Morgunblaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAI 1991
23
Sviss:
Betra að mögla nú
um EES en seinna
Zrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SVISSLENDINGAR gátu sætt
sig við niðurstöðu ráðherrafund-
ar Fríverslunarsamtaka Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagsins
(EB) um evrópska efnahagssvæð-
ið (EES) í Brussel seint á mánu-
dagskvöld og eru því eftir sem
áður aðilar að samningaviðræð-
unum. Á mánudag leit út fyrir
að þeir yrðu ekki með í sameigin-
legri yfirlýsingu ráðherranna
eftir fundinn og færu sína leið.
En Jean-Pascal Delamuraz, við-
skiptaráðherra Sviss, sagði í
samtali við svissneska útvarpið í
gær að umræðunum hefði þokað
í rétta átt.
Hinum Evrópuríkjunum þóttu
Svisslendingar vera ósamvinnuþýð-
ir á fundinum. Delamuraz sagðist
vita það en benti á að samningavið-
ræður væru til þess að ijalla um
flest í smáatriðum og það væri betra
að mögla nú en þegar samningurinn
er fullfrágenginn. Með þessum
hætti sagðist hann vonast til að ná
fram samningi sem Sviss gæti skrif-
að undir og þjóðin samþykkt.
í fréttum svissneskra dagblaða í
gær leit út fyrir að Sviss myndi
segja skilið við hin EFTA-ríkin í
samningaviðræðunum. Svisslend-
ingar hafa ýmsar séróskir, til dæm-
is varðandi aðlögunarfrest áður en
samþykktir ganga í gildi og umferð
þungaflutningabifreiða, og eru
mjög varkárir varðandi allt sem
snertir sjálfstæði og sjálfstjórn
þeirra. Ráðherra Lúxemborgar,
sem var í forsæti á fundinum, lagði
til að Sviss samþykkti samkomulag
ráðherranna með almennum fyrir-
vara. Svissneska blaðið Neue
Zrcher Zeitung kallar það „kurteis-
legt boð til Sviss um að hverfa frá
viðræðunum með séróskir sínar“.
--------------
Noregur:
Bjartsýn
á lausn
Ósló. Frá Hclge Sörensen, fréttaritara
Morgunblaðsins.
„ÞAÐ hafa orðið þáttaskil í við-
ræðunum um Evrópska efna-
hagssvæðið," sagði Eldrid
Norbö, viðskiptaráðherra Nor-
egs, í Ósló í fyrrakvöld eftir kom-
una frá Brussel.
Norbö kvaðst viss um, að deilan
um sjávarútvegsmálin leystist far-
sællega og nefndi tvennt í því sam-
bandi. Annars vegar, að milli Nor-
egs og Evrópubandalagsins (EB)
væri í gildi samningur um nýtingu
fiskstofnanna, og hins vegar, að
unnt væri að koma til móts við EB
með tvíhliða samningum. Átti hún
þá við hugsanleg framlög EFTA-
ríkjanna í þróunarsjóð fyrir Suður-
Evrópuríkin og kaup EFTA-ríkj-
anna á landbúnaðarvörum þaðan.
Staðfestur skilning-
ur á sérstöðu Islands
KJARTAN Jóhannsson, sendiherra íslands hjá Fríverslunarbandalagi
Evrópu (EFTA), sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að í sameigin-
legri yfirlýsingu ráðherra EFTA og Evrópubandalagsins (EB) væri
staðfestur skilningur á sérstöðu íslands í sjávarútvegsmálum.
„Það miðaði verulega áleiðis í því
að ná samkomulagi um ýmisleg at-
riði eins og dómstól, þátttöku í nefnd-
um, ákvarðanaferil og öryggisá-
kvæði sem EFTA-löndin geta gripið
til. Ennfremur um ýmis tæknileg
atriði eins og aðlögunartíma og sam-
vinnu á sviði tollamála og uppruna-
reglur. Það þokaðist lítið í sjávarút-
vegsmálum en það var staðfestur
betur en áður skilningur á sérstöðu
ÍQlnnH« u síicrdi Kiarfnn Hfinn Rncrdi
að í kaflanum um sjávarútvegsmál í
sameiginlegu yfirlýsingunni væri
sérstaklega tekið fram að það yrði
að vera heildarjafnvægi í samningn-
um og það væri það orðfæri sem
menn hefðu sérstaklega notað til að
benda á að ísland mun samkvæmt
EES-samningi veita tollfrjálsan að-
gang m.a. fyrir iðnaðarvörur og að
eðlilegt væri að á móti kæmi að
markaðir EB væru opnir fýrir fiskaf-
urðir.
Ml’i.l .1.11,.. I — —
Reuter
Kosningasigri fagnað
Sameinaði marx-lenínistaflokkurinn virðist hafa unnið mikinn sigur
í fyrstu fijálsu kosningunum í Nepal í 32 ár. Miðar talningu að vísu
hægt en í gær þegar fýrir lágu úrslit í 62 kjördæmum af 205 hafði
stjórnarflokkurinn, Kongressflokkurinn, fengið 31 þingmann en
marx-lenínistar og bandamenn þeirra 27. Hinir fjórir höfðu fallið í
skaut tveimur konunghollum flokkum, sem báðir heita Þjóðlegi lýð-
ræðisflokkurinn. Hér eru stuðningsmenn marx-lenínista í höfuðborg-
inni, Kathmandu, að fagna kosningasigrinum.
Svíþjóð:
Strokufangar náðust
Sænski dómsmálaráðherrann hefur fyr-
irskipað opinbera rannsókn á flóttanum
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
LEITIN að strokuföngunum tveimur frá Kumla-fangelsinu fékk
dramatískan endi í gærmorgun, þegar þeir náðust eftir að þeir
höfðu klessukeyrt bíl sem þeir höfu tekið traustataki á flóttanum
undan lögreglunni. Fyrst var palestínumaðurinn Marten Imandi
tekinn og síðan Iean Ursut, sem er rúmenskur að uppruna, nokkr-
um klukkustundum seinna. Fangarnir voru þá staddir fyrir utan
bæinn Arboga sem er milli Vasterás og Orebro.
Ursut skaut tveimur skotum að an frá því að þeir struku úr fang-
lögreglunni þegar þeir félagar
yfírgáfu bílinn. Imandi var gripinn
svo til strax, en Ursut flýði inn í
nærliggjandi skóg, þar sem hann
gafst upp nokkrum tímum síðar,
þegar lögregluhundur hafði bitið
hann í lærið.
Föngunum var ekið til Kumla-
fangelsisins, sínum i hvorum bíln-
um, undir eftirliti vopnaðra varða.
Þeir höfðu iifað á vatni einu sam-
elsinu og voru örmagna þegar
þeir náðust.
Fangarnir verða settir í algera
einangrun í fangelsinu og þegar
hefur verið hafist handa við að
byggja yfir garðinn þar sem þeir
voru í síðustu viku þegar þeir
ákváðu að strjúka.
Laila Freivalds dómsmálaráð-
herra hefur farið fram á opinbera
rannsókn í málinu.
Viðbúnað-
ur í Albaníu
Vín. Reuter.
ALBANSKI herinn hefur verið
settur í viðbragðsstöðu vegna
óvissuástandsins í nágrannarík-
inu Jugóslavíu, að sögn Ramiz
Alia, forseta Albaníu.
Hin opinbera fréttastofa Al-
banlu, ATA, hafði eftir forsetanum
að valdabaráttan milli stærstu lýð-
veldanna í Júgóslavíu, Serbíu og
Króatíu, væri „alvarleg ógnun við
frið og stöðugleika á Balkanskaga
og í álfunni allri“.
„Albönsk stjómvöld hafa gert
nauðsynlegar ráðstafanir og meðal
annars sett herinn I viðbragðs-
stöðu,“ sagði Alia þegar hann
ávarpaði sendinefnd frá júgóslav-
neska lýðveldinu Makedóníu á
mánudag.
Bush vill
fá Gates
tilCIA
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti útnefndi í gær Robert Gat-
es, aðstoðaröryggisráðgjafa
sinn, sem nýjan yfirmann
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA. Ef Bandaríkjaþing sam-
þykkir útnefninguna tekur Gat-
es við af William Webster, sem
lét'af störfum í síðustu viku.
Bush kvaðst í
gær hafa ráðfært
sig við leiðtoga
þingflokkanna og
vera mjög ánægð-
ur með undirtekt-
irnar og sann-
færður um, að
öldungadeildin
samþykkti Gates.
Hann er heldur
enginn nýgræð-
ingur hjá CIA því
að hann var einn af aðstoðaryfir-
mönnum stofnunarinnar 1982-86
og veitti henni forstöðu um hríð
eftir fráfall Williams Caseys. 1987
útnefndi Ronald Reagan, fyrrum
forseti, Gates formlega í embættið
en þegar þingið vildi fara að spyrja
hann spjörunum úr um Iran-
kontra-málið, sem þá var á döf-
inni, ákvað Gates að draga sig S
hlé.
Robert Gates
ESSEMM