Morgunblaðið - 15.05.1991, Page 14

Morgunblaðið - 15.05.1991, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991 Hagræðing í sjávar- útvegi og iðnaður sem hornsteinn hagvaxtar eftir Jón Sigurðsson Tvær greinar í Morgunblaðinu hinn 4. apríl kalla þann, sem þetta skrifar, til þess að láta til sín heyra. Önnur er grein Þorsteins Más Bald- vinssonar um hagræðingu í sjávar- útvegi, en hin er grein Páls Kr. Pálssonar um iðnað sem hornstein hagvaxtar. Báðar eru greinarnar skilmerki- legar og vel úr garði gerðar á allan veg, en ástæðan til, að þær verða saman tilefni þessara skrifa er, að báðar horfa þær fram hjá sama grundvallaratriðinu, sem þjóðin hef- ur þegar goldið dýru verði og mun gera enn frekar á næstu árum, ef ekki verður tekið tillit til þess. Svo fyrst sé vikið að grein Þor- steins Más, má taka undir öll meg- inatriði þess, sem hann skrifar, enda skrifar þar maður, sem veit 0DEXIQN léttir ykkur störfin og getur. Hann hefur leikið mikið hlutverk í að gera undraverða hluti í útgerð og fiskvinnslu hér á landi. Sjávarútveginn, — hvort heldur sem er vel rekna útgerð eða fiskvinnslu verður að staðaldri að reka með góðum hagnaði í þessu landi eins og hann segir. Vel rekið iyrirtæki í þessum greinum þarf að vera með hagnað, sem er 14-20% af veltu, þegar vel árar hvað varðar afla og verðlag og í lakari árum má þessi rekstur helst ekki fara niður fyrir 3-5% hagnað af veltu. Við það ætti öll efnahagsstjórn að miðast og við það þurfa sjómenn og fiskvinnslu- fólk að sætta sig í kröfum sínum. Hér er ekki átt við skussarekstur, sem verður að leyfa að verða gjald- þrota, heldur rekstur hinna sem kunna til verka. En hins vegar verður að gæta. Þróun iðnaðar, bæði samkeppnis- iðnaðar og ekki síður útflutnings- iðnaðar þarf að vera hornsteinn hagvaxtar eins og Páll Kr. bendir á í sinni grein.'Og það gengi, sem dugar vel reknu fyrirtæki í útvegi og fiskvinnslu til að hafa 14-20% hagnað af veltu í góðæri og 3-5% hagnað í lægð, dugir ekki til að iðnaðurinn sé nægilega öflugur. I því liggur hluti af vanda þróunar atvinnurekstrar á íslandi undanfar- in ár og mun gera um ókomna tíð að óbreyttu. Takist sú hagræðing í sjávarútvegi, serp Þorsteinn Már greinir möguleika til og bendir á, að þegar er hafin sums staðar, er alveg ljóst, að enn þrengir að í öðr- um greinum en einföldustu magn- vinnslu á fiski. Afkoma útgerðar og fiskvinnslufyrirtækja mundi að óbreyttu gengi verða óhæfilega góð. Annað hvort eða hvort tveggja mundi gerast, að starfsfólk í sjávar- útvegi mundi með lögmætum eða ólögmætum ráðum knýja fram kjör, sem eru hærri en aðrar atvinnu- greinar geta greitt eins og nýleg Jón Sigurðsson dæmi sanna og/eða gengi krónunn- ar yrði látið hækka. Hvort sem væri, drægi það allan lífsmátt úr öðrum atvinnurekstri, sem flytur vörur sínar til útlanda eða framleið- ir í samkeppni við innflutning. í .rauninni hefur þetta sama verið að gerast undanfarna áratugi. Það hefur verið rugl á atvinnurekstri í landinu. Sjávarútveginum hefur verið haldið við hormörkin lengst af þessa tíma. Eðlilegum hlutföllum gengis og launa í landinu hefur ekki tekist að ná og þannig hafa stjórnvöld og hagsmunasamtök í rauninni sameinast um að koma í veg fyrir, að öflugur iðnaður innan- lands með góðan hagnað hefði burði og jarðveg til að vera „homsteinn hagvaxtar“. Þetta má segja öðru vísi. Þrátt fyrir þá staðreynd, að fiskiflotinn sé 25-40% of stór miðað við fisk- stofna og sóknargetu og fiskvinnsl- ugetan að sama skapi of mikil, hefur sjávarútveginum með gengis- stefnunni verið haldið við einhvern núllpunkt. Þessa sóun hefur þjóðin í raun greitt í genginu og í endur- tekinni og dýrri deyfilyfjagjöf til einstakra fyrirtækja. Við þessar aðstæður var ullariðnaðurinn sjálf- dauður og öll viðleitni manna til að búa til útflutningsiðnað um tæki í útgerð og fiskvinnslu átti erfitt uppdráttar. Meira að segja var þetta hemiil á mannfreka fullvinnslu afla hérlendis, sem allir þykjast þó vilja styðja. Samkeppnisiðnaðurinn inn- anlands skrimti, en ekkert umfram það og ástæðan var einföld. Gengi krónunnar var of hátt til að búa til fijóan jarðveg fyrir þessar greinar útflutnings- og samkeppnisiðnaðar. Með öðrum orðum sagt er það staðreynd, að þrátt fyrir gífurlega sóun í sjávarútveginum, er fram- leiðni hans svo mikil, að það gengi, sem dugir honum, dugir ekki öðrum útflutningsiðnaði. Það er þess vegna sem gengis- stefnuna verður að endurmeta og ekki einungis með tilliti til hins hefðbundna sjávarútvegs og fisk- vinnslu, heldur einnig með hliðsjón Þórsmörk - perla íslenskrar náttúru APTON-smíðakerfið leysir vandann • Svörtstálrör • Grá stálrör • Krómuð stálrör • Álrör - falleg áferð • Allargerðirtengja Við sníðum niður eftir máli r LANDSSMIÐJAN HF. Verslun: Sölvhólsgötu 13 Sími (91)20680 eftir Benedikt Gröndal íslensk náttúra er bæði sérstök og falleg en við megum ekki gleyma hversu viðkvæm hún er. Þórsmörk er ein af okkar perlum sem á síð- ustu árum hefur orðið að einum vinsælasta ferðamannastað lands- ins í óbyggðum. Þessi mikli átroðn- ingur hefur í för með sér ýmsa óæskilega fylgifiska. Því hefur JC- Reykjavík tekið að sér að kynna bæði í blöðum og útvarpi vikuna 13.-18. maí það mikla starf sem umsjónaraðilar Þórsmerkur vinna til að Þórsmörk fái að halda sinni fegurð. Einnig er það markmið okk- ar í JC-Reykjavík að vekja fólk til umhugsunar um íslenska náttúru almennU Við verðum að gera okkur það ljóst að það er ekki nóg að stunda landgræðslu ef almenn virð- ing fyrir náttúru landsins er ekki til staðar. Náttúrufegurð er ekki eitthvað sem hægt er að kaupa í búð heldur verðum við að umgang- ast hana með virðingu upp á hvern einasta dag annars eigum við hættu á að hún hverfi út í veður og vind. En hvernig er þá ástandið í Þórs- mörk þar sem þúsundir Islendinga hittast á helstu ferðahelgum sum- arsins. Það er augljóst að við þær aðstæður sem þar eru núna og þá umgengni sem landsmenn hafa gert sig seka um hefur gróðurfar versn- að til muna. Verður að stoppa þá MORSE CONTROL Stjórntæki fyrir vélarog gíra, spil o.fl. Stýrisvélar og stýri. Mikið úrval fyrirliggjandi. Flestar lengdir og sverleikar af börkum. Fyrir allar vélategundir og bátagerðir. Hagstætt verð - leitið upplýsinga. VÉLASALAN H.F. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122 „Við skulum njóta nátt- úru okkar en við skul- um um leið muna að brennum við grasflöt eða brjótum við tré er ekki sjálfgefið að nýr gróður nái þar fótfestu aftur.“ þróun áður en eyðileggingin verður varanleg og óbætanleg. Á vegum skógræktarfélaganna sem annast Þórsmörk mun nú í sumar verða gróðursettur fjöldinn allur af tijáplöntum og mun meðal annars norskur hópur koma til að vinna þetta verk. En það eru önnur mál í gangi þar, má t.d. nefna skipu- lagningu gönguleiða, en takmarka þarf óþarfa troðning á viðkvæmum gróðrinum. Mannfólkinu fylgir mikið sorp og er losun sorps af svæðinu eitt þeirra vandamála sem þarf að leysa. Þeg- ar við komum út í náttúruna viljum við gjarnan kveikja eld en þegar 3.000 manns safnast saman í Húsadal og kveikja 300 elda hveija helgina á fætur annarri er augljóst að viðkvæmur gróðurinn þolir það illa. íslendingar, við skulum njóta náttúru okkar en við skulum um leið muna að brennum við grasflöt eða bijótum við tré er ekki sjálfgef- ið að nýr gróður nái þar fótfestu aftur. Höfundur er félagi í JC-Reykjavík. I GARÐINUM BYRJA HJA 0KKUR REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA SÖLUFÉLAG GARDYRKJUMANNA SMIOJUVEGI 5. 200 KÓFVWDGUR. SÍMI 43211

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.