Morgunblaðið - 23.04.1991, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991
57
Árið 1984 var Guðmundi veitt
lyfsöluleyfi í Breiðholti efra. Þar
var þá engin lyfjabúð fyrir, þannig
að Guðmundur og Erna urðu að
byggja frá grunni. Það gerðu þau
af miklum myndarskap og dugn-
aði. Nefndu þau apótekið Lyfjaberg.
Á þeim tíma kom glöggt í ljós að
Guðmundur var frumkvöðull i
mörgu og fór ekki alltaf troðnar
slóðir. Guðmundur var mjög fagleg-
ur. Hann var maður rökfastur og
skýr í hugsun, snöggur að komast
að réttum niðurstöðum í málum sem
þurfti að taka afstöðu til, ávallt gat
hann rökstutt mál sitt. Hann hvik-
aði ekki frá ályktunum sínum. Guð-
mundur var afar raungóður, væri
til hans leitað. Hann lá ekki á liði
sínu og var ætíð fús að miðla af
þekkingu sinni og reynslu. Þökk sé
honum fyrir það.
Hvað félagslíf varðar var hann
ötull og ósérhlífinn. Ætíð var hann
reiðubúinn að veija málstað stéttar-
bræðra sinna.
Skyndilega dró ský fyrir sólu.
Lasleiki gerði snögglega vart við
sig hjá Guðmundi. Ekki datt okkur
þá í hug að það væri maðurinn með
ljáinn, sem þar væri á ferð. Á ör-
skömmum tíma hrakaði heilsu hans,
en sterkur vilji til að lifa og beijast
var til staðar allt til enda. Guð-
mundur var með fullri rænu, þar
til hann andaðist þann 15. apríl.
Þá slokknaði ljósið, sem Guð hafði
eitt sinn kveikt. Drottinn gaf og
Drottinn tók. Drengur góður var
horfinn sjónum okkar, aðeins 52
ára að aldri. Sjaldan fínnum við
eins til vanmáttar okkar og smæð-
ar, sem á slíkum stundum.
Við minnumst Guðmundar
Steinssonar og vottum honum virð-
ingu okkar og þakkir. Blessuð sé
minning hans.
Elsku Erna, þér og sonum þínum
vottum við okkar dýpstu samúð og
biðjum góðan Guð að hugga ykkur
og styrkja, nú og um alla framtíð.
Guð er oss hæli og styrkur,
örugg hjálp í nauðum. (Sálm. 46,2.)
Fjóla og Sigurður G. Jónsson.
Þann 15. apríl sl. andaðist Guð-
mundur Steinsson á Landspítalan-
um eftir skamma en stranga sjúk-
dómslegu. Skömmu áður höfðum
við frétt um veikindi hans en engu
að síður komu tíðindin á óvart.
Leiðir okkar lágu fyrst saman í
fjórða bekk Menntaskólans á Akur-
eyri. Guðmundur var einn nokkurra
Siglfírðinga í bekknum og voru
þeir Siglfirðingar nokkuð ólíkir en
þó samstæðir á vissan hátt. Einn
var áberandi ærslagjarn, annar
músíkalskur svo af bar, þriðji
dreyminn og dálítið utan við sig.
Guðmundur var þeirra stilltastur
og jafnastur í öllu fari og hafði þó
mikla kímni og smitandi hlátur. En
Siglfirðingunum var öllum eitt sam-
eiginlegt: Þeir voru góðir félagar.
Guðmundur var einn af bestu
námsmönnum bekkjarins og nokk-
urn veginn jafnvígur á allar grein-
ar. Hann var rökfastur með afbrigð-
um og þýddi okkur yfirleitt lítið að
deila við hann. Skapfesta hans og
þrautseigja kom sér vel þegar hann
meiddist illa í íþróttum seint á síð-
asta námsári. Hann lá á sjúkrahúsi
og gat ekki tekið stúdentspróf með
okkur hinum vorið 1959. En fræðin
las hann umlukinn gipsi um suma-
rið og tók prófið um haustið með
ágætiseinkunn.
Vafalaust hefur þessi þrautseigja
auðveldað honum að ná nærri fullri
færni eftir þetta slys.
Guðmundur ólst upp á Siglufriði
með foreldrum sínum og systur.
Hann stundaði skólanám og skíða-
íþróttir á vetrum eins og umhverfíð
bauð. Á sumrum vann hann alla
almenna vinnu, sem eðlilega snerist
mest um síld. Okkur eru sérlega
minnisstæðar lýsingar hans á ára-
mótunum á Siglufirði. Það var hlut-
verk þeirra skíðamannanna að
koma fyrir blysum í hlíðinni ofan
við bæinn. Mynduðu blysin ártalið.
Nákvæmlega á miðnætti breytti
skíðasveitin blysunum þannig að
nýja ártalið kom í ljós. Aldrei var
Guðmundur glaðari en eftir dag-
langa útivist á skíðum í „fjallahót-
e!i“ okkat' menntskælinganna, Út-
garði.
Guðmundur hóf nám í lyijafræði
við Háskóla íslands haustið 1959
og lauk miðprófi sumarið 1961.
Lengra varð ekki komist í námi
hérlendis. Hélt hann til Kaup-
mannahafnar sama ár og lauk
kandídatsprófi með ágætiseinkunn
frá Danska lyfjafræðiháskólanum
sumarið 1964.
Leiðin lá til íslands aftur. Guð-
mundur hóf strax störf við lyfja-
framleiðsludeild Pharmaco hf. í
Reykjavík og starfaði þar óslitið til
ársins 1985; lengst af sem fram-
leiðslustjóri en frá 1979 sem þróun-
arstjóri. Hann vann þar, ásamt
fleirum, brautryðjendastarf í inn-
lendum lyfjaiðnaði, oft við mjög
erfiðar aðstæður. Störf hans ein-
kenndust öðru fremur af mikilli
samviskusemi og trúnaði við fyrir-
tækið. íslenskur lyfjaiðnaður hefur
í dag náð umtalsverðum árangri og
byggist sá árangur m.a. á elju Guð-
mundar og þrautseigju árum sam-
an._
Árið 1984 fékk Guðmundur lyf-
söluleyfi og rak sitt eigið apótek,
Lyfjaberg, frá 1985. Hann var
stofnandi þess apóteks og kunni að
veita þjónustu þannig að allir væru
ánægðir, kaupandi og seljandi —
veitandi og þiggjandi. Sjúklingar
fengu að njóta þess að Guðmundur
var greiðvikinn. Hann bar mikla
virðingu fyrir þjónustustarfinu og
vildi rækja það vel. Læknum var
þetta ljóst, enda þurfa sjúklingar
oft sérstaka alúð í apóteki svo vel
fari.
í umræðum um lyfsölumál lagði
Guðmundur jafnan mikla áherslu á
þjónustuhlutann. Hann leit afdrátt-
arlaust á hlutverk lyfjaverslunar
sem heilbrigðisþjónustu og lét þá
skoðun skýrt í ljós.
Á undanförnum árum hafa ýmsir
embættismenn og stjórnvöld oft
verið ærið ósanngjörn í garð lyfsala
sem stétt embættismanna. Þarna
hafa farið saman stjórnunarþörf og
vantraust. Vel rekin apótek skila
hagnaði eins og önnur vel rekin
fyrirtæki gera. Lyfsalar, sem und-
antekningalaust verða að reka
verslun sína samkvæmt ákvörðun
stjórnvalda, komast ekki hjá því að
ágóði fyrirtækjanna er gefinn upp
sem þeirra eigin hagnaður. Þetta
er sennilega orsök fyrrnefnds óró-
leika.
Guðmundur reyndi eins og hann
gat að leiðrétta misskilning þennan
og rugl. Skömmu fyrir sjúkdóms-
legu sína lagði hann fram gild rök
um þessi mál í undirbúningi að
stefnumótun fyrir landsfund Sjálf-
stæðisflokksins. Vonandi halda
sjónarmið hans velli — fagleg virð-
ing fyrir því að lyfjaverslun er heil-
brigðisþjónusta þar sem hagur og
mannvirðing sjúklingsins er aðalat-
riðið.
Guðmundur kvæntist Ernu
Kristjánsdóttur, aðstoðarlyfjafræð-
ingi, árið 1965. Eignuðust þau tvo
syni: Kristján Sigurð og Ólaf Stein,
sem báðir stunda nám í lyfjafræði
með miklum ágætum.
Guðmundur ólst upp og mótaðist
í miklum athafnabæ, sem jafnframt
er ein af fegurstu byggðum þessa
lands. Sagt hefur verið að Siglfirð-
ingar hafi verið heimsborgarar á
sinn hátt, enda í alþjóðaleið áratug-
um saman. Vafalaust á þetta sinn
þátt í því að Guðmundur varð at-
hafnamaður og rækti þjónustuhlut-
verk sitt jafn vel og raun ber vitni.
Fyrir hönd bekkjarsystkina okk-
ar þökkum við Guðmundi samfylgd-
ina og sendum samúðar- og vináttu-
kveðjur til Ernu og sona hennar.
Ingólfur S. Sveinsson
Reynir Eyjólfsson.
Kveðja frá starfsfólki
Heilsugæslustöðvarinnar
í Efra-Breiðholti
Allt frá því að Guðmundi Steins-
syni var veitt lyfsöluleyfi í Efra-
Breiðholti og hann stofnsetti Lyfja-
berg, hafa verið mikil og góð starfs-
tengsl stofnana okkar. Þau tengsl
hófust er apótekið og heilsugæslu-
stöðin voru í bráðabirgðahúsnæði
við Eddufell/Asparfell og hafa hald-
ist og eflst eftir að stofnanirnar
fluttu í sín nýju húsakynni við
Hraunberg. Samskipti okkar við
apótekarann í Lyfjabergi hafa öll
þessi ár verið með mestu ágætum
og þar á engan skugga borið. Guð-
mundur reyndist okkur traustur og
góður samstarfsaðili, ljúfur í við-
móti og ávailt reiðubúinn til breyt-
inga og lagfæringa er koma mættu
skjólstæðingum okkar að gagni.
Víst er að mjög margir viðskiptavin-
ir Lyfjabergs munu sakna Guð-
mundar Steinssonar sáriega, ekki
síst eldra fólkið í hverfinu, sem átti
í Guðmundi sérstakan hauk í horni
hvað snertir heimsendingar og
ýmsa aðra þjónustu. Skyndileg
veikindi og ótímabært fráfall Guð-
mundar Steinssonar eru missir íbúa
Efra-Breiðholts.
Við þökkum honum að leiðarlok-
um fyrir ágætt samstarf og ljúfa
viðkynningu og vottum aðstandend-
um einlæga samúð.
Leifur N. Dungal
TIL IBÚA í
REYKJAVÍKOG KÓPAVOGI!
Nú eru hafnar framkvæmdir við
lagningu 132.000 volta jarðstrengs
milli aðveitustöðvar við Meistara
velli í Reykjavík og aðveitustöðvar
á Hnoðraholti í Kópavogi. Með til-
komu þessa strengs eykst flutnings-
geta og rekstraröryggi veitu-
kerfisins enn til muna.
Fyrirhuguð strenglega kemur fram
á meðfylgjandi korti.
í Reykjavík verður lagt frá aðveitu-
stöðinni við Meistaravelli, eftir
Meistaravöllum, Kaplaskjólsvegi,
Ægisíðu, Starhaga, Suðurgötu,
Einarsnesi, Skeljanesi og fram í sjó í
Fossvogi, vestan flugbrautarenda.
Lagður verður sæstrengur yfir Foss-
voginn að enda Hafnarbrautar í
Kópavogi. í Kópavogi verður síðan
farið eftir Vesturvör, Kársnesbraut,
Nýbýlavegi, Bröttubrekku, Stút-
lautarvegi, Dalvegi, Reykjanesbraut
og í vegstæði væntanlegs Arnarnes-
vegar að aðveitustöðinni á Hnoðra-
holti.
Verklok eru áætluð um miðjan
ágúst í Reykjavík, og um miðjan
september í Kópavogi.
Rafmagnsveitan biður íbúa við
ofangreindar götur, svo og aðra
vegfarendur, velvirðingar á því
ónæði sem framkvæmdirnar kunna
að valda.
A
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT34
108 REYKJAVlK SlMI 60 46 00
ARGUS/SlA