Morgunblaðið - 07.04.1991, Síða 34
m
MOÉGtWÍBLAÐtÖ' ÍíMfiÉ’WM
ATVINNUAUGí YSINGAR
Fiskvinna
Vant fiskvinnslufólk óskast til starfa.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 98-11084.
Fiskiðjan hf.,
Vestmannaeyjum.
Innskrift - setning
Viljum ráða starfskraft til starfa við innskrift,
helst vanan Linotype setningartölvu.
Borgarprent,
Skeifunni 6,
sími 687022.
Arkitekt
Húsafriðunarnefnd ríkisins óskar að ráða
arkitekt til starfa.
Starfið er fólgið í ráðgjöf við viðgerðir gam-
alla húsa, heimildasöfnun og skráningu eldri
bygginga. Starfsaðstaða verður á Þjóðminja-
safni íslands. Ráðið verður í starfið til reynslu
í eitt ár.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Húsfriðunarnefnd, Þjóð-
minjasafni íslands, pósthólf 1489, 121
Reykjavík, fyrir 22. apríl nk. Umsækjendur
þurfa að geta hafið störf sem fyrst en eigi
síðar en 1. júní nk.
Upplýsingar veitir Lilja Árnadóttir, ritari
Húsafriðunarnefndar, Þjóðminjasafni ís-
lands.
Málmiðnaðarmenn
Klaki
Óskum eftir að ráða starfsfólk við fram-
leiðslu á fiskvinnsluvélum úr ryðfríu stáli.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
fyrirtækisins, Hafnarbraut 25, Kópavogi,
mánudaginn 8. apríl.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Tæknifræðingur/
verkfræðingur
Verkfræðistofa óskar eftir að ráða tækni-
fræðing eða verkfræðing til byggingaeftirlits-
starfa. Iðnaðarmenntun æskileg.
Góð enskukunnátta skilyrði.
Umsóknum um starfið skal skilað á auglýs-
ingadeild Mbl. í síðasta lagi 15. apríl ’91
merktum: „P - 11807“.
Farið verður með allar upplýsingar sem trún-
aðarmál.
Hjúkrunardeildar-
stjori - sjukraliði
Óskum að ráða hjúkrunardeildarstjóra sem
fyrst að hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kumb-
aravogi. Góð vinnuaðstaða, góður vinnu-
andi, heilbrigt og fallegt umhverfi, stutt í
barnaskóla, 40 mín. akstur á höfuðborgar-
svæðið. Einbýlishúsnæði fylgir stöðunni.
Ef þú vilt breyta til, hafðu samband.
Frekari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 98-31213 milli kl. 8.00 og 16.00, utan
vinnutíma í síma 98-31310.
Óskum einnig að ráða sjúkraliða, íbúð fylgir
stöðunni.
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kumbarabogur
er staðsett á Stokkseyri og hefur verið starf-
rækt síðan 1975. Vistmenn eru nú 70.
Meiraprófsbílstjóri
Óskum að ráða meiraprófsbílstjóra.
Upplýsingar í síma 673555.
Sandurhf.
Viðarhöfða 1.
Vélstjórar
1. vélstjóra vantar á Höfrung AK-91.
Upplýsingar í síma 93-11800.
Haraldur Böðvarsson & Co,
sími 93-11800.
Afgreiðslumaður
óskast
Óskum að ráða lipran afgreiðslumann í vara-
hlutaverslun. Leggjum áherslu á þægilegt
viðmót og stundvísi. Góður vinnustaður.
Umsókn, merkt: „Góður vinnustaður - 6892“,
sendist auglýsingaöeild Mbl, fyrir 12/4.
Ungur
vélaverkfræðingur
óskar eftir framtíðarstarfi.
Sérsvið: Vélar og framleiðslustjórnun.
Upplýsingar í hs. 37495 og vs. 641088.
Tónlistarskólinn
á Akureyri
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar:
Staða yfirkennara, kennara í blásaradeild,
tré- og málmblástur, kennara í strengjadeild,
selló og fiðla, kennara í píanódeild, kennara
í Suzukideild, píanó og fiðla.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 1991.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
96-21788.
Ert þú
starfskrafturinn
sem okkur vantar?
- Vaxandi heildverslun óskar eftir að ráða
snyrtisérfræðing eða vanan sölumann til
starfa við sölu á snyrtivörum.
- Ef þú ert sjálfstæður persónuleiki, sem
hefur gaman af því að vinna sjálfstætt
og eiga þátt í ákvarðanatöku við sölu og
markaðsmál, þá er þetta starf fyrir þig.
- Okkur vantar starfskraft sem uppfyllir
eins vel og hægt er eftirfarandi skilyrði:
- Getur fljótt sett sig inn í nýjan markað,
umbúðaþróun - vöruþróun ásamt kynn-
ingastarfsemi.
- Gott væri að viðkomandi hefði eigin bíl
til umráða.
- Við þurfum starfskraft sem getur byrjað
fljótlega uppúr mánaðamótum apríl/maí.
- Starfinu mun fylgja einhver eftirvinna
og/eða helgarvinna.
- Við leitum að persónuleika - góðri fram-
komu og öryggi í starfsmanni okkar
ásamt góðum söluhæfileikum. Á móti
bjóðum við góð laun - góða starfsað-
stöðu ásamt góðum vinnuanda og fram-
tíðarstarf.
Umsóknum með nafni, aldri, heimilisfangi,
símanúmeri og fyrri störfum, ásamt nokkrum
setningum af hverju þú telur þig hæfa(n) í
starf þetta, óskast skilað inn til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 15. apríl nk. merktum:
„Góður sölumaður - 14463“.
Ath. Öllum umsóknum svarað og að sjálf-
sögðu eru allar umsóknir trúnaðarmál.
Beitingamann
vantar
Vanan beitingamann vantar strax á línubát
frá Vestfjörðum. Húsnæði til staðar.
Upplýsingar í símum 94-7688 og 94-7828.
Skipstjóri
með 200 tonna réttindi óskar eftir línu- eða
rækjuskipi.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi svör til auglýs-
ingadeildar Mbl., með nafni fyrirtækisins og
öðrum upplýsingum, merkt: „Skipstjóri -
’91 “ fyrir 25. apríl.
Atvinnurekendur
Ritari með 12 ára starfsreynslu óskar eftir fjöl-
breyttu starfi hálfan daginn fyrir hádegi. Er vön
almennum skrifstofustörfum s.s. ritvinnslu,
bókhaldi og innheimtu á lögfræðiskrifstofu.
Áhugasamir vinsamlegast hringið í síma
82157 eftir hádegi.
Meðferðar/uppeld-
isfulltrúi óskast
í boði er:
1. Mótandi starf.
2. Góð laun.
3. Gott húsnæði.
4. Fæði á staðnum.
Kröfur: Æskilegt að geta búið á staðnum,
sem er skammt frá Reykjavík. Reynsla
og/eða menntun á sviði meðferðar-, uppeld-
is- eða kennslustarfa eða reynsla af starfi
með ungum vímuefnaneytendum. Reglusemi
áskilin.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Umsóknum sé skilað á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Uppeldi - 14466“.
Frá Fræðsluskrifstofu
Norðurlandsumdæmis vestra
Lausar stöður við
grunnskóla
Umsóknarfrestur til 23. apríl 1991
Staða skólastjóra við Grunnskólann á
Blönduósi.
Stöður grunnskólakennara við:
Grunnskóla Siglufjarðar. Meðal kennslu-
greina: íþróttir pilta, sérkennsla og almenn
kennsla.
Barnaskóla Sauðárkróks: Sérkennsla.
Gagnfræðaskóla Sauðárkróks: Hand- og
myndmennt, sérkennsla, danska, raungrein-
ar og almenn kennsla.
Barnaskóla Staðahrepps: Almenn kennsla.
Laugarbakkaskóla: Almenn kennsla, hannyrðir.
Grunnskóla Hvammstanga: íþróttakennsla,
íslenska, almenn kennsla.
Vesturhópsskóia: Almenn kennsla.
Húnavallaskóla: Almenn kennsla, smíðar.
Grunnskólann á Blönduósi. Meðal kennslu-
greina: Danska, stærðfræði, raungreinar,
íslenska, íþróttir og kennsla yngri barna.
Höfðaskóla á Skagaströnd: Almenn kennsla
í yngri og eldri bekkjum og íþróttakennsla.
Steinsstaðaskóla: Almenn kennsla, sér-
kennsla.
Varmahlíðarskóla: Almenn kennsla, sér-
kennsla og enska.
Grunnskóla Akrahrepps: Almenn kennsla.
Grunnskóla Rípurhrepps: Almenn kennsla.
Grunnskólann Hólum: Almenn kennsla.
Grunnskólann á Hofsósi. Meðal kennslu-
greina:, íþróttir, sérkennsla, mynd- og hand-
mennt, tungumál og raungreinar.
Sólgarðaskóla, Fljótum: Almenn kennsla.
Fræðsiustjóri Norðurlandsumdæmis vestra.