Morgunblaðið - 23.04.1991, Page 33
MÓRGÚNBLÁÐÍÐ!ÞRIÍXJUDÁGUIÍ'feS. APRÍI.i lð!tl
Bretland:
Menntun Majors til umræðu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, lauk grunnskólaprófi í sex
greinum, að því er kom fram í fréttatilkynningu forsætisráðuneytis-
ins sl. laugardag. Stöðugur fréttaflutningur hefur verið af skóla-
göngu forsætisráðherrans sl. vikur.
Reuter
Bandarískir og íraskir hermenn við landamæri íraks og Tyrklands
á sunnudag. Bandarískar hersveitir byijuðu á laugardag að reisa
flóttamannabúðir fyrir Kúrda í norðurhluta íraks og hefur ekki
komið til árekstra við íraska hermenn.
Fyrir nokkrum vikum vék Major
sér hjá því að svara spurningum
um það hvað hann hefði lokið
grunnskólaprófi i mörgum greinum,
sagðist ekki muna það. Frétta-
mönnum þótti þetta sérkennilegt
og höfðu samband við skólann, en
fengu engin svör þaðan.
Þegar þetta mál hefur borið á
góma síðan, hefur Major ævinlega
komið sér hjá að svara. Þetta efldi
ásetning fréttamanna um að kom-
ast að hinu sanna í málinu, því þá
grunaði, að forsætisráðherrann
hefði eitthvað óhreint í pokahorn-
inu. Fyrirspurnum um skólagöngu
Majors rigndi yfir talsmenn forsæt-
isráðuneytisins, svo að öll önnur
mál féllu í skuggann, meira að segja
sá frægi nefskattur.
Fréttatilkynning var því gefm út
á laugardaginn um, að hann hefði
lokið prófi í sex greinum.
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, blandaði sér í þetta
mál í sl. viku, þegar hann lét orð
falla um, að hann sjálfur hefði lok-
ið grunnskólaprófi í sex greinum.
Honum tókst þó ekki betur til en
svo, að degi síðar leiðrétti hann það
og sagði þær sjö. Sl. föstudag gaf
hann svo út fréttatilkynningu um,
að hann hefði lokið prófi í átta
greinum.
Að líkindum er þessu stórpólit-
íska máli nú lokið 'og allir nokkru
nær um skólagöngu stjórnmálaleið-
toganna.
Átökin í Irak:
Mætir Saddam sjálf-
stíórnarkröfum Kúrda
Nikosíu, Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
STJÓRN Saddams Husseins íraksforseta virðist ljá máls á því að
ganga að flestum kröfum Kúrda um sjálfstjórn í norðurhluta lands-
ins. Leiðtogar kúrdískra uppreisnarmanna voru þó tortryggnir í
garð forsetans í gær eftir þriggja daga viðræður við stjórnina.
Fjögurra manna sendinefnd
Kúrda hóf viðræður við stjórnina í
Bagdad á sunnudag og var nefndin
undir forystu Jalals Talabanis, leið-
toga Þjóðernishreyfingar Kúrdist-
ans. Hinir þrír eru fulltrúar Kúr-
díska lýðræðisflokksins og tveggja
smáflokka.
Stjórnin í Bagdad hefur ekki
minnst opinberlega á viðræðurnar
en íraskir fjölmiðlar hafa fordæmt
ákvörðun Bandaríkjamanna og
fleiri vestrænna þjóða um að koma
upp griðasvæði fyrir Kúrda í norð-
urhluta landsins. Kúrdískir leiðtog-
ar hafa hins vegar fagnað þessari
ákvörðun en sagt að slíkar aðgerðir
geti aðeins verið bráðabirgðalausn.
Eina lausnin felist í því að koma
kúrdísku flóttamönnunum við land-
amærin að Tyrklandi til heimkynna
sinna til að þeir þurfi ekki að treysta
á aðstoð erlendra hjálparstofnana
allt sitt líf. Til að tryggja það eigi
Kúrdar einskis annars úrkosta en
að ræða við stjórnina í Bagdad.
Kúrdískir heimildarmenn sögðu
að íraksstjórn virtist ljá máls á því
sem næst öllum kröfum Kúrda um
sjálfstjórn. Saddam væri að íhuga
þann möguleika að Kirkuk, mikil-
væg olíuborg, yrði hluti af sjálf-
stjórnarsvæði Kúrda. Honum væri
mikið í mun að komast að samkom-
ulagi við Kúrda til að tryggja að
viðskiptabanni Sameinuðu þjóð-
anna á íraka verði aflétt, að
minnsta kosti að hluta.
Talsmaður Kúrdíska lýðræðis-
flokksins sagði að taka bæri tilboði
Saddams með varúð en þó væri
ekki útilokað að honum væri alvara
að þessu sinni. Hann sagði að gerð-
ar héfðu verið mikilvægar breyting-
ar á stjórn landsins á undanförnum
vikum, nýr forsætisráðherra skip-
aður og fyrirheit gefin um lýðræði
og fijálsa fjölmiðla.
Leiðtogar shíta, sem gerðu upp-
reisn gegn Saddam í suðurhluta
landsins, fordæmdu í gær viðræður
Kúrda við írösku stjórnina. „Það
ætti ekki að eiga sér stað neitt
samningamakk við morðingjann
Saddam. Hann er sekur um stríðs-
glæpi og verðskuldar sömu örlög
og aðrir morðhundar sögunnar,“
sagði talsmaður íraskra shíta í
Damaskus.
SIEMENS
Eigendur
sumarbústaðail
Við eigum til
sólarrafhlöður
frá Siemens
ásamt nauðsynlegum
fylgihlutum til uppsetn-
ingar og viðhaldslausrar
notkunar.
Hagstætt verð.
Leitið nánari upplýsinga
hjá sölumönnum okkar.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 ■ SlMI 28300
SIEMENS
Stjórnmálaspenna í Kúveit:
Ný stjóm sökuð um að vilja
mýla stjórnarandstöðuna
Kúveitborg. Reuter, The Daily Telegraph.
STJÓRNARANDSTAÐAN í Kúveit hafnaði um helgina nýrri ríkis-
stjórn, sem fursti landsins skipaði á laugardag. Leiðtogar stjórnar-
andstæðinga hugðust halda blaðamannafund í gær til að skýra af-
stöðu sína til stjórnarinnar en honum var aflýst á síðustu stundu
og var stjórnin sökuð um að vilja þagga niður í stjórnarandstöðunni.
Bróðir furstans af Kúveit, Sabah
al-Ahmed al Jaber al-Sabah, sem
sætt hefur harðri gagnrýni fyrir
framgöngu sína í embætti aðstoðar-
forsætisráðherra, verður ekki í nýju
stjórninni. Sérfræðingar gegna
flestum ráðherraembættunum en
furstafjölskyldan hefur þó enn bæði
tögl og hagldir í stjóminni.
Hægrimenn, heittrúaðir súnnít-
ar, arabískir þjóðernissinnar, fyrr-
um þingmenn, óháðir stjórnmála-
menn, atkvæðamiklir fjármálamenn
og vinstrisinnaðir menntamenn
hafa myndað bandalag gegn stjórn
landsins. Forystumenn bandalags-
ins gáfu út yfirlýsingu á sunnudag
þar sem þeir höfnuðu stjórninni,
sögðu hana „grófa ögrun“. Stjórnin
væri einkum skipuð sérfræðingum
er nytu ekki stuðnings neinna
stjórnmálaafla í landinu. Þeir höfðu
krafist þess að mynduð yrði þjóð-
stjórn, með aðild stjórnarandstæð-
inga er börðust fyrir lýðræði fyrir
innrás íraka 2. ágúst í fyrra. Enn-
fremur er vaxandi rígur milli Kú-
veita, sem flúðu land eftir innrás-
ina, og þeirra sem voru um kyrrt
í landinu og héldu uppi mótspyrnu
gegn írökum. Stjórnarandstæðing-
ar úr röðum hinna síðarnefndu segj-
ast hafa stutt útlagastjórn furstans
eftir innrásina og eigi ekki skilið
að furstinn sniðgangi þá nú.
Leiðtogar stjórnarandstæðinga
hugðust halda blaðamannafund í
hóteii í eigu ríkisins, þar sem flest-
ir erlendu blaðamennirnir í landinu
hafa gist frá því hernámi íraka lauk
í febrúar. Blaðamennirnir og stjórn-
arandstæðingarnir voru hins vegar
beðnir um að fara úr ráðstefnusal
hótelsins skömmu áður en fundur-
inn átti að hefjast. Lögreglumenn
voru sendir í hótelið til að fylgjast
með því að farið yrði eftir fyrirmæl-
unum.
„Þetta sannar að stjórnin hyggst
þagga niður í okkur, þannig að
aðeins sjónarmið stjórnarinnar komi
fram,“ sagði Youssef al-Nisf, fyrr-
um ráðherra og leiðtogi stjórnar-
andstæðinga úr röðum kúveiskra
fjármálamanna. „Stjórnendur hót-
elsins skiptu um skoðun á síðustu
stundu og létu þannig undan þrýst-
ingi valdhafanna,“ sagði talsmaður
hreyfingar hægrisinnaðra múslima.
Furstinn rauf þing árið 1986 en
hefur lofað kosningum á næsta ári.
Stjórnarandstæðingar vonast til
þess að þær fari fram í maí á næsta
ári og búast við því að flestir ráð-
herrar valdafjölskyldunnar missi þá
embætti sín.
-------------------
■ DYFLINNI - Meirihluti ír-
skra kjósenda vill að bann við hjón-
askilnuðum verði numið úr gildi
þar í landi, að því er fram kom í
niðurstöðum skoðanakönnunar sem
birt var í gær. Rúmlega fjögur ár
eru frá því að írar höfnuðu hjóna-
skilnuðum í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Nú segjast 64% kjósenda styðja að
breytingar verði gerðar á hjúskap-
arlögunum og hjónaskilnaðir leyfð-
ir.
I ASADABAD - Afganskir
skæruliðar sögðu í gær að allt
að 400 manns hefðu látið lífið í
Scudflaugaárásum stjórnarhers-
ins á borgina Asadabad í Norðaust-
ur-Afganistan á laugardag. Um
300 lík hafa verið grafin upp úr
húsarústum í borginni. Raza Khan,
sem er í héraðsstjórn skæruliða,
sagði að tala fallinna gæti átt eftir
að hækka. Hann sagði að árásanna
yrði grimmilega hefnt.
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjó SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300