Morgunblaðið - 15.05.1991, Side 18
ffi
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991
Meira um réttlæti
og veiðirétt
t
eftirJón Steinar
Gunnlaugsson
Markús Möller hagfræðingur
sendi mér línu í grein hér í blaðinu
11. maí sl. Tilefnið var grein mín frá
30. apríl „Réttlætið og veiðiréttur",
sem Markús segist vera að svara.
Sá annmarki er þó á svarinu að höf-
undur fer rangt með það sem hann
segir vera meginefni minnar greinar.
Ég hafði bent á að varla fælist í
því réttlæti við lögleiðingu veiðitak-
markana, ef rétturinn til að veiða
væri tekinn af eigendum veiðiskipa.
Þeir hefðu fjárfest í skipum sínum á
tímabili, þegar allir máttu veiða. Ef
svo væri ákveðið við lögleiðingu tak-
mörkunar að þeir ættu þar eftir bara
skipsbúk en engan veiðirétt væri víst
að verð skipanna lækkaði stórlega.
Með því að láta þá eignast veiði-
kvóta væri alls ekki um að ræða
„tilfærslu á eignum frá þjóðinni allri
til tiltölulega fámenns hóps manna“
eins og Morgunblaðið hefur haldið
•fram. Sú staðreynd að rétturtil kvóta
hefur verið tímabundinn kemur þess-
ari hugleiðingu um réttlæti ekkert
við, þó að Markús hafi gert hana að
aðalatriði „svars“ síns.
Markús Möller virðist vera kapp-
samur baráttumaður fyrir þeirri
stefnu í fískiveiðimálum, sem Morg-
unblaðið hefur gert að sinni, að
greiða beri gjald í ríkissjóð fyrir rétt-
inn til að veiða. Og fyrir hinum fer,
eins og svo algengt er í stjóm-
málaumræðum hér, að hann byijar
á að rangfæra það sem hann ætlar
að svara, til þess að það henti betur
svarinu. Svona umræðutækni er ekki
þess virði að henni sé neitt sinnt frek-
ar.
En skoða má álitaefnið um veiði-
rétt og réttlæti svolítið meira. Enginn
vafi er að, að ranglátt er að láta
útgerðarmann þola verðlækkun eign-
ar sinnar við það eitt að takmarka
þarf aðgang að fiskistofnum. En á
sama hátt má segja út frá réttlætis-
sjónarmiðum, að hann eigi ekki held-
ur að hagnast sérstaklega á því.
Ekki þekki ég til neinna athugana
á þessu, en tel þó víst að þetta hafí
orðið niðurstaðan í ýmsum dæmum
við lögleiðingu kvótakerfisins. Ég
gæti trúað að skip sem kostaði 100
milljónir meðan fijálst var að veiða,
hefði kostað mun minna ef það hefði
misst veiðiréttinn við takmörkun
veiðanna, en kosti nú mun meira en
áður, þ.e.a.s. skipsbúkur og kvóti
samanlagt. Það er vegna þess að við
takmörkun veiðanna hefur vafalaust
hækkað verðgildið á réttinum til að
veiða, sem orðinn er sérstakur verð-
mætur hluti. Þetta gæti verið rök-
semd fyrir því að réttlátt væri að
láta útgerðarmenn greiða gjald í
ríkissjóð fyrir veiðirétt. Markús Möll-
er hefði miklu frekar átt að benda á
þetta, heldur en að snúa út úr grein
minni.
Vel má vera að þessi sjónarmið
réttlæti gjaldtöku ríkissjóðs að ein-
eftir Hjörleif
Hringsson
JC íslandi heldur sitt 30. lands-
þing 17.-20. maí á Hótel Örk í
Hveragerði. Til þingsins verður
mjög svo vandað að allri gerð. Kjör-
orð þingsins er „framtíðarsýn árið
2000“. Þar munu JC félagar hlýða
á erindi og taka þátt í umræðum
um framtíðarsýn íslands á sem
breiðustum vettvangi, þekktir aðilar
úr þjóðlífinu flytja framsögu. Búist
er við að 200 JC-félagar víðsvegar
af landinu taki þátt í þingstörfum
auk 60 senatora sem halda á sama
tíma aðalfund hins íslenska senats.
Mikil samstaða hefur alltaf ríkt
á milli Norðurlandaþjóðanna og eru
landsforsetar Danmerkur, Finn-
lands, Noregs og Svíþjóðar auk for-
seta Evrópu senatisins sérstakir
gestir landsþingsins. Landsþingið
er að þessu sinni í höndum JC Ness
sem sér um allan undirbúning og
framkvæmd og er ekki að efa að
þetta verður eitt glæsilegasta þing
sem haldið hefur verið. Þingsetning
verður föstudaginn 17. maí kl. 18
og er heiðursgestur við setningu
Jón Sigurðsson iðnaðar- og við-
skiptaráðherra. í framhaldi af setn-
hveiju marki og þá líklega aðeins
um takmarkaðan tíma eða meðan
þessi verðmætisaukning, sem af tak-
mörkun veiðanna leiðir „gengur
yfir“. Þau réttlæta hins vegar ekki,
að mínu áliti, þá skipan að telja
íslenska ríkið eiganda réttarins til
að veiða. Eignarréttur (ótímabundinn
afnotaréttur ef menn vilja heldur)
að þessari auðlind þjóðarinnar er
betur kominn í höndum einstaklinga
og fyrirtækja, rétt eins og eignarrétt-
ur að öðrum auðlindum og atvinnu-
tækjum. Og það felst ekki skerðing
á atvinnufrelsi í því að skilgreina
eignarrétt að þessari auðlind í hendi
þeirra sem í reynd hafa þegar fjár-
„JC er ekki „spari“fé-
lagsskapur heldur
raunhæfur kostur fyrir
ungt fólk sem vill auka
möguleika sína í þátt-
töku í atvinnulífinu og
eða á vettvangi félags-
mála ýmiskonar.“
ingu verður fyrsta framsaga undir
kjörorði, hana flytur Valur Valsson
bankastjóri íslandsbanka. Hann
mun fjalla um framtíðarsýn í banka
og jpeningamálum. Þess má geta
að íslandsbanki er aðalstyrktaraðili
þingsins, og er ánægjulegt til þess
að vita hve fyrirtæki taka JC-hreyf-
ingunni vel.
Af dagskrárliðum má meðal ann-
ars nefna að á föstudag kl. 15.30-
17.30 verða úrslit í mælsku- og
rökræðukeppni JC íslands, þar
mætast ræðulið JC Garðabæjar og
JC Mosfellsbæjar og á laugardag
18. maí kl. 20-21.30 verður rök-
ræðueinvígi JC íslands í úrslitum.
Þar mætast einstaklingamir Vigfús
M. Vigfússon JC Árbæ og Jakob
Kristjánsson JC Reykjavík. Reikna
Jón Steinar Gunnlaugsson
fest í henni. Þetta felur ekki fremur
í sér skerðingu á atvinnufrelsi, held-
ur er það fyrirkomulag að bændur
eigi jarðir sínar svo hliðstæða sé tek-
Hjörleifur Hringsson
má með harðri keppni um hina eftir-
sóttu ræðutitla.
Landsþing eru að öðmm þræði
aðalfundur JC-hreyfingarinnar og
uppskemhátíð JC-félaganna vítt
um land. Þá lætur stjóm JC íslands
af störfum og ný tekur við. Nýr
landsforseti verður kjörinn. Þar em
tveir til kallaðir, það em þeir Guðni
Þór Jónsson JC Breiðholti og Ari
Eggertsson JC Hafnarfirði. Junior
„En skoða má álitaefnið
um veiðirétt og réttlæti
svolítið meira. Enginn
vafi er að, að ranglátt
er að láta útgerðar-
mann þola verðiækkun
eignar sinnar við það
eitt að takmarka þarf
aðgang að fiskistofn-
um. En á sama hátt má
segja út frá réttlætis-
sjónarmiðum, að hann
eigi ekki heldur að
hagnast sérstaklega á
því.“
in. Varla þurfum við Markús, sjálf-
stæðismennimir, að deila um þetta.
Höfundurer
hæstaréttarlögmaður.
Chamber ísland er angi af fjöl-
mennum samtökum ungs fólks, sem
teigir anga sína til 86 landa í öllum
heimsálfum og em meðlimir yfir
420.000. Junior Chamber var stofn-
að 13. október 1915 í St. Louis
Missouri, USA, engin samtök í
heiminum reka starfsemi sína eins
víða og til þjálfunar á ungu fólki
eins og Junior Chamber gerir.
Heimsforseti þetta árið er Belgíu-
maðurinn Reginald C.J. Schaumans
og heimsótti hann ísland á liðnum
vetri.
Um leið og ég hvet ungt fólk til
að ganga til liðs við JC-hreyfinguna
vek ég jafnframt athygli þéirra á
því að það á við um JC eins og lífið
sjálft að þar er hver sinnar gæfu
smiður. Leggi menn sig fram um
að meðtaka það sem upp á er boð-
ið svíkur það engan. JC er ekki
„spari“ félagsskapur heldur raun-
hæfur kostur fyrir ungt fólk sem
vill auka möguleika sína í þátttöku
í atvinnulífinu og eða á vettvangi
félagsmála ýmiskonar. Því segi ég
að lokum, sért þú á aldrinum 18-40
ára, vilt auka getu þína, taka þátt
í þroskandi námskeiðum og starfa
með ungu fólki þá áttu svo sannar-
lega samleið með JC.
Junior Chamber ísland
soo
2 í íbúð 51.500
Viðbótargisting Europa Center 6
Hjón með 2 börn, 2—4 ára, 2 vikur, júní.
AUSTURSTRÆTI17, SIMI: (91)622011 & 622200