Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 15
Verða þeir úr efni sem nefnist
„Twaron“ og hefur þá eiginlega
að þola gífurlega mikið álag en
vera sjálft mjög létt. IHC Gusto
Engineering mun loks sjá um verk-
fræðihliðina.
Ekki hefur verið skýrt opinber-
lega frá því nákvæmlega hvernig
eigi að ná flakinu upp á yfirborðið
en þeir sem standa að NDSOP
segja að heppilegast væri að nota
gripkló.
Samningur við Smit Tak
Sovésk yfirvöld skrifuðu undir
samning við Smit Tak í júní í fyrra
að viðstöddum utanríkisráðherrum
Sovétríkjanna og Hollands. Var
það hluti af samkomulaginu að
gerð yrði heildarúttekt á björgun
kafbátsins, jafnt tæknilegu hliðinni
sem þeirri fjárhagslegu, og var
lokið við það starf í janúar á þessu
ári.
Talsmaður Smit Tak í Rotter-
dam, D.C. Kaakebeen segir í sam-
tali við Morgunblaðið að allar áætl-
anir hafi verið sendar Sovétmönn-
um í febrúar á þessu ári og þá
verið við það miðað að hafist yrði
handa sumarið 1992. Til þess að
það myndi takast hefðu Sovétmenn
hins vegar þurft að gefa afdráttar-
laus svör fyrir fyrsta apríl. Það
hefði ekki verið gert og því var
ákveðið að fresta verkefninu fram
á árið 1993. Yrði þá ráðist í björg-
unina í júlí/ágúst það ár ef Sovét-
menn gæfu grænt ljós á áætlanir
NDOC.
Kaákebeen segir að ekki sé
hægt að gefa nánari upplýsingar
á þessu stigi málsins, þ.e. meðan
enn er verið að bíða eftir sam-
þykki Sovétmanna. Hann geti því
ekki tjáð sig nánar um hvernig
ætlunin sé að framkvæma björgun
kafbátsins. Þá hafi áætlaður
kostnaður ekki heldur verið gerður
opinber.
Það er mat sérfræðinga að
kostnaður verði á bilinu 12-13
milljarðar íslenskra króna.
Samdráttur nær ekki til flotans
Umferð sovéskra kafbáta í
kringum ísland er veruleg. í Norð-
urflota Sovétmanna 38 eldflaugak-
afbátar með alls 2636 kjarnaodda
og 107 árásarkafbátar. Þar af eru
74 kjarnorkuknúnir. Hinir 33 eru
dísilknúnir en geta einnig borið
kjarnavopn. Dísilknúnum kafbát-
um hefur fækkað verulega á und-
anförnum árum enda þykja þeir
úreltir vegna þess hve háværir
þeir eru og þar með auðvelt að
fylgjast með ferðum þeirra. Eru
41% kafbáta Norðurflotans, ann-
arra en strategískra eldflaugakaf-
bát_a, frá því fyrir 1970.
Árásarkafbátum er einkum ætl-
að það hlutverk að veija eldflaug-
akafbáta á óvissu- og hættutímum.
Liggja siglingaleiðir þeirra því oft-
ast sunnar og þar með nær íslandi
en eldflaugakafbátanna.
í síðasta fréttabréfí Öryggis-
málanefndar er grein eftir norska
öryggismálasérfræðinginn Tomas
Ries sem fjallar um þá breyttu
hermálastefnu sem tekin hefur
verið upp varðandi sovéska Norð-
urflotann síðan Míkhaíl Gorbatsjov
hófst til valda í Sovétríkjunum.
Þrátt fyrir samdrátt á flestum svið-
um á það ekki við um sovéska flo-
tann. Eru helstu breytingarnar
þær að dregið hefur úr flotaæfing-
um síðan 1985 og byijað hefur
verið á því að taka úr notkun úr-
elt skip og kafbáta. Á móti því
kemur hinsvegar nýsmíðaáætlun
sem hófst áður en Gorbatsjov
komst til valda og eykur hernað-
arstyrk flotans. Segir í fréttabréfi
Öryggismálanefndar að þetta eigi
sérstaklega við um Norðurflotann.
I grein Ries segir einnig m.a.:
„Kjarnorkuknúnir eldflaugakaf-
bátar eru einn mikilvægasti hluti
sovéska flotans. Það stafar af því
að þeir tilheyra strategískum eða
langdrægum kjarnavopnaher Sov-
étríkjanna og tengjast því beinlínis
■Sovéskir embættismenn seoia kaíbátinn vera „vistfræði-
lega tímasprengiu“ og stetna að bví að ná flakinu af hafsbotni
■Norsk stjórnvöld telja undirbóning ekki nægan
og að ekki sé vitað bvað eigi að gera við flakið
takist að ná bví upp
■Umferð sovéskra kafbáta í kringum ísland er
veruleg. í Norðurtlota Sovétmanna 38 eldflaugakafbát-
ar með alls 2638 kjamaodda og 107 árásarkafbátar
sovéskum öryggishagsmunum.
Eldflaugar þessara kafbáta eru
meðal þeirra vopna sem koma eiga
í veg fyrir að nokkurt ríki geti
þvingað Sovétríkin með því að
hóta notkun kjarnavopna. Mikil-
vægt er að hafa í huga að enn
hafa breytingar og niðurskurður
undanfarinna ára ekki náð til hins
strategíska kjarnavopnahers Sov-
étríkjanna. Reyndar er líklegt að
hann gegni mikilvægara hlutverki
nú en áður og að svo verði áfram
vegna vaxandi veikleika Sovétríkj-
anna á öðrum sviðum. Strategíski
kjarnavopnaherinn er eitt af því
fáa, ef ekki það.eina, sem gerir
Sovétríkjunum kleift að telja sig
meðal stórvelda. í öðru lagi veldur
vaxandi veikleiki Sovétríkjanna
heima og heiman því að meiri þörf
er fyrir strategísk kjarnavopn en
áður til að bægja frá hugsanlegum
utanaðkomandi þrýstingi."
Norðurflotinn hefur haft for-
gang hvað varðar ný skip og kaf-
báta og mun úrelding því hafa
minnst áhrif á hann. Ries spáir
því að ef Norðurflotinn þróist
áfram eins og undanfarin fjögur
ár megi búast við að árásarkafbát-
um og skipum fækki lítilega en
hernaðargetan aukist þar sem ný
og fullkomnari skip komi í staðinn.
Ótrúlegt tækiiærí!
«. ms 5° s£et*
27.\ún'
4.\^'V
8.
\2
yj sse"
upP
se"
2\
upP
sett
upP
seU
Costa cfel Sol
Sol hótelkeðjan, stærstl hótelhringur Spánar, býður
Veraldarfarþegum einstakt tækifæri til að komast
til Spánar í sumar. Þú gistir á einum af
afbragðsgóðum gististöðum Sol hringsins og ert
öruggur um gott sumarleyfi á einstöku verði.
upP
se\t
Þannig
gengur það
fyrir sig
Þú færð staðfesta tegund
gistingar við bókun ferðar,
stúdíóíbúð eða íbúð með 1
svefnherbergi. 4 dögum fyrir
brottför færðu staðfest nafn
gististaðarins. Aðeins er um að
ræða valda gististaði frá Sol
hótelkeðjunni, Palomas,
Principito, Timor eða
Palmeras.
Vika 2 vikur 3 vikur:
2 í stúdíó 33.700,- 39.600,- 43.400,-
3 í íbúö 31.900,- 39.500,- 51.500,-
4 í íbúö 29.800,- 38.500,- 41.700,-
Barnaafsláttur:
1 vika 6.000,- 2—15ára
2 vikur 8.000,- 2—15ára
3vikur 10.000,- 2—15ára
Um er að ræða staðgreiðsluverð.
Aðeins er um takmarkað sætamagn
að ræða í ofangreindar brottfarir.
f [ R D fl M l Ð S f D ÐIN
tr i jÉSöílJ , '’VV* <u\i ú 11
■L I1b .
ísöf ||hp
AUSTURSTRÆTI17. SIMI622200