Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 25

Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 25
MÖRtrUfter;ÁÐlÐ:' MINN (Mfóltirf MMIMcffi&aSIHai ím Mfe Styrkur úr Minningar- sjóði Jóns- Jóhannesson- ar prófessors STYRKUR var nýlega veittur úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jó- hannessonar prófessors. Styrk- inn hlaut að þessu sinni Sigríður K. Þorgrímsdóttir, BA. Sigríður hefur unnið að því að safna saman því sem Þura Arna- dóttir frá Garði lét eftir sig í rituðu máli, en mikið af því hefur ekki verið gefið út. Efni þetta er að stór- um hluta þjóðlegur fróðleikur, m.a. þættir af fólki og atvinnuháttum þess og lífi fyrr á tímum. Minningarsjóður dr. phil. Jóns Jóhannessonar prófessors er eign Háskóla íslands. Tekjum sjóðsins er varið til þess að veita stúdentum eða kandídötum í íslensku og sagn- fræði styrki til einstakra rannsókn- ai’verkefna, er tengjast námi þeirra. Mig langar í fáum orðum að þakka Karli góð kynni. Þau hófust er hann spilaði á orgél í Landakots- kirkju, en ég söng með kórnum. Leiðir okkar lágu svo oft saman er Karl spilaði ásamt hljómsveit sinni á dansleikjum fyrir þroskahefta og fékk ég þá stundum að taka lagið með þeim. Legg ég nú bæði líf og önd, Ijúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér, Megi góður guð styrkja aðstand- endur Karls í sorg þeirra. Stefán Lund Kveðja frá kórfélög-um í Hveragerði „Ekki verður feigum forðað né ófeigum í hel komið.“ Þessi orð komu mér í hug er ég frétti lát vinar míns, Karls Sighvatssonar. Mér fannst strax eins og hans tími hefði verið kominn, hann hefði ver- ið kallaður til annarra starfa. Kalli var magslunginn persónu- leiki, eldhugi og listamaður fram í fingurgóma. Það var því ekki und- arlegt þó að við hin, þessar meðal- manneskjur með báða fætur á jörð- inni, værum ekki alltaf í takt við hann. En Kalli var ekki bara mikill listamaður, hann var líka góður drengur. Hann var hjálpsamur og vildi öllum gott gera. Við kórfélagarnir í Hveragerði kveðjum góðan vin með söknuði. Það er satt sem einn af okkar gömlu kórfélögum hefur svo oft sagt, það verður vandfundinn maður sem spilar eins og Kalli. Við sendum aðstandendum okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Anna Jórunn Karl J. Sighvats- son — Kveðjuorð HEKLA LAUGAVEGI 174 SlMI 695500 MITSUBISHI MOTORS „Já, þetta líst mér vel á, Kiddi sæll,“ sagði hann, eftir að ég kynnti konuna mína fyrir honum. Þau áttu oft eftir að talast saman. Svona smávegis sem kallað er. Og þar af leiðandi þekkjast betur en ella. Við hjónin vottum syni hans og aðstandendum okkar innilegustu samúð. Kristinn og Agústa Mig langar að kveðja hér með örfáum orðum vin minn, Karl Sig- hvatsson, sem svo snögglega var hrifinn burt úr lífi okkar og samfé- lagi. Við kynntumst fyrst á kóra- og organistanámskeiði í Skálholti fyrir þremur árum. Hann taldi mig hafa góða söngrödd og hvatti mig óspart til að stunda söng og afla mér þjálfunar og reynslu. Sagðist hann gjarna vilja verða mér þar að liði, ef hann gæti. Og þegar ég vist- aðist á heilsuhæli NLFI í Hvera- gerði ári seinna gafst mér tækifæri til að þiggja það góða boð. Var samvinna okkar hin ánægjulegasta og ég lærði margt, en ekki var gjaldið hátt, sem sett var upp fyrir það. Sl. vetur dvaldi ég aftur á hælinu, en vegna anna gat hann lítið sinnt mér í það sinn. Var hann leiður yfir því og sagði að við yrðum að bæta okkur það upp í annan tíma. Rétt fyrir hvítasunnu hringdi hann til mín og bað mig að koma °g syngja með karlakór í samkvæmi á Hellu. Ég var hálftregur til að fara út í slíkt óæfður, en sló þó til, og allt gekk vel. Við hittumst glað- 8 MANNA MINIBUS NÝTT ÚTLITAÐ FRAMAN NÝTT ORKUSVIÐ □ Bensínhreyfill — 2,41ítrar □ Dieselhreyfill — 2,51ítrar □ Eindrif eða aldrif Fjölmargir möguleikar á sætaskipan Þriggja ára ábyrgð Alltaf hress og alltaf kátur. Þannig þekkti ég Kalla. Viðræðu- góður og verulega skemmtilegur. Þannig kynntist ég honum fyrir allmörgum árum. Þekki ég hann best, hvernig hann kom mér fyrir sjón og heyrn. Þó ég væri ei marg- máll gat teygst úr viðræðum okk- ar. Hinn ágæti Kalli vinur, líkt og ég kallaði hann, gat leiðbeint mér í orðum. Og ég bætti við, eftir hvað við átti. Gátum við báðir skellihleg- ið að hugmyndaflugi á orðum þeim. Kalli var drengur hinn besti. Mér og honum varð fljótt til vina, í den tid eins og kallað er stundum. Það er söknuður að slíkum mönnum. Ég myndi hiklaust segja að hann var hvers manns hugljúfi. Við Kalla var eitthvað alveg sérstakt. Já, hvað það var? Og hvernig það lýsir sér? Kannski er erfitt að koma orðum að því. En tilfellið var, maðurinn var alveg sérstakur. Undrandi varð Kalli er hann vissi að ég var gift- ur. Gekk kappinn fjóra hringi í kringum okkur hjónin. Horfði á hátt og lágt áður en hamingjuósk kom frá honum. ir og skildum glaðir, ákveðnir að hittast fljótlega og gera þá einhveij- ar áætlanir um frekara samstarf, er hann kæmi til baka úr utanlands- ferð organista. En nú er hann far- inn í aðra ferð og lengri og ljóst er að sá fundur okkar verður ekki hér í heimi hvað sem síðar verður. Fari minn kæri vinur vel, og hafi þökk fyrir allt og allt. Ástvinum hans sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Páll Rúnar Pálsson Verðfrákr. 1.300.800 (með eindrifi og bensínhrevfil)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.