Morgunblaðið - 07.04.1991, Síða 46
46
FÓLK í FRÉTTUM SUNNUDAGÚR 7. APRÍL 1991
MORGUNBLAÐIÐ
v sfy:
YFIRGRIPSMIKIL SÖLUSÝNING Á
HÚSGÖGNUM FRÁ LIGNE ROSET
Annar f.v. er Steve Fairbairn, Jón Ásgeir Hreinsson, Gerður Berndsen, Gísli B. Björnsson og Sverrir
Björnsson, en sitt hvoru megin við hópinn eru stöllurnar „Hallgerður og Guðrún Osvífursdætur", sem
afhentu verðlaunin.
BROTNI BLÝANTURINN AFHENTUR
í FYRSTA SINN
UPPAKOMUR
Seigasti teiknarinn, bjartasta vonin, óvenjulegasti ferillinn, skjótasti
ferillinn og besta útlitið. Fimm teiknurum hlotnuðust þessir titlar í
hófi sem Félag íslenskra teiknara efndi til fyrir skömmu, og fengu
þeir afhenta styttuna Lúða.
Gísli B. Björnsson var útnefndur
bjartasta vonin, Steve Fairba-
irn reyndist seigasti teiknarinn, Jón
Ásgeir Hreinsson átti óvenjulegasta
ferilinn, Sverrir Björnsson skjótasta
framann og besta útlitið var á
Gerði Berndsen.
Þetta félag er ekki nýtt af nál-
inni. í því eru auglýsingateiknarar
og myndsjeytingamenn og hefur
félagið verið við lýði síðan 1953.
Félagsmenn nú eru um 110 talsins
og formaður sem stendur er Björn
B. Björnsson.
s t ó l a r
s k á p a r
s ó f a r
h i l l u r
b o r ð
r ú m o. m . f l.
FRUMLEG HÚSGÖGN EN HAGNÝT
Frá 6. apríl og út allan aprílmánud verdur haldin
yfirgripsmikil sölusýning á því nýjasta og mark-
verdasta frá fransha húsgagnafyrirtœkinu Ligne Rnset.
OPIÐ:
LAUGARDAG FRÁ 10-14
SUNNUDAG FRÁ 14-17
Borgartúni 29, sími 20640
NEMEND ALEIKHÚ SIÐ
„Góður og samstilltur hópur“
NEMENDALEIKHÚS Leiklistarskóla íslands sem samanstendur
af lokaársnemum skólans, frumsýnir i Borgarleikhúsi í kvöld
Dampskipið ísland eftir Kjartan Ragnarsson. Þetta er í fyrsta
sinn sem Nemendaleikhúsið setur upp sýningu í Borgarleikhúsinu.
Leikritið gerist skömmu eftir
fyrri heimsstyijöldina um
borð í Dampskipinu Islandi. Far-
þegar eru á leið frá Danmörku
til íslands og lýsir leikritið að
hluta til örlagasögu þeirra. Meðal
farþega eru námsmærin Tina og
glæsikonan Kristie sem reynir í
upphafi að halda fortíð sinni
leyndri fyrir samferðafólkinu. Sjó-
manninn Sigurð langar að mennta
sig meira og hann er argur út í
fátæktina sem hann hefur alist
upp við. Þá eru læknirinn Halldór
og Jóhannes skáld um borð, svo
og hermaðurinn Oddur sem eitt-
hvað er farið að slá út í fyrir í
kjölfar stríðsins. Aðrir farþegar
eru Þóroddur athafnamaður og
María kona hans, óperusöngvar-
inn Pétur og þær Baggesen og
Paulsen. Þau þrjú síðastnefndu
eru ekki leikin af nemendum Leik-
listaskólans heldur Agli Ólafssyni,
Guðnýju Helgadóttur og Önnu
Sigríði Einarsdóttur.
Kjartan Ragnarsson leikstýrir
verkinu. „Krakkarnir eru búnir
að læra heilmikið og það er mjög
gaman að vinna með þeim,“ segir
Kjartan um nemendurna sem nú
útskrifast úr Leiklistarskólan-
um.„Hópurinn er góður og sam-
stilltur.“ Um leikritið segir Kjart-
an: „Skipið (Dampskipið ísland,
innsk. blm.) er eins og form fyrir
borgaralegt samfélag. Drifkraft-
urinn er kona sem hefur lent í
sérstöku starfi erlendis og er kom-
in út úr öllum normum hinna
borgaralegu viðmiða. Fyrir til-
verknað hennar get ég látið reyna
á hina, komið þeim pínulítið úr
skorðum.“