Morgunblaðið - 15.05.1991, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991
Rúrek:
Fimmtíu tónleikar á
átta daga jasshátíð
BLÁSIÐ verður til jasshátíðar
26. maí næstkomandi í höfuð-
borginni og lýkur henni átta
dögum síðar, eða 2. júní. Að
hátiðinni, sem hefur hlotið nafn-
ið Rúrek, stendur Jassdeild Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna
og Ríkisútvarpið og nýtur hún
fjárhagslegs stuðnings
Reykjavíkurborgar. Um 50 tón-
lcikar verða í höfuðborginni
þessa viku, ýmist utanhúss eða
innandyra.
Þetta er annað árið í röð sem
jasshátíð er haldin í Reykjavík, í
fyrra voru hér Norrænir útvarps-
jassdagar, og þeir þóttu heppnast
svo vel að Ríkisútvarpið í samvinnu
við Jassdeildina og Reykjavíkur-
borg ákvað að efna til annarrar
hátíðar núna. Meðan jassinn dunar
í höfuðborginni verður haldið árs-
þing Nordjazz hér á landi, en innan
vébanda þess eru norrænu jasss-
amböndin, og hafa Islendingar
stuðning Nordjazz til hátíðarinnar.
Á þess vegum koma fimmtán norr-
ænir tónlistarmenn.
Um 50 tónleikar verða haldnir
á hátíðinni. Opnunarhátíðin verður
í Utvarpshúsinu við Efstaleiti 26.
maí kl. 17. Síðan rekur hvern við-
burðinn annan en á veitingahúsun-
um Djúpinu, Duus-húsi, Kringlu-
kránni, Púlsinum og Tveimur vin-
um verður jasstónlist alla hátíðar-
dagana. Auk þess verða tónleikar
á Hótel Borg flesta dagana.
Hátíðardagana verður fjöldi nor-
rænna gesta í borginni í tengslum
við ársþing Nordjazz en þeir sem
Sænski píanistinn og hljóm-
sveitarstjórinn Per Husby.
koma hingað gagngert til að leika
á hátíðinni eru danski tenórsaxist-
inn Bent Jædig, sem hefur um
fjögurra áratuga skeið leikið í stór-
sveit danska útvarpsins. Þetta er
í annað sinn sem Jædig kemur
hingað til lands, en nokkuð langt
er um liðið frá því hann var hér
síðast og þá lék hann meðal ann-
ars með Gunnari Ormslev. Jædig
leikur á fimm tónleikum með
íslenskum kollegum.
Þá kemur sænski trompetleikar-
inn Ulf Adaker aftur til landsins,
en hér lék hann síðast á tónleikum
í Púlsinum í desember í fyrra. Þar
fer einn af betri trompetleikurum
Norðurlanda og setur hann vissan
gæðastimpil á hátíðina. Auk þess
að vera snjall tónlistarmaður lætur
Bent Jædig.
Ulf framgang jasstónlistar sig
miklu varða og er hann formaður
Samtaka norrænna jassleikara.
Hann leikur sem fyrsti trompet-
leikari í stórsveit sænska útvarps-
ins. Hann kemur fram á þremur
tónleikum með kvartett Sigurðar
Flosasonar, sem gerði garðinn
frægan í Belgíu á síðasta ári, en
kvartettinn er skipaður Sigurði á
saxafón, Þórði Högnasyni bassa,
Kjartani Valdimarssyni píanó, og
Matthíasi Hemstock trommur.
Finnski klarinettuleikarinn
Pentti Lasanen kemur hingað við
þriðja mann og leikur meðal ann-
ars með Árna Scheving víbrafón-
leikara og fleiri íslendingum.
Ein virtasta jasssöngkona Norð-
urlanda, Karin Krog, syngur á
tvennum' tónleikum með tríói
JAZZ I REYKJAVIK
Morgunblaðið/KGA
Forsvarsmenn Rúrek frá vinstri: Guðmundur Emilsson RUV,
Árni Scheving Jassdeild FÍH, Pétur Grétarsson RUV, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, Sigurður Flosason Jassdeild FÍH, og
Friðrik Theódórsson Jassdeild FÍH.
sænska píanistans Per Husby. Þau
koma einnig fram á lokatónleikun-
um í Borgarleikhúsinu 2. júlí ásamt
12 manna stórsveit undir stjórn
Husby.
í Danmörku er starfrækt hljóm-
sveitin New Jungle Orkestra undir
stjórn gítarleikarans Pierre Dörge
og eiginkonu hans Irene Becker,
sem einnig stjórnar New Jungle-
kórnum. Tónlist þeirra er eins og
nafnið bendir til undir áhrifum frá
Suður-Ameríku. Hingað kemur
angi af þessari sveit, New Jungle
Trio, og leikur á tvennum tónleik-
um. Auk þess kemur fram 14 sam-
norræn stórsveit undir stjórn
Dörges á lokatónleikunum í Borg-
arleikhúsinu 2. júlí.
Fyrir bræðingsunnendur verður
skammt stórra högga á milli því
haldnir verða 6-7 „fusion“-tónleik-
ar víðsvegar um borgina með Súld,
Gömmum og færeysku sveitinni
Plúmm.
Ógetið er framlags íslenskra
jassmúsikanta á Rúrek en þeirra
hlutur er mikill. Fyrstan skal nefna
Viðar Alfreðsson trompetleikara
sem lengi hefur verið besti jass-
trompetisti landsins en hefur um
nokkurra ára skeið starfað úti á
landsbyggðinni við tónlistar-
kennslu. Hann leikur á þremur
tónleikum með Árna ísleifs, Rúna-
ri Georgssyni, Kristjáni Magnús-
syni og fleirum. Aðrir sem koma
fram eru Ellen Kristjánsdóttir og
Flokkur mannsins hennar, kvintett
Finns Eydals og Carls Moller,
Guðmundur Ingólfsson og félagar,
Ari Einarsson og Hólm 4, Þórir
Baldursson, Tríó Reynis Sigurðs-
sonar, Tríó Björn Thoroddsen,
Eðavarð Lárusson og hljómsveit,
Sveiflusextettinn, Tómas R. Ein-
arsson sextett, Sálarháski, Hljóm-
sveitin Karnivala, Andrea Gylfa-
dóttir og hljómsveit, Séxtett Olafs
Gauks, Stórsveit Tónlistarskóla
FÍH, Stórsveit Tónlistarskóla Selt-
jarnarness og Edda Borg og hljóm-
sveit.
GuGu
WOODEX VIÐARVÖRN
FYRIR AUGAH
WOODEX viðarvörnin frá Hygæa erfrábærlega endingargóð
og áferðarfalleg auk þess sem hún fellur vel að íslenskum
aðstæðum. Woodex fæst bæði sem grunn- og yfirborðsefni úr
acryl- eða olíuefnum.
WOODEX MULTITRÉGRUIMIVIUR er vatnsblendin grunnviðar-
vörn á allt tréverk. Hann gengur vel inn í viðinn og eykur
stöðugleika hans og endingu.
WOODEX HYDRA er hálfþekjandi, vatnsblendin, lyktarlítil viðar-
vörn með Ijósþolnum litarefnum sem nota má úti sem inni.
FYRIR VIDINN
WOODEX ACRYL er yfirborðsefni á allt tréverk. Það myndar
þunna en seiga og mjög veðrunarþolna húð. WOODEX ACRYL
þekur mjög vel og er létt að vinna með.
WOODEXIIMTRA smýgur djúpt í viðinn og veitir góða vörn
gegn fúa, sveppum og raka. Góð grunnvörn.
WOODEX ULTRA er lituð en gagnsæ viðaravörn úr olíuefnum
sem nota má innanhúss sem utan.
Fæst í flestum málninga- og byggingavöruverslunum um allt land.
SKAGFJORÐ
B y 3 ö J fj 5 4 'J U Ji U 'J 1J i 'J
Krisljón Ó. Skogfjörð hl. Umboðs- og heildverslun