Morgunblaðið - 23.06.1991, Side 37
rvm
GIQ/
OHOI'
37
Yfirlýsing Framkvæmdasjóðs íslands um fyrirgreiðslu við Álafoss hf.;
Fjárstuðningur sjóðsins
1.700 millj. á núvirði
FRAMKVÆMDASJÓÐUR íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu og
yfirlit yfir ráðstöfun fjár úr sjóðnum til Álafoss hf. vegna ágreinings
við fyrrverandi stjórnendur fyrirtækisins um opinbera fyrirgreiðslu
við fyrirtækið. Yfirlýsing Framkvæmdasjóðs fer hér á eftir:
„Vegna frétta í flölmiðlum að und-
anförnu um _ fyrirgreiðslu Fram-
kvæmdasjóðs íslands við Álafoss hf.
gætir misskilnings um framlög sjóðs-
ins til fyrirtækisins. Þannig hefur
komið fram í yfirlýsingu frá stjórn
Álafoss hf. að framlag FÍ hafi num-
ið 756 millj. kr. en ekki 1.806 millj.
kr. eins og fram kom í frétt frá for-
sætisráðuneytinu. Fjárhæðin sem til-
greind er í yfirlýsingu stjórnar fé-
lagsins skiptist þannig að stofnfram-
lag sjóðsins til fyrirtækisins hafi
numið 539 millj. kr. og innborgað
hlutafé samtals 217 millj. kr.
Jafnframt kemur fram í yfirlýsing-
unni að frá þessari fjárhæð beri að
draga veð að fjárhæð 322 millj. kr.
auk þess sem ábyrgðir sjóðsins gagn-
vart Álafossi hafi lækkað um 299
miljj. kr. frá stofnun félagsins.
í yfirlýsingu stjórnar Álafoss hf.
er mótmælt því yfirliti um fyrirgre-
iðslur FÍ sem fram kom í fréttatil-
kynningu forsætisráðuneytisins frá
18. júní sl.
í þeirri fréttatilkynningu var sagt
að fyrirgreiðsla sjóðsins við Álafoss
hf. á undanförnum árum og þá ekki
síst í tengslum við stofnun fyrirtæk-
isins 1987 í formi lána, ábyrgða og
eignakaupa hafði numið 1.807 millj.
kr. Það skal tekið fram að sú fjárhæð
er framreiknuð miðað við gengi
Bandaríkjadals.
Ástæðan fyrir þessum greiðslum var
sú, að upphaflegt framlag sjóðsins
til nýja félagsins í formi fasteigna,
véla og annarra eigna, reyndist ekki
nægjaniegt til að tryggja þá eiginij-
árstöðu sem stefnt var að, þannig
má segja að framlög þessi hafí verið
hugsuð til að létta undir með nýja
félaginu.
3. Á árinu 1988 var ákveðið að
auka hlutaféð í nýja Álafossi og
keypti FÍ hlutafé fyrir 110 m.kr. Enn
var keypt hlutafé á árinu 1989 fyrir
122 .m.kr. Á sama ári voru keypt
hlutabréf í ísl.markaði af SÍS til
þess að auðvelda þeim kaup á hluta-
bréfum í Álafossi_ til samræmis við
hlutabréfakaup FÍ.
4. Á árinu 1990 var félaginu lán-
að 5,7 millj. USD sem jafngilda 362
m.kr. tryggt með 1. veðrétti í verk-
smiðjuhúsi félagsins í Mosfellsbæ.
Þetta lán fór eingöngu til þess að
greiða upp skuldir við Iðnþróunar-
sjóð, Iðnlánasjóð og Byggðastofnun.
Þessa láns er að engu getið í yfirlýs-
ingu stjórnar Álafoss hf. þótt þar sé
húseignin tilgreind sem sérstakur
frádráttarliður. Þá er heldur ekki
getið um í þeirri frétt að FÍ gekkst
í ábyrgð fyrir félagið gagnvart
Landsbanka Islands á árinu 1990
fyrir 94 m.kr. Með þeirri ábyrgð féllu
úr gildi eldri ábyrgðir sem hvíldu á
sjóðnum, en það breytir því ekki, að
ábyrgð sjóðsins gagnvart bankanum
er 94 m.kr. og er það í samræmi við
fréttatilkynningu forsætisráðuneyt-
isins.
5. Samandregið er fyrirgreiðsla
sjóðsins sem hér hefur verið rakin
að nafnvirði 1.254 m.kr. sem er upp-
fært m.v. lánskjaravísitölu í júní
1991 1.700 m.kr. Mismunurinn á
þeirri tölu og þeim 1.806 m.kr. sem
fram komu í fréttatilkynningu for-
sætisráðuneytisins stafar af því að
sú tala var uppfærð m.v. gengi
bandaríkjadals. Ástæðan fyrir þeirri
viðmiðun er sú að FÍ tók erlend lán
í USD til að fjármagna þessa fyrir-
greiðslu. Þess skal getið að á móti
þessum framlögum er eignfært í
bókum sjóðsins 348 m.kr. auk þess
sem lán FÍ til Álafoss að fjárhæð
362 millj. kr. er tryggt með 1. veð-
rétti í verksmiðjuhúsi í Mosfellsbæ.
6. Þessi framlög eru verulega
hærri en stjórn Álafoss nefnir í yfir-
lýsingu sinni og virðist helst mega
skýra mismuninn á þann veg að hún
telji allan þann stuðning sem FÍ
veitti félaginu vegna samrunans tii
að styrkja eiginfjárstöðu nýja félags-
ins sér óviðkomandi. Jafnframt
sleppir hún að geta um lán að fjár-
hæð 362 m.kr. og 94 m.kr. ábyrgð
sem sjóðurinn gekkst í fyrir félagið
á síðasta_ ári. Þessi framsetning
stjórnar Álafoss hf. breytir ekki
þeirri staðreynd að FÍ hefur greitt
út vegna félagsins á undanförnum
árum, fjárhæðir sem nema 1.700
millj. kr. m.v. lánskjaravísitölu í júní
sbr. meðfylgjandi yfirlit," segir í
fréttatilkynningu Framkvæmda-
sjóðs.
Grindavík:
Þjóðhátíð í
Grindavík.
HÁTÍÐAHöLDIN 17. júní fóru
fram í besta veðri sem menn
muna í Grindavík. Margt var til
skemmtunar og fór hið besta
fram.
Hátíðahöldin voru með hefð-
bundnu sniði með skrúðgöngu,
fallhlífarstökki og útihátíð við
Gmnnskólann. Þar ríkti kaffihúsa-
stemmning því borð og stólar voru
fluttir út undir bert loft og fólk
gat setið og drukkið kaffí og borð-
að vöfflur sem knattspyrnudeild
UMFG seldi til styrktar starfsemi
sinni.
Við skólann var síðan vönduð
sól og blíðu
dagskrá og meðal annars sýndir
þjóðdansar af hópi unglinga sem
kom saman og æfði fyrir þjóð-
hátíðardaginn og var bæði sungið
og dansað. Hin árlega hæfileika-
keppni var á sínum stað og um
kvöldið var dansað undir hljóðfæ-
raslætti hljómsveitarinnar Undir
tunglinu sem er frá Grindavík.
Það er mál manna að sjaldan
eða aldrei hafi slíkt veður verið á
þjóðhátíð í Grindavík. Muna menn
vart aðra eins blíðu og hefur ríkt
að undanförnu og óska víst flestir
að góða veðrið haldist sem lengst.
FÓ
Kvennalistinn:
Yfirlit Framkvæmdasjóðs fslands um ráðstöfun fjár úr sjóðnum vegna Álafoss hf.
Uppfært m.v. lánskj.-
Nafnv. vísit. í júní ’91 (3.093 st.)
í m. kr. í mil(j. kr.
1986 Keyptar eignir við Vesturgötu/Tryggvagötu til að létta undir með gamla Álafossi 35 75
30.9.’87 Til að styrkja stöðu gamla Álafoss voru eignir við Álafossveg keyptar 105 183
“ Láni breytt í hlutafé 127 221
U Keypt hlutafé 45 78
1.1.—15.7/88 Gr. vegna neikvæðrar stöðu gamla Álafoss 262 407
2.5/89 Gr. vegna viðskiptakrafna 58 74
apríl’91 Gr. vegna viðskiptakrafna 20 20
Sala híutabréfa í gamla Álafossi (26) (35)
626 948
20.2/88 Aukið hlutafé í nýja Álafossi 70 111
9.11/89 Aukið hlutafé í nýja Álafossi 90 122
1.7/89 Keypt hlutabréf í Isl.markaði SÍS 52 63
1990 Lán til Álafoss 5,7 m. USD 322 362
Ábyrgðir gagnvart Landsbanka íslands 94 94
628
752
1.254
1.700
Aðgerðum ríkisstjóm-
arinnar mótmælt
í tilefni af þessum fréttum hafa
bókhaldsgögn FÍ verið skoðuð og
tölur um aðstoð sjóðsins við Álafoss
hf. hafa verið framreiknaðar miðað
við lánskjaravísitölu til að fá raun-
hæfan samanburð við tölur í frétt
stjórnar Álafoss hf.
Þessi skoðun leiðir eftirfarandi í
ljós:
1. Árið fyrir stofnun nýja Álafoss
hf. (1986) voru keyptar eignir við
Vesturgötu 2 að íjárhæð 75 millj.
kr. Tilgangur þessa var að létta und-
ir með gamla Álafossi fyrir fyrirhug-
aða sameiningu þess félags við Iðn-
aðardeild Sambandsins.
2. Ákveðið var við sameiningu að
við stofnun nýja Álafoss hf. yrði
framlag FÍ að jafnvirði 350 millj. kr.
(549 m.kr. á núvirði). í ljós kom
þegar á því ári að nauðsynlegt yrði
að leggja til félagsins verulega meira
fjármagn. Af þeim sökum keypti FÍ
eignir við Álafossveg fyrir 183 millj.
kr. Láni að fjárhæð 221 m.kr. var
breytt í hlutafé og keypt hlutabréf
af Álafossi að fjárhæð 78 millj. kr.
Ári síðar kemur í ljós að þrátt fyrir
framangreind framlög, varð vegna
neikvæðrar stöðu gamla Álafoss að
leggja nýja félaginu til greiðslu að
fjárhæð 407 m.kr. Á árinu 1989
greiddi FÍ til félagsins 58 millj. kr.
vegna tapaðra viðskiptakrafna. {
aprfl 1991 .voru aftur greiddar 20
millj. kr. til félagsins. í árslok 1988
voru hlutabréf í gamla Áiafossi seld
fyrir 35 m.kr. Kaupandi var Vífilfel!
hf. Þessi fjárframlög úr FÍ að frá-
dreginni hlutafjársölunni nema sam-
tals 948 millj. kr. í peningagreiðslum.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi ályktun frá
þingflokki Kvennalistans:
„Þingflokkur Kvennalistans
mótmælir þeim aðgerðum sem
ríkisstjómin hefur nú gripið til og
bitna á sjúklingum og námsmönn-
um.
Enn einu sinni gerist það að
ráðstafanir ríkisvaldsins koma
verr við konur en karla. Skerðing
námslána kemur af fullum þunga
niður á þeim sem lægri hafa tekj-
Aðstoðarmaður forsætisráðherra um stjórn Álafoss:
Gera lítið úr mikilli fyrir-
greiðslu opinberra sjóða
Tillaga stjórnar var að færa niður hlut Framkvæmdasjóðs en hlutur SÍS stæði óbreyttur
HREINN Loftsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, er ósammála fyrr-
verandi stjórn Álafoss hf. um upphæð þeirra fjárframlaga sem fyrirtæk-
ið hefur notið af hálfu hins opinbera en hann var formaður starfshóps
þriggja ráðuneyta sem fór í saumana á stöðu fyrirtækisins. Þá hefur
Framkvæmdasjóður sent frá sér fréttatilkynningu þar sem yfirlýsingum
stjórnar Álafoss um fyrirgreiðslu sjóðsins er mótmælt. „I yfirlýsingu
stjórnar Álafoss er verulega hallað réttu máli og meðal annars sleppt
að tilgi-eina fjárhæðir sem Framkvæmdasjóður hefur lagt til félagsins
og má þar nefna 362 milljóna króna lán auk 94 milljóna króna ábyrgð-
ar sem sjóðurinn gekkst í fyrir félagið á síðasta ári. Stjórnin virðist
einnig hafa að engu þá verulegu fjármuni sem lagðir voru til félagsins
í formi peningagreiðslna við sameininguna 1987,“ segir Hreinn.
Hreinn sagði að sér virtist það
viðhorf koma fram hjá stjóm Álafoss
„að gera lítið úr þeirri gríðarlegu
fyrirgreiðslu sem opinberir sjóðir
hafa veitt Álafossi hf. á undanförn-
um árum,“ eins og hann orðaði það.
„Þetta sama viðhorf lýsir sér í
því, að í tillögum stjórnar félagsins
til ríkisstjórnarinnar, um að forða
félaginu frá gjaldþroti, var við það
miðað að hlutur Framkvæmdasjóðs
í félaginu ætti að minnka úr 60%
niður í 53-54% en 40% hlutur Sam-
bandsins átti að vera óbreyttur,“
sagði hann.
Hreinn benti á að sundurliðun
Framkvæmdasjóðs á aðstoð við fyrir-
tækið sé í fullu samræmi við þær
tölur sem komið hafi frá forsætis-
ráðuneytinu. Framkvæmdasjóður fái
út 1.700 millj. heildarupphæð sem
sé uppfærð miðað við lánskjaravísi-
tölu fram í júní en ráðuneytið 1.807
millj. sem sé miðuð við gengi banda-
ríkjadals, enda hafi fyrirgreiðslan
verið fíármögnuð með erlendum doll-
aralánum. Auk þess sé tekið tillit til
vaxta á tímabilinu í þeirri fjárhæð
sem forsætisráðuneytið hefur sett
fram. „Sé þetta tvennt virt er hér
um nákvæmlega sömu fjármuni að
ræða,“ sagði Hreinn.
í yfirliti Framkvæmdasjóðs er því
haldið fram að önnur fjárhagsaðstoð
hins opinbera til Álafoss hf. hafí
numið 505 millj. en forsætisráðu-
neytið telur að sú fjárhæð nemi 600
millj. Sagði Hreinn að Framkvæmda-
sjóður virtist ekki taka kaup ríkis-
sjóðs á Hekluhúsinu á Akureyri með
í dæmið en á núvirði sé kaupverðið
án vaxta 70,9 millj. Séu önnur fram-
lög uppfærð til núvirðis er um eftirf-
arandi fjárstuðning að ræða:
Víkjandi lán til Hildu - Álafoss fyrir-
tækisins í Bandaríkjunum á síðasta
ári 49,5 millj. án vaxta, víkjandi lán
1989 vegna markaðsaðgerða í Evr-
ópu 33 millj., víkjandi fíán vegna
endurskipulagningar á síðasta ári
62,4 millj., eftirgjöf á húsaleigu
vegna Hekluhússins 24,9 millj.,
framlag vegna ullarþvottastöðvar 5,2
millj., framlag Hlutafjársjóðs 104
millj. og framlag Atvinnuti-ygginga-
sjóðs 249 millj. Samtals nema þessar
fjárhæðir 599,7 miltji
urnar í námsleyfum, en það eru
að jafnaði konur. Með þessum
aðgerðum eykst misrétti og hætt
er við að þeir sem lægst hafa laun-
in muni hrekjast frá námi. Það er
ámælisvert að hvorki skuli hafa
verið haft samráð við námsmenn
um niðurskurð í námslánakerfinu
né hlustað á tillögur þeirra, sem
fela í sér verulegan sparnað.
Það er ekki síður alvarlegt að
aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að ■
ná niður kostnaði við lyfjadreif-
ingu munu bitna hart á barnafólki
og öldruðum umfram aðra. Notk-
un sýklalyfja vegna algengra
kvilla barna, s.s eyrnabólgu, mun
tæplega minnka þrátt fyrir þessa
hækkun og því verður um veruleg
fjárútlát að ræða fyrir margar
smábarnaflölskyldur. Þá eru kjör
aldraðra hér á landi ekki með þeim
hætti að þeir geti borið neinar
hækkanir á lyfjum.
Námslánakerfíð og fyrirkomu-
lag lyfjadreifíngar sem og aðrir
þættir velferðarkerfisins eiga allt-
af að vera í endurskoðun til að
tryggja að þau þjóni almannahag ■■
og séu rekin með sem hagkvæ-
mustum hætti. Slík endurskoðun
á þó ekki að bitna á þeim sem
síst skyldi og verða til að auka
misrétti í samfélaginu. Ríkisvaldið
hefur með aðgerðum sínum enn
einu sinni valið leiðir sem geta
orðið til að hlaða upp nýjum vanda
sem framtíðin þarf að glíma við.
Þetta eru ekki skynsamleg vinnu-
brögð. Nær hefði verið að fara
mannúðlegri leið og ná settum
markmiðum í sátt við námsmenn,
launafólk og sjúklinga.“
o
INNLENT