Morgunblaðið - 23.06.1991, Qupperneq 44
varða i
i
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Eiturefni
og kopar
í sjófugli
MIKIÐ magn af eiturefnum og
kopar hefur greinst í íslenskum
æðarfuglum. Er talið að eitrið
sé komið í fuglinn úr kröbbum
og skeldýrum.
Eiturefnin fundust í fjórum
æðarfuglum, sem komu í fyrra frá
Bolungarvík, en talið var að þeir
væru að drepast úr olíumengun.
Hafa þeir verið rannsakaðir hjá eit-
urefnadeild Rannsóknastofu í lyfja-
fræði í samvinnu við Náttúrufræði-
stofnun.
Að sögn Þorkels Jóhannessonar
prófessors er um mjög mikið magn
af eiturefnum að ræða. í sumum
tilfellum er það mun meira en
mælst hefur í æðarfugli í Dan-
mörku. Frekari eiturefnarannsóknir
á íslenskum fuglum eru fyrirhugað-
ar.
Sjá bls. 2.
Námstími
lengist og
einkunnum
hrakar
I NÝRRI rannsókn á framhalds-
námi stúdenta kemur m.a. fram
að náiustlminn sem tekur nem-
endur að ná stúdentsprófi hefur
lengst um allt að ári og einkunn-
um hrakar. Stúdentsprófið virð-
ist lítils virði á atvinnumarkaði.
Aðeins 13% þeirra sem luku stúd-
entsprófi, en luku ekki öðru
námi, gátu notað prófið sér til
framdráttar í atvinnulífinu.
Rannsókn þessi náði til 890 nem-
enda sem útskrifuðust með stúd-
entspróf frá Menntaskólanum í
Hamrahlíð á árunum 1975 til 1986.
Niðurstöður hennar gefa vísbend-
ingar um aðra mennta- og fram-
haldsskóla því í könnun 1989 var
MH talinn í hópi þeirra mennta-
skóla sem skila hvað bestum nem-
endum í Háskólann.
Rannsóknin hefur staðið yfir sl.
þtjú ár en hana unnu dr. Sölvína
Konráðs sálfræðingur og Bettý Nik-
ulásdóttir námsráðgjafi í MH. í nið-
urstöðum sínum segja þær m.a. að
meðalnámstíminn í dagskóla á fyrr-
greindu tímabili hafi lengst úr 4
árum 1975 í 4,7 ár 1986 og í öld-
ungadeild hefur þessi tími lengst
úr 4,2 árum og í 5,6 ár. Um helm-
''•ingur þeirra sem tóku stúdentspróf
á þessu tímabili fóru ekki áfram í
framhaldsnám eða hættu því námi
áður en námsgráðu var náð.
í ljós kom að konur sem stunda
nám við öldungadeild sýna að jafn-
aði bestan námsárangur. Karlar í
dagskóla sýna hinsvegar lakastan
námsárangur en eru þó líklegri en
konur til að ljúka framhaldsnámi.
Sjá nánar á bls. 12-13.
Björgunarmenn að störfum við sprunguna sem fólkið féll ofan í á Snæfellsjökli í gærmorgun.
Morgunblaðið/Júlíus
Bjargað úr sprungii á Snæfellsjökli
um slysið klukkan sex á laugar-
dagsmorgun. Þar sem þyrla Land-
helgisgæslunnar var biluð var ósk-
að eftir þyrlu frá Varnarliðinu á
Keflavlkurflugvelli. Hún lenti í nið-
urstreymi við lendinguna á jöklin-
um og varð að nauðlenda með
þeim afleiðingum að spaðar hennar
og hífingarútbúnaður skemmdust,
og var hún ónothæf eftir.
Björgunarsveitarmenn frá Ól-
afsvík og Hellissandi fóru upp á
iökuiinn á véisleðum og tókst þeim
að ná fólkinu upp úr sprungunni.
Læknir frá Ólafsvík var í för með
með björgunarsveitarmönnum og
fór hann með þeim ofan í sprung-
una að sækja fólkið. Hann ásamt
lækni sem var í þyrlunni sem nauð-
lenti bjó síðan um hina slösuðu í
þyrlunni uns önnur þyrla frá Varn-
arliðinu kom á vettvang og flutti
hjónin til Reykjavíkur. Þyrlan lenti
við Borgarspítalann um ellefuleyt-
ið í gærmorgun.
Samkvæmt upplýsingum læknis
á Slysadeild Borgarspítalans eru
hjónin bæði talsvert slösuð, en
voru ekki talin I lífshættu.
HJÓNUM frá Helissandi var
bjargað úr alldjúpri sprungu á
Snæfellsjökli í gærmorgun. Þau
voru flutt á Borgarspítalann.
Við björgunarstörfin lenti þyrla
frá Varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli í niðurstreymi á jöklin-
um og lenti mjög harkalega.
Nokkrar skemmdir urðu á þyrl-
unni.
Fólkið sem lenti í slysinu var á
ferð á jöklinum með félögum í
Lionsklúbbnum á Hellissandi auk
félaga úr Lionsklúbbi í Reykjavík.
Þau voru saman á snjósleða og fór
sleðinn með þeim ofan í sprung-
una. Fallið var um 20 metrar.
Lögreglunni í Ólafsvík var tilkynnt
Vélsleðinn hífður upp úr 20 metra djúpri jökulsprungunni.
Morgunblaðið/Ámi Sæborg
Glettingur, Meitillinn og Hraðfrystihús Stokkseyrar:
Viljayfirlýsing undirrituð um
sanioiniiign fyrirtækjanna
FULLTRÚAR stjórna Glettings, Meitilsins og Hraðfrystihúss Stokks-
eyrar hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að vinna að sameiningu
þessara fyrirtækja þriggja í eitt almenningshlutafélag. Sameinaða
fyrirtækið yrði í hópi stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins með
yfir 10 þúsund tonna þorskígildakvóta.
Áður hafa staðið yfir viðræður
Meitilsins og Glettings um samein-
ingu en þær báru ekki árangur.
Þessi fyrirtæki eru bæði í Þorláks-
höfn. Að sögn Guðmundar Malm-
quist forstjóra Byggðastofnunar var
málið tekið upp aftur, eftir að Hrað-
frystihús Stokkseyrar náði nauða-
samningum fyrir skömmu, og fiski-
skipið Jóhann Gíslason ÁR, sem er
í eigu Glettings, var leigt til Kanada.
Á föstudag var svo skrifað undir
viljayfirlýsingu um að vinna að sam-
eingingu fyrirtækjanna. Undir yfir-
lýsinguna skrifuðu Marteinn Frið-
riksson stjórnarformaður Meitilsins,
Jón Sigurðarson stjórnarformaður
Glettings og Guðmundur Malmquist
en hann er stjórnarformaður Hluta-
fjársjóðs Byggastofnunar, sem á
meirihluta í Hraðfrystihúsi Stokks-
eyrar.
„Ég vildi sjá þarna stórt og öflugt
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki.
Sameiginlega ætti það um 10 þús-
und tonna kvóta, og það mætti sam-
nýta reksturinn mun betur með því
að selja skip án kvóta og færa kvót-
ann á milli. Þetta verður skoðað um
leið,“ sagði Guðmundur Malmquist.
Undirbúningurinn á sameiningunni
á að taka tvær vikur. Rúmir 20 kíló-
metrar eru á milli Stokkseyrar og
Þorlákshafnar.