Morgunblaðið - 25.05.1991, Page 44
Ægisgarður:
Neyðarkall
frá hvalbát
ÖRYGGISKERFI um borð í einum
af hvalbátunum sem liggja við
Ægisgarð fór í gang um miðjan
dag í gær og fóru lögregluþjónar
á tveimur bílum til að kanna or-
sakir þessa.
Þegar lögreglan kom á vettvang
bjátaði ekkert á um borð í bátunum
og hafði kerfið af einhveijum orsök-
um farið í gang af sjálfu sér. Þess
má geta að fundur Alþjóðahvalveiði-
ráðsins fer fram hér á landi um þess-
ar mundir og mönnum er í fersku
minni, er alþjóðleg hvalfriðunarsam-
tök sökktu tveimur hvalbátunum við
Ægisgarð.
r3r Siglufjarðarhöfn:
Hófu fram-
kvæmdir en
féð vantar
Morgunblaðiö/KGA
Norðurbakki Tjarnarinnar endurnýjaður
I sumar verður norðurbakki Tjarnarinnar endurnýjað- gatnamálastjóra, verður lagður göngustígur með
ur við Iðnó, Vonarstræti og Tjarnargötu næst Ráðhús- bakkanum eins og við Fríkirkjuveg og hlaðinn nýr
inu. Að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar aðstoðar- veggur í götuhæð meðfram gangstéttinni.
3.950 tóku samræmd próf í íslensku og stærðfræði:
Verkfall við
Rotterdamhöfn:
Einverjar taf-
ir á flutning-
um til landsins
ÞÓRÐUR Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Eim-
skips, segir verkfall hafnarverka-
manna í Rotterdam í Hollandi eiga
eftir að valda einhverjum töfum á
vöruflutningum til landsins. Verk-
fallið skall á öllum að óvörum á
miðvikudagsmorgun en Þórður
segist vona að úr því leysist um
eða strax eftir helgina.
Ekki hefur verið hægt að hreyfa þá
vöru sem þegar var komin inn á
hafnarsvæðið en önnur vara hefur
verið fiutt til Antwerpen. Verður sú
vara flutt þaðan til íslands með Lax-
fossi en hann átti upphaflega að lesta
í Rotterdam á fimmtudag.
Um helmingur almennu vörunnar
sem átti að flytja til íslands í þess-
ari viku er fastur inni á hafnarsvæð-
inu auk á annað hundrað bifreiða.
GERÐ nýs hafnargarðs í Siglu-
fjarðarhöfn, um 80 metra viðlegu-
^rými, er hafin en óvíst er hvort
-^Té fæst frá ríkinu vegna fram-
kvæmdanna.
Siglufjarðarbær og Vita- og
hafnamálaskrifstofan hafa lokið und-
irbúningsvinnu vegna nýs hafnar-
garðs í Siglufjarðarhöfn, en fyrrver-
andi samgönguráðherra ætlaði að
setja 18 milljónir króna til Siglufjarð-
ar en fjárveitinganefnd lækkaði þá
fjárhæð í 12 milljónir. Nú virðist hins
vegar ljóst að ekkert fé fáist til þess-
ara framkvæmda, þar sem ríkis-
stjórnin hefur fallið frá að taka 100
milljóna lán til að aðstoða ýmis bæj-
arfélög vegna loðnubrests og bágs
atvinnuástands, en fyrri ríkisstjóm
hafði aflað sér heimildar til slíks á
Alþingi.
^ Forráðamenn Siglufjarðarbæjar
hafa að undanfömu verið á fundum
með ráðamönnum vegna þessa máls.
MeðaltaJið í íslensku hærra en
í fyrra en lægra í stærðfræði
3.950 nemendur í 10. bekk grunnskóla þreyttu samræmd próf í stærð-
fræði og íslensku í vor. Landsmeðaltal í íslensku var 60,64 stig en í
stærðfræði 56,85 stig. I fyrra var landsmeðaltai í islcnsku 60,00 stig og
í stærðfræði 57,60 stig. Hæsta meðaltalseinkunnin á landinu í íslensku
var í Reykjavík, 6,40, en lægsta á Vestfjörðum, 5,50. I stærðfræði var
hæsta meðaltalseinkunnin á landinu í Reykjavik, 6,00, en lægsta á
Austurlandi, 5,30. 28% þeirra nemenda sem þreyttu stærðfræðiprófið
í vor fengu einkunn undir 45 stigum eða undir 5 og 18% voru undir 5
í íslensku. Samkvæmt lögum frá 1988 eiga allir sem lokið hafa grunn-
skólanámi rétt á inngöngu í framhaldsskóla.
Meðaltalseinkunn í íslensku var
eins og áður segir 6,40 í Reykjavík.
Hún var 5,90 á Reykjanesi, 5,70 á
Vesturlandi, 5,50 á Vestfjörðum,
5,90 á Norðurlandi vestra, 6,00 á
Norðurlandi eystra, 5,70 á Austur-
landi og 5,70 á Suðurlandi. 1 stærð-
fræði var meðaltalseinkunn í
Reykjavík 6,00, á Reykjanesi 5,50,
á Vesturlandi 5,50, á Vestfjörðum
5,40, á Norðurlandi vestra 5,50, á
Norðurlandi eystra 5,60, á Austur-
landi 5,30 og á Suðurlandi 5,40.
Samtals eru 4.180 ungmenni í
þeim árgangi sem gekkst undir sam-
ræmd próf en 230 þeirra voru í sér-
skólum, með undanþágu, veikir,
fluttir utan eða ekki vitað um þá
þegar prófín voru lögð fyrir. Um 60
Skilaði pólskum yfirvöldum
236 ára heimsþekktri bók
UM ÞAÐ leyti sem Lech Walesa, forseti Póllands, var hér í opin-
berri heimsókn í mars síðastliðnum, aflienti íslenskur rnaður, Hörð-
ur Friðbertsson, póiska sendiráðinu 236 ára gamla bók eftir pólska
sagnfræðinginn Cornelii Nepotis. Bókin er sagnfræðilegs eðlis og
þekkt um allan heim. Bókin komst í hendur Harðar með óvenjuleg-
um hætti þegar hann leysti af sem skipstjóri á Arnarfelli árið 1963
og skipið lá við festar í höfninni í Gdansk.
„Ég leysti af sem skipstjóri í
þessum túr, annars var ég fyrsti
stýrimaður. Dag einn kom pólskur
maður urn borð í skipið og vildi
selja þessa bók. Ég sá að bókin var
merkt bókasafni og vildi ekki
kaupa hana. Ég bannaði honum
að bjóða hana til sölu um borð í
skipinu. Þá fór hann í land en
skildi bókina eftir. Hann hefur ekki
þorað með hana í land vegna gæslu
sem höfð var við skipin, en leitað
var á hveijum manni sem fór frá
borði,“ sagði Hörður.
Bókin er rituð á latínu, gefin út
árið 1755, og heitir Vitae Excel-
lentium Imperatorum, eða Ævi
mikilsvirtra herforingja, á íslensku.
Dr. Stanislaw Lakowski sendifull-
trúi i pólska sendiráðinu sagði að
bókin hefði verið í eigu sögufrægr-
ar pólskrar fjölskyldu. Hann sagði
að ekki væri ljóst hvort um ómetan-
lega bók sé að ræða, það kæmi
betur í Ijós þegar sérfræðingar á
þessu sviði rannsökuðu bókina í
Póllandi. Verk Cornelii Nepotis
væru mjög þekkt meðal sagnfræð-
inga, og þessi tiltekna bók, Ævi
mikilsvirtra herforingja, sé þekkt
um allan heim.
Bókin hefur verið í vörslu Har<5-
ar síðan 1963 og skipað góðan
sess innan um ágætt bókasafn
hans. Elsta bók í eigu Harðar er
reyndar 170 ára gömul. Ilann
sagðist oft hafa haft það í huga
að skila bókinni, sérstaklega eftir
Morgunblaðið/Bjarni
Hörður Friðbertsson með skjöl
viðkomandi bókinni. I vinstra
horni skjalsins sést titilsiða
Vitae Excellentium Imperator-
að Pólverjar .opnuðu sendiráð hér
á landi. „Ég þekki Friðrik Gunnars-
son, pólska konsúlinn, og kom að
máli við hann þegar Lech Walesa
kom hingað til lands. Hann færði
sendiráðinu bókina,“ sagði Hörður.
Hann sagði að í sínum huga
hefði þetta aðeins verið gömul bók,
en hann vissi ekkert um hvað hún
fjallaði.'Hún var í skinnbandi með
gylltum kili og ákaflega vel með-
farin, að sögn Harðar.
Herði barst bréf frá pólska sendi-
ráðinu undirrituðu af Stanisiaw
Laskowski þar sem honum var
þakkað þetta framtak. í bréfinu
var skýrt frá því að bókin hefði
verið send í diplómatapósti til
menningarmálaráðuneytis Pól-
lands með þeirri ósk að hún yrði
geymd í Þjóðbókasafni landsins.
Lakowski sagði Herði að íslend-
ingar gerðu sér ekki grein fyrir því
að allir herir sem hefðu ráðist inn
í Pólland hefðu brennt þær bækur
sem þeir komust yfír. Þess vegna
væru gamlar bækur Pólverjum
rnjög verðmætar, en bókin er gefin
út aðeins hálfri öld áður en herir
Napóleons réðust inn í Pólland.
þeirra hafa alveg horfið frá námi í
10. bekk grunnskóla frá því í haust
án þess að nokkuð sé vitað um þá.
Hyggst menntamálaráðuneytið at-
huga sérstaklega ástæður þessa
brottfalls.
Allir nemar sem lokið hafa grunn-
skólanámi eiga nú rétt á inngöngu
í framhaldsskóla. Karl Kristjánsson
í framhaldsskóladeild menntamála-
ráðuneytisins sagði að hlutfall þeirra
sem sækja um inngöngú í framhalds-
skóla færi töluvert eftir átvinnu-
ástandi í landinu en undanfarið hefðu
80% árgangs farið í framhaldsskóla.
í íslensku og stærðfræði eru gefn-
ar tvær aðskildar einkunnir, skóla-
einkunn og einkunn á samræmdu
prófí. Skólaeinkunn gildir í öllum
öðrum greinum en íslensku og stærð-
fræði. Inntaka nemenda í framhalds-
skóla er á ábyrgð skólameistara
hvers framhaldsskóla og meta þeir
einstakar umsóknir og hvaða leið
þeir ráðleggja hvetjum og einum.
Nemendur sem búa í hverfí viðkom-
andi framhaldsskóla hafa forgang
um inngöngu ef beita þarf fjöldatak-
mörkum.
Morgunblaðið/Ingvar
Bíllinn stórskemmdist við að fara
út af veginum.
Tveir meiddust
TVEIR menn meiddust, þegar bíll
fór út af Þingvallavegi skammt
frá Kjósaskarðsvegi í gærkvöldi.
Mennirnir voru einir í bílnum.
Meiðsl þeirra voru ekki talin alvar-
leg, en þeir voru fluttir á slysadeild
til frekari rannsóknar.