Morgunblaðið - 25.05.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1991
17
Núna eru það stjómir sérhvers
sérsambands sem móta sína eigin
afreksstefnu og vinna af alefli að
því að fjármagna hana, hver með
sínum hætti með samstarfi við fyr-
irtæki, _ einstaklinga, _ Ólympíu-
nefnd, íþróttasamband íslands og
opinbera aðila.
Til að fjármagna ákveðin verk-
efni verða sérsamböndin jafnvel
að taka tímabundin lán til að vinna
að langtímaverkefnum, eins og
þjálfun unglingalandsliða og þátt-
töku þeirra í alþjóðlegum mótum,
til að skapa grundvöll fyrir áfram-
haldandi sterku A-landsliði í fram-
tíðinni.
Það er erfitt fyrir sérsambönd
að fjármagna öflugt unglingastarf,
því er áhugavert að leita nýrra
leiða til að fjármagna þessa starf-
semi sérsambandanna.
Mjög öflugur afrekssjóður
íþróttahreyfingariimar er ein
þeirra hugmynda sem rædd hefur
verið. Afrekssjóð þennan þyrfti að
íjármagna með framlögum jafnt
frá opinberum aðilum, samtökum
atvinnulífsins sem og einstakling-
um. Spurning er hvenær íþrótta-
sambandi íslands tekst að vinna
þessu mál fylgi og skilning. Núver-
andi afrekssjóður ÍSÍ, með um
þijár milljónir til úthlutunar á ári
hveiju, nægir hvergi til að efla
afreksiþróttir allra sérsambanda á
íslandi.
Stefnum að því að eiga ávallt
sterkt landslið í handknattleik
með stofnun Landsliðssjóðs
HSÍ
Það hefur ávallt verið skilningur
stjórnarmanna HSÍ að íslendingar
hafi þann metnað að vilja eiga
landslið i handknattleik sem er í
fremstu röð. Til að svo megi verða
hefur ávallt verið lögð mikil áhersla.
á starfsemi unglingalandsliðs HSÍ.
Þessi starfsemi er mjög kostnaðar-
söm eins og gefur að skilja og
ekki eins auðvelt að fjármagna
hana eins og starfsemi A-landslið-
anna.
Þegar HSÍ hóf undirbúning að
umsókn sinni um heimsmeistara-
keppnina hér á íslandi, þá var um
leið ákveðið að stórefla starfsemi
unglingalandsliða pilta til að eiga
eins sterkt landslið og mögulegt
væri þegar sjálf A-heimsmeistara-
keppnin færi fram hérlendis svo
og í framtíðinni. Handknattleiks-
sambandið leitar nú vinsamlegast
eftir samstarfi við fleiri fyrirtæki
og einstaklinga um ijármögnun á
starfsemi landsliða okkar í fram-
tíðinni. Þar sem áðurnefndur
öflugur afrekssjóður íþróttahreyf-
ingarinnar er ekki ennþá til, þá
hefur stjórn HSÍ ákveðið vegna
undirbúnings landsliðsins fyrir
heimsmeistarakeppnina árið 1995
að stofna sérstakan Landsliðssjóð
HSÍ, sem hefur það markmið að
fjármagna starfsemi allra landsliða
HSÍ í framtíðinm.
Mun stjórn HSÍ á næstu dögum
fela ákveðnum hópi manna forystu
og stjórn þessa Landsliðssjóðs HSÍ
til að vinna að eflingu hans. Mark-
miðið er að jafnt fyrirtæki sem
einstaklingar geti gerst aðilar að
Landsliðssjóðnum og greiði ákveð-
inn styrk til sjóðsins árlega eða
mánaðarlega eftir nánara sam-
komulagi. Þá verður einnig unnið
áfram að gerð stórra auglýsinga-
samninga við jafnt erlend sem inn-
lend fyrirtæki í nafni sjóðsins með
afnotarétt af landsliðum HSÍ í
huga.
Þeir áhugaaðilar um handknatt-
leik sem hafa þann metnað að vilja
ávallt eiga landslið i fremstu röð
og ekki hvað síst í heimsmeistara-
keppninni árið 1995 hérlendis, þar
sem liðin kegpa jafnframt um þátt-
tökurétt í Ólympíuleikunum árið
1996 og sem vilja styðja þennan
Landsliðssjóð HSÍ eru vinsamleg-
ast beðnir að hafa samband við
skrifstofu Handknattleikssam-
bandsins og stjórnarmenn HSÍ sem
fyrst.
Höfundur er formaður
Handknattleikssambands Islands.
GEFÐU DOSTILHJALPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
/
ÞJOÐÞRIF
BAMUU0 tSUXKM SKATA
Dósakúlur um allan bæ.
AFSLATTUR
Opið í dag kl. 9-18 og laugardag 10-17
Fullur salur af góðum bílum á ótrúlegu verði
mmifí B/i/ifí
HEKLUHUSINU
Laugavegi 170-174, s. 695660