Morgunblaðið - 15.05.1991, Page 16

Morgunblaðið - 15.05.1991, Page 16
VI 16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVÍKUDAGUR 15. MAÍ 1991 Ævintýraferð til Suður- Ameríku um páskana eftir Friðrik Hróbjartsson Það var mikil ævintýraferð sem farin var til Suður-Ameríku með ferðaskrifstofunni Veröld á vegum Heimsklúbbs Ingólfs. Ingólfur Guðbrandsson var farar- stjóri og hafði skipulagt og undir- búið ferðina af sinni frábæru kunn- áttu og kostgæfni. Þegar við sáum þessa ferð aug- lýsta vaknaði áhuginn og fórum við á kynningarfundinn sem Ingólfur hélt í tilefni ferðarinnar. Lýsingar Ingólfs og myndir frá þessum slóð- um drógu ekki úr áhuganum. Þó komu upp svolitlar efasemdir um að allt gæti verið svona fallegt óg gott. Það var haldið af stað úr garran- um á Kefiavíkurflugvelli og flogið til Lundúna. Þaðan var flogið með breiðþotu í einum áfanga til Ríó de Janeiro. Eftir stutt stopp var flogið til Santiago í Chile sem var fyrsti áfangastaðurinn í þessari stórkost- legu ferð. í Chile dvöldumst við á lúxushóteli sem heitir Carrera. Það stendur í hjarta borgarinnar gegnt forsetahöllinni. Má segja að Chile hafi komið öllum á óvart með feg- urð sinni og menningu. íbúar minna helst á millistéttarfólk í Englandi; yfirvegaðir og kurteisir. Einn dagur var notaður í ferð til stærstu hafn- arborgar Chile, Valparaíso. A þess- ari leið er keyrt um frjósama dali Chile þakta vínekrum og ávaxtatrj- ám. Einn morguninn var farið í verslanir í borginni og var hreint ótrúlegt að uppgötva lúxusvörur á algjöru lágmarksverði. Frá Chile var flogið til Buenos Aires í Argentínu. Argentína er sérstök á sinn hátt með sínum óend- anlegu sléttum og gróðri. Að koma á argentínskan bóndabæ og borða frábærar steikur sem matreiddar eru undir berum himni á opnum eldi er ógleymanleg upplifun. Einn- ig að sjá kúreka suðursins leika list- ir sínar á hestbaki og að fá for-_ smekkinn að tangó-dansinum. í höfuðborginni Buenos Aires gistum við á einu virðulegasta hóteli borg- arinnar, Hótel Plaza, sem stendur við eina aðalverslunargötuna. í Buenos Aires eru stórkostleg lista- verk á götum úti og 9. júlí-stræti er talið stærsta breiðstræti verald- ar. Að ógleymdum steikarveitinga- stöðunum, tangósýningunum í Casa Blanca, leður- og pelsabúðunum. Við kvöddum þetta land með góðar minningar og héldum til Brasilíu að skoða Iguacu-fossana sem liggja á Iandamærum Argentínu og Bras- ilíu. Þessir fossar eru taldir vera eitt mesta náttúruundur veraldar. Þangað var komið um miðjan dag og gist á lúxussveitahóteli og fólk gat hvflst og farið í sólbað og sund fram að kvöldi. > Um morguninn var farið að foss- unum og þeir skoðaðir af landi, lofti og legi. Einnig var farið inn í frum- „Það er óhætt að segja að ferðin var mun ævin- týralegri og skemmti- legri en við bjuggumst við og ákveðin lífsfyll- ing að hafa kynnst þess- um heimshluta á þenn- an hátt.“ skóginn þar sem litadýrð gróðursins og hljóð náttúrunnar gagntóku mann. Endastaðurinn var Ríó de Jan- eiro. Þar dvöldum við á sjálfri Copacabana-ströndinni á glæsihót- elunum Copacabana Palaz og Rio Palaz. Aðstaðan á þessum hótelum er slík að með ólíkindum er. Öll þjónusta og aðbúnaður er óaðfinn- anlegt og þó að dvalið sé í hjarta milljónaborgar er hægt að ganga frá hótelinu yfir götuna á glæsi- legustu baðströnd heims iðandi af lífi. Er athyglisvert að sjá innfædda njóta baðstrandarinnar í svo mikl- um mæli. Skoðunarferðimar á Syk- urtoppinn og Kroppinbak þar sem Kristsstyttan, 40 metra há, gnæfír yfír borginni eru ógleymanlegar. Lífíð í Ríó er engu líkt, lífsgleðin skín út úr fólki og allir eru Iéttir, kátir og vingjarnlegir og þarf ekki kamival til. Þarna nutum við lífsins í nokkra daga í sól og hita. Eitt kvöldið sáum við samba-sýningu með bestu lista- mönnum heims á þessu sviði. Lita- dýrð og glæsileiki búninganna em stórkostleg. í þessum dönsum er saga og menning Brasilíu túlkuð á sérstakan hátt. Það er óhætt að segja að ferðin var mun ævintýralegri og skemmti- legri en við bjuggumst við og ákveð- in lífsfylling að hafa kynnst þessum heimshluta á þennan hátt. Höfundur er forstjóri Burstagerðarinnar hf. Morgunblaðið/Sigurður Pétur Björnsson í gamla sýslumannshúsinu, sem upphaflega var hótel Húsavík, er nú tekið til starfa gistiheimili. Húsavík: Gistiheímíli í gamla sýslu- mannshúsinu GISTIHEIMILIÐ Árból hefur ver- ið opnað í gamla sýslumannshús- inu á Húsavík. Húsið, sem er timb- urhús á tveimur hæðum með risi, var reist 1903 úr tilsniðnu efni frá Noregi. Það var byggt sem Hótel Húsavík og rekið sem slíkt til 1924. Það var þekkt undir nafninu Fensalir en 1924 varð húsið bú- staður sýslumanns og aðsetur sýsl- uskrifstofu en frá 1956 hefur það verið íbúðarhús. Eigendur neðri hæðarinnar, hjónin Páll Þ. Jónsson og Dóra Vilhelms- dóttir, hafa nú í samstarfi við ferða- málafrömuðina Bjöm Sigurðsson, sérleyfíshafa, og.Björn Hólmgríms- son, umboðsmann Flugleiða, og fjöl- skyldur þeirra, fest kaup á húsinu öllu og ráðist í rekstur gistiheimilis. Að sögn Páls Þ. Jónssonar hafa þau ráðist í nokkrar endurbætur á húsinu, einkum í því skyni að bæta hreinlætisaðstöðu en lögð hefur verið áhersla á að halda því sem næst óbreyttri herbergjaskipan. í gisti- heimilinu, sem staðsett er í skrúð- garði bæjarins og við bakka Búðar- ár, verða 9 herbergi. Auk gistingar .stendur gestum morgunverður til boða en reksturinn mun fyrst og fremst hvfla á herðum Dóru Vilhelmsdóttur. Páll kvaðst bjartsýnn á reksturinn enda kvaðst hann viss um að gestir kynnu að meta umhverfið, garðinn og ána, auk þess sem ferðaþjónusta ætti almennt mikla vaxtarmöguleika á Húsavíkursvæðinu. MEÐAL ANNARRA ORÐA Á Hvannadalshnúki eftir Njörð P. Njarð- vík Ég er einn af þeim sem hafa mikið dálæti á þjóðgarðinum í Skaftafelli, og ég reyni að komast þangað á hveiju ári til að hljóta blessun íslenskrar náttúrukyrrð- ar. Hennar má að vísu njóta víð- ar, en umhverfi Skaftafells talar til mín á alveg sérstakan hátt. Að standa á Glámu undir Krist- ínartindum þar sem Skaftafell- sjökull teygist fram og Hrútsfjall og Hvannadalshnúkur blasa við, er líkt og að vera þátttakandi í helgiathöfn. Þessi skínandi bjarti þegjandi óhagganleiki seilist djúpt inn í manneskjuna og kallar þar fram frið sem á sér fáar hliðstæð- ur. Og yfir gnæfír jökultindurinn sem ímynd hinnar eilífu fegurðar ofar mannlegum takmörkunum. Þar vil ég ekki þurfa að sjá jeppa skreyttan áletrunum og fánum frá bandarískum spilaframleiðendum. Það fínnst mér helgispjöll, líkt og að kasta skít inn í kirkju. Skarn er hlutur á skökkum stað Því vík ég að þessu, að 30. apríl síðastliðinn birti Morgun- blaðið myndaopnu af þeim atburði er menn drógu jeppa á spili og upp á Hvannadalshnúk (þar er kannski komin skýringin á áhuga spilaframleiðenda?), og síðan hafa birst heilsíðuauglýsingar hér í blaðinu til að mikla þetta afrek. Efasemdir um ágæti þessa uppá- tækis hef ég engar séð, og kannski er ég einn um þær. Ég fæ nefnilega með engu móti skilið hvaða nauðsyn beri til þess að drösla bíl upp á hæsta tind lands- ins, og allra síst þegar hann getur ekki komist þangað af eigin rammleik. Ég vona bara til Guðs að þetta verði ekki upphafíð á einhvers konar samkeppni um, hveiju megi drösla upp á Öræfa- jökul. Og sögnina að drösla nota ég hér tvívegis af ásettu ráði, af því að hún er samstofna við orðið drasl. Skam er hlutur á skökkum stað, stendur einhvers staðar, og í mínum huga er allt skam uppi á Hvannadalshnúki, sem gert er af manna höndum, hveiju nafni sem það nefnist. Ég get vel skiiið að menn langi til að standa á Hvannadalshnúki og skyggnast yfir land sitt af hæsta sjónarhóli. En slík löngun er því aðeins gild að í henni felist í senn virðing og auðmýkt. Lotn- ing fyrir tign ósnortinnar náttúm og lítillæti sem felst í því að skilja stað sinn í þeirri náttúm. Að við emm börn náttúmnnar en ekki herrar. Öll framkoma okkar verð- ur að einkennast af því viðhorfi. Minnumst þes að austur í Himala- yafjöllum hafa margir áhyggjur af því að tíðir og fjölmennir Ieiðan- grar séu að breyta þaki heimsins í sorphauga. Véladýrkun Það mun vera evrópsk hugsun (og evrópskur hroki) að maðurinn sé herra náttúrunnar, og af henni leiðir sú árátta að maðurinn þurfi að hafa komið alls staðar. Ég fyrir mitt leyti efast um að jörðin hugsi eins, eftir reynslu hennar af umgengni mannsins. Og ég vildi óska að til væm mörg svæði á jörðinni þar sem maðurinn hefði aldrei stigið fæti. Vélamenning mannsins er afneitun hans á yfir- ráðum náttúmnnar og hefur haft í för með sér þá skefjalausu rán- yrkju sem fyrr eða síðar mun valda endalokum mannsins, ef hann snýr ekki þegar í stað við á glötunarleið sinni. í mínum huga er það eins kon- ar nauðgun að þurfa að djöflast á vélknúnum tækjum um allt. Hvergi er lengur hægt að vera í friði fyrir vélrænum ófreskjum sem æða um öskrandi. Hafa les- endur ekki orðið fyrir þeirri reynslu þegar þeir leita sér hvíld- ar í náttúmnni, að skyndilega kveði við drynjandi hávaði og svo birtist æðandi bílalest kappakst- ursmanna? Þeir halda sig þó á vegum, þótt ekki sé til fyrirmynd- ar að sjá þá andskotast áfram á slóðum sem ekki em ætlaðir til hraðaksturs. Ég hef líka orðið fyrir því, þegar ég dvaldist í tjaldi í Þjórsárdal, að sex unglingsstrák- ar spönuðu um á torfæmskellin- öðrum og spændu upp gróðurinn með tilheyrandi hávaða. Hávaðinn já. Kunningi minn sem á sumarbústað við Þingvalla- vatn hefur sagt mér að suma daga sé þar ólíft fyrir hávaða frá fólki sem rassakastast um vatnið á svokölluðum vatnsköttum. Og skíðalöndin enduróma oftar en ekki af freti frá vélsleðum. Og þá vaknar spurning: sá sem leitar á vit náttúmnnar til endumæring- ar, hvíldar og kyrrðar, er hann algerlega réttlaus og vamarlaus fyrir hávaðaseggjum véladýrkun- arinnar? Tækið sem tilgangur Ég kalla þetta véladýrkun, af því að í mörgum tilvikum er ekki hægt að sjá annan tilgang. Jepp- ar, fjórhjól og vélsleðar geta verið nytsamleg tæki til margra nota, í sumum tilvikum meira að segja einnig til náttúmskoðunar, þótt þá verði að hafa einstaka gát. Það er nefnilega sannast að segja orð- in plága hversu oft er leitað að fólki sem anar um óbyggðir án tilhlýðilegs útbúnaðar og fyrir- hyggju. Og þegar maður sér fólk spana um hlíðar á vélsleðum (svo að dæmi sé tekið) til þess eins að keyra vélsleða, þegar tækið sjálft er orðið tilgangurinn, þá er eitthvað að. Þá vil ég segja að hugarfarið sé orðið brenglað. Þá fínnst mér hugsunin í raun þessi: maðurinn þykist vera herra náttúrunnar og það vill hann sýna með vélknúnu tæki sínu, en um leið er hann orðinn þræll véladýrk- unar sinnar, dýrkunar hins dauða hlutar, sem maðurinn heldur sig hafa blásið lífi í. í þessu ljósi sé ég þann dapur- lega atburð, þegar hópur manna fór á Vatnajökul til að draga jeppa á spili upp á Hvannadalshnúk. Til þess að komast upp á þennan fagra hnúk þarf ekki vél. Á vit hans má fara gangandi með innri fögnuð í hjarta. Þess í stað dró maðurinn þangað vélknúna sköp- un sína sem komst ekki þangað sjálf, — og hæsti tindur landsins var krýndur bfl. Höfundur er rithöfundur og dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.