Morgunblaðið - 15.05.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991
35
Guðmundur Sigvaldason vann í flokki götujeppa á þessum snyrtiiega
Willy’s Jeep jeppa, en keppni í þeim flokki var rnjög jöfn.
Liðstýrð grind Gísla Haukssonar sem beygir um liðstýringu í miðjum
bílnum, í stað þess að beygja með framhjólunum eins og flest öku-
tæki. Þessi tækni er m.a. notuð í þungavinnuvélum.
Torfæra OLÍS og JR:
Fjöldi nýjunga
og hörð keppni
FYRSTA torfærukeppm ársins sem fram fór í Grindavík um helgina
sýndi að mikil barátta verður um Islandsmeistaratitlana í flokki sérútbú-
inna jeppa og götujeppa. Egilsstaðabúinn Stefán Sigurðsson sigraði í
sérútbúna flokknum, en hann vann einnig í síðustu keppni liðins árs
og hefur tekið forystu í stigakcppninni. Mikil barátta var í flokki götu-
jeppa milli Guðmundar Sigvaldasonar og Davíðs Sigurðssonar og vann
sá fyrrnefndi með aðeins 50 stiga
keppni.
Islandsmeistarinn frá því í fyrra
í sérútbúnum flokki, Bílddælingur-
inn Árni Kópsson, náði ekki að sýna
sitt rétta form eftir að bilun í nitró-
búnaði plagaði hann í byrjun keppni
og lenti hann í fjórða sæti. En mik-
il keppni var um fyrsta sætið og
margar nýjar og endursmíðaðar
grindur settu svip sinn á keppnina.
Stefán Sigurðsson sýndi mikið ör-
yggi í flestum þrautum, en varð þó
að þola kollsteypu eftir að hafa
reynt við illkleift barð, sem fáir
réðu við. Sömuleiðis velti nýliðinn
Árni Grant á sama stað, en hann
sýndi góða takta í sinni fyrstu
keppni og varð í þriðja sæti á eftir
Magnúsi Bergssyni.
Mikill ijöldi grindarbíla tók þátt
í keppninni og nýsmíðuð liðstýrð
grind Gísla Haukssonar vakti hvað
mesta athygli, en hún er ekki með
hefðbundinn beygjubúnað að fram-
mun, sem þykir lítið í svo erfiðri
an, heldur stýrist með lið í miðjunni
og er í raun skipt í tvennt þannig
að fram- og afturhluti bílsins geta
vísað í sitt hvora áttina. í fyrstu
keppni reyndist bíllinn ekki sem
skyldi, en þessi frumsmíði gæti þó
náð betri árangri þegar ökumaður
nær betri tökum á gripnum, en
smíði bílsins þótti mjög vönduð.
Lokastaðan í torfæru OLÍS og
Jeppaklúbbs Reykjavíkur:
Sérútbúnir:
1. Stefán Sigurðsson 2285
2. Magnús Bergsson 2165
3. Árni Grant 2060
4. Árni Kópsson 2025
5. Sturla Jónsson 1870
Götujeppar:
1. Guðmundur Sigvaldason 1990
2. Davíð Sigurðsson 1985
3. SteingrímurBjamason 1900
4. Gunnar Pétursson 1730
5. Rögnvaldur Ragnarsson 1710
■ FRÆÐSL UFUNDUR
mígrensamtakanna verður hald-
inn miðvikudaginn 15. maí í Hlað-
varpanum við Vesturgötu í
Reykjavík kl. 20.30. Örn Jónsson
skólastjóri Svæðanuddskóla ís-
lands mun ræða um nudd og áhrif
þess á lækningu höfuðverkja. Fé-
lagsmenn eru hvattir til að mæta
en fundurinn er opinn öllum áhuga-
mönnum meðan húsrúm leyfir. Om
hefur áður haldið fyrirlestur á fundi
samtakanna og þótti hann mjög
athyglisverður þannig að búast má
við að margir sæki þennan fund.
Aðalfundur Mígrensamtakanna var
haldinn 20. mars sl. í Hlaðvarpan-
um í Reykjavík. Stjórn samtakanna
skipa nú Guðný Guðmundsdóttir,
formaður, Hrafnhildur Þorgríms-
dóttir, ritari, Birna Bjarnadóttir,
gjaldkeri og Regína G. Pálsdóttir
og Anna Sjöfn Sigurðardóttir
meðstjórnendur.
■ DAGJVÝKristjánsdóttir lektor
heldur miðvikudaginn 15. maí kl.
20.30 erindi í Skólabæ, Suðurgötu
20. Erindið nefnir hún: Sorgin og
fegurðin í „ Mín liljan fríð“ eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Allt áhuga-
fólk um kvennarannsóknir og bók-
menntir velkomið.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Þeir bestu komast ekki alltaf allar þrautir eins og Egilsstaðabúinn
Stefán Sigurðsson fékk að reyna í torfærukeppninni í Grindavík.
Hann vann í keppninni þrátt fyrir að hafa farið kollhnis á grind-
arbíl, sem hann kallar Skutluna.
IERTU MEÐ SKALLA?
HÁRVANDAMÁL?
Aðrir sætta sig ekki við það!
Af hverju skyldir þú gera það?
Fáðu aftur þitt eigið hár, sem vex eðlilega
Sársaukalaus meðferð
Meðferðin er stutt (1 dagur)
Skv. ströngustu kröfum banda-
rískra og þýskra staðla
Framkvæmd undir eftirliti og stjórn
sérmenntaðra lækna
Upplýsingar hjá EURO CLINIC Ltd.
Ráðgjafastöð, Neðstutröð 8, Póshólf 111,
202 Kópavogi - Sími 91 -641923
á kvöldin - Simi 91-642319.
O
&
TOSHIBA
örbylgjuofnar
15 gerðir
íslenskar leiðbeiningar.
Kvöldnámskeið í matreiðslu
án endurgjalds hjá Dröfn H.
Farestveit, hússtjórnarkenn
ara, sérmenntaöri ímatreiðslu
í örbylgjuofnum.
Gott verð - greiðslukjör
Ektar Farestvett&Co.hf.
BOKGIUtTÚNI 28, SMM 622901.
Laið 4 stoppar viA dymar
/■7/H//-/:7:
hvíla þreytta fætur
Wicanders
>££> Kork-o-Plast
Korkflísar er barnaleikur
að þrífa
^ ármúla 29, Milatirgi. sínl 31641
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
FYRIR DUGLEGA KRAKKA
RV 24" 18 gíra fjallahjól með smellugírum
mj ákr. 24.675.-
jf 20" 3ja gíra fjallahjól á kr. 13.760. -
S 16" fjallahjól á kr. 10.850.-
Í 14" fjallahjól á kr. 10.630. -
0 BMX hjól 12", 14", 16" og 20"
1 frákr. 7.780.- —12.720.-
Verð á fjallahjólum frá kr. 10.630.
Verð á barnahjólum trá kr. 4.970.-
DINO REIÐHJÓL
rtmnunBflHúsiOHF
Laugavegi 164, sími 21901
FALLEG - VÖNDUÐ - VINSÆL