Morgunblaðið - 07.05.1991, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
£7
Bandaríkin:
Bush sneri aftur til
starfa í gærmorgun
Washington, Frankfurl og Singapore. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti, sem lagður var inn á sjúkrahús á
laugardag vegna hjartsláttartruflana, útskrifaðist þaðan í gær og sneri
til starfa sinna í Hvíta húsinu. Haiin sagði að það væri stórkostlegt
að vera aftur byrjaður að vinna.
Bush heiisaði upp á fréttamenn
og starfsmenn Hvíta hússins í Rósa-
garði forsetasetursins klukkan
hálftíu í gærmorgun. Þá var aðeins
liðinn tæpur klukkutími frá því að
læknar Bethesda-hersjúkrahússins í
Maryland lýstu yfir að þeir hefðu
hætt við að beita raflostsmeðferð til
að losa forsetann við hjartsláttar-
truflanirnar, svokallað hjartaflökt,
en ætluðu þess í stað að halda sig
eingöngu við lyfjameðferð.
Bush sagði að sér liði vel og lækn-
ar hefðu ráðlagt sér að hefja smám
saman líkamsæfingar á nýjan leik
og gæta þess að ofgerá sér ekki.
Bush var að skokka við sumarsetur
sitt í Camp David þegar hann hneig
niður og átti í erfiðleikum með að
ná andanum.
Ef forsetinn hefði þurft að gang-
ast undir raflostsmeðferð og þar með
svæfingu, hefði Dan Quale varafor-
seti orðið að taka tímabundið við
forsetaembættinu. Sá möguleiki olli
miklum titringi á fjármálamörkuðum
heimsins og endurvakti deilur um
það hvort varaforsetinn væri fær um
að vera aðeins einu hjartaslagi frá
æðsta embætti Bandaríkjanna. Sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönnun töldu
aðeins 19% aðspurðra að Quayle
væri hæfur til að gegna forsetaemb-
ættinu.
Fréttirnar um heilsufar forsetans
ollu því að dollarinn snarféll í verði
gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum
í gærmorgun, en náði sér aftur á
strik síðdegis. „Markaðirnir eru ekki
hrifnir af Dan Quale,“ sagði gjaldeyr-
issali í Frankfurt.
Læknar forsetans sögðust mundu
fylgjast náið með heilsufari hans á
næstunni. Hann þyrfti í engu að
breyta lífsstíl sínum — aðeins að
halda aftur af sér í fáeina daga.
EB-fréttir
Reuter
Fjárlög EB fyrir 1992
um 5.000 milljarðar
100.000 Zulumenn
sendirgegn gegn ANC?
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins (EB) samþykkti í
síðustu viku tillögur að fjárlögum
bandalagsins fyrir næsta ár. Sam-
kvæmt tillögunum hækka fjárlög-
in um 11,3% frá fjárlögum yfir-
standandi árs.
Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld
bandalagsins verði 65,2 milljarðar
ECU eða tæplega fimm þúsund millj-
arðar ÍSK. Hækkunin er töluvert
hærri en hækkun fjárlaga meðal
aðildarríkjanna, sem er 6,3% að jafn-
aði og sömuleiðis yfír spám um vöxt
þjóðartekna innan EB, sem er 7,1%.
Rúmlega helmingur útgjalda banda-
lagsins fer til landbúnaðarmála, eða
53%, en í krónum talið er hækkun
framlaga vegna landbúnaðarstefn-
unnar 10%. Rúmlega fjórðungur út-
gjaldanna er vegna byggðastefnu
bandalagsins en árið 1988 var ákveð-
ið að tvöfalda framlög til þess mála-
flokks innan fimm ára. Lagt er til
að framlög til rannsókna og vísinda-
starfsemi verði aukin að mun og við
blasir að þróunaraðstoð til ríkja utan
bandalagsins mun ekki aukast um-
talsvert.
Framkvæmdastjórnin á
götunni
Ljóst er að framkvæmdastjórn EB
verður að rýma það húsnæði sem
hún hefur til umráða á næsta ári.
Byggingin Berlaymont var byggð á
þeim tíma er asbest þótti hið gagn-
legasta byggingarefni. Seinni tíma
rannsóknir hafa hins vegar staðfest
hið gagnstæða og byggingin er talin
óhæf sem vinnustaður. Ekki er ljóst
hvort húsið verður endurbyggt eða
rifíð til grunna en það ræðst af samn-
ingum framkvæmdastjórnarinnar við
■ BRUSSEL - Fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalagsins
hefur lagt bann við samvinnufyrir-
tæki 17 evrópskra sjónvarpsstöðva
um íþróttafréttir, Eurosport, og
voru síðustu sendingar á sunnudag.
Samstarfið er talið stangast á við
lög bandalagsins um frjálsa sam-
keppni. í fréttatilkynningu frá Sam-
bandi evrópskra sjónvarpsstöðva er
lokunin hörmuð og sagt að sam-
bandið vænti þess að hægt verði
að hefja sendingar aftur síðar. 60
milljónir áhorfenda hafa fylgst með
útsendingunum er notið hafa fjár-
hagslegs stuðnings fjölmiðlafyrir-
tækis Ruperts Murdochs, News Int-
ernational.
fréttaritara Morgunblaðsins.
belgísk stjórnvöld um viðgerðir á
byggingunni.
Inkatha-frelsisflokkurinn í Suður-Afríku hótaði því um helgina að senda 100.000 Zulu-menn gegn fylgis-
mönnum Afríska þjóðarráðsins (ANC) eftir að lögreglan hafði ráðist á tvö gistiheimili farandverkamanna
úr röðum Zulu-manna í grennd við Jóhannesarborg og gert vopn þeirra upptæk. ANC hefur sakað Inkatha
um að hafa átt upptökin að átökum þessara stríðandi fýlkinga, sem hafa kostað 1.500 manns lífið á svæð-
inu frá því í ágúst, og haldið því fram að Zulu-mennirnir njóti stuðnings lögreglunnar. Sextán blökku-
menn biðu bana í átökum fylkinganna í grennd við Jóhannesarborg í gær og á myndinni sjást lögreglu-
menn við lík eins þeirra.
Sovétríkin:
Rússneskar námur færðar
undan stj órninni í Kreml
Gorbatsjov varar við nýju, köldu stríði dragi úr samvinnu Sovétmanna og vestrænna ríkja
Moskvu. Reuter.
MIKHAIL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, undirritaði í gær samn-
ing við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, um að rússneskar kolanám-
ur skyldu falla undir Rússlandsstjórn en ekki sovétstjórnina eins og
hingað til. Var það eitt af meginskilyrðum kolanámamanna fyrir
að hætta verkföllum, sem staðið hafa í tvo mánuði. í annan stað
varaði Gorbatsjov Vesturlandamenn við að efast um framgang „per-
estrojkunnar" og sagði, að færi samvinnan við Sovétmenn út um
þúfur væri hætta á nýju, köldu stríði.
„Við sjáum nú fyrir endann á að þeir tækju aftur upp vinnu á
verkföllum námamanna," sagði
Jeltsín á rússneska þinginu í gær
þegar Gorbatsjov hafði undirritað
samning um, að námurnar í Síberíu,
Rostov og Komí skyldu hér eftir
heyra undir Rússlandsstjórn. Ætl-
uðu verkfallsmenn að ræða. málin
í dag, þriðjudag, og var búist við,
morgun. Þykir Jeltsín hafa unnið
mikinn sigur í þessu máli en hann
lofaði ekki aðeins, að námurnar
yrðu færðar frá alríkisstjórninni,
heldur einnig, að þær fengju efna-
hágslega sjálfstjórn ogyrði hugsan-
lega komið í einkaeigu eða í hendur
námamönnum sjálfum. Þá gaf hann
fyrirheit um, að námamenn fengju
að ráðstafa 80% þess gjaldeyris,
sem fengist af útflutningi.
Að öðru leyti hefur samningurinn
þau áhrif, að kolamálaráðuneyti
alríkisstjórnarinnar verður nú ekki
nema svipur hjá sjón en það er
stefna Jeltsíns og umbótasinna að
draga sem mest úr miðstjórnarvald-
inu.
Fjölmiðlakóngurinn Rupert
Murdoch var gestur Gorbatsjovs í
Kreml á sunnudag og við það tæki-
færi sagði sovétforsetinn, að Vest-
urlönd yrðu að átta sig á, að það
tæki sinn tíma fyrir „perestrojkuna"
eða umbótastefnuna að skila ár-
angri. Gorbatsjov hefur verið harð-
lega gagnrýndur í Sovétríkjunum
fyrir að taka afstöðu með flokknum,
hernum og harðlínumönnum og
vegna þess nýtur hann ekki lengur
sama stuðnings á Vesturlöndum og
áður. Lét Gorbatsjov orð um það
falla við Murdoch, að þess sæjust
merki, að Bandaríkjastjórn væri „að
endurmeta afstöðuna" til Sovétríkj-
anna.
„Ef það glatast, sem áunnist
hefur í tíð Reagans og Bush, er
hætta á, að heimurinn verði vitni
að nýju, köldu stríði," sagði Gorb-
atsjov.
íþróttavörur í úrvali
Dæmi um verð:
Fótboitaskór - verð frá kr. 1.990,-
íþróttaskór m/frönskum lás - verð frá kr. 1.990,-
íþróttagallar- verð frá kr. 3.995,-
»humaiéH?
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40, SÍMI 83555