Morgunblaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991
Ajungilak sængin er fyllt með mjúkri Quallofil fyllingu,
sem andar vel og má þvo við 60° C. 5 ára ábyrgð segir
allt um gæðin. Gegn framvísun Ajungilak tilboðsins í
Tilboðstíðindum færðu Ajungilak Quallofil
draumasæng á aðeins 9320 kr.
HEIMILISKAUP H F
• HEIMIUSTÆKJADEILD FALKANS •
Suðurlandsbraut 8 - sími 84670
Umboðsmenn um land allt.
3 góbar
fermingar-
gjafir
rljlllHjÍhlk. draumasæng og koddar.
GRUIIDIG rakvél.
Með hleðslutæki og ferðaöskju.
aðeins 5.180 kr.
14 tonimu litasjónvarp
tilbúið beint inn í herbergi með fjarstýringu
og inniloftneti. Mjög skörp myndgæði.
Verð aðeins 26.990 kr. stgr.
„Skipulegt kaos“ í
kortaviðskiptum
eftir Einar S.
Einarsson
Greiðslukortaviðskipti, en þó
aðallega „fyrirtímann“, hafa orðið
að hitamáli eina ferðina enn. Því
er ekki úr vegi að varpa örlitlu
ljósi á málið frá sjónarhóli þeirra
sem ábyrgð bera á þessum við-
skiptum. Máli þessu er síður en
svo stefnt gegn kaupmönnum né
heldur korthöfum, heldur er hér
einungis um það að ræða að kom-
ið verði á föstu og samræmdu
skipulagi sem hentar okkar mark-
aðsaðstæðum og innkaupavenjum
neytanda.
Það var að marggefnu tilefni
og vegna ítrekaðra tilmæla frá
Kaupmannasamtökum íslands og
ýmsum stórmörkuðum utan
þeirra, að brugðist var við þessum
uppsafnaða vanda um síðir, og
gefin út orðsending, þar sem gefið
var í skyn að búast mætti við því
að fylgt yrði fastar fram ákvæðum
samstarfssamnings um upphaf og
endi úttektartímabila í greiðslu-
kortaviðskiptum.
Flýting kortatímabila að frum-
kvæði einstakra verslana, á
ábyrgð kortafyrirtækjanna en ekki
þeirra sjálfra, eins og haldíð hefur
verið fram, hafa haft keðjuverk-
andi áhrif, eins nýleg dæmi sanna.
Æ lengra hefur verið gengið í
þessum efnum. Þetta hefur leitt
til mikils óróa á markaðnum og
megnrar óánægju þeirra kaup-
manna, sem fylgja vilja reglum.
Margir korthafar kæra sig ekki
Einar S. Einarsson
„Það er mjög brýnt að
„kortatímbil kaup-
manna“ og „heimilda-
tímabil korthafa“ fari
saman, svo unnt sé að
tryggja nauðsynlegt
öryggi og eins það að
öll viðskipti geti gengið
eðlilega og ótruflað fyr-
ir sig.“
heldur um þá óreglu sem af þessu
hlýst og eins eru aðrir sem af
misskilningi efna til innkaupa í
þeirri góðu trú að nýtt úttekt-
artímabil sé gengið i garð alls stað-
ar. Sumir kaupmenn vita oft ekki
á hvaða róli þeir eru reikningslega
séð. Það sama gildir um korthafa
fjárhagslega séð.
Jafnt í viðskiptalífinu sem á
leikvelli ber að halda ákveðnar
reglur í heiðri. Þeir sem ekki virða
leikreglur, þjófstarfa í keppni,
dæma sig sjálfir úr leik. Að gera
upphaf úttektartímabila greiðslu-
korta að samkeppnisatriði kann
ekki góðri lukku að stýra fyrir
neinn til langframa. Hringlanda-
háttur býður hættu heim.
Með hliðsjón af því hve notkun
greiðslukorta er orðin almenn, er
engu að síður ljóst að sveiga þarf
úttektartímabil þeirra betur að
markaðsaðstæðum og innkaupa-
venjum neytenda. Því hefur VISA
í síðari tíð boðið þeim söluaðilum,
sem tekið hafa upp rafræn korta-
viðskipti (POSA) að gera sérstakt
samkomulag um „föst frávik“ frá
aðalsamningi um breytileg úttekt-
artímabil.
Meginregla þeirrar tilhöfungar
'er sú að betri tímabilaskipti (þ.e.
17. og 18.) upp á helgi eða lok-
unadrdag, færist upphafsdagur
úttektartímabils fram um tvo daga
og hefst að jafnaði næsta fimmtu-
dag á undan, en í desember þó
viku fyrr. Því gefst þeim kaup-
mönnum, sem það vilja, nú kostur
á því að velja milli tveggja reglna:
Reglu A: Almenns úttekt-
artímabils 18.—17. næsta mán.
Reglu B: Breytilegs tímabils
sbr. eftirfarandi töflu:
Apríl 1991 - Janúar 1992
FIM 18.4.91 _ 15.5.91
FIM 16.5.91 — 12.6.91
FIM 13.6.91 — 17.7.91
FIM 18.7.91 — 14.8.91
FIM 15.8.91 — 17.9.91
MIÐ 18.9.91 — 16.10.91
FIM 17.10.91 — 13.11.91
FIM 14.11.91 — 10.12.91
MIÐ 11.12.91 — 15.1.92
FIM 16.1.92 12.2.92
Komið hefur fram að kaup-
mönnum þykir það mikil hvati til
viðskipta að geta hafið ný úttekt-
artímabil fyrir helgar en ekki á
mánudegi, þegar svo ber undir.
Þetta hentar líka mörgum korthöf-
um vel. Hin nýja skipan leysir
þennan vanda fyrir þá sem það
kjósa.
Þvi eru vonir við það bundnar
að með þessu breytta fyrirkomu-
lagi hafi verið fundin sú málamiðl-
un í þessu máli, sem flestir söluað-
ilar geta sætt sig við og treysta
sér til að framfylgja.
Hafa ber í huga í þessu sam-
bandi nauðsyn þess að allar við-
miðanir í kortakerfunum, bæði
hvað heimildamörk og dagsetning-
ar snertir, séu í samræmri við
markaðinn. Með öðrum orðum,
það er mjög brýnt að „kortatímbil
kaupmanna" og „heimildatímabil
korthafa“ fari saman, svo unnt sé
að tryggja nauðsynlegt öryggi og
eins það að öll viðskipti geti geng-
ið eðlilega og ótruflað fyrir sig.
Þær verslanir sem auglýsa opin-
beiiega ný úttektartímabil í trássi
við umsamdar reglur, geta hér
eftir búist við því að á það verði
litið sem frágangssök.
Þess er þó vænst að allir sem
þetta mál varðar verði sammála
um það að best sé að hafa sam-
ræmda reglu á hlutunum, skipu-
lagt kaos í stað glundroða.
Gleðilegt sumar.
Ilöfundur er framkvæmdastjóri
VISA á íslandi.
ÁTT ÞÚ MUNI EÐA
MYNDIR SEM TENGJAST
SÖGU OG STARFI
RAUÐA KROSSINS
Á ÍSLANDI?
í sumar höldum við yfirlitssýningu um sögu
Rauða krossins á íslandi og nú heitum við á
alla sem kunna að eiga í fórum sínum muni
eða myndir sem tengjast Rauða krossinum á
íslandi að koma okkur til hjálpar svo
sýningin geti orðið sem veglegust.
Látið okkur vita sem fyrst ef þið getið lánað
okkur sýningargripi eða ef þið getið bent
okkur á hvar slíkir gripir kunni leynast.
Hafið samband við Ólaf Oddsson eða Jóhann
Pétur Jónsson á skrifstofu Rauða krossins að
Rauðarárstíg 18, Reykjavík eða í síma
91-26722 alla virka daga frá kl. 9 til 17.
+
Rauði kross íslands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722