Morgunblaðið - 15.05.1991, Qupperneq 4
4
MÖRGUNBLÁÐIÐ MÍÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991
Endumýjun innanlandsflota Flugleiða:
Fjórða Fokker 50
flugvélin pöntuð
FYRSTA Fokker 50 skrúfuþota Flugleiða kemur til landsins í
mars á næsta ári, en félagið hefur gert leigusamning við Fokker-
verksmiðjurnar með kauprétti um fjórar slíkar vélar. I fyrra var
samið um þijár vélar en samningar um fjórðu vélina voru gerðir
fyrir skömmu.
Vélunum er ætlað að leysa
Fokker F27-vélar félagsins af
hólmi. Vélamar eyða 32% minna
af eldsneyti á hvert sæti en eldri
innanlandsflugvélar félagsins auk
þess sem þær eru hljóðlátari.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða er leigu-
samningurinn til tíu ára og hefur
félagið þá kauprétt á vélunum.
Ný Fokker 50 skrúfuþota kostar
um 900 milljónir króna. Fyrsta
vélin kemur í mars á næsta ári
en allar verða þær komnar til
landsins í maí á næsta ári.
Vélamar verða í öðmm litum
en millilandaflugfloti Flugleiða.
Þær taka 50 farþega og hafa flug-
drægi til Bretlands, Noregs, Sví-
þjóðar, Danmerkur, Grænlands
og Færeyja. Því verður hægt að
nýta vélarnar til sérstakra verk-
efna í millilandaflugi auk þess sem
þær fljúga til áætlunarstaða inn-
anlands.
Fokker-verksmiðjurnar gerðu á
sínum tíma tilraunir með Fokker
50 vélina á malarflugbrautinni á
Egilsstöðum. Þjálfun flugmanna
og tæknimanna á nýju vélamar
hefst næsta haust.
Fokker 50 vélar Flugleiða verða í öðrum litum en millilandaflugfloti félagsins. Vélarnar eru spar-
neytnari og hljóðlátari en Fokker F27 vélarnar sem þær eiga að leysa af hólmi.
VEÐUR
Sakadómur Reykjavíkur:
- 1
1
loEJ ■Wpí
VEÐURHORFUR I DAG, 15. MAI
YFIRLIT: Vestur af íslandi er 1038 mb hæð en um 500 km suðvest-
ur af Hvarfi er 986 mb lægð sem þokast norður. Yfir landinu er
hægfara lægðardrag,
SPÁ: Sunnan og suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Víðast rigning
eða súld, en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hlýtt í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Suðvestan- og vestan-
átt. Skúrir sunnanlands og vestan, en léttskýjað á Norðaustur- og
Austurlandi. Heldur kólnandi veður.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J0° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrír
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hiti veður Akureyri 11 skýjað Reykjavik 6 rigning og súld
Bergen 7 skúr á síð.klst.
Helsinki 8 rigning
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Narssarssuaq 7 rigning
Nuuk 0 skýjað
Osió 13 skúr
Stokkhólmur 12 skúr
Þórshöfn 8 skúrásíð.klst
Algarve 22 heiðskirt
Amsterdam 12 skýjað
Barcelona 18 skýjað
Berlín 13 rigning og súld
Chicago 22 þokumöða
Feneyjar 19 heíðfikirt
Frankfurt 1S skýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 12 skýjað
Las Palmas vantar
London 14 skýjað
LósAngeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 12 skýjað
Madrfd 20 heiðskirt
Mataga 22 heiðskírl
Mallorca 21 skýjað
Montreal 11 skýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
Paris 13 súld
Röm 18 hélfskýjað
Vín 19 léttskýjað
Washington vantar
Winnipeg 13 léttskýjað
Dæmd í öryggjsgæslu
vegna manndráps
SAKADÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt 51 árs konu, sem varð
sambýlismanni sínum að bana á
heimili þeirra í Reykjavík með
hnífi þann 17. febrúar síðastlið-
inn, til að sæta öryggisgæslu þar
sem sakhæfi hennar sé skert
vegna geðheilsu hennar.
Konan, sem áður sætti öryggis-
gæslu frá 1975-1985 eftir að hafa
orðið mannsbani, lagði hnífí í brjóst
sambýlismanni sínum eftir deilur
þeirra á milli. Maðurinn var látinn
þegar lögreglu bar að, stuttu eftir
atburðinn.
í niðurstöðum dómsins, sem
Guðjón St. Marteinsson sakadóm-
ari kvað upp, segir að líklegt sé
að koma hefði mátt í veg fyrir
hinn voveiflega atburð ef lögreglan
hefði sinnt fyrsta kalli ákærðu, en
hún hafði hringt og beðið um að
maðurinn yrði Ijarlægður af heim-
ilinu. Hins vegar telur dómurinn
viðbrögð lögreglu miðað við að-
stæður ekki óeðlilegar, að senda
ekki menn á staðinn strax og
konan hringdi enda hafí hún oft
hringt í lögreglu án þess að um
raunverulega þörf hafí verið að
ræða. Nær sé að draga þá ályktun
að hægt hefði verið að koma í veg
fyrir hinn voveiflega atburð ef hún
hefði notið þess heilsufarslega eft-
irlits og búið við þær aðstæður,
sem hún sýnilega þurfí.
DauðsfaU á
sjúkrahúsi
rannsakað
Rannsóknarlögregla ríkis-
ins rannsakar nú hvað olli
dauða 35 ára gamals manns,
sem lést síðastliðinn laugar-
dag á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans eftir að hafa
gengist undir aðgerð á háis-,
nef- og eyrnalækningadeild
sjúkrahússins 6. þessa mán-
aðar. Lögreglurannsókn
hófst í fyrradag að frum-
kvæði yfirlæknis deildarinn-
ar.
Eftir að aðgerð þeirri sem
gerð var á manninum, og talin
mun hættulítil að jafnaði, var
lokið og hann hafði verið fluttur
á gjörgæsludeild hófust blæð-
ingar og komst maðurinn aldrei
til meðvitundar og lést síðan nú
á laugardag. Að sögn Sigur-
bjöms Víðis Eggertssonar lög-
reglufulltrúa er beðið eftir nið-
urstöðum réttarkrufningar.
Borgarráð:
Lóð úthlutað fyrir fjöl-
býlishús við Sléttuveg
BORGARRÁÐ Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær, að út-
hluta félaginu Sólvogi lóð til byggingar fjölbýlishúss fyrir aldraða
við Sléttuveg.
Úthlutun lóðarinnar var sam-
þykkt með þremur atkvæðum
borgarráðsmanna Sjálfstæðis-
flokksins, en þau Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Sjálfstæðisflokki, og
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki, greiddu ekki atkvæði.
Ámi Sigfússon og Katrín Fjeld-
sted, Sjálfstæðisflokki, lögðu fram
bókun vegna afgreiðslu málsins,
þar sem þau lýsa þeirri skoðun
sinni, að miðað við það mikla land-
rými, sem Borgarspítalinn hafí á
lóðinni sunnan Bústaðavegar og
austan Háaleitisbrautar, muni
þessa lóðarúthlutun ekki raska
framtíðaráformum spítalans. Auk
þess sé landið á lóðinni í óhent-
ugri hæð miðað við aðrar bygging-
ar spítalans.
Sigrún Magnúsdóttir og Ólína
Þorvarðardóttir, Nýjum vettvangi,
sem sat sem áheyrnarfulltrúi á
fundinum, lögðu fram bókun, þar
sem fram kemur, að þær telji óvar-
legt að sneiða af framtíðarbygg-
ingarlandi Borgarspítalans eins og
gert sé með þessari lóðarúthlutun.