Morgunblaðið - 16.05.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.05.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Ræða Einars Odds Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitenda- sambands ísiands, ijallaði um viðhorf í kjaramálum í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í fyrradag. Ræða þessi hefur vak- ið verulega athygli,' ekki sízt, þar sem ræðumaður var einn helzti höfundur þjóðarsáttarinn- ar svonefndu og nýir kjara- samningar standa fyrir dyrum í haust. Hver er boðskapur Ein- ars Odds að þessu sinni? í grundvallaratriðum kemur hann fram í eftirfarandi um- mælum hans á aðalfundi VSÍ: „Þeir möguleikar, sem við eig- um, eru að auka hér kaupmátt um þetta eitt og hálft til tvö prósent á ári. Þetta kann sum- um að finnast lítið, en er þó fyllilega sambærilegt við það, sem bezt gerist í heiminum. Um tuttugu til þijátíu prósent vöxt- ur þjóðartekna og sambærileg aukning kaupmáttar fram til aldamóta, ef við ættum völ á því, þá væri sannarlega eitt mesta blómaskeið íslandssög- unnar að renna upp.“ Jafnframt gagnrýndi formað- ur Vinnuveitendasambandsins sjómenn í ræðu sinni og varaði þá við, að frekari kröfugerð af þeirra hálfu umfram aðra mundi leiða til þess, að aðrir þjóðfé- lagsþegnar mundu ekki sætta sig við hin sérstöku skattfríðindi sjómanna til lengdar. Loks lýsti Einar Oddur þeirri skoðun sinni, að óraunhæft væri að ræða um launahækkanir til láglaunafólks umfram aðra. Þótt menn tækju undir kröfur um slíkt í orði væri enginn hópur í þjóðfélag- inu tilbúinn til þess að standa við það á borði. Þessi sjónarmið formanns VSÍ eru vafalaust raunsætt mat á stöðunni. Reynsla manna síðasta aldarfjórðung er sú, að ítrekaðar tilraunir til þess að bæta kjör láglaunafólks um- fram aðrar stéttir hafa reynzt haldlitlar, ekki vegna þess, að vinnuveitendur væru ekki til- búnir til slíkra samninga, heldur af þeirri ástæðu, að um þá stefnu hefur ekki verið sam- staða innan verkalýðshreyfíng- arinnar, þegar á hefur reynt. Þá er það áreiðanlega rétt, að sjómenn mega gæta að sér í kröfugerð um kjarabætur umfram aðra þjóðfélagshópa. Þeir hafa lengi notið sérstöðu og launakerfi þeirra er þannig upp byggt, að þeir geta hlotjð happdrættisvinning, þegar vel gengur en líka lækkað í tekjum þegar illa árar. Þetta verða menn auðvitað að hafa í huga í umfjöllun um launamál sjó- manna. Engu að síður kom það í ljós í vetur, að starfsfólk í fisk- verkunarhúsum sættir sig illa við kauphækkanir til sjómanna, sem ekki koma í þeirra hlut einnig. Skömmu eftir undirritun febrúarsamninganna fyrir rúmu ári sagði m.a. í Reykjavíkur- bréfí Morgunblaðsins: „Nú fá atvinnuvegirnir vinnufrið og ríkisstjórnin fær vinnufrið. Nú verða menn að snúa sér að því að leysa þá skipulagskreppu í atvinnulífinu, sem er undirrót þeirrar lífskjaraskerðingar, sem við höfum orðið að sæta undan- farin misseri. Þessi skipulags- kreppa er í sjávarútvegi, þar sem of mörg skip eru að veiða of lítið magn af þorski. Hún er í fískvinnslunni, þar sem of mörg fískverkunarhús eru að vinna of lítið magn af fiski. Hún er í landbúnaði, þar sem enn er framleitt of mikið af kjöti. Hún er í ríkiskerfinu sjálfu, sem hefur ekki kunnað að sníða sér stakk eftir vexti. Þetta eru þau verkefni, sem vinna verður að fram á haustið 1991. Þá verður að sýna launþegum fram á það með rökum, að þeir hafi haft erindi, sem erfiði. Þá skiptir máli, að þeir sjái, að lífskjör þeirra hafi batnað vegna samn- inganna, sem gerðir voru núna í vikunni. Sá lífskjarabati verður ekki að veruleika, nema menn taki nú þegar til höndum í at- vinnulífinu." í ræðu sinni sagði Einar Odd- ur Kristjánsson: „En hvað þá með launþegana, spyrja menn, hvers getum við vænzt af þeim, hver verða viðbrögð verkalýðs- félaganna í haust? Eru þau til- búin til að halda áfram með okkur á þessari sömu braut? Eg veit að margir eru efíns, ég veit, að margir óttast að kröfu-' gerðin í haust verði í engu sam- ræmi við hinn efnahagslega veruleika. En af hveiju ættum við að vantreysta verkalýðs- hreyfingunni? Við höfum alls enga ástæðu til þess, hún hefur staðið með okkur eins og klettur í gegnum þykkt og þunnt.“ Þetta er líka rétt hjá for- manni Vinnuveitendasam- bandsins. En með sama hætti geta forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar líka spurt: Hvers vegna eigum við að van- treysta vinnuveitendasamband- inu? Niðurstaða kjarasamning- anna næsta haust byggist ekk- ert síður á því, að afstaða vinnu- veitenda verði í samræmi við afkomu fyrirtækjanna á síðasta' ári í kjölfar febrúarsamning- anna en að verkalýðshreyfíngin sýni hófsemd í kjarakröfum. VERÐLAGSAKVÆÐIISJOFLUTNINGUM FÉLAG íslenskra stórkaupmanna hefur farið fram á það við Verðlagsráð að verð- lagsákvarðanir í fraktflutningum til og frá landinu verði gefnar frjálsar. Hefur Birgir R. Jónsson, formaður Félags íslenskra stór- kaupmanna, haldið því fram í Morgunblað- inu að enginn þrýstingur verði á gjaldskrár skipafélaganna fyrr en þau taki sínar verð ákvarðanir sjálf án opinberra afskipta. Hefur hann m.a. gagnrýnt Verslunarráð og Vinnuveitendasambandið fyrir að aðhaf- ast ekkert í þessu máli á vettvangi Verð- lagsráðs. Morgunblaðið leitaði viðbragða nokkurra aðila vegna ummæla formanns stórkaupmannafélagsins og er svör þeirra að finna hér á síðunni. Þórður Sverrisson deildarstjóri hjá Eimskip: Fylgjandi frjálsri verðmyndun ÞORÐUR Sverrisson, framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskipafé- lagsins, segir að Félagi íslenskra stórkaupmanna sé fullkunnugt um, að Eimskipafélagið sé fylgjandi því, að verðákvarðanir í sjóflutningum til og frá landinu verði gefnar frjálsar. Segir hann ennfremur að flutningsgjöld Eimskipafélagsins hafi lækkað nálægt 30% á síðustu sjö árum. Þórður sagði að Eimskipafélagið hefði lýst því yfir á fundi með stjórn Félags stórkaupmanna í haust að það teldi ekki ástæðu til að Verðlagsráð íj'allaði um flutningsgjöldin heldur ættu þau að vera fijáls. „Þessu lýst- um við yfir áður en Félag stórkaup- manna sendi Verðlagsráði bréf þar sem þeir fóru fram á að flutnings- gjöld í sjóflutningum yrðu ekki háð verðlagsákvæðum. Við höfum einnig greint Verðlagstofnun frá því að við séum sammála þessari skoðun stór- kaupmanna og látið fulltrúa stór- kaupmanna vita að þessu hafi verið komið á framfæri við verðlags- stjóra," sagði hann. Þórður sagði að uppbygging flutn- ingsgjalda Eimskipafélagsins væri svipuð því sem viðgengist víða um heim. „Þó að vara sé flutt í gámum í sjóflutningum gildir víða sú regla að flutningsgjald er mismunandi eft- ir vörutegundum," sagði hann. „Flutningsgjaldskrá okkar tekur tillit til þess hvaða vöru er verið að flytja því þjónusta við flutning á ein- stökum vörum er misjöfn og verðin taka mið af því hvaða vöru er verið að flytja. Okkar flutningsgjaldskrá er alltaf í þróun og hafa flutnings- gjöld lækkað á undanförnum árum. Einnig hefur mismunur á hæstu og Þórður Sverrisson lægstu gjöldum minkað mjög mikið,“ sagði hann. Þórður sagði flutningsgjöld Eim- skipafélagsins hafa breyst í samræmi við óskir og samkeppni markaðarins. „Við teljum að flutningsgjöld hafí lækkað nálægt 30% á síðustu sjö árum og það er spurning hvort nokk- ur önnur atvinnugrein í landinu hefur skilað eins mikilli lækkun á sinni þjónustu á þessu tímabili," sagði Þórður. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Verslunarráðs: Verslunarráð hefur unnið ötul- lega að afnámi verðlagsákvæða VILHJÁLMUR Egilsson framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands segir ekki rétt að Verslunarráð hafi ekkert aðhafst í að koma á frjálsri verðlagningu innan Verðlagsráðs, eins og formaður Félags íslenskra stórkaupmanna hefur gagnrýnt ráðið fyrir í Morgunblaðinu í sam- bandi við farmgjöld skipafélaga. „Það hefur verið stefna okkar að afnema verðlagsákvæði og við höfum haldið þeirri stefnu mjög ákveð- ið og lengi fram og tekið það mál oft upp í ráðinu sem og á mörgum fleiri sviðum," sagði Vilhjálmur í samtali við Morgunblaðið. Vilhjálmur sagði Verslunarráð hafa barist ötullega fyrir fijálsræði í verðlagningu og aldrei hafi komið til þess innan Verðlagsráðs að Verslunarráð hafi staðið á móti fijálsri álagningu. „Verslunarráðið hefur í gegn um tíðina verið einn helsti bakhjarl og málsvari fijálsræðis í viðskiptum og innan Verðlagsráðs hefur Versl- unarráðið haldið þeirri stefnu mjög ákveðið fram. Hins vegar hefur Halldór Blöndal samgöngnráðherra: Urelt að Verðlagsráð ákveði farmgjöld HALLDÓR Blöndal samgöngu- ráðherra segist vera þeiiTar skoðunar að úrelt sé að ákveða farmgjöld skipafélaga í Verð- lagsráði. Hann var spurður álits á þessu í tilefni af ummælum Birgis Þ. Jónssonar formanns Félags íslenskra stórkaupmanna hér í blaðinu, þar sem hann gagnrýndi að ekki skyldi ríkja fijáls verðmyndun á farmgjöld- um. „Mér finnst sjálfsagt að taka upp viðræður um það að koma á öðru fyrirkomulagi," sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé úrelt að Verðlagsráð taki ákvarðanir um verð á fraktflutn- ingum til og frá landinu og tel að nauðsynlegt sé að kostir samkeppni njóti sín á þessu sviði sem öðrum.“ Halldór Blöndal Vilhjálmur Egilsson verið reynt að ná sem breiðastri samstöðu um þau skref sem hafa verið stigin í átt til fijálsræðis og til þess að ná slíkri samstöðu þarf oft að draga úr einhveijum flugelda- sýningum eða tillöguflutningi sem vitað er að yrðu felldar," sagði Vil- hjálmur. Hann sagði Verslunarráð vinna að þessu markmiði þannig fyrst og fremst að reynt sé að vinna aðra aðila í Verðlagsráði á band Verslun- arráðs, það er fulltrúa stjórnvalda, hæstaréttar og launþegasamtak- anna. „Það hefur verið meginverk- efnið hjá okkur að vinna þá yfír á okkar band þannig að samstaða væri um þetta fijálsræði. Þegar meður er að vinna einhvern á sitt band, þá gerir maður það ekki með látum, heldur með því að vinna ötul- lega og ákveðið og með því að reyna að sannfæra menn, en ekki með því að láta skerast í odda,“ sagði Vil- hjálmur Egilsson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAI 1991 31 Omar Jóhannsson framkvæmdastjóri Samskipa hf.: Tilbúnir í viðræður um farmgjöld hvenær sem er Samskip hafa boðið gámaverð í fjölda ára ÓMAR Jóhannsson framkvæmdasljóri Samskipa hf., áður Skipa- deildar Sambandsins, segir viðræður hafa staðið milli félagsins og Félags íslenskra stórkaupmanna í fyrra um farmgjöld og flutnings- máta, en FIS hafi slitið þeim viðræðum. Ómar var spurður um þá gagnrýni Birgis R. Jónssonar formanns FIS í Morgunblaðinu í fyrra- dag, að farmgjöld væru há og skipafélög vildu ekki bjóða safnflutn- inga og gámagjöld. „Við erum að sjálfsögðu reiðubúnir að ræða við aðila um þessi mál, hvenær sem er, það er sjálfsagt, og ég vænti þess að viðræður geti verið tekið upp að nýju við þessa aðila þar sem frá var horfið í fyrra,“ sagði Ómar í samtali við Morgun- blaðið. Ómar sagði eina helstu skýring- una á háum farmgjöldum miðað við erlenda samkeppnisaðila vera að rekstrarumhverfi íslenskra kaupskipaútgerða væri óhagstætt í samanburði við rekstrarkostnað samkeppnisútgerða í nágranna- löndunum. „Það á við bæði beina, opinbera gjaldtöku svo og háan launakostnað, sem íslenskar út- gerðir bera, sem ásamt mörgum fleiri þáttum gera það að verkum að rekstrarkostnaður íslenskra kaupskipa er mun hærri hvað þessa liði snertir heldur en er í nærliggj- andi löndum,“ sagði Ómar. Hann sagði Norðurlöndin hafa búið við þessar sömu aðstæður fýr- ir nokkrum árum, en þar hafi verið gripið til aðgerða sem orðið hafi til þess að þeirra kaupskip urðu samkeppnisfær á ný. „Þeir hafa með því móti náð stórum hluta af sínum kaupskipum undir sinn fána á ný,“ sagði hann. Omar var spurður hvort eðlilegt væri að Verðlagsráð ákvarðaði flutningataxta skipafélaganna. Hann sagði að í flestum ef ekki öllum tilfellum sé í dag ekki fýlgj; hámarkstöxtum Verðlagsráðs. „Þarna hefur samkeppni skipafé- laganna, sem hefur verið hörð mörg undanfarin ár, valdið því að í mjög mörgum tilfellum eru raunfraktir mun lægri heldur en hinar svokölluðu Verðlagsráðsfr- aktir, sem eru jú ekkert annað en þak á verðlagið,“ sagði hann. Ómar sagði tvíeggjað að Verð- lagsráð hætti að ákvarða verðtaxt- ana, sér í lagi ef eitt skipafélag kæmist í einokunaraðstöðu á ákveðnum flutningum eða flutning- aleið. „Þá hlýtur það að vera slæmt fyrir viðkomandi markað, hvort sem það er innflutnings-, útflutn- ings- eða innanlandsmarkaður, að ekki sé um neins konar hámark að ræða. Á meðan samkeppnin er fyr- ir hendi, eins og er í lang stærstum hluta, ef ekki nær öllum þáttum flutninga til og frá landinu, þá ótt- ast ég ekki hættuna á þessum þætti sem getur fylgt einokunarað- stöðu.“ Ómar segir að farið hafi fram viðræður í fyrra milli Félags ís- lenskra stórkaupmanna og Skipa- deildar Sambandsins, sem nú er Samskip hf., um safnflutninga og gámaverð. „Ég vissi ekki betur en að þau mál væru á ákveðnum rek- spöl sem þróaðist í rétta átt, en þá var okkur tilkynnt af viðkom- andi framkvæmdastjóra að frekari viðræðum væri ekki haldið áfram. Ástæður veit ég ekki nákvæmlega hveijar voru.“ Hann sagði að um fjölda ára hafi Skipadeild Sambandsins og nú Samskip boðið gámaverð. Hann sagði flutningsgjald byggjast á mörgum þáttum, ýmist miðað við Ómar Jóhannsson tonn, rúmmetra, gám eða annað. Einn þáttur væri tryggingar flytj- anda. „Ef skip verður fyrir áfalli og þarf að leita björgunar þá kem- ur til dæmis til sameiginlegt tjón sem tryggingarfélög skipsins og farmsins skipta á milli sín. Þá skipt- ir miklu hvort viðkomandi gámur er til dæmis fullur af gimsteinum eða gijóti. Allir þessir þættir spila inn í verðmyndunina." Hann sagði gámaverð sem boðið er byggt á ákveðnum vöruflokkum í hvern gám til þess að vitað væri um verðmæti vörunnar með tilliti til trygginga. „Af hvaða ástæðu viðkomandi vilja ekki greina flytj- andanum frá því hvaða vöruteg- undir, í grófustu merkingu raunar, eru fluttar um borð í skipinu, það finnst mér mjög einkennilegt að viðkomandi vilji ekki,“ sagði Ómar Jóhannsson. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ: Tekið til umræðu að hætta þátttöku í verðákvörðunum ÞÓRARINN V. Þórarinsson, framkvæmdasljóri Vinnuveitendasam- bands íslands, segir það rangt hjá formanni Félags íslenskra stór- kaupmanna, að Vinnuveitendasambandið hafi ekki beitt sér fyrir því að gefa verðákvarðanir í fraktflutningum fijálsar. „Við höfum haft þau sjónarmið uppi innan Verðlagsráðs, að afnema ætti af- skipti yfirvalda af þessum flutningatöxtum,“ segir Þórarinn. Hann segir einnig að framkvæmdastjórnt VSI muni á næstunni ræða hvort samtökin ættu að hætta þátttöku áðs af afkomu fyrirtækja. „Við teljum að það sé miklu heilladrýgra að opinberir aðilar séu ekki að ástimpla gjaldskrár fyrir- tækja. Þegar mest öll verðmyndun í landinu fer núorðið eftir fijálsri samkeppni og er án afskipta ein- hverrra yfirvalda teljum við að ganga beri skrefið til fulls og hætta þessum leikaraskap, sem eru af- skipti Verðlagsráðs af töxtum skip- afélaga, verðákvörðun á olíuvörum og flutningastarfsemi. Þessi af- staða liggur fýrir,“ sagði Þórarinn. Hann sagði að á vettvangi VSI yrði tekið til umræðu hvort það fái samrýmst þeim sjónarmiðum sem opinberum afskiptum Verðlagsr- uppi væru á síðustu tímum að Vinnuveitendasambandið væri með beinum eða óbeinum hætti að taka þátt í miðstýrðum ákvörðunum um afkomu einstakra fyrirtækja líkt og gert væri í þessum tilvikum í Verðlagsráði. „Það verður rætt í framkvæmdastjórn Vinnuveitenda- sambandsins á næstunni,“ sagði hann. Þórarinn kvaðst aðspurður ekki kannast við að einstakir félagsaðil- ar VSÍ hefðu beitt þrýstingi gegn því að sambandið beitti sér fyrir þessum sjónarmiðum innan Verð- lagsráðs. „Ég tel að skipafélögin Þórarinn V. Þórarinsson myndu til dæmis fagna því að verða laus undan opinberum afskiptum af gjaldskrám sínurn," sagði hann. Húsnæðislán: Engin ákvörðun um breytingar á vöxtum - segir félagsmálaráðherra JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að 12-15 millj- arða króna þurfi til að fjármagna húsnæöislán til þeirra sem enn eiga gildar umsóknir í lánakerfinu frá 1986, um 4.700 manns. Á vegum ríkistjórnarinnar er nú til athugunar hvernig eigi að leysa mál þessa fólks, ennfremur er skoðað hvernig eigi að leysa fjárhags- vanda Byggingarsjóðs ríkisins. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra kveðst eiga von á að rætt verði við aðila vinnumarkaðaríns um þessi mál áður en ákvarðanir verði teknar. í bráðabirgðaákvæði laga sem Alþingi samþykkti í vor er gert ráð fyrir að hægt sé að gefa þessum 4.700 manns kost á að staðfesta umsóknir sínar og þeirra mál yrðu leyst á næstu þremur árum að því tilskyldu að um semdist við lífeyris- sjóðina að þeir fjármagni lánin. Gert er ráð fyrir að Húsnæðisstofn- un sendi umsækjendum bréf þar sem réttur þeirra yrði skýrður. Jóhanna sagði í samtali við Morgunblaðið, að 12-15 milljarða króna þurfi á næstu þremur árum ef veita á þessi lán. „Menn vilja sjá fyrir sér hvernig hægt er að fjármagna það áður en þessi bréf verða send út.“ Rætt hefur verið að leysa fjár- hagsvanda Byggingarsjóðs ríkisins með vaxtahækkun á húsnæðislán- um. Jóhanna sagði engar ákvarðanir hefðu verið teknar um það og kvaðst ekki geta sagt hve- nær þeirra væri að vænta. Hún var spurð hvort slíkar vaxtahækk- anir yrðu afturvirkar. „Mér finnst mjög mikill misskilningur vera lagður í það þegar verið er að tala um afturvirkni. Ef til kæmu ein- hveijar vaxtabreytingar á lánum sem hafa verið tekin hér á árum á undan þá kæmu hækkanirnar ekki nema frá þeim degi sem vext- ir yrðu ákveðnir og þá yrðu menn að skoða bað líka í því ljósi ef til þess kæmi að fólk með lágar og miðlungstekjur fengi þetta bætt í gegnutn skattakerfið.“ Jóhanna sagði ekki hafa komið til tals að breyta vöxtum á húsbréf- alánum og sagðist telja að lífeyris- sjóðirnir gætu átt verulegan þátt í því á næstunni að ná niður ávöxt- unarkröfunni á húsbréfum með því að kaupa þau í ríkari mæli en áður. Friðrik Sophusson sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að ekki væri að vænta ákvörðunar næstu daga uni aðgerðir varðandi vexti af húsnæðislánum eða varð- andi húsbréfamarkaðinn, þessi mál væru til skoðunar, í samhengi við önnur ríkisfjármál, af hálfu félags- málaráðuneytis og fjármálaráðu- neytis. „Auk þess á ég von á því að viðræður fari fram við aðila vinnumarkaðarins um þessi mál,“ sagði Friðrik. Sambandssljórn VMSI: Hækkun vaxta ólíð- andi brot á þjóðarsátt STJÓRN Verkamannasambands íslands lýsir andstöðu við þá hækk- un vaxta sem þegar er orðin og boðuð hefur verið, eða allt að 30% hækkun. „Þetta er óliðandi brot á þeim kjarasamningum sem geng- ið hafa undir nafninu „þjóðarsátt“,“ segir í ályktun fundar stjórnar sambandsins sem haldinn var á mánudag og þriðjudag. í ályktuninni segir, að við gerð kjarasamninga í febrúar á síðasta ári hafi langstærsti hluti launþega tekið þátt í ásamt fleiri aðilum að knýja verðbólgu niður og koma því lagi á efnahagsmálin sem hafi verið frumskilyrði þess að atvinnulíf þró- aðist með eðlilegum hætti. Við þess- ar aðgerðir hafi aðstæður gjör- breytst eins og merkja megi af af- komu fyrirtækja í landinu. „Þess vegna hlýtur sambandsstjórn Verk- amannasambands íslands að lýsa andstöðu sinni við þá hækkun vaxta sem nú þegar er orðin og hefur verið boðuð, allt að 30% hækkun, þetta er ólíðandi brot á þeim kjara- samningum sem gengið hafa undir nafninu „þjóðarsátt". Þetta er allt að 30% skattfijáls launahækkun til fjármagnseigenda. Með hækkun kostnaðarþátta eins og vaxta er Ríkisbankarnir: Varamenn taka sæti í bankaráðum JÓN Þorgilsson, sveitarstjóri á Hellu, hefur tekið sæti Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra í bankaráði Landsbankans, en Jón var varamaður Friðriks í banka- ráðinu. Þá hefur Friðjón Þórðarson, sýslumaður og fyrsti varamaður í bankaráði Búnaðarbankans tekið sæti Halldórs Blöndal, landbúnað- ar- og samgönguráðherra, í banka- ráðinu. verið að eyða árangri þessarar samningsgerðar og færa hagnað af henni til þeirra sem ekkert hafa til hennar lagt í stað þess að launa- fólk fái að njóta eins og um var sarnið," segir í ályktuninni. --------------- Reyklaus dagur 31. maí: Aherslan á hreint loft HINN árlegi reyklausi dagur verður föstudaginn 31. maí, á alþjóða tóbaksvarnardaginn, og er þetta í sjöunda sinn sem reyk- laus dagur er ákveðinn hér. Alþjóða heilbrigðisstofnunin ákveður hvaða mál eru sett á odd- inn hverju sinni og nú verður áhersl- an lögð á hreint loft í húsakynnum og farartækjum fyrir almenning. Þeir sem hug hafa á að losa sig við tóbakið gefst gullið tækifæri til að láta það verða að veruleika á reyklausa daginn. Krabbameinsfé- lag Reykjavíkur hefur gefið út tvo fræðslubæklinga sem hafa má til stuðnings þegar menn hætta. „Út úr kófinu" heitir annar þeirra og hinn heitir „Ekki fórn-heldur frels- un“. í þeim eru ganglegar ábendin- ar um það hvernig hægt er að búa sig undir að hætta að reykja og ná tilætluðum árangri. Bæklingar þessir fást á heilsugæslustöðvum um allt land, í sumum apótekum og hjá Krabbameinsfélaginu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.