Morgunblaðið - 25.05.1991, Page 25

Morgunblaðið - 25.05.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 25. MAÍ 1991 25 Skoðanakönnun DV: Ríkisstjórnin með nauman meirihluta þeirra sem svara ALLS eru 43,8% kjósenda fylgj- andi ríkisstjórn Davíðs Oddsonar en 38,3% andvígir henni sam- kvæmt skoðanakönnun DV sem birt var í gær. 17,0% aðspurðra sögðust vera óákveðnir hvað stuðning við ríkisstjórnina varðar og 0,8% svöruðu ekki spurning- unni. Ef einungis er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu eru 53,3% fylgjandi ríkisstjórninni en 46,7% andvígir henni. Þegar spurt var hvaða lista við- komandi myndi kjósa ef alþingis- kosningar færu fram nú varð niður- staðan sú, ef einungis er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu, að 9,8% sögðust ætla að kjósa Alþýðuflokk (flokkurinn fékk 15,5% fylgi í síðustu kosningum), 21,9% (18,9%) Fram- sóknarflokk, 40,0% (38,6%) Sjálf- stæðisflokk, 0,2% (1,2%) Frjálslynda, 18,6% (14,4%) Alþýðubandalag, 0,2% (0,3%) Öfgasinnaða jafnaðarmenn, 8,4% (8,3%) Kvennalista, 0,3% (0,3%) Grænt framboð og loks sögðust 0,3% (1,8%) ætla að kjósa lista Þjóðar- flokks-Flokks mannsins. Úrtakið í könnuninni var 600 manns og skiptist það jafnt milli kynja sem og höfuðborgarinnar og landsbyggðar. Skekkjufrávik í könn- uninni eru 3-4%. Aðalfundur BÍL á Blönduósi BANDALAG íslenskra leikfélaga heldur 41. aðalfund sinn í Félags- heimilinu á Blönduósi laugardag- inn 25. mai. Fimmtudagskvöldið 23. maí hófst dagskrá með kvöldverði á Hótel Blönduósi og leiksýningu þar á eftir í félagsheimilinu. Þar sýndi Leikfélag Sauðárkróks nýtt íslenskt leikverk eftir Hilmi Jóhannesson sem hann kallar Tímamótaverk og leikfélagið hefur sýnt á Sæluviku á Sauðárkróki og fleiri stöðum á Norðurlandi und- anfarið við góðar undirtektir. Föstudaginn 24. maí voru haldin tvö námskeið. Anna Jeppesen drama- kennari var með námskeið sem kall- aðist Listasmiðja fýrir börn og var það ætlað þeim sem áhuga hafa á að vinna með börnum og virkja sköp- unarþörf þeirra. Jóhann Morávek tónlistarkennari og tónskáld var með námskeið í því að búa til leikhljóð á leiksviðinu með því að nota það sem hendi er næst, hvort sem það er líkami leikarans, leikmyndin eða leik- munimir á sviðinu. Á laugardagskvöldið eftir aðal- fundinn býður Blönduósbær til há- tíðarkvöldverðar og þar sjá félagar úr Leikfélagi Öngulstaðahrepps, Leikfélagi Húasvíkur og Leikfélagi Dalvíkur um skemmtidagskrá. Sunnudaginn 26. maí hefst svo ráðstefna um stöðu áhugaleiklistar á íslandi í dag og stuðning hins opin- bera við hana. Framsöguerindi flytja Þórunn Hafstein frá menntamála- ráðuneytinu, Valgarður Hilmarsson frá Sambandi íslenskra sveitarfé- laga, Stefán Baldursson Þjóðleikhús- stjóri, Haukur Ágústsson formaður Menningarsamtaka Norðlendinga og Einar Njálsson bæjarstjóri á Húasvík og fyrrverandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga. í dag eru 84 leikfélög um allt land aðilar að Bandalagi íslenskra leikfé- laga, formaður er Guðbjörg Árna- dóttir á Akranesi og framkvæmda- stjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. (Fréttatilkynning) Minningarguðsþj ónusta í Langholtskirkju Triunifih VORLINAN ALDAN SANDGERÐI Minningarguðsþjónusta verður haldin næstkomandi sunnudag, 26. maí, í Langholtskirkju sem Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann og Samtökin 78 eiga frumkvæði að. Þar predikar Bragi Skúlason prestur við Landspítal- ann, kór Langholtskirkju tekur þátt í athöfninni og Bergþór Páls- son syngur einsöng. Athöfnin hefst kl. 14.00. Tilefni guðsþjónustunnar er minn- ingardagur sem á ensku hefur verið nefndur Intemational AIDS Candlel- ight Memorial Day, en í maí er þeirra minnst um allan heim sem látist hafa úr alnæmi. íslendingar minnast þessa dags nú í þriðja skipti. í frétt frá Samtökum áhugafólks um alnæmisvandann segir: „Sífellt bætast fleiri lönd í hóp þeirra sem taka þátt í þessari sérstöku athöfn sem baráttuhreyfingar gegn alnæmi í San Francisco áttu upptök að fyrir sjö árum. Blysfarir eru víða famar á minningardeginum, en ósk þeirra sem framkvæði eiga að athöfnum erlendis er sú að þær séu sannkallað- ar ljósahátíðir, að þátttakendur minnist látinna og láti í ljósi von um betri tíð með því að kveikja á kertum eða blysum. Gullmolinn; Vonast til að 4-5 millj- ónir króna safnist GULLMOLINN, söfnunarhátíð íþróttasambands fatlaðra, fer fram á Hótel íslandi næstkomandi sunnudagskvöld, en hátt í fimmtíu af fremstu skemmtikröftum lands- ins leggja fram krafta sína. Skemmtunin er haldin til stuðn- ings íþróttasambandi fatlaðra sem hyggst senda 18 keppendur á Olympíuleika þroskaheftra í sumar í Minneapolis í Bandaríkjunum. Skemmtunin verður hin glæsilegasta en boðið verður upp á fjórréttaðan matseðil þar sem aðalrétturinn er stórhumar sérstaklega innfluttur frá Kanada. Það er klúbbur yfirmat- reiðslumanna sem sér um matseld- ina. Aðgangseyrir verður 10 þúsund kr. og vonast aðstandendur hátíðar- innar að á milli 4-5 milljónir kr. safn- ist til þessa verkefnis. Skemmtikraft- ar koma fram endurgjaldslaust í þágu málefnisins. Mrbílar Ú HONDA Honda Accord er búinn miklum góðum kostum. Kostagripir liggja ekki alltaf á lausu, en þessi er það og til- búinn til þinnar þjónustu. Bfll fyrir alla og við allra hæfi. Greiðsluskilmálar fyrir alla. Vcrð frá kr. 1.432.000,- stgr. ÍHONDA /ICCORD HONDA Á ISLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900 I Steinakrýl Fyrir þá sem vilja mála sjaldan en gera það vel Þú vandar til vcrksins, þegar þú málar húsið mcð Steinakrýli frá Málningu hf. Stein- akrýl veitir steininum ágæta vatns- vöm og möguleika á að að „anda“ bctur en hefðbundin plastmálning. Viðloðun Steinakrýls er gulltrygg og því getur þú einnig notað það scm grunn undir Kópal-Steintex. Þú getupjnálað mcð þessari úrvalsmálningu við lágt hitastig, jafnvel í frosti. Hún þolir vætu eftir um cina klst., hylur fullkomlega í tveimur umferðvim, veðr- unarþol er frábært og litaval gott. Næst þegar þú sérð fallega málað hús — kynntu þér þá hvaðan málningin er Imálning'f - það segir sig sjálft -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.