Morgunblaðið - 15.05.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAI 1991
9
Hjartans þakklœti til allra sem glöddu mig á
80 ára afmœlinu, með gjöfum, blómum, skeyt-
um og heimsóknum. Guð blessi ykkur öll.
Margrét Pétursdóttir.
Hverju
eiga Þór
og Björg
von á
í framtíb-
inni?
Hjónin Þór og Björg hafa verið áskrifendur að
spariskírteinum ríkissjóðs í tvö ár og hefur hvort
þeirra sparað 5.000 kr. á mánuði með
þessum hætti. Ef þau halda áfram næstu 28 árin
verða þau búin að safna 10.942.882 kr.
fyrir utan verðbætur og miðað við sömu
vexti og gilda í dag.
5.000 kr. 10.000 kr. 20.000 kr.
á mánuöi á mánuöí - á mánuöi
Mánaöarlegur 6,6% 6,6% 6,6%
sparnaöur í: raunvextir raunvextir raunvextir
5 ár 354.419 708.838 1.417.675
10 ár 842.287 1.684.574 3.369.149
20 ár 2.438.285 4,876.569 9.753.139
30 ár 5.462.441 10.924.882 21.849.764
Kommar spyrja krata
RÁÐHERRASÓSIALISTAR Alþýðu-
bandalagsins eru ekki enn búnir að jafna
sig á því að hafa þurft að yfirgefa ráð-
herrastólana. Það mun sjálfsagt taka
langan tíma. En þeir voru ekki lengi að
finna sökudólginn. Það er Alþýðuflokkn-
um að kenna að þeir urðu að hverfa frá
kjötkötlunum.
Klofningurinn
Saga Alþýðuflokksins
hefur lengi verið sam-
tvinnuð sögu Alþýðu-
bandalagsins (Sósíalista-
flokksins, Kommúnista-
flokksins). Jafnaðar-
menn hafa allar götur
síðan kommúnistar klufu
flokkinn fyrir rúmum
sextiu árum mátt sæta
því að vera kallir stétta-
svikarar, hækjur íhalds-
ins, landssölumenn eða
eitthvað eim verra.
Ástæðan er að sjálfsögðu
sú, að jafnaðarmenn hafa
aldrei geta sætt sig við
þá kúgunar- og hel-
stefnu, sem kommúnistar
(sósialistar, allaballar)
hafa fylgt fram á þennan
dag.
Persónu-
frelsið
Hreyfing sósialista
klofnaði í upphafi í tvær
fylkingar vegna afstöð-
umiar til frelsis einstakl-
inganna, jafnaðarmcnn
og kommúnista. Jafnað-
armenn hafa aldrei getað
sætt sig við að fólki væri
fórnað fyrir kerfið, fyrir
kúgunarkerfi miðstýr-
ingarinnar. Persónu-
frelsið hefur alla tíð skil-
ið á milli jafnaðarmaima
og kommúnista (alla-
balla). Þessi klofningur
varð einnig í ungri hreyf-
ingu jafnaðarmanna á
íslandi. Klofningsmenn,
undir ýmsum nöfnum,
hafa eytt ævinni í að
ganga undir kúgunar-
kerfi kommúnismamis
eins og það hefur birtst
í Sovétríkjunum og
reyndar víðar. Þeir hafa
verið fylgismenn Stalíns,
Brézhnevs, Ulbrichts,
Hoxa, Ho Chi Minhs,
Maos og Kastrós. Enn
þami dag í dag hafa for-
ystumenn Alþýðubanda-
lagsins ekki gert upp
þessa fortíð shia. Hvað
þá beðið Islendinga fyrir-
gefningar á því að hafa
ætlað að leiða kúgunar-
kerfið yfir þá.
Allsherjarárás
Það var athyglisvert í
ljósi sögunnar að lesa
forystugrein Þjóðviljans
í gær. Hún er rituð af
Svavari Gestssyni, sem
er enn sár yfir því að
hafa neyðzt til að yfir-
gefa ráðherrastólinn.
F orustugreinin er ein
allsheijarárás á Alþýðu-
flokkhm fyrir að endur-
nýja ekki samstarfið í
ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar.
Svavar heldur enn í
það hálmstrá, að ríkis-
stjóm fráfarandi stjóm-
arflokka hafi verið starf-
hæf með aðeins 32 þing-
sæta stuðningsliði. Hann
virðist ekki gera sér
grein fyrir því, að slík
stjóra hefði verið undir
hælnmn á Hjörleifi Gutt-
ormssyni í álmálinu,
samningum við Evrópu-
rikin eða reyndar hvaða
framfaramáli sem vera
skal. Það á reyndar við
aðra líka, því hvaða
stjómarþinginaður sem
vera skyldi hefði geta
sett stjóminni stólinn fyr-
ir dymar. En sem fyrr
spyija ráðherrasósíalist-
ar ckki um það, hvaða
málum þeir geta komið
fram, licldur hvort þeir
geti yljað sér við kjötkatl-
ana.
Afturhvarf
Forystugrehi Þjóðvi(j-
ans er greinilegt aftur-
hvarf til fyrri tíma, til
tíma stalínismans. Fyrst
ekki er hægt að nota
Alþýðuflokkinn til að
tryggja ráðherrasósíal-
istunum stjórnarsetu þá
em tínd fram gömul
árásartilefni. Svavar rifj-
ar meira að segja upp
setningu gerðardóms-
Iaga frá 1942, að ckki sé
mimist á þá ósvhmu Al-
þýðuflokksins að styðja
varnarsamstarf vest-
rænna ríkja.
Þótt Svavar Gestsson
átti sig ekki á því þá er
forustugrein Þjóðvi(jans
einmitt sönnun þess, að
stórt bil er enn í dag á
milli jafnaðarmanna og
gömlu kommaklíkunnar
í Alþýðubandalaginu,
sem Svavar er einmitt
fulltrúi fyrir. Það lið hef-
ur alla tið verið svöm-
ustu andstæðingar jafn-
aðarmamia.
Spurningar
Það má (jóslega sjá af
þessum spumingum, sem
Þjóðviljinn beinir til jafn-
aðarmanna í tilefni
stjómarmyndunarinnar
nú:
1. Af hveiju stóð Al-
þýðuflokkurinn að setn-
ingu gcrðardómslagaima
1942?
2. Af hveiju var Al-
þýðuflokkurimi tregur til
samstarfs í nýsköpunar-
stjórninni þar sem aðeins
inunaði einu atkvæði í
miðstjórn Alþýðuflokks-
ins?
3. Af hveiju stóð AI-
þýðuflokkuriim að
ákvörðunum um aðild
íslands að NATO og
hemámhiu 1951?
4. Af hveiju var Al-
þýðuflokkurinn allra
flokka tregastur til þess
að færa landhelgina út i
12 sjómflur?
5. Af liveiju var Al-
þýðuflokkuriim á móti
útfærslu landhelginnar
úr 12 sjómflum í 50
sjómflur og felldi tillögu
um útfærsluna á alþingi
vorið 1971?
6. Af hveiju neitaði
Alþýðuflokkurimi að
taka þátt í myndun
vhistri stjómar sumarið
1974?
7. Af hveiju klauf Al-
þýðuflokkurimi vinstri
stjórnimi haustið 1979 og
gerði bandalag við Sjálf-
stæðisflokkinn?
8. Hvaða flokkur hefur
setið lengst samfellt i
stjóni með Sjálfstæðis-
flokknum?
9. Af hveiju neitaði
Alþýðuflokkurinn að
gera tilraun til þess að
mynda vinstri stjóm
strax vorið 1987?
10. Og af hveiju rauf
Alþýðuflokksforystan
stjómarsamstarfið nú
vorið 1991?
Verðbætur, samkvæmt lánskjaravísttölu, bætast svo ofan á allar tölur.
Hringdu eða komdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og fáðu nánari upplýsingar um
áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs.
Þjónustumiðstöðin er fyrir fólkið t landinu.
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæb, sími 91- 626040 og Kringlunni, sími 91- 689797
SJÓÐUR 1 - VAXTARSJÓÐUR
Sameinar eiginleika langtíma-
og skammtímabréfa
Það er sérkenni Sjóðs 1 að þegar liðið hafa fjögur
mánaðarmót frá kaupum fellur innlausnargjald niður
þrjá fyrstu virka daga hvers mánaðar. Sjóður 1 hentar
því þeim sem vilja góða og örugga ávöxtun sparifjár en
vilja líka geta gripið til þess á auðveldan hátt ef þörf
krefur. Þessir kostir Sjóðs 1 - Vaxtarsjóðs hafa gert
hann að 'vinsælasta verðbréfasjóði íslenska markaðsins.
Verið velkomin í VIB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavtk. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.