Morgunblaðið - 15.05.1991, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991
Einieikaraprófstónleikar:
Hef gaman af þ ví
að koma fram
- segir Arinbjöm Árnason píanóleikari
Arinbjörn Árnason píanðleikari lýkur síðari hluta einleikara-
prófs frá Tónlistarskólanum í Reykjavík með einleikaratónleikum
í Islensku óperunni í kvöld. Arinbjörn mun á tónleikunum leika
Tokkötu í D-dúr eftir J.S. Bach, Sónötu í C-dúr op. 53 (Wald-
stein) eftir Beethoven, Sónötu nr. 3 í a-moll op. 28 eftir Prokof-
íeff og Prelúdíu, kóral og fúgu eftir Cesar Franck. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis.
Arinbjörn hóf nám í píanóleik
hjá föður sínum, Árna Arinbjarn-
arsyni tónlistarmanni, þegar hann
var sex ára gamall. Hann fór síð-
an í nám til Ragnars Bjömssonar
í Nýja Tónlistarskólanum þegar
hann var átta ára gamall. „Ragn-
ar var minn aðalkennari í níu ár
en þá lauk ég burtfararprófi frá
Nýja Tónlistarskólanum. Að því
loknu hóf ég nám í Tónlistarskó-
lanum í Reykjavík, þar sem Halld-
ór Haraldsson hefur verið kennari
minn síðan, eða í þrjú ár,“ sagði
Arinbjöm, í samtali við Morgun-
blaðið.
Arinbjöm tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
síðastliðið vor eftir þriggja ára
nám en hefur í vetur einbeitt sér
að náminu við Tónlistarskólann í
Reykavík. Næsta haust hyggst
hann fara í frekara tónlistamám
hjá Philip Jenkins við Royal
Scottish Academy of Music and
Drama, í Glascow.
„Fyrir tveimur vikum fór ég,
ásamt öðrum nemanda Halldórs
Haraldssonar fyrir hönd Tónlist-
arskólans, til Skotlands þar sem
við héldum tónleika í þessum
háskóla. Jafnframt tókum við
þátt í svokölluðum „master
class,“ en það er námskeið þar
sem nemendur spila fyrir til-
tekna píanista og aðra nemend-
ur. Píanistinn fer síðan í verkið
og segir hveijum nemanda
hvað betur megi fara. Ég spil-
aði fyrir píanóleikara sem heit-
ir John Lill og þetta gekk mjög
vel,“ sagði Arinbjöm.
Tónleikamir í kvöld eru ekki
fyrstu einleikstónleikar Arin-
bjamar. „Ég hélt opinbera tón-
leika þegar ég lauk burtfararprófi
frá Nýja Tónlistarskólanum fyrir
þremur ámm. Það var mjög
Arinbjörn Árnason píanóleikari
góð reynsla. Jafnframt var það
gott tækifæri að fá að spila
með Sinfóníuhljómsveitinni í
vetur þegar ég tók fyrri hluta
einleikaraprófsins. Ég hef
mjög gaman af því að koma
fram og líður vel þegar ég spila
fyrir aðra. Ég hlakka því til
tónleikanna í kvö!d,“ sagði Ar-
inbjörn.
Árinbjörn sagðist æfa píanó-
leik í sex til átta tíma á dag
en auk þess leggur hann stund
á hliðargreinar hljóðfæraleiks-
ins, eins og hljómfræði, tón-
heym, kontrapunkt og tónbók-
menntir. „Mér líður vel í því
sem ég er að fást við og stefni
að því að sinna náminu vel og
ná langt sem píanisti," sagði
Arinbjöm að lokum.
Tvöfalda trollið
fiskar mjög vel
Axel Jónsson á Haukafelli er byrjaður
á humarvertíðinni
„VIÐ erum með tvöfalda trollið undir núna og það gengur framúr
skarandi vel. Það fiskar alveg tvöfalt, en koátnaður við að draga
það er aðeins um 30% meiri en að vera með eitt. Báturinn dregur
þetta mjög auðveldlega og líklega fer það ekki undan fyrr en
kvótinn en búinn,“ segir Axel Jónssson, skistjóri á Haukafelli SF
111, sem nú hefur hafið humarveiðar.
Axel segir sér lítist vel á vert-
íðina. Reynar væri krabbinn heldur
smár, en nokkuð væri af honum.
„Þetta er ágætis kropp, reyndar
kemur ekkert af fiski með nú,
bara skötuselur“ segir Axel. Hann
fékk leyfi til tilraunaveiða á humri
síðastliðinn föstudag, nokkrum
dögum fyrir upphaf vertíðar. „Við
reyndum tvöfalda trollið okkar og
það gekk alveg sérstaklega vel.
Ég hef nú verið að undirbúa þenn-
• an möguleika i ein þrjú ár, hef
meðal annars kynnt mér þessar
veiðar í Danmörku og árangurinn
er mjög góður. Við reyndum líka
stórt troll, sem þeir kalla „Super
Gaflarann“, en það er hannað af
Hampiðjunni og Netagerð Jóns
Holbergssonar í Hafnarfirði. Það
troll gaf okkur 230 kfló af heilum
humri á sama tíma og Dröfnin, sem
togaði við hliðina á okkur fékk
145 kíló í hefðbundið troll. Þetta
stóra er með 300 feta höfuðlínu
og við náðum alveg 38 metra
opnum í það. Tvöfalda trollið
skilar þó beztum árangri," segir
Axel.
_*
Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við fjárreiður Heilsuhælis NLFI:
Oeölileg’ tengsl Heilsuhælis
og Náttúrulækningafélags
RÍKISENDURSKOÐUN hefur skilað heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu skýrslu um starfsemi Heilsuhælis Náttúrulækningafélags
íslands í Hveragerði. Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri
niðurstöðu, að óeðlileg tengsl séu milli Heilsuhælisins og Náttúru-
lækningafélagsins, að ýmislegt sé athugavert við reikningsskil og
fjármál hælisins, að lyfjamál þar séu ekki í samræmi við lög lyfja-
dreifingu og heilbrigðisþjónustu og launakjör og önnur starfskjör
séu verulega hærri en á öðrum sjúkrahúsum. Telur ríkisendurskoð-
un, að brýnt sé að taka málefni Heilsuhælisins til heildarendurskoðun-
ar hið fyrsta. Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, segir að skýrslan verði tekin til gaumgæfilegrar athugunar
hjá ráðuneytinu, en ekki liggi fyrir hver verði næstu skref af hálfu
þess.
Sighvatur Björgvinsson, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra, hélt
í gær blaðamannafund, þar sem
hann kynnti skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um rekstur Heilsuhælis
Náttúrulækningafélagsins. Fram
kom, að ráðuneytið hefði í desem-
ber síðastliðnum farið fram á þessa
athugun vegna athugasemda og
ásakana, sem fram hefðu komið í
erindi til ráðuneytisins frá Jóhann-
esi Ágústssyni, stjómarmanni í
Náttúrulækningafélaginu.
Lík fannst við
Steingríms-
fjarðarheiði
Björgunarsveitin á Hólmavík
fann á sunnudag lík Hafsteins
Hálfdánarsonar, 18 ára Reykvík-
ings, við Steingrímsfjarðarheiði.
Hans hafði verið saknað síðan 9.
mars síðastliðinn er hann ásamt
félaga sínum yfirgaf þar bíl í
vonskuveðri.
Lík piltsins fannst um það bil
fjóra kílómetra í átt að byggð frá
þeim stað er bíllinn var yfirgefinn.
Lík félaga Hafsteins, Jóns Gísla
Sigurðssonar, 19 ára, fannst 16.
mars sl., tæpa 2 kflómetra frá bfln-
JUPi.............. ingar á hælinu og á nýju-heilsu-
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
koma fram margvíslegar athuga-
semdir við rekstur Heilsuhælisins.
Þar er í fyrsta lagi nefnt, að óeðli-
leg tengsl séu milli hælisins og
Náttúrulækningafélagsins, sem sé
rekið sem sjálfseignarstofnun.
Meðal annars sé um að ræða sam-
eiginlegan framkvæmdastjóra og
sameiginlega kennitölu. Þá annist
Heilsuhælið ýmsa íjárhagslega fyr-
irgreiðslu fyrir félagið.
í annan stað er vikið að greiðslu
sjúklinga fyrir veru á hælinu og
sagt, að í samræmi við lög um
breytta verkaskiptingu ríkis- og
sveitarfélaga hefði átt að fella nið-
ur þátttöku sjúklinga í rekstrinum.
Jafnframt er gerð athugasemd við
að aukadaggjöld, það er að segja
greiðslur sjúklinga, hafi aðallega
verið notuð til fjárfestinga, en ekki
í rekstur, eins og daggjöldum sé
ætlað.
í þriðja lagi segir, að reiknings-
skil Heilsuhælisins, eins og þau
hafi borist opinberum aðilum, hafi
ekki verið í samræmi við reglugerð
um starfsemi Daggjaldanefndar
sjúkrahúsa. Aukadaggjöld sjúkl,-
inga séu ekki talin með sem rekstr-
artekjur, eins og ætti að gera í
samræmi við reglugerðina, heldur
renni í sérstakan „Heilsuhælis-
sjóð“, sem notaður sé til uppbygg-
hæli á Akureyri. Afskriftir hafi
verið verulega ofreiknaðar og sama
megi segja um viðhald og tækja-
kaup. Heilsuhælið leigi húsnæði,
sem ekki sé í samræmi við reglur
Daggjaldanefndar, og auk þess séu
rekstrartekjur vegna útleigu fast-
eignar að Sogni og vegna reksturs
heilsubúðar í Hveragerði ekki tald-
ar til tekna í rekstrarreikningi.
Fram kemur, að Náttúrulækn-
ingafélagið selji Heilsuhælinu heitt
og kalt vatn, en hér sé um að ræða
orku, sem leyfi hafi verið veitt til
að afla til eigin nota.
Sagt er að rekstur bifreiða
Heilsuhælisins og notkun starfs-
manna á þeim sé óeðlileg. Sama
máli gegni um bifreiðastyrki til
starfsmanna. Launakjör og önnur
starfskjör séu verulega hærri en á
öðrum sjúkrahúsum.
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra á Sauðárkróki:
Tilboð í bóknámshús
Sauðárkróki.
OPNUÐ hafa verið tilboð í bygg- skóla Norðurlands vestra á
ingu bóknámshúss Fjölbrauta- Sauðárkróki. Tilboðin voru opn-
uð á fundi sem haldinn var í
Safnahúsinu í gær að viðstaddri
skólanefnd fjölbrautaskólans,
fulltrúum bjóðenda og allmörg-
um gestum.
Tilboð bárust frá eftirtöldum
aðilum: Byggingafélagið Hlynur
hf. tæplega 235 milljónir kr., Tré-
smiðjan Borg hf. 246,6 milljónir
kr., Friðrik Jónsson sf. 245,1 millj-
ón og SH verktakar 288,7 milljón-
ir kr.
Lægsta tilboðið frá Byggingafé-
laginu Hlyn hf. var 87,9% af kostn-
aðaráætlun sem hljóðaði upp á
267,1 milljón kr. en hæsta tilboðið
var 8% yfir áætlun.
Kostnaðaráætlunin skiptist
þannig að áætluð jarðvinna var 8,5
milljónir, burðarvirki 85,1 millj.,
lagnir 39,5 millj., raforkuvirki 18,5
millj. og frágangur inni 75,8 millj.
frágangur úti 21,5 millj. og frá-
gangur lóðar 17,8 milljónir kr.
Það var Magnús Sigurjónsson
framkvæmdastjóri Héraðsnefndar
sem opnaði og kynnti tilboðin en
síðan verða þau yfirfarin af Hér-
aðsnefnd og samband haft við
bjóðendur vegna framkvæmdar-
innar og frávikstilboða sem fram
komu. Miðað er við að fram-
kvæmdir geti hafist nú þegar í vor
en verklok miðast við að húsið
verði komið í full not á árinu 1995
og að fullu frágengið ári síðar.
- BB.
Lyfjamál hælisins séu ekki í sam-
ræmi við lög um lyfjadreifingu og
lög um heilbrigðisþjónustu. Þannig
séu sjúklingar látnir greiða lyf sín
sjálfir og þar með að mestu á kostn-
að sjúkratrygginga.
Virðisaukaskattur sé ekki reikn-
aður nema af hluta af skattskyldri
starfsemi Heilsuhælisins og ýmsir
aðrir þættir í rekstrinum orki tví-
mælis, svo sem rekstur mötuneytis
og rekstur garðyrkjustöðvar.
Þá kemur að lokum fram, að
Ríkisendurskoðun telji biýnt, að
fram fari heildarendurskoðun á
rekstri Heilsuhælisins í því skyni
að ákveða framtíðarhlutverk þess
og markmið í samræmi við núgild-
andi heilbrigðislöggjöf. Jafnframt
verði settar niður deilur milli lækna
þar annars vegar og framkvæmda-
stjóra og stjórnar hins vegar.
Hjúkrunarfélag íslands:
Vilborg Ingólfs-
dóttir formaður
VILBORG Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur landlæknis-
embættisins, var í fyrradag kjörin nýr formaður Hjúkrunarfélags
íslands.
Vilborg hlaut 615 atkvæði, eða
54,14% greiddra atkvæða, en Olína
Torfadóttir, hjúkrunarforstjóri á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri,
fékk 512 atkvæði, eða 45,07%
greiddra atkvæða.
Vilborg er fædd 3. júní 1948
og verður því 43 ára í næsta mán-
uði. Hún lauk stúdentsprófi frá
Méftntaskólánum í Reykjavík árið
1968, hjúknmarprófi frá Hjúkr-
unarskóla íslands 1971, B.Sc.
gráðu í hjúkrunarfræði frá Há-
skóla íslands 1977 og meistaragr-
áðu í heilbrigðisfræðum frá Nor-
ræna heilbrigðisháskólanum í
Gautaborg 1990.
Vilborg tekur við starfinu af
Sigþrúði Ingimundardóttur sem
verið hefur formaður félagsins frá
1982.
Vilborg Ingólfsdóttir
Á kjörskrá voru 2.031 og akvæði
greiddu 1.136, eða 55,93%. Auðir
seðlar voru 6 og ógildir 3.