Morgunblaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991
Kvennalistinn:
Tilbúinn í stjórn sem hef-
ur það að meginmarkmiði
að hækka lægstu launin
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
oddviti Kvennalistans í Reykja-
vík, segir að flokkurinn sé tilbú-
inn að ganga til viðræðna við
stjórnarflokkana um þátttöku í
ríkisstjórn, sem hafi það að meg-
inmarkmiði að bæta kjör hinna
Iægstlaunuðu. Náist samkomulag
um þetta muni Kvennalistinn
ekki selja sig gegn samningum
um álver náist fram viðunandi
raforkuverð og mengunarvarnir;
eða evrópskt efnahagssvæði, sé
tryggt að þjóðarhagsmunum
verði ekki fórnað.
Kvennalistinn tapaði nokkru
fylgi í alþingiskosningunum og ein-
um þingmanni. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir sagði við Morgunblaðið,
að kvennalistakonur hefðu ekki ver-
ið ekki sáttar við úrslit kosning-
anna. „Við höfðum fengið jákvæð
viðbrögð og fundið fyrir miklum
stuðningi og gerðum okkur vonir
um að halda óbreyttum þingstyrk
að minnsta kosti. Okkur þykir mjög
miður að missa út góðar lands-
Þorsteinn Pálsson:
Viðunandi niður-
staða fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn
„FLOKKURINN nær sínu
gamla meðalfylgi í þessum
kosningum. Vafaiaust hafa
það verið vonbrigði fyrir ýmsa
að staðan skyldi ekki vera
sterkari, eins og vísbendingar
voru um, en ég held að þetta
sé alveg viðunandi niðurstaða
fyrir Sjálfstæðisflokkinn,"
sagði Þorsteinn Pálsson, fyrsti
þingmaður Sunnlendinga, í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Olafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins:
alltaf verið í þessari nálægð við
meðaltalsfylgi flokksins í kosning-
um. Við settum okkur það mark-
mið að endurheimta þriðja þing-
sætið og vissum að það yrði mjög
erfitt vegna breyttra kosninga-
reglna, en það tókst og við erum
mjög ánægðir með það,“ sagði
Þorsteinn Pálsson.
Morgunblaðið/Júlíus
Þingflokkur Samtaka um kvennalista á fundi, f.v.: Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Vestfjörðum, Anna
Ólafsdóttir Björnsson Reykjanesi, Kristín Einarsdóttir Reykjavík, Guðrún J. Halldórsdóttir varaþing-
kona Reykjavík og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir með son sinn.
Vilji þjóðarmnar að ríkissljóm-
arsamstarfinu verði haldið áfram
OLAFUR RAGNAR Grímsson formaður Alþýðubandalagsins segir
að úrslit alþingiskosninganna boði tvímælalaust það, að þjóðin
vilji að Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur
haldi áfram ríkisstjórnarsamstarfi. Hann segir ástæðulausan ótta
formanns Alþýðuflokksins, um að slík stjórn muni ekki tryggja
framgang þeirra mála, sem Alþýðuflokkurinn leggur mesta áherslu
Þorsteinn var spurður um hans
mat á stöðunni nú í stjórnmálun-
um. „Það náðist að vísu ekki að
fella meirihluta stjómarflokkanna.
Hins vegar hafa þeir að mínu
mati ekki starfhæfan meirihluta
og það væri því eðlilegast að þeir
segðu af sér. Að öðru leyti er þetta
auðvitað óráðið,“ sagði hann. „Það
væri vitaskuld mjög öndvert við
niðurstöður kosninganna að ríkis-
stjórn yrði mynduð án þátttöku
Sjálfstæðisflokksins."
Hann sagði að miðað við niður-
stöðuna á landsvísu séu úrslit á
Suðurlandi mjög þokkaleg fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. „Við höfum
Þorsteinn Pálsson
á.
Alþýðubandalagið bætti við sig
einum þingmanni í kosningunum
og jók fylgi sitt um 1% á landsv-
ísu. Ólafur Ragnar Grímsson sagð-
ist, í samtali við Morgunblaðið á
mánudag, fagna þessum úrslitum.
„Flokkurinn kemur frá þessum
kosningum sterkari og samhentari
en hann hefur verið um langt ára-
bil. Við bætum mest við okkur af
stjómarflokkunum og eigum nú í
fyrsta sinn síðan 1978 þingmenn
í öllum kjördæmum landsins.
Það er einnig athyglisvert að í
helmingi kjördæmanna var fylgis-
aukning Alþýðubandalagsins
ýmist mest eða næstmest allra
flokka. Fór t.d. fram úr fylgisaukn-
ingu Sjálfstæðisflokksins á Suðurl-
andi og Vesturiandi, og árangur
formanns þingflokks okkar,
Margrétar Frímannsdóttur, og nýs
forustumanns okkar á Vesturl-
andi, Jóhanns Ársælssonar, var
mjög glæsilegur.
Þessi niðúrstaða er líka mjög
merkileg í ljósi þess að undanfarin
misseri hafa verið tími þó nok-
kurra erfiðleika hjá flokknum. En
við höfum haldið okkar striki og
unnið okkur út úr þeim erfiðleik-
um. Forustumenn BHMR skoruðu
t.d. á sína félaga að kjósa flokkinn
ekki. Nokkrir einstaklingar gengu
úr Alþýðubandalaginu til liðs við
Alþýðuflokkinn, og töldu að þar
væri framtíðarland að finna. Nið-
urstaða kosninganna varð hins
vegar sú, að Alþýðubandalagið
bætti við sig þrisvar sinnum meira
fylgi en Alþýðuflokkurinn, og þrátt
fyrir erfið verkefni í ríkisstjórn og
þennan andróður kemur flokkurinn
sterkari út úr þessum kosningum
en hann hefur verið í langan tíma.
Þetta er mjög dýrmæt traustsyfir-
lýsing fyrir framhaldið, því að við
höfum lagt áherslu á að sýna ár-
angur og tala mjög skýrt um það
sem við viljum gera næst.“
Þegar Ólafur var spurður hvort
hann liti svo á, að kosningaúrslitin
sýndu að hann og stefnumál hans
hefðu orðið ofaná í flokknum,
sagðist hann telja þau traustsyfir-
lýsingu við þá stefnu sem hann og
félagar hans í flokknum hefðu sýnt
í verki. Hann sagði einnig mikið
af ungu fólki hefði komið til liðs
við Alþýðubandalagið fyrir kosn-
ingarnar og það væri staðfesting
á að flokkurinn væri á réttri braut.
Aðspurður sagðist Ólafur Ragnar
ekki telja, að staðbundin mál hefðu
haft áhrif á fylgi flokksins í ein-
stökum kjördæmum.
Um nýja ríkisstjórn sagði Ólafur
Ragnar, að Alþýðubandalag, Al-
þýðuflokkur og Framsóknarflokk-
ur hefðu lagt upp í björgunarleið-
angur 1988, síðar með aðstoð
Borgaraflokksins. Þessi leiðangur
hefði tekist einstaklega vel, þannig
að ísland væri nú eitt það sið-
menntaðasta í hagstjórn.
„Það stóra gerist svo, að þessir
þrir flokkar fá meirihluta í þing-
inu. Þrátt fyrir dramatísk form-
annsskipti í Sjálfstæðisflokknum
fær hann verri útkomu nú en í 13
kosningum í sögu sinni. Þess vegna
tel ég úrslitin tvímælalaust boða
það, að þjóðin vilji að þessir þrír
flokkar haldi áfram sínu farsæla
verki. Til þess höfum við nægan
þingstyrk, og til þess höfum við
kjósendur sem eru um 5.000 fleiri
en kjósendur Sjálfstæðisflokks og
Kvennalista.“
Formaður Alþýðuflokksins hef-
ur látið í ljós efasemdir um að slík
stjóm geti sameinast um þau mál
sem flokkur hans leggur mesta
áherslu á, og bent þar á afstöðu
Hjörleifs Guttormssonar í álmáli
og Evrópumálum. Ólafur Ragnar
sagðist telja þetta vera ástæðu-
lausan ótta sem þjónaði engum
tilgangi.
„Við getum alltaf nefnt ein-
hveija þingmenn hver hjá öðrum.
Aðalatriðið er að þessir flokkar
hafa skilað árangri og það er ekk-
ert sem bendir til að þeir geti það
ekki áfram. Þá hefur Kvennalistinn
lýst áhuga sínum á að fylgja svip-
aðri stefnu og við höfum verið að
boða, þannig að hljómgrannur fyr-
ir þau stefnumið sem við höfum
fylgt, nær langt úr fyrir okkar
raðir.“
— Þú hefur sagt að þú gætir
tryggt að Alþýðubandalagið stæði
við þær samþykktir sem ríkisstjórn
gerði. Hvernig?
„Staðreyndin er sú, að það hefur
ekkert einasta stjórnarfrumvarp á
síðustu áram strandað á þing-
mönnum Alþýðubandalagsins og
við vinnum heldur ekki þannig á
nýju kjörtímabili."
— Bráðabirgðalög á síðasta
þingi fóru í gegn með hjásetu Al-
þýðubandalagsmanns. Slík hjáseta
dygði ekki stjórn með 32 þingmenn
af 63.
„Þar breytti Hjörleifur Gutt-
ormsson afstöðu sem hann hafði
áður lýst yfir. Og ég held að Hjör-
leifur hafi tekið það skýrt fram í
Ijölmiðlum um helgina að hann
væri eindregið fylgjandi því að
þessir flokkar héldu áfram sínú
starfi.“
— Þannig að flokksaginn yrði
ofan á í erfiðum málum?
„Við höfum bara sýnt það, þess-
ir flokkar, að við vinnum okkur