Morgunblaðið - 15.05.1991, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 15.05.1991, Qupperneq 46
46 KNATTSPYRNA 18áralands- liðið í æf- ingaferð - til Austurríkis og Tékkóslóvakíu Landslið íslands í knattspymu, skipað leikmönnum 18 ára og yngri hélt í gær til Austurríkis og Tékkóslóvakíu í æfingaferð, þar sem leiknir verða 5-6 leiki. Ferðin er hugsuð sem undirbúningur fyrir leiki liðsins í Evrópukeppninni. Fyrst verður leikið í Purgstall fyrir utan Vínarborg, gegn heima- mönnum 15. maí og er það til að endurgjalda Austurríkismönnum heimsókn þeirra hingað til lands s.l. haust en þá sigraði íslenska lið- ið 3:0 á Hvolsvelli. Síðan verður haldið til Piestany í Tékkóslóvakíu þar sem liðið tekur þátt í sterku móti sem haldið er í tilefni 80 ára afmælis tékkneska knattspyrnusambandsins. í riðli með íslenska liðinu eru Rúmenía, Þýskaland, Grikkland og úrvalslið Slóvakíu. I hinum riðlinum verða Tékkóslóvakía, Tyrkland, Pólland og Sovétríkin. Hörður Helgason, þjálfari U-18 ára liðsins, hefur valið eftirtalda leikmenn til fararinnar: Markverðir: Eggert Sigmundsson, KA og Friðrik Þorsteinsson, Fram. Aðrir leikmenn: Arnar Arnarsson, Fram, Auðunn Helgason, FH, Bjarki Bragason, KA, Einar Baldvin Árnason, KR, Flóki Halldórsson, KR, Hákon Sverrisson, UBK, Helgi Sigurðsson, Víkingi, Kári Steinn Reynisson, ÍA, Kári Sturluson, Fylki, Lúðvík Arnarson, FH, Óskar Þorvaldsson, KR, Pálmi Haraldsson, ÍA, Rútur Snorrason, ÍBV, Sigurður Eyjólfsson, KR og Sturlaug- ur Haraldsson, IA. Fararstjórar verða; Helgi Þorvaldsson, Ásgeir Ármannsson, Gylfi Orrason, Steinn Haldórsson, Einar Jónsson, læknir og Hörð- ur Helgason, þjálfari. Stuðningsmanna- klúbbur KSÍ: Stofnfundur íkvöld Stofnfundur Stuðningsmanna- klúbbs KSÍ verður haldinn í kvöld, í fundarsal Úrvals-Útsýnar, Álfabakka 16, kl. 17.15. Meðal gesta verða Hörður Gunnars- son, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýn- ar, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Bo Johansson, landsliðsþjálfari, sem mun fjalla um leik Manchester United og Barcelona. Að því loknu verður fylgst með leiknum í beinni útsendingu frá Rotterdam. FRAKKLAND Basile Boli var hetja Marseille Miðvörðurinn Basile Boli var hetja Marseille þegar félagið lagði Nantes, 2:1, í 8-liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar í gær- kvöldi. Boli skoraði sigurmarkið í framlenginu - skallaði knöttinn í netið á 103 mín. eftir sendingu frá Abedi Pele. Paul Le Guen kom Nantes yfir, 1:0, á 76. mín., en aðeins Ijórum mín. seinna var Jean-Pierre Papin, sem var í strangri gæslu allan leik- inn, búinn að jafna, 1:1, eftir send- ingu frá Pele. Mareille leikur í undanúrslitum ásamt tveimur 2. deildarfélögum. Rodez, sem vann Sochaux, 2:1, og Gueugnon, sem vann Niort, 1:0. Sigurvegarinn úr leik Cannes og Mónakó er íjórða liðið í undanúrslit- um. MORGUNBLAÐIÐ IÞRO f f !R MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991 Aðeins tveir leikir á grasi? hvort spilað verður á aðalvellinum Nýliðar Víðis og KR leika í eða á efri vellinum. Garðinum, en óvíst er hvort spilað Stjaman og Valur ieika í verður á grasi eða möl. Mölin er Garðabæ. Grasvöllur Stjömunnar samt sennilegri á þessu stigi máls- er ekki tilbúinn og verður því leik- ins. ið á möl. Rætt hefur verið um að skipta á heimavelli og leika á grasi Þá verður viðureign KA og ÍBV að Hlíðarenda, en um það hefur á malarvelli KA. ekki verið tekin ákvörðun. Islandsmótið í knattspyrnu 1. deild, Samskipadeildin, hefst á mánudag, en þá fara allir fimm leikirnir í 1. umferð fram. Sam- kvæmt upplýsingum frá viðkoandi félögum er Ijóst að tveir leikir verða leiknir á grasi, tveir örugg- lega á möl og miklar líkur eru á þvi að fimmti leikurinn verði einn- ig á möl. íslandsmeistarar Fram taka á móti nýliðum Breiðabliks. Leikur- inn verður í Laugardal og er sett- ur á Valbjarnarvöll. FH mætir Vikingi í Kaplakrika í opnunarleik mótsins og verður leikið á grasi, en ekki er ljóst KEILA Minningarmót um Bimu Þórðardótftur Sunnudaginn 12. maí var haldið í keilusalnum í Öskjuhlíð eitt glæsilegasta og fjölmennasta keilu- mót kvenna, frá upphafi. Var þetta mót haldið til minningar um Birnu Þórðardóttur, sem lést s.l. sumar, en hún og eftirlifandi eiginmaður hennar, Helgi G. Ingimundarson, hafa verið í hópi bestu keilara lands- ins um árabil. Sigurvegari mótsins varð Sólveig Guðmundsdóttir og var hún vel að sigrinum komin enda hafði hún haft veg og vanda að því að mótið yrði haldið. í öðru sæti varð Hrönn Einarsdóttir, í þriðja sæti Ingveldur Sævarsdóttir, í fjórða sæti Steinunn Arnórsdóttir og í fimmta varð Sigurlín Baldurs- dóttir. Myndin af ofan sýnir sigur- vegarana ásamt Helga G. Ingi- mundarsyni og dótturdóttur hans, Birnu, en þau séu um verðlaunaaf- hendingu á mótinu. (Fréttatilkynning) 1. deild heitir nú Sam- skipa- deild Efsta lið deildarinnar fær 500.000 kr. frá Samskipum hf. KNATTSPYRNUSAMBAND ís- lands og samtök 1. deildarliða í knattspyrnu annars vegar og Samskip hf. hins vegar skrif- uðu í gær undir samstarfs- samning vegna 1. deildar- keppni Islandsmótsins íknatt- spyrnu 1991.1. deildarkeppnin nefnist nú Samskipadeildin. Ísamningnum segir m.a. að Samskipum hf. er heimilt að augiýsa 1. deildarkeppnina í sínu nafni, svo og með merki KSÍ í máli og myndum, og nýta þessa keppni í auglýsingaskyni fyrir fyrir- tækið á hvern þann hátt, sem mætti gagnast því. Samskip hf. greiða um 4-5 millj- ónir til 1. deildar félaganna tíu, sem skiptast milli þeirra eftir frammi- stöðu þeirra í mótinu. Efsta liðið fær 500 þúsund krónur og neðsta liðið 300 þúsund krónur. Auk þess mun Samskip hf. kynna deildina með ýmsum hætti og verðlauna meðal annars leikmann, þjálfara og dómara mánaðarins. Markmið samningsins er eftirfar- andi: 1. Að auka áhuga, kynningu og umfjöllun og þar með aðsókn að leikjum íslandsmótsins. 2. Að Samskip hf. fái sem mesta kynningu, umfjöllun og auglýsinga- gildi í tengslum við samninginn. ÞJÁLFARAR, fyrirliðar og formenn 1. deildarliðanna spá KR íslandsmeistara- titlinum í knattspyrnu f sumar. 29 af 30 seðlum skiluðu sér og var því mest hægt að fá 290 stig, en útkoman varð þessi: 1. KR..................268 2. Fram................249 3. Valur...............243 4. Víkingur............174 5. ÍBV.................156 6. FH..................139 7. Stjarnan............133 8. Breiðablik...........97 9. KA...................88 10. Víðir................48 NBA-DEILDIN Marfc Aguirre var óstöðvandi Þessi orð nægðu, því að Aguirre setti allt á fulit og skoraði grimmt, þar af 18 af 22 stigum á kafla í seinni hálfleik. „Það var sama hvaða leikmann ég lét Aguirre til höfuðs - við réðum ekkert við hann,“ sagði Chris Ford, þjálfari Boston. Kevin McHale skoraði mest fyrir Boston, eða 28 stig. Dennis Ridman hjá Pistons var útnefndi besti varnarmaður NBA-deildarinnar annað árið í röð og fékk hann viðurkenningu fyrir leikinn. Detroit Pistons lagði Boston aðvelli, 104:97, ífjórða leik liðanna í úrslitakeppni NBA í fyrrinótt. Liðin eru jöfn, 2:2, eftir ■■■■■■ fjóra leiki. Isiah Frá Thomas gat ekki Gunnari ieikið með meist- Valgeirssyni i Bancinríkjunum Aguirre fór á kostum og skoraði 34 stig Pistons. Við þurfum á stigum frá þér að halda í kvöld,“ sagði Chuck Daly, þjáifari Pistons við Aguirre, sem er fyr/um skotvél Dallas. araliðinu vegna meiðsla, en Mark Morgunblaðið/KGA Frá undirskrift samningsins. Frá vinstri: Stefán Eiríksson, fulltrúi Sam- skipa, Eggert Magnússon, formaður KSÍ og Halldór B. Jónsson, formaður 1. deildarfélaga. KARFA / URVALSDEILDIN Áttaaf tíu þjáKurum endurrádnir KR og Þór einu liðin sem eiga eftir að ráða Atta af tíu þjálfurum úrvals- deildarinnar í körfuknattleik hafa verið endurráðnir. Aðeins tvö félög eiga eftir að ráða þjálfara fyrir næsta vetur, KR og Þór. Líklegt er að Páll Kolbeinsson verði áfram þjálfari KR, en ekki hefur verið tekin ákvörðun, og Þórsarar leita að erlendum þjálfara. Milan Rozanek verður áfram þjálfari Tindastóls og fær Val Ingi- mundarson til liðs við sig. Valur heldur þó áfram að leika með liðinu og Ivan Jonas sömuleiðis. Pétur Guðmundsson fer frá félaginu en gert er ráð fyrir því að Einar Einars- son leiki áfram á Sauðárkróki. Jón Kr. Gíslason heldur áfram sem þjálfari ÍBK, enda gerði hann tveggja ára samning í fyrra. Liðið hyggst ekki halda Tairone Thornton og gert er ráð að Jón fari út sjálfur og svipist um eftir bandarískum leikmanni. Glenn Thomas verður áfram hjá Haukum, Gunnar Þorvarðarson hjá Grindavík, Vladímír Obúkov hjá Val, Hreinn Þorkelsson þjálfar Snæfell og Birgir Mikaelsson verður áfram þjálfari nýliða Skallagríms. Aðeins þtjú félög gera ráð fyrir því að nota sömu erlendu leikmenn næsta vetur. Tindastóll hefur samið við Ivan Jonas og Njarðvík við Rondey Robinson. Þá hafa Grindvíkingar hug á að halda Dan Krebbs og ekki er útilokað að Jonat- han Bow komi aftur til KR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.