Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 12
::Í2_________________ __________MORGITNBLADIÐ SUNNUDAGUR 23: JUNÍ 1991_
Ný rannsókn á framhaldsnámi stúdenta:
Bettý Nikuiásdóttir ogSölvína Konráðs: „Á hverju ári koma nemendur í framhaldsskólana án þess að hafa til þess námsgetu eða nægan undirbúning.“
STÚDENTSPRÓFIÐ
NÆR EINSKIS VIRÐI
Á ATVINNUMARKAÐ
eftir Jriðrik Indriðason
í NÝRRI rannsókn á framhalds-
námi stúdenta kemur m.a. fram
að stúdentspróf er nú nær einsk-
is virði á atvinnumarkaði. Enn
er otúdentsprófið ætlað sem und-
irbúningur að háskólanámi. Enn-
fremur leiddi rannsókn í Ijós að
nemendur eru æ lengur að ljúka
þessu námi og hefur meðalnáms-
tíminn lengst úr 4 árum 1975 í
4,7 ár 1986 í dagskóla. í öldunga-
deild hefur þessi tími lengst úr
4,2 árum í 5,6 ár. Rannsóknin
sem hér um ræðir náði til 890
stúdenta frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð árin 1975-1986.
Niðurstöður hennar má alhæfa
að mörgu leyti að öðrum mennta-
eða framhaldsskólum því sam-
kvæmt könnun sem gerð var
1989 mun MH í hópi þeirra skóla
sem skila hvað bestum nemend-
um í Háskóla íslands.
etta mun í fyrsta skipti
sem rannsókn af þessu
tagi er framkvæmd hér-
lendis en að henni stóðu
dr. Sölvína Konráðs sál-
fræðingur og Bettý Nikulásdóttir
námsráðgjafi í MH. Stóð rannsókn-
in yfir í um þrjú ár og var mark-
mið hennar að svara þremur megin-
spumingum: í fyrsta lagi er munur
á námsárangri nemenda á milli ára
og er einhver ákveðinn hópur nem-
enda sem sker sig úr hvað varðar
góðan námsárangur? í öðru lagi
hvaða þættir eru ákvarðandi um
að stúdent fari í framhaldsnám og
ljúki því? Og í þriðja lagi stuðlar
stúdentspróf að betri atvinnumögu-
leikum?
Við rannsóknina var gerður sam-
anburður á námsárangri 890 nem-
enda sem útskrifuðust með stúd-
entspróf frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð á ámnum 1975 til 1986.
Til þessara námsmanna var síðan
sendur spurningalisti til að afla
uppjýsinga um nám að loknu stúd-
entsprófi og félagsstöðu. Alls bár-
ust svör frá 650.
Konur standa sig betur en
karlar
í niðurstöðum rannsóknar sinnar
segja Sölvína og Bettý m.a. að kon-
ur sem stunda nám við öldunga-
deild sýni að jafnaði bestan náms-
árangur. Karlar í dagskóla sýna
hinsvegar lakastan námsárangur
en em þó líklegri en konur sem
útskrifast úr dagskóla til að ljúka
framhaldsnámi. Námsárangur er
breytilegur milli ára og vandséð að
einhver regla gildi þar um en þó
má sjá ákveðna breytingu frá árinu
1975 til 1986 í þá átt að náms-
árangur fari versnandi (sjá töflu).
Nemendur á eðlisfræðibraut skila
sér best í framhaldsnám og sýna
einnig bestan námsárangur af ein-
staka námsbrautum. Á þeirri braut
eru 73% nemenda karlar og sýnir
það að þótt karlar sem útskrifast
úr dagskóla séu að jafnaði með slak-
astan námsárangur er þessi hópur
karla í dagskóla með bestan náms-
árangur. Hér verður að taka tillit
til þess að eðlisfræðibraut er þriðja
fámennasta námsbrautin, fámenn-
ari era tónlistarbraut og fornmála-
braut. Náttúmfræðibraut er fjöl-
mennust í dagskóla og félagsfræði-
braut er fjölmennust í öldungadeild.
Þær Sölvína og Bettý segja að
athyglisvert sé að mikil fylgni er á
milii stöðu foreldra og námsárang-
urs annarsvegar og stöðu maka og
viðdvalar í námi hinsvegar. Hvað
stöðu foreldra og maka varðar var
notast við svokallaða Hollingshead-
flokkun þar sem staða foreldra og
maka er flokkuð eftir menntun og
starfstitlum. Efst á stuðlinum em
sérfræðingar, þá langskólamennt-
un, iðnmenntun, starfsmenntun og
ófaglært. Því ofar sem for-
eldri/maki var á þessum kvarða því
betur gekk námið hjá stúdentinum.
Fjöldi barna og aldur spá ekki
fyrir um viðdvöl í námi né heldur
hjúskaparstaða.
Námsgengi að loknu
stúdentsprófi
Þegar námsgengi að loknu stúd-
entsprófí var kannað var þeim 650
sem svöruðu spiirningalistanum
skipt í þijá hópa. í fyrsta hópnum
voru þeir sem ekki höfðu hafið nám
að loknu stúdentsprófi, 113 talsins.
í öðrum hópi þeir sem höfðu hafíð
nám en hætt án námsgráðu, 274
talsins og í þriðja hópnum þeir sem
höfðu lokið námi að loknu stúdents-
prófi með námsgráðu eða voru enn
í námi, 263 talsins. Innbyrðis var
Hér til hliðar sést hversu langan
tíma nemendur voru að meðaltali
í skólanum fram að
stúdentsprófi. Að neðan er sýnt
meðaltal einkunna útskrifaðra
nemenda 1975-1986 reiknað í
hlutfalli af heildareiningum til
stúdentsprófs, Sern sjá má er
nokkur munur á nemendum úr
dagskóladeíld og öldungadeild,
en þær eíga það þó sameiginlegt -j
að ágætiseinkunnum hefur
fækkað og meðalmennskan rutt ®
sér rúms.
iÍHl Dagskóladeild
Námstími l |áldunBafleiM
Öldungadeild
75 76 77 78 78 '80 '81 ‘82 88 '84 ‘85 '86
Dagskóladeild