Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 52
Grimhur
L
Landsbanki
Banki allra landsmanna
rogtmWiiWfr
Bögglapóstur
um olll land
PÓSTUROGSÍMI
MOllGUNBLAÐW, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 7. APRIL 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Ráðstefna um málefni Eystrasaltsríkjanna:
Ekkert svar borist
við boði Islendinga
Blindrafélagið:
Fyrsta sam-
býli blindra
FVRSTA sambýli blindra hér á
landi verður opnað í júni í
Reykjavík. Blindrafélagið hefur
keypt hús við Stigahlíð fyrir
starfsemina.
-------------
*
Alversviðræður í
New York:
Samið um
orðalag í að-
’alsamningi
NÁÐST hefur samkomulag um
endanlegl orðalag flestra þeirra
greina í aðalsamningi um bygg-
ingu og rekstur álvers á Keilis-
nesi sem áður voru ófrágengnar.
Enn á eftir að útkljá atriði sem
varða orkuverð og orkusöluskil-
mála, hafnar- og lóðarmál og um
starfsleyfi, en dagskrá fyrir
áframhaldandi viðræður hefur
verið ákveðin og stefnt er að því
að þessum samningum ljúki i lok
maí þannig að Atlantsálshópur-
inn geti hafið lokaviðræður í júní
um fjármögnum framkvæmd-
anna.
Islenska samninganefndin og
ráðgjafar hennar áttu á fimmtudag
og föstudag fund í New York með
samninganefnd Atlantsálshópsins,
lögfræðingum álfyrirtækjanna
þriggja sem hópinn mynda og sér-
fræðingum þeirra um stofnkostnað.
Að sögn Jóns Sigurðssonar iðnaðar-
ráðherra voru þessar viðræður já-
kvæðar og sagðist hann telja að
málið væri nú á öruggri leið. Hann
sagði einnig ljóst að fyrirtækin í
Atlantsálshópnum þurfi að halda
allmarga fundi sín á milli um eign-
arhald og rekstur álvers og gerð
hluthafasamnings, stjórnunar-
samnings og málmbræðslusamn-
ings.
I viðræðunum í New York tóku
þátt af íslands hálfu Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri, Halldór
Kristjánsson skrifstofustjóri í iðnað-
arráðuneytinu og Geir A. Gunn-
laugsson formaður stjórnar mark-
aðsskrifstofu iðnaðaráðuneytisins,
sem allir sitja í samninganefnd um
álver, Baldur Guðlaugsson lögmað-
ur Landsvirkjunar og Garðar Ingv-
arsson framkvæmdastjóri markaðs-
skrifstofu iðnaðarráðuneytis.
í viðtölum Morgunblaðsins við
forystumenn stjórnmálaflokkanna
kemur fram að Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðubanda-
ÓLJÓST er hvort verður af ráð-
stefnu um málefni Eystrasalts-
ríkjanna sem boðuð hafði verið
hér á Iandi eftir heimsókn eistn-
eskra ráðamanna í lok febrúar
síðastliðins. „Við höfum engin
formleg svör fengið frá Eystra-
saltsþjóðunum eftir samráðsfund
lagsins, og Davíð Oddsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, eru andvíg-
ir laga- eða reglusetningu um skoð-
anakannanir. Júlíus Sólnes, formað-
fulltrúa þeirra í Eystrasaltsráð-
inu um hver niðurstaðan hafi
verið,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
í samtali við Morgunblaðið á
föstudag. Eistlendingarnir höfðu
sagt að Eystrasaltsráðið myndi
fjalla um málið.
ur Borgaraflokksins, Steingrímur
Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokks, og Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýðu-
flokks eru hins vegar hlynntir regl-
um. Kristín Einarsdóttir, þingmað-
ur Kvennalista, vill að settar verði
hömlur á birting^u skoðanakannana
í nokkra daga fyrir kosningar.
Sjá „Heilagur sannleikur eða
allt í plati“, bls. 10-14.
Jón Baldvin sagði að svo virt-
ist sem ágreiningur væri milli
Eystrasaltsríkjanna um hvert væri
forgangsatriði í stuðningi íslands
og annarra vestrænna ríkja. Eist-
lendingar legðu aherslu á mála-
miðlunarhlutverk ísiendinga en Lit-
háar vildu formlega viðurkenningu
sjálfstæðis.
Ekki hefur enn orðið af fundi
utanríkisráðherra með Igor Krasa-
vín, sendiherra Sovétríkjanna.
Krasavín var kallaður heim í febrú-
ar til skrafs og ráðagerða í mótmæl-
askyni við stuðning Islendinga við
sjálfstæðisbaráttu Litháa. Sendi-
herrann sneri aftur hingað til lands
fyrir hálfum mánuði og sagði í
fréttatilkynningu frá sovéskum
stjórnvöldum að þau væru reiðubúin
til að hiusta á skýringar íslendinga
á afstöðu þeirra til málefna Eystra-
saltsríkjanna.
Jón Baldvin sagðist gera ráð fyr-
ir því að af fundinum með Krasavín
yrði á næstunni en dagsetning hefði
ekki verið ákveðin. Hann vildi held-
ur engu spá um það hversu langur
tími liði uns stjórnmálasamband
yrði að veruleika milli íslands og
Litháens en Alþingi fól ríkisstjórn-
inni 12. febrúar að efna til slíkra
tengsla svo fljótt sem verða mætti.
Rætt um að
geyma hluta
loðnuhrogna
„Loðnuhrognaframleiðslan
hér var tæp 4 þúsund tonn á
þessari vertíð en 4.100 tonn í
Noregi. Hins vegar er einungis
markaður fyrir 5-6 þúsund tonn
af loðnuhrognum í Japan, sem
er eini markaðurinn fyrir loðnu-
hrogn,“ segir Gylfi Þór Magnús-
son framkvæmdastjóri hjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna. „Til
að koma í veg fyrir verðhrun
höfum við rætt við norska útflytj-
endur um að við geymum um
1.500 tonn af framleiðslu okkar
til næstu áramóta gegn því að
þeir geri slíkt hið sama.“
Gylfi sagði að Norðmenn hafi
ekki svarað því hvort þeir treysti
sér til að halda samkomulag um
að geyma hluta af hrognunum.
Norska tímaritið Fiskaren hefur
haft eftir Oddi Gunnari Olaissen,
stjórnarformanni í Arctic Export,
að þeim berist fjöldi upplýsinga um,
að Islendingar hafi ekki náð að
frysta eins mikið af hrognum og
til stæði og gæðum þeirra sé stór-
lega ábótavant. Indriði Ivarsson,
sölumaður hjá SH, segir fullyrðing-
ar þessar ekkert annað en raka-
lausan áróður, til kominn vegn;
erfiðleika Norðmanna sjálfra vic
loðnuhrognaframnleiðsluna.
---------------------
Lóan
er komin
LÓAN er komin að kveða burt
snjóinn. Heiðlóan, er komin til
landsins. Til hennar sást fyrst á
Hornafirði í lok mars, að sögn
Ævars Petersens fuglafræðings
og á föstudag bárust honum
fyrstu fréttir af henni í Reykja-
vík. Farfuglarnir eru nú smám
saman að koma til landsins og
staðfuglar eru þegar byrjaðir
hreiðurgerð.
Ævar segir, að lóan sé á áætlun
núna, hún komi venjulega um þetta
leyti vorsins.
Fyrsti farfuglinn, sílamávur,
kemur til landsins upp úr miðjum
febrúar. Síðari hluta mars koma
síðan tjaldur og skógarþröstur.
Ævar Petersen segir að frést hafi
af því austan af landi, að einn dag-
inn í marslok hafi skyndilega allt
verið fullt af skógarþresti.
I marslok koma svo grágæs og
álft og um miðjan apríl koma til
dæmis þúfutittlingur, hrossagauk-
ur, steindepill, sandlóa og maríu-
erla, helsingi og blesgæs. I lok apríl
fer krían að láta sjá sig og kjóinn
og spóinn.
Síðustu farfuglarnir eru venju-
lega óðinshani og þórshani. Ævar
segir að það verði athyglisvert að
fylgjast með óðinshananum, því að
talið er að hann fari héðan til Persa-
flóa á veturna. Því verði forvitnilegt
að sjá hvort stríðið þar og mengun
af þess völdum hafi haft áhrif á
stofninn.
Staðfuglarnir eru fyrstir til að
verpa og venjulega ríður hrafninn
á vaðið og kveðst Ævar hafa heyrt
þess dæmi að hann hefji hreiður-
gerð um miðjan febrúar. Fyrir
skömmu hafði hann fregnir af
krumma að byggja sér laup á Lista-
safni Einars Jónssonar. Varptími
lóunnar hefst upp úr miðjum maí-
mánuði.
Nefnd menntamálaráðherra:
Lög um skoðanakaiman
ir fá lítinn hljómgrunn
SETNING laga eða reglna um framkvæmd og birtingu skoðanakann-
ana hefur lítinn hljómgrunn í nefnd menntamálaráðherra, sem fjall-
að hefur um málið, áð sögn dr. Þorláks Karlssonar, starfandi for-
manns nefndarinnar. Hins vegar hafa verið ræddar hugmyndir um
að þeir aðilar, sem standa að skoðanakönnunum, myndi með sér
samtök og setji sér siðareglur.