1991. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með umsókninni skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækj- anda, prentuðum og óprentuðum. Ennfrem- ur er óskað eftir greinargerð um rannsóknir, sem umsækjandi hyggst stunda, verði hon- um veitt staðan. Gera má ráð fyrir að lektorinn verði í fyrstu settur í stöðuna til 1-2ja ára, en að loknu 2ja ára starfi verði tekin afstaða til þess, hvort hann verði fastráðinn með gagnkvæm- um 3ja mánaða uppsagnarfresti. Lektorinn á einnig rétt á framgangi í starfi samkvæmt almennum reglum, sem um það gilda við Háskóla íslands. Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Einarsson, formaður jarð- og landfræðiskorar, Háskóla íslands, sími 694479. Umsóknir skulu sendar starfsmannasviði Háskólans, aðalbyggingu Háskólans við Suð- urgötu, 101 Reykjavík. Starf fulltrúa er laust við eina af deildum Háskólans. Góðrar íslensku- og enskukunn- áttu er krafist, auk þess sem reynsla af tölv- um (Macintosh) væri æskileg. Starfið er laust frá 1. maí. Laun skv. kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Vil- bogadóttir milli kl. 11-12 í síma 694961. Umsóknir, sem greini frá menntun, aldri og fyrri störfum, sendist til starfsmannasviðs Háskólans fyrir 12. apríl nk. &&& Læknaritari Óskum eftir læknaritara til starfa að sjúkra- stöðinni Vogi. Um er að ræða fullt starf. Umsóknir sendist til skrifstofu SÁÁ, Síðu- múla 3-5, 108 Reykjavík, eigi síðar en 15. apríl nk., merktar: „Læknaritari". Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar Staða hjúkrunardeildarstjóra er laus 1. maí nk. Getum bætt við nokkrum hjúkrunarfræð- ingum og sjúkraliðum í sumarafleysingar. Ræstingarstjóri Staða ræstingarstjóra laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Starfsfólk Starfsfólk óskast í sumarafieysingar. Upplýsingar í síma 26222 frá kl. 8.00-12.00. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Ráðgjafi Óskum að ráða ráðgjafa til starfa í markaðs- deild hjá öflugu fjármálafyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið: Kynning á þjónustu fyrirtækisins út á við með heimsóknum í fyrirtæki og við- tölum við einstaklinga og stjórnendur fyrir- tækja. Einnig þarf viðkomandi að leggja mat á lánshæfni umsækjenda með skoðun árs- reikninga og mati á greiðsluhæfni. Við leitum að viðskiptafræðingi/hagfræðingi eða aðila með þekkingu á fjármagnsmark- aðnum. Starfið krefst þess að viðkomandi geti starfað sjálfstætt og eigi auðvelt með mannleg samskipti. Einnig þarf viðkomandi að vera nákvæmur og talnaglöggur. Starfs- reynsla æskileg. Nánari upplýsingarveitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk- ar, merktar: „Rágjafi 163“, fyrir 13. arpíl nk. Garðabær Sumarstörf Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir laus til umsóknar eftirtalin sumarstörf 1991: 1. Áhaldahús. Almenn verkamannavinna og vélamenn. 2. Garðyrkja. Almenn garðyrkjustörf, slátt- ur, verkstjórn í slætti. 3. Vinnuskóli. Yfirflokksstjóri og flokksstjórar. 4. Skólagarðar. Umsjónarmaður. 5. Smíðavöllur. Umsjónarmaður. 6. Siglingasvæði. Umsjónarmaður. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Sveinatungu. Umsóknarfrestur er til 19. apríl nk. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðu- blöð á bæjarskrifstofunum í síma 42311. Innritun í vinnuskóla auglýst síðar. Bæjarritari. BORGARSPÍTALINN Aðstoðarlæknar Staða aðstoðarlæknis á slysa- og bæklunar- lækningadeild er laus frá 1. júní til 1. okt. eða eftir samkomulagi. Skipulögð fræðslu- starfsemi og möguleikar á rannsóknaverk- efni. Ársstaða aðstoðarlæknis á slysa- og bæklun- arlækningadeild er laus frá miðju sumri eða eftir nánara samkomulagi. Kjörið tækifæri fyrir þá, sem hyggja á nám í heimilislækning- um eða hafa áhuga á bæklunarlækningum. Góð aðstaða til rannsóknastarfa. Upplýsingar um stöðurnar veitir yfirlæknir deildarinnar, Brynjólfur Mogensen dr. med., í síma 696600 eða 69660. Hjúkrunarfræðingur - sótthreinsunardeild Staða aðstoðardeildarstjóra á sótthreinsun- ardeild E-4 er laus til umsóknar nú þegar. Deildin er vistleg þjónustudeild og þar er eingöngu unnin dagvinna virka daga. Upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir, hjúkr- unarframkvæmdastjóri starfsmannaþjón- ustu, í síma 696356. Meinatækna - rannsóknadeild Lausar eru stöður meinatækna við rann- sóknadeild. Upplýsingar veitir forstöðumeinatæknir í síma 696405. Birkiborg Fóstra eða starfsmaður óskast á dagheimilið Birkiborg í afleysingu sem fyst. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 696702. Aðstoðarfólk - röngtendeild Aðstoðarfólk óskast á röntgendeild sem fyrst. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 696433.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.