Morgunblaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐTOÐM3UR 23. 'APRÍL lð91
Doktor í félagsfræði
GUÐRÚN Kristinsdóttir lagði föstudginn 12. apríl sl. fram doktors-
ritgerðina „Child Welfare and Professionalization" við háskólann
í Umeá í Svíþjóð. Andmælandi við doktorsvörnina var Sune Sunes-
son prófessor í félagsráðgjöf við háskólann í Lundi.
Formannafundur Landssambands lögreglumanna:
*
Oviðunandi launakjör
Ritgerðin fjallar um þróun
barnaverndar og áhrif fagvæðing-
ar á þetta svið félagsþjónustunn-
ar. Barnaverndarstarf í Reykjavík
og í fámennum íslenskum sveitar-
félögum var rannsakað. Ýmsir
vankantar, sem fram komu í þró-
uðu barnaverndarstarfi, líktust
erfiðleikum, er hafa komið fram
í skandinavískum rannsóknum.
Það virtist gilda bæði um barna-
verndarstarf, sem unnið var af
fagmönnum og leikmönnum, að
börnum var ekki veitt nægileg
athygli.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1965 og kennaraprófi frá Kennar-
askóla íslands ári síðar starfaði
Guðrún Kristinsdóttir sem kenn-
ari. 1973 lauk hún prófi í félagsr-
áðgjöf frá Den Sociale Hojskole í
Óðinsvéum. Guðrún starfaði um
árabil í Reykjavík á ýmsum svið-
um heilbrigðis- og félagsþjónustu,
m.a. sem yfirmaður fjölskyldu-
deildar Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar 1979 til árs-
loka 1985, auk þess sem hún var
stundakennari við Háskóla íslands
frá árinu 1978. Kennsluárið
1987/88 gegndi Guðrún starfi
kennslustjóra í félagsráðgjöf við
Dr. Guðrún Kristinsdóttir
Háskóla íslands. Hún stundar nú
kennslu og rannsóknir við félags-
ráðgjafardeild háskólans í Umeá.
FUNDUR formanna aðildarfélaga
Landssambands lögreglumanna
sem haldinn var á Grettisgötu 89,
Reykjavík, 5. apríl 1991 ályktar
eftirfarandi:
Launakjör lögreglumanna eru
óviðunandi og lítilsvirðandi fyrir fólk
sem gegnir áhættusömu og ábyrgð-
armiklu starfi. Þessa þróun í launa-
málum má rekja bæði til launastefnu
að undanförnu þar sem þjóðarsáttar-
samningarnir hafa reynst haldlitlir
og til mikils samdráttar í löggæslu.
Launakjör stéttarinnar eru komin úr
öllu samhengi við verðlag í landinu
og til þess eins fallin að hrekja reynda
og fullmenntaða lögreglumenn úr
starfi einmitt þegar þörfin fyrir slíkt
vinnuafl er mest, vegna breyttrar
löggjafar.
Harðlega er mótmælt þeirri lítils-
virðingu sem lögreglumönnum er
sýnd með því að dómsmálaráðuneytið
og lögreglustjórar víða um land bijóta
ákvæði nýrra laga um lögreglumenn
sem komu til framkvæmda 1. júlí
1990 og eiga að tryggja menntun
starfandi lögreglumanna.
Fundurinn undrast það áhugaleysi
sem stjórnmálamenn sýna málefnum
löggæslunnar sem þó kostar ríkissjóð
um tvo milljarða á ári eða um 10%
ríkisútgjaldanna skv. nýjum upplýs-
ingum frá fjármálaráðuneytinu. Af-
lýsa varð fyrirhugaðri ráðstefnu LL
um áhrif stjórnmálaflokka á löggæsl-
una þar eð einungis þrír stjórnmála-
flokkar sáu ástæðu til að tilkynna
þátttöku.
Mótmælt er harðlega þeirri stefnu
stjórnvalda að efla ekki löggæsluna
þegar almenn vá gengur yfir landið,
sbr. óveðrið sem gekk yfír nú í vet-
ur. Þá voru kvaddar til aðstoðar allar
tiltækar björgunar- og hjáiparsveitir
en lögregíumenn voru ekki kailaðir
til starfa.
TILKYNNINGAR
Frá Alþingi
íbúð f ræðimanns
í Kaupmannahöfn skv. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv.
reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus
til afnota tímabilið 1. september 1991 til 31.
ágúst 1992. Fræðimenn, sem hyggjast
stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum
í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt
af íbúðinni, sem er í St. Paulsgade 70 (ör-
skammt frá Jónshúsi). Hún er þriggja her-
bergja (80 fm), en auk þess hefur fræðimað-
urinn vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúðinni fylg-
ir allur nauðsynlegur heimilisbúnaður og er
hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í
íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til
greina kemur skemmri tími eða lengri eftir
atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til
skrifstofu Alþingis eigi síðar en 15. maí nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi
með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og
menntun og fyrri störfum. Ennfremur hvenær
og hve lengi óskað er eftir íbúðinni. Tekið
skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að
dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að
fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu
Alþingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og í
sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Aðalfundur Stýrimanna-
félags íslands
verður haldinn í Borgartúni 18 í kvöld, þriðju-
daginn 23. apríl, kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagálögum.
KVÓTI
Kvóti
Þorsk- ýsu- eða ufsakvóti óskast í skiptum
fyrir 20 tonna kolakvóta. Einnig óskast ufsa-
kvóti til leigu innan ársins.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„T 9353“, fyrir 26/4. Upplýsingar í síma
97-31143, (Friðrik eða Reynir).
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Útboð - málun
Tæknideild Granda hf. óskar eftir tilboðum
í málun utanhúss á Fiskvinnsluhúsi fyrirtæk-
isins við Grandagarð 8, Reykjavík.
Tilboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Granda hf., Norðurgarði 101, frá og með
þriðjudeginum 23. apríl.
Tilboðin verða opnuð hjá Tæknideild Granda
hf. á sama stað mánudaginn 6. maí kl. 11.00.
Útboð
Húsfélagið, Vesturbergi 94-102, Reykjavík,
óskar eftir tilboði í viðhald húsanna við Vest-
urberg 94-102.
Helstu verkþættir eru:
STO múrklæðning og einangrun, um 960 fm.
Mála glugga, 1.470 m.
Endursteypa .inngangsskýla 5 stk.
Endurnýja rúður og opnanleg fög.
Verklok 15. ágúst 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá al-mennt hf.,
Háteigsvegi 7, sími 22344 gegn 5000 kr.
skilatryggingu og verða þau opnuð á sama
stað mánudaginn 29. apríl kl. 14.00.
sDfl-nDoœQQmö
#
Tilboð
Til sölu húseign
og bifreiðageymsla á Akranesi
Kauptilboð óskast í Kirkjubraut 10,
Akranesi.
Stærð húseignarinnar er 338 rúmm. og bif-
reiðageymslunnar 248, rúmm. Eignirnar
verða til sýnis í samráði við Svan Geirdal,
yfirlögregluþjón, Akranesi, (s. 93-11166).
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofan-
greindum aðila og á skrifstofu vorri. Tilboð-
um sé skilað til skrifstofu vorrar í Borgartúni
7, Reykjavíkfyrirkl. 11 .OOf.h. 29. apríl 1991.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS
DORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK _
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Árshátíð
Sjálfstæðisfélögin i Rangárvallasýslu halda hina árlegu árshátíð sína
á Hvoli, Hvolsvelli, síðasta vetrardag, 24. apríl nk., og hefst hún kl.
21.00.
Meðal skemmtiatriða:
Þorsteinn Pálsson, alþingismaður, flytur ávarp.
Halli og Laddi skemmta.
Guðmar og Rúnar leika fyrir dansi.
Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði. Venjubundnar veitingar.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Rangárvallasýslu.
Rangárvallasýsla
Aðalfundur Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rangárvalla-
sýslu, verður haldinn sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 25. apríl kl.
17.00 I Hellubiói. Hefðbundin aðalfundarstörf.
Fjölnir, félag ungra sjálfstæðismanna i Rangárvallasýslu.
FÉLAGSLÍF
□ HELGAFELL 59914237 IVAf 2
□ HAMAR 59914237 - LOKAF.
I.O.O.F. 8 = 1724247 = 7'h I
I.O.O.F. Rb. 1 = 1404238 - 9.II.
□ EDDA 59912347 - 1 Frl. Atkv.
□ SINDRI 59912347 - LF.
r1^
EU ÚTIVIST
GRÓFINHI1 • REYKJAVÍK • &ÍMIAÍMSVARI 14606
Spennandi skíðaganga
fyrir frískt fólk 25.-28. apríl.
Gengið með viðleguútbúnað frá
Húsafelli yfir Kaldadal á Þing-
velli. Gist í tjöldum. Fararstjóri
Óli Þór Hilmarsson.
Húsafell og nágr.
25.-28. apríl. Farið í hellana í
Hallmundarhrauni: Surtshelli og
Stefánshelli. Gengið niður með
Norðlingafljóti: Barnafoss og
Hraunfossar. Gengið á Strút ef
veður leyfir. Fróðleg og
skemmtileg ferð. Fararstjóri
Ingibjörg Ásgeirsdóttir.
Úlfljótsvatn
27.-28. apríl. Gengið um Grafn-
ing: Úlfljótsvatnsfjall, Þingvalla-
vatn, Skinnhúfuhöfði, en þetta
er fallegt svæði sem býður upp
á marga athyglisverða staöi.
Stutt ferð á hagstæðu verði sem
skilur mikið eftir. Fararstjóri
Björn Finnsson.
Áhugahópurum Ítalíuferð
Rabbfundur með fararstjóra 24.
april kl. 20.00 á skrifstofu Útivist-
ar, Grófinni 1. Mætið á staðinn,
kynnist hópnum og hafið áhrif á
skipulagningu ferðarinnar.
Aðalfundur Útivistar
verður haldinn 29. april á Hall-
veigarstöðum. Spennandi kosn-
ing í kjarna og nefndir. Mikilvæg-
ar lagabreytingar. Mætið og
hafið áhrif á gang mála.
Sjáumst!
AD-KFUK
Fundur i kvöld kl 20.30 í Langa-
gerði 1. Biblíulestur i umsjá
Katrinar Þ. Guðlaugsdóttur.
Kaffi eftir fund.
Allar konur velkomnar.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 - & 11798 -1953.'
Þriðjudagur 23/4 kl. 20.30
Kvöldvaka um íslenska
hraunhella ikvöld
í Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Einstakt tækifæri til að kynnast
undraheimi íslenskrar náttúru
neðanjarðar. Góð myndasýning
og frásögn Björns Hróarssonar,
jarðfræðings. Kaffiveitingar i
hléi. Aðgangseyrir kr. 500 (kaffi
og meðlæti innifalið). Allir vel-
komnir, félagar sem aðrir.
Sumrifagnaðí
Landmannalaugum
Skiðagönguferð 25.-28/4
Brottför á sumardaginn fyrsta
kl. 8. Gengiðfrá Sigöldu. Kynnist
Landmannalaugum i vetrarbún-
ingi. Gist í upphituðu sæluhúsi
Fi. Upplýs. og farm. á skrifst.
Apríltilboð á eldri árbókum
Til loka april verða sett af árbók-
um Fí (1928-1990) seld með
50% staðgreiðsluafslætti. Ath.
tilboðið gildir eingöngu ef allar
bækurnar eru keyptar. Nánari
upplýsingar á skrifstofunni,
Öldugötu 3, símar 19533 og
11798. Fax 11765.
Ferðafélag islands.