Morgunblaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 58
58
lyiORqy^BLAÐIÐ ÞRIÐjypApUR ,23. APRjL ,1991
t
Bróðir okkar,
ÞORSTEINIM EINARSSON
bifvélavirki frá Bjarmalandi,
Hamrahlíð 25,
andaðist í Landspítalanum 21. apríl.
Hólmfríður Einarsdóttir,
Snorri Einarsson.
t
Systir mín,
AUÐUR HELGA ÓSKARSDÓTTIR,
Skúlagötu 40A,
andaðist 22. apríl á Landspítalanum. Jarðarförin auglýst síðar.
Bent Scheving Thorsteinsson.
t
Eiginkona mín,
HÓLMFRÍÐUR MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
Asparfelli 12,
Reykjavík,
andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudagsins 21. apríl.
Útför auglýst síðar.
Sigurður Runólfsson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÓLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Baldursgötu 26,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum 21. apríl. Jarðarförin auglýst síðar.
Pétur H. Karlsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför
t
HARÐAR JENS HARALDSSONAR,
Laugarnesvegi 112,
Reykjavik,
fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 24. apríl nk. kl. 15.00.
Þeir sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á Slysa-
varnafélag íslands. Brynhildur Jóhannsdóttir,
Brynja Harðardóttir,
Haraldúr Harðarson,
Maríanna Halldórsdóttir.
Faðir minn,
t
GUNNAR A. PALSSON
hæstaréttarlögmaður,
Blómvallagötu 13,
andaðist í Landspítalanum i Reykjavík 15. apríl sl. Jarðarför hans
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 26. apríl
kl. 10.30.
Kjartan Gunnarsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÓN GUÐNI GUÐMUNDSSON
frá Hellissandi,
lést á Hrafnistu 17. apríl. Minningarathöfn fer fram í Fella- og
Hólakirkju, Asparfelli 8, miðvikudaginn 24. apríl kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Ingjaldshóli laugardaginn 27. apríl kl. 14.00.
Rútuferð verður frá Hópferðamiðstöðinni, Bíldshöfða kl. 8.00
sama dag.
Sigurjóna Daneliusdóttir,
Birna Axelsdóttir, Guðmundur Gíslason,-
Grétar Friðleifsson, Guðjóna Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJARNI LOFTSSON
frá Hörgslandi á Siðu,
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu föstudaginn 26. apríl nk.
kl. 13.30.
Þorsteinn Bjarnason, Þórhildur Sigurðardóttir
Guðrún Bjarnadóttir,
Ragnhildur Bjarnadóttir Hafstad, Kjell Hafstad,
Þorbjörg Bjarnadóttir,
Einar Bjarnason, Dóra Guðjónsdóttir,
Anna Sigríður Bjarnadóttir, Árni Reynisson,
Loftur Páll Bjarnason, Gyða Þórólfsdóttir,
Hilmar Bjarnason, Hafdís ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Vilborg Ólafs-
dóttir - Minning
Fædd 20. júní 1912
Dáin 16. apríl 1991
Það var alltaf bjart yfir Vilborgu,
hvernig sem á stóð fyrir henni. Hún
var fríð sýnum, vel greind, broshýr,
skapgóð, glaðlynd, og hafði gott
skopskyn, án þess að leggja illa til
nokkurs manns.
Foreldrar hennar voru Ólafur
Isleifsson skipstjóri, frá Arnarstöð-
um í Flóa, og kona hans Stefanía
Pálsdóttir frá Neðra-Dal í Biskups-
tungum. Var Vilborg næstelst
barna þeirra. Elstur var ísleifur
skipstjóri, þá Svava húsmóðir, Ólaf-
ur ísleifs og Guðmundur; tvö dóu
á unga aldri.
Tvítug giftist Vilborg Sigurði
bróður mínum. Hugur hans hneigð-
ist snemma að sjónum, eins og
hann átti kyn til. Að loknu prófi frá
Stýrimannaskólanum sigldi hann
lengi á togurum, en að því kom að
hann vildi sigla eigin skipi, og
keypti, ásamt mági sínum, einn
hinna svonefndu Svíþjóðarbáta.
Gekk sú útgerð ekki að vonum, svo
þeir losuðu sig við bátinn, þá skuld-
lausir. Eftir það stundaði Sigurður
ýmis konar vinnu í landi, en síðast
var hann starfsmaður í endurskoð-
unardeild Landsbanka íslands.
Hjónaband þeirra Vilborgar og
Sigurðar var farsælt. Börn þeirra
eru Óiafur Stefán, lögfræðingur,
nú sparisjóðsstjóri í Kópavogi, kona
hans er María Steingrímsdóttir ljós-
móðir, Þórður Örn, M.A. frá Edin-
borgarháskóla, hans kona er séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir; Bryn-
hildur, sem dó tveggja ára 1942;
Brynhildur Ósk, hjúkrunarforstóri
á Hrafnistu í Hafnarfirði, gift séra
Sigurði H. Guðmundssyni.
Sigurður dó um aldur fram á
sextugsaldri. Vilborg undi illa iðju-
leysinu á ekknaárunum og stundaði
ýmiskonar störf, meðan heilsan
leyfði, lengst af hjá Mjólkursamsöl-
unni. Hennar yndi voru börnin og
Blómastofa
Fnöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöld
til kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og vai legsteina.
!B S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
■ SKEMMUVEGI48. SIMI76677
barnabörnin, sem öll eru hin mann-
vænlegustu.
Vilborg var ástsæl af vinum og
frændfólki og verður minninghenn-
ar því öll á einn veg.
Óskar Þ. Þórðarson
Oft verður mér af vana gengið hér
sem von á því ég eigi,
að gömul kvæði hlaupi móti mér
á miðjum Laugavegi.
Með vini mínum eitt sinn átti ég þar
í æsku minni heima,
og marga glaða minning þaðan bar,
sem mér er ljúft að geyma.
Þessar ljóðlínur úr kvæðinu Við
Laugaveginn eftir Tómas Guð-
mundsson koma upp í hugann, nú
þegar við fylgjum ömmu okkar,
Vilborgu Ólafsdóttur, til grafar.
Hún var Reykvíkingur, fædd í
Vesturbænum, en fluttist í barn-
æsku með foreldrum sínum á Grett-
isgötuna. í námunda við Laugaveg-
inn bjó hún röskan helming ævi
sinnar. Þangað fór hún oft í bæjar-
ferðir, sér til ánægju, sérstaklega
nú á efri árum.
Amma var dugmikil o'g trygglynd
kona, sem var þekkt fyrir að fara
ekki ætíð troðnar slóðir. Hún hafði
mikið dálæti á ljóðlist, las mikið og
átti margar bækur.
Við biðjum almáttugan Guð að
geyma ömmu á Rauðalæk og von-
um að hún og afi séu loksins sam-
einuð á ný.
Siggi og Bogga
Kveðjuorð:
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
Hún amma mín er dáin! Þegar
ég var sjö ára raskaðist jafnvægi
tilveru minnar og þá var sannarlega
gott að eiga ömmu. Ég bjó hjá henni
í eitt ár og hún hafði mikil og góð
áhrif á mig. í mínum huga er hún
hin fullkomna amma, alltaf svo já-
kvæði, hlý og góð. Og alltaf átti
hún eitthvað gott að borða.
Hennar líf snerist um að sinna
öðrum, en þótt hún væri mikil hús-
móðir var hún líka andans kona.
Ávallt gat hún vitnað í viðeigandi
kvæði eða málshátt. Hún hafði sínar
föstu skoðanir á flestum málum.
Ég man til dæmis greinilega þegar
hún var að skýra út fyrir mér og
fordæma sprengjuárásir Banda-
ríkjamanna á Víetnam. Hún sá því
vel bæði fyrir líkamlegum og and-
legum þörfum mínum þetta ár.
Kenndi mér að baka bara pönnu-
kökur og hugsa jákvætt.
Þegar afi dó var eins og amma
vildi kveðja líka. Hún hafði ekki
lengur neinn annan að hugsa um.
Mér þykir leitt að hafa ekki getað
verið meira hjá ömmu síðustu árin.
Minningin lífir!
Trausti Valdimarsson, Svíþjóð.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
MAGNÚS H. JÓNSSON
frá Bolungavík,
síðast á Hrafnistu í Reykjavík, andaðist i Borgarspítalanum 20.
apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börn og tengdabörn.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
VALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
áður Reynimel 65,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 21. apríl.
Valdimar Kristinsson, Valborg Stefánsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR HJ. SIGURÐSSON,
Hlíf 2,
ísafirði,
lést á Landspítalanum'20. apríl.
Þorvaldína Jónasdóttir,
Sigurður G. Sigurðsson,
Brynjólfur Sigurðsson,
Elín Sigurðardóttir,
Þórarinn Sigurðsson.