Morgunblaðið - 11.07.1991, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991
43
KNATTSPYRNA / MJÓLKURBIKARKEPPNIN
í
& 4
Sextán
liða
úrslit
&
KR-ÍA 2:0
KR-völlur, Mjólkurbikarkeppnin, 16-liða
úrslit, miðvikudaginn 10. júlí.
Mörk KR: Gunnar Skúlason (117.), Heimir
Guðjónsson (119.)
Gult spjald: Enginn.
Dómari: Ólafur Sveinsson, dæmdi vel.
Áhorfendur: 2.427.
Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Sigurður
Björgvinsson, Þorsteinn Halldórsson (Þor-
steinn Guðjónsson 68.), Þormóður Egilsson,
Atli Eðvaldsson, Bjöm Rafnsson (Bjarki
Pétursson 46.), Gunnar Oddsson, Gunnar
Skúlason, Ragnar Margeirsson, Heimir
Guðjónsson, Pétur Pétursson.
Lið í A: Kristján Finnbogason, Luca Kostic,
Ólafur Adólfsson, Alexander Högnason,
Brandur Siguijónsson, Karl Þórðarson,
Bjarki Gunnlaugsson, Sigursteinn Gíslason
Gísli Eyleifsson 72.), Þórður Guðjónsson,
Amar Gunnlaugsson, Haraldur Ingólfsson.
UBK-Víkingur 2:0
Kópavogsvöllur, Mjólkurbikarkeppnin, 16
liða úrslit, miðvikudaginn 10. júli 1991.
Mörk UBK: Grétar Steindórsson (8.) og
Amar Grétarsson (24.).
Gult spjald: Þorsteinn Þorsteinsson og
Janiz Zilnick, Víkingi.
Dómari: Gunnar Ingvason og var slakur.
Áhorfendur: 430
Lið UBK: Eiríkur Þorvarðarson, Amar
Grétarsson, Grétar Steindórsson, Gústaf
Ómarsson, Hilmar Sighvatsson, Ingvaldur
Gústafsson, Kristófer Sigurgeirsson, Pavol
Kretovic ( Willum Þór Þórsson 56.), Rögn-
valdur Rögnvaldsson, Siguijón Kristjánsson
(Jón Þórir Jónsson 73.), Valur Valsson.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Helgi Björgvinsson, Helgi Bjamason, Helgi
Sigurðsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Tom-
islav Bosnick, Janiz Zilnick (Marteinn Guð-
geirsson 79.), Hörður Theódórsson, Atli
Helgason, Atli Einarsson, Gunnar Guð-
mundsson (Hólmsteinn Jónsson 46.).
Stjarnan-KA 3:0
Stjörnuvöllur, Mjólkurbikarkeppnin, 16 liða
úrslit, miðvikudaginn 10. júlí 1991.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar Kristófers-
son (70.), Ingólfur Ingólfsson (77.) og (86.).
Gult spjald: Enginn:
Dómari: Kári Gunnlaugsson
Áhorfendur: Um 90.
Lið Sljörnunnar: Jón Otti Jónsson, Val-
geir Baldursson, Þór Ómar Jónsson (Rúnar
Sigmundsson 86.), Heimir Erlingsson, Birg-
ir Sigfússon, Bjami Benediktsson, Svein-
bjöm Hákonarson, Kristinn Lárusson,
Valdimar Kristófersson, Ingólfur Ingólfs-
son, Ragnar Gíslason.
Lið KA: Haukur Bragason, Örn Viðar
Árnason, Gauti Laxdal (Ámi Hermannsson
18.), Halldór Halldórsson ( Ámi Þór Frey-
steinsson 80.), Erlingur Kristjánsson, Pavel
Vandas, Sverrir Sverrisson, Einar Einars-
son, Páll Viðar Gíslason, Steingrímur Birg-
isson, Ormarr Örlygsson.
Þór-ÍBK 6:4
Akureyrarvöllur, Mjólkurbikarkeppnin, 16-
liða úrslit, miðvikudaginn 10. júlí.
Mörk Þórs: Ásmundur Amarsson (58.),
Júlíus Tryggvason, Birgir Karlsson, Þórir
Áskelsson, Sveinn Pálsson, Bjami Svein-
bjömsson, allir úr vítaspymu.
Mörk ÍBK: Marko Tanasic (70. v), Marko
Tanasic, Georg Birgisson, Kristinn Guð-
brandsson, allir úr vítaspyrnum.
Gult spjald: Nói Bjömsson og Ámi Þór
Árnason, Þór. Jóhann Magnússon, ÍBK.
Dómari: Ari Þórðarson.
Áhorfendur: 510.
Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Sveinn Páls-
son, Júlíus Tryggvason, Þórir Áskelsson,
Láras Orri Sigurðsson,_ Nói Bjömsson, Árni
Þór Ámason, Halldór Áskelsson, Ásmundur
Amarsson (Bjarni Sveinbjömsson 76.),
Hlynur Birgisson, Þorsteinn Jónssðn (Birgir
Karlsson 61.).
Lið ÍBK: Ólafur Pétursson, J akop Jónharðs-
son, Jóhann Magnússon, Kristinn Guð-
brandsson, Ingvar Guðmundsson, Georg
Birgisson, Jóhann Steinarsson (Sveinbjörn
Logason 110.), Marko Tanasic, Gestur
Gylfason, Kjartan Einarsson, Kristján Hilm-
arsson (Óli Þór Magnússon 46.).
Dregið í dag
Dregið verður í átta liða úrslitum
Mjólkurbikarkeppninnar í dag kl.
17. Liðin sem verða í hattinum eru:
KR, Stjarnan, Breiðablik, Valur,
FH og Víðir úr 1. deild, Þór úr 2.
deild og Leiftur úr 3. deild.
IÞROTTIR ERU
EINNIGÁ BLS. 41
MorgunblaðiÖ/Bjarni
Fyrirgefðu, Oli minn! Það er engu líkara en KR-ingurinn Atli Eðvaldsson sé að biðja Ólaf Adolfsson Skagamann fyrirgefningar á að hann og félagar skyldu slá
lið ÍA út úr Mjólkurbikarkeppninni. En þrátt fyrir tap geta Skagamenn borið höfuðið hátt — þeir léku mjög vel.
Stórskemmtilegt
KR-ingar höfðu betur í mjög góðum leik gegn efsta liði 2. deildar
LAIMGRI og bráðfjörugri viðureign gömlu erkifjendanna KR og ÍA
lauk með því að Reykvíkingarnir fögnuðu sigri. En það þurfti
framiengingu til, og það var reyndar ekki fyrr en þrjár mín. voru
eftir af henni — á 117. mín. leiksins — að Gunnar Skúlason náði
að brjóta ísinn, eftir að Skagamenn höfðu sofnað á verðinum f
vörninni. Þar með voru úrslitin ráðin, og Heimir Guðjónsson innsi-
glaði sigurinn tveimur mín. síðar.
Skagamenn voru sterkari í fyrri
hálfleik venjulegs leiktíma en
KR-ingar í þeim síðari. Bæði lið
náðu mjög góðum sprettum og
fengu góð færi, en
Skapti markverðirnir sáu
Hallgrímsson til þess að ekki var
skrifar skorað. Vörðu báðir
geysilega vel á
stundum. Og heppnin var heldur
ekki með útileikmönnunum — Har-
aldur Ingólfsson þrumaði til að
mynda í stöng KR-marksins í seinni
hálfleiknum og snemma í fyrri hluta
framlengingarinnar átti Kari Þórð-
arson lúmskt skot utan vítateigs í
samskeytin. Þar sluppu KR-ingar
með skrekkinn. KR-ingar voru einn-
ig nálægt því að gera mark — Sig-
urður Björgvinsson skaut framjá
úr dauðafæri, hinum megin varði
Ólafur frábærlega frá Bjarka og
Kristján varði síðan geysilega ver
frá Ragnari. Þannig var sótt á báða
bóga og einhvern tíma hlaut eitt-
hvað að bresta. Og það voru KR-
ingar sem skoruðu á undan sem
fyrr segir; það réði úrslitum. Þor-
steinn Guðjónsson sendi laglega inn
á vítateig, þar sem Gunnar Skúla-
son var algjörlega óvaldaður og
skoraði með góðu, viðstöðulausu
skoti í hornið fjær. „Þetta var frá-
bært. Þeir gleymdu sér illa í vörn-
inni,“ sagði Gunnar um atvikið.
Skagamenn urðu að sækja, fjöl-
menntu fram völlinn og við það
opnaðist vörnin illa. Heimir Guð-
jónsson fékk knöttinn frá Bjarka,
renndi sér laglega milli tveggja
varnarmanna og inn á teig, fram-
hjá Kristjáni og setti knöttinn í
markið. „Það var ljúft að klára þetta
þarna í restina,“ sagði Heimir.
Já, leikurinn var skemmtilegur
og vel leikinn þó spilið hafi dottið
niður á -milli. Stóra spurningin var
hvort iiðið næði að skora á undan
— næg voru færin á báða bóga —
og það hefðu allt eins getað verið
Skagamenn sem fögnuðu er flautað
var til leiksloka. En þeirra tími
kemur, það er alveg ljóst. Liðið er
bráðefnilegt.
Guðjón Þórðarson, þjálfari
Skagamanna, sagðist aldrei hress
með að tapa. „Ég fer í alla leiki til
að sigra, hvort sem það er gegn
KR eða einhverjum öðrum. Spurn-
ingin var hvorum megin gæfan
félli. Það voru margir skemmtilegi?
kaflar í þessu, en við gerðum okkur
seka um mistök á örlagaríkum
augnablikum þegar þreytan var
farin að segja til sín. Reynslan veg-
ur þungt í svona leik og einmitt
mest þegar menn eru orðnir þreytt-
ir. Og reynsluna hafa KR-ingar
fram yfir okkur, en það sem við
höfum fram yfír þá er að við getum
litið bjartari augum fram á veginn.
En ég óska þeim til hamingju með
daginn og velfarnaðar í keppninni,“
sagði Guðjón.
Friðrik varði vrtaspymir
-og kom Þórsurum þar með áfram í keppninni
ÞAÐ þurfti vítaspyrnukeppni til
að gera út um leik Þórs og ÍBK
á Akureyri í gærkvöldi. Friðrik
Friðriksson gerði út um leikinn
þegar hann varði eina víta-
spyrnu Kef Ivíkinga, en hana tók
Gestur Gylfason. Jafnt var eftir
venjulegan leiktíma, en þá
hafði hvoru liðí tekist að skora
einu sinni.
órsarar hófu leikinn af meiri
krafti og strax á 9. mínútu
fískaði Árni Þór Árnason víta-
spymu fyrir Þór eftir frábæra send-
ignu frá Júlíusi
Anton Tryggvasyni. Júlíus
Benjamfnsson tók spyrnuna og
sknfarfrá spyrnti yfir mark
Akureyri Keflvíkinga.
Leikurinn var fremur daufur en
þó voru heimamenn heldur meira
ógnandi í sínum- sóknaraðgerðum
og undir lok fyrri hálfleiks fengu
þeir ákjósanlegt færi. Halldór
Áskelsson átti gott skot að marki,
Ólafur Pétursson markvörður náði
að blaka knettinum í þverslánna,
en Ásmundur Arnarsson fylgdi vel
á eftir en skallaði yfir úr dauða-
færi fyrir opnu marki.
Keflvíkingar mættu mun ákveðn-
ari til leiks í síðari hálfleik og börð-
ust mun betur en gekk illa að skapa
sér opin marktækifæri. Það var á
70. mínút sem Gesti Gylfasyni var
brugðið innan vítateigs og Marko
Tanasic jafnaði metin úr vítaspyrn-
unni.
Það sem eftir lifði leiks og í fram-
lengingunni voru Keflkvíkingar
heldur meira með knöttinn en Þórs-
arar fengu hins vegar besta færið
undir lok framlengingarinnar þegar
Ólafur varði glæsilega skot frá
Halldóri.
Það var svo í vítaspymukeppni
sem gert var út um leikinn. Friðrik
varði frekar lausa spyrnu Gest
Gylfasonar. Friðrik kastaði sér til
hægri og náði að verja.
Friðrik var traustur i markinu
og einnig átti öll vörn liðsins góðan
dag. Halldór átti mjög góðan fyrri
hálfleik en dalaði er leið á leikinn.
Markvörður ÍBK, Ólafur Péturs-
son, var bestur í liði þeirra og þá
voru þeir Jóhann Magnússon go
Gestur Gylfason einnig sterkir.
Friðrik Friðriksson brosti breitt í
gærkvöldi.