Morgunblaðið - 16.05.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991
55
VELVAKAWDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
VITLAUS ORÐANOTKUN
Það er svolítið skrítið hvemig
sumir tala án þess að hugsa. Er þá
ekki átt við hvað orðin koma rugl-
ingsleg úr munni þeirra og merking-
in er óljós heldur að sum orð eða
orðatiltæki eru notuð rangt, dag
eftir dag, viku eftir viku og ár eftir
ár. Hér er ekki um að ræða að fólk
þurfi að hafa einhveija æðri mennt-
un til að lagfæra vitleysuna, enda
heyrast vitleysurnar jafnt af munni
hámenntaðra háskólamanna, sí-
hugsandi stjórnmálamanna og þeirra
sem minni menntun hafa. Nei, það
sem þarf er bara að hugsa andartak.
Ég ætla að þessu sinni aðeins að
nefna tvö orð sem oft heyrast rang-
lega notuð í daglegu tali fólks. Það
fyrra er orðið náttúruvermd. Hvað
táknar það orð, ef betur er að gáð?
Hvað á að vermá? Er ekki málið það
að við ætlum að vernda eitthvað?
Ef til vill gamla húsið á götuhorninu
eða náttúruna á hálendinu. Ef við
hugsum aðeins um orðið sjáum við
strax að réttara er að tala um nátt-
úruvernd, en ekki náttúruvermd.
Síðara dæmið er um aldrað fólk.
Við skulum hugsa okkur eitthvert
hús í Reykjavík eða á Sauðárkróki
þar sem aldraðir búa. Þá segjum
við: Hér eru aldraðir. Og þegar við
tölum um íbúana tölum við um aldr-
aða. Þeir sem koma úr heimsókn frá
íbúunum koma frá öldruðum og þeir
sem fara þangað fara til aldraðra.
Hér erum við aðeins að tala um orð-
ið „aldraðir" í íjórum mismunandi
föllum.
Þess vegna tölum við um þjón-
ustuíbúðir aldraðra (eignarfall), sbr,
þjónustuíbúðir gamals fólks (eign-
arfall). Við segjum hins vegar þjón-
ustuíbúðir fyrir gamalt fólk (þolfall)
og samsvarandi í hinu dæminu: þjón-
ustuíbúðir fyrir aldraða (þolfall).
Þarna flaska sumir, bæði stjórn-
máiamenn, forsvarsmenn bæjarfé-
laga og ýmsir einstaklingar. Ef þeir
aðeins hugsa andartak sjá þeir strax
hvílíka vitleysu þeir eru að segja.
Þeir nota forsetningu sem stýrir
Íþróttasíður Moggans eru lesefni sem
ég missi sjaldan af enda reyni ég sem
gamall keppnismaður að fylgjast með
heimi íþróttanna í gegnum þær. Sem
fyrrum KR-ingur get ég ekki annað
en verið ánægður með framgöngu
Ólafs Lárussonar íþróttakennara
sem handknattleiksþjálfara. Hann
hefur lyft liði Fram af botni 1. deild-
ar og líklega bjargað því frá, að því
er lengi virtist, óhjákvæmilegu falli
í 2. deild.
Ekki nóg með það; um daginn las
þolfalli (fyrir), en á eftir kemur svo
orðið sjálft í eignarfalli (aldraðra).
Þess vegna eru í húsinu íbúðir fyrir
aldraða, en ekki „fyrir aldraðra“,
eins og svo oft heyrist í fjölmiðlum.
Þetta er vinsamieg ábending til
þeirra sem oft tala um ofangreind
málefni: Náttúruvernd og málefni
aldraðra. Hugsið ykkur aðeins um
og spyrjið sjálf ykkur: Getur verið
að ég noti þessi orð vitlaust? Spyijið
þá sem þið umgangist daglega. Það
er hvimleitt að heyra framáfólk, sem
oft kemur fram í fjölmiðlum eða flyt-
ur ávörp vegna atvinnu sinnar, nota
orðin vitlaust hvað eftir annað.
Amma gamla
ég að hann hefði gert 3. flokks lið
KR að íslandsmeisturum og voru það
góðar fréttir fyrir vondaufa KR-inga
sem horft hafa upp á meistaraflokks-
liðið hrynja. í gær sá ég svo mynd
af íslandsmeisturum Fram í 2. flokki.
Þjálfari? Jú.'Ólafur Lárusson.
Ég segi; til hamingju Ólafur og
við forystu HSÍ segi ég: Leitið ekki
langt yfir skammt._ Nýtið krafta
þjálfara á borð við Ólaf.
Handknattleiksunnandi
Frábær frammistaða
HORTiSOFI SEM QEFUR
KEPPIHAUTUM OKKAR
L 252. B 205
Tegund: Lundby 6 sæta leöurhornsófinn slær allt út í
verði og þægindum.
Úrvals leður á slitflötum og
10 LEÐURLITIR
EKKI MISSA AF ÞESSU
QÓÐ QREIÐSLUEJÖR
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511
PHILIPS Whirlpool
KÆLISKÁPUR
• 198 lítra kælirými
• 58 lítra frystirými (****)
• Sjálfvirk afþýðing
• Stór grænmetisskúffa
• 4 stillanlegar hillúr
• Hægt er að velja á milli
hægri eða vinstri handar
opnun á hurð
• HxBxD: 159x55x60 sm
.750;
51
KR.STGR.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
•,ísawtú<gim
ÓDÝRAR
GÆÐASKRÚFUR
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval af galvaniseruð-
um skrúfum, ryðfríum skrúfum og álskrúfum
í öllum stærðum. Einnig sjálfborandi skrúfur og
plasthettur í mörgum litum.
Þetta eru viðurkenndar vestur-þýskar þakskrúfur.
Afgreiðum sérpantanir með stuttum fyrirvara.