Morgunblaðið - 15.05.1991, Síða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ MlDVlKCpAGl’R 15. MAt 199:1
Eskifjörður:
Klemmd-
ist á fæti
HÓLMANESIÐ, annar skuttogara
Hraðfrystihúss Eskifjarðar, kom
til heimahafnar í gærmorgun með
slasaðan mann.
Maðurinn klemmdist illa á vinstra
fæti á svokölluðum skutrennuloka.
Hann marðist mikið og var ákveðið
að sigla til hafnar með hann. Meiðsli
hans voru þó minni en tálið var í
upphafi.
Þjóðleikhúsið:
Tæplega 100
sóttuum
lausar stöður
Fjögur ný íslensk
verk á næsta leikári
TÆPLEGA eitt hundrað manns
sóttu um lausar stöður í Þjóðleik-
húsinu, 78 leikarar og 20 leik-
sljórar. Ráðið verður í nokkrar
leikarastöður og tvær stöður leik-
sijóra.
Stefán Baldursson, Þjóðleikhús-
stjóri, sagði að ekki væri enn ljóst
hversu margar stöður leikara yrði
ráðið í en leikstjórastöðurnar væru
tvær og yrði ráðið í allar stöðurnar
frá og með 1. september. Hann sagði
mikið verk að fara í gegnum allar
umsóknirnar enda væri mikið af
hæfileikaríku fólki sem hefði sótt
um.
Stefán sagði of snemmt að skýra
frá því hvaða verk yrðu sýnd á
næsta leikári. Fyrsta verkefnið á
stóra sviðinu í haust verður Gleði-
spilir, nýtt íslenskt verk eftir Kjartan
Ragnarsson, sem hann leikstýrir.
„Um önnur verk á næsta ári er
of fljótt að skýra frá. Það verða þó
fjögur ný íslensk leikrit sýnd. Barna-
leikritið Búkoila eftir Svein Einars-
son verður sett upp, en það átti að
setja upp síðast liðið vor.
Fjórða íslenska verkið er eftir
Þórunni Sigurðardóttur. Hún skrif-
aði verkið upphaflega fyrir Borgar-
leikhúsið, en það urðu leikhússtjóra-
skipti þar og verkið féll eitthvað á
milli þar á meðan. Núverandi leik-
hússtjóri hafði áhuga á að taka það
til sýningar en fólk hér í Þjóðleikhús-
inu hafði lesið leikritið, og það var
áður en ég kom hingað, og leist vel
á það. Verkefnavalsnefnd las síðan
verkið og þar var einhugur um að
reyna að fá verkið til sýningar og
það tókst með vinsamlegum sam-
skiptum nýja leikhússtjórans í Borg-
arleikhúsinu,“ sagði Stefán.
-------------
Reykjavíkurborg:
2000 ung-
menni sækja
um vinnu
Umsóknarfrestur um Vinnu-
skóla Reykjavíkurborgar rennur
út næstkomandi föstudag. Gert
er ráð fyrir að um 2.000 ungling-
ar starfi við umhirðu garða og
hreinsun í hverfum borgarinnar
í sumar. Einnig verða verkefni
við Nesjavallavirkjun, Rauðavatn
og í Heiðmörk.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur
skrifstofustjóra hjá Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar hefur fjöldi ungl-
inga sótt um vinnu í sumar og gerir
hún ráð fyrir að um tvö þúsund
unglingar verði við störf. Það eru
unglingar fæddir 1977 og 1976 sem
verða ráðnir til vinnu í sumar. Yngri
hópurinn mun vinna fjóra tíma á dag
og verður tímakaup þeirra 186 kr.
Eldri hópurinn vinnur átta stunda
vinnudag og tímakaupið verður 164
kr.
Unglingavinnan hefst 4. júní og
lýkur 2. ágúst.
HEWLETT
PACKARD
ft
mmr
Pantanafrestur hjá Innkaupastofnun ríkisins á
tölvubúnaði með stórafslætti rennur út 17. maí.
/ boði eru m.a.:
Tulip dc, 20MHz, 40MB, VGA (s/h), 386 sx tölvur
frá kr. 122.000,-
LaserJet III, geislaprentarar með upplausnarauka
frá kr. 196.200,-
Star nálaprentarar frá kr. 18.900,-
MUNALAN
V/SA
E
EUROCARD
Tölvukaup hf. • Skeifunni 17 • Sími 687220 • Fax 687260
ÖRTÖLVUTÆKNI =
15.-17. maí kl. 10-17 í Skeifmmi 17
Tölvubúnaður frá Hewlett Packard, Tulip, Star, Synoptics, Novell, Microsoft, og fleirum, allt
gæðavörur á góðu verði.
Sýningin er sérstaklega ætluð fyrir þá sem hafa
þörf fyrir staðarnet, tengingu við SKÝRR, bréf-
símakerfi (fax) á neti eða hafa áhuga á Windows.
Serstök kynning verðurá m/
k/. 15 oo a/i* ■ a w'ndows
s.00a/ia syn/ngardagana. '