Morgunblaðið - 25.05.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 25. MAÍ 1991
25
Skoðanakönnun DV:
Ríkisstjórnin með nauman
meirihluta þeirra sem svara
ALLS eru 43,8% kjósenda fylgj-
andi ríkisstjórn Davíðs Oddsonar
en 38,3% andvígir henni sam-
kvæmt skoðanakönnun DV sem
birt var í gær. 17,0% aðspurðra
sögðust vera óákveðnir hvað
stuðning við ríkisstjórnina varðar
og 0,8% svöruðu ekki spurning-
unni. Ef einungis er tekið tillit til
þeirra sem tóku afstöðu eru 53,3%
fylgjandi ríkisstjórninni en 46,7%
andvígir henni.
Þegar spurt var hvaða lista við-
komandi myndi kjósa ef alþingis-
kosningar færu fram nú varð niður-
staðan sú, ef einungis er tekið tillit
til þeirra sem tóku afstöðu, að 9,8%
sögðust ætla að kjósa Alþýðuflokk
(flokkurinn fékk 15,5% fylgi í síðustu
kosningum), 21,9% (18,9%) Fram-
sóknarflokk, 40,0% (38,6%) Sjálf-
stæðisflokk, 0,2% (1,2%) Frjálslynda,
18,6% (14,4%) Alþýðubandalag, 0,2%
(0,3%) Öfgasinnaða jafnaðarmenn,
8,4% (8,3%) Kvennalista, 0,3% (0,3%)
Grænt framboð og loks sögðust 0,3%
(1,8%) ætla að kjósa lista Þjóðar-
flokks-Flokks mannsins.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns og skiptist það jafnt milli
kynja sem og höfuðborgarinnar og
landsbyggðar. Skekkjufrávik í könn-
uninni eru 3-4%.
Aðalfundur BÍL á Blönduósi
BANDALAG íslenskra leikfélaga
heldur 41. aðalfund sinn í Félags-
heimilinu á Blönduósi laugardag-
inn 25. mai.
Fimmtudagskvöldið 23. maí hófst
dagskrá með kvöldverði á Hótel
Blönduósi og leiksýningu þar á eftir
í félagsheimilinu. Þar sýndi Leikfélag
Sauðárkróks nýtt íslenskt leikverk
eftir Hilmi Jóhannesson sem hann
kallar Tímamótaverk og leikfélagið
hefur sýnt á Sæluviku á Sauðárkróki
og fleiri stöðum á Norðurlandi und-
anfarið við góðar undirtektir.
Föstudaginn 24. maí voru haldin
tvö námskeið. Anna Jeppesen drama-
kennari var með námskeið sem kall-
aðist Listasmiðja fýrir börn og var
það ætlað þeim sem áhuga hafa á
að vinna með börnum og virkja sköp-
unarþörf þeirra. Jóhann Morávek
tónlistarkennari og tónskáld var með
námskeið í því að búa til leikhljóð á
leiksviðinu með því að nota það sem
hendi er næst, hvort sem það er
líkami leikarans, leikmyndin eða leik-
munimir á sviðinu.
Á laugardagskvöldið eftir aðal-
fundinn býður Blönduósbær til há-
tíðarkvöldverðar og þar sjá félagar
úr Leikfélagi Öngulstaðahrepps,
Leikfélagi Húasvíkur og Leikfélagi
Dalvíkur um skemmtidagskrá.
Sunnudaginn 26. maí hefst svo
ráðstefna um stöðu áhugaleiklistar á
íslandi í dag og stuðning hins opin-
bera við hana. Framsöguerindi flytja
Þórunn Hafstein frá menntamála-
ráðuneytinu, Valgarður Hilmarsson
frá Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga, Stefán Baldursson Þjóðleikhús-
stjóri, Haukur Ágústsson formaður
Menningarsamtaka Norðlendinga og
Einar Njálsson bæjarstjóri á Húasvík
og fyrrverandi formaður Bandalags
íslenskra leikfélaga.
í dag eru 84 leikfélög um allt land
aðilar að Bandalagi íslenskra leikfé-
laga, formaður er Guðbjörg Árna-
dóttir á Akranesi og framkvæmda-
stjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.
(Fréttatilkynning)
Minningarguðsþj ónusta
í Langholtskirkju
Triunifih
VORLINAN
ALDAN
SANDGERÐI
Minningarguðsþjónusta verður
haldin næstkomandi sunnudag,
26. maí, í Langholtskirkju sem
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann og Samtökin 78 eiga
frumkvæði að. Þar predikar Bragi
Skúlason prestur við Landspítal-
ann, kór Langholtskirkju tekur
þátt í athöfninni og Bergþór Páls-
son syngur einsöng. Athöfnin
hefst kl. 14.00.
Tilefni guðsþjónustunnar er minn-
ingardagur sem á ensku hefur verið
nefndur Intemational AIDS Candlel-
ight Memorial Day, en í maí er þeirra
minnst um allan heim sem látist
hafa úr alnæmi. íslendingar minnast
þessa dags nú í þriðja skipti.
í frétt frá Samtökum áhugafólks
um alnæmisvandann segir: „Sífellt
bætast fleiri lönd í hóp þeirra sem
taka þátt í þessari sérstöku athöfn
sem baráttuhreyfingar gegn alnæmi
í San Francisco áttu upptök að fyrir
sjö árum. Blysfarir eru víða famar
á minningardeginum, en ósk þeirra
sem framkvæði eiga að athöfnum
erlendis er sú að þær séu sannkallað-
ar ljósahátíðir, að þátttakendur
minnist látinna og láti í ljósi von um
betri tíð með því að kveikja á kertum
eða blysum.
Gullmolinn;
Vonast til að 4-5 millj-
ónir króna safnist
GULLMOLINN, söfnunarhátíð
íþróttasambands fatlaðra, fer
fram á Hótel íslandi næstkomandi
sunnudagskvöld, en hátt í fimmtíu
af fremstu skemmtikröftum lands-
ins leggja fram krafta sína.
Skemmtunin er haldin til stuðn-
ings íþróttasambandi fatlaðra sem
hyggst senda 18 keppendur á
Olympíuleika þroskaheftra í sumar í
Minneapolis í Bandaríkjunum.
Skemmtunin verður hin glæsilegasta
en boðið verður upp á fjórréttaðan
matseðil þar sem aðalrétturinn er
stórhumar sérstaklega innfluttur frá
Kanada. Það er klúbbur yfirmat-
reiðslumanna sem sér um matseld-
ina.
Aðgangseyrir verður 10 þúsund
kr. og vonast aðstandendur hátíðar-
innar að á milli 4-5 milljónir kr. safn-
ist til þessa verkefnis. Skemmtikraft-
ar koma fram endurgjaldslaust í
þágu málefnisins.
Mrbílar
Ú HONDA
Honda Accord er búinn
miklum góðum kostum.
Kostagripir liggja ekki alltaf á
lausu, en þessi er það og til-
búinn til þinnar þjónustu. Bfll
fyrir alla og við allra hæfi.
Greiðsluskilmálar fyrir alla.
Vcrð frá kr. 1.432.000,- stgr.
ÍHONDA
/ICCORD
HONDA Á ISLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
I
Steinakrýl
Fyrir þá sem vilja mála sjaldan
en gera það vel
Þú vandar til vcrksins, þegar þú málar húsið
mcð Steinakrýli frá Málningu hf. Stein-
akrýl veitir steininum ágæta vatns-
vöm og möguleika á að að
„anda“ bctur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinakrýls er gulltrygg og
því getur þú einnig notað
það scm grunn undir Kópal-Steintex. Þú
getupjnálað mcð þessari úrvalsmálningu við
lágt hitastig, jafnvel í frosti. Hún
þolir vætu eftir um cina
klst., hylur fullkomlega í
tveimur umferðvim, veðr-
unarþol er frábært og litaval
gott.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús — kynntu þér þá hvaðan málningin er
Imálning'f
- það segir sig sjálft -