Morgunblaðið - 16.07.1991, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1991
GEVALIA
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Breyting úthlutunar-
reglna var réttlætismál
PRIMUSAR
OG POTTAR
PRÍMUSAR
VERÐ FRA 1.600
POTTASETT
VERÐ FRA 1.670
MIKIÐ ÚRVALI
eftir Einar
Hálfdánarson
Hjón ínámi með tvö börn á fram-
færi hafa um 140 þúsund í lán á
mánuði. Þetta er eftir stórfellda
skerðingu sem svo er kölluð. Fleiri
dæmi mætti taka en fólki til upplýs-
ingar má benda á grein í Morgun-
blaðinu þann 16. júní. Af þessari
upphæð þarf vitanlega hvorki að
borga skatt, lífeyrissjóð ofl. Finnst
fólki virkilega að þetta sé ósann-
gjörn upphæð til að lifa af? (Til
-SMRAR fRAMUR
SNORRABRAUT 60, SÍMI 12045
HITACHI
BORVÉLAR
DH 22VB
• 22 mm Lofthögg •
• Stiglaus hraðastilling •
• Tveggja hraða •
• Hægri - vinstri snúningur •
■ 0-1.000 og 0-4.200 snún. mín.
• Þyngd 2,3 kg. f
•Verð 23.655.-«
©
iVÖLUSTEINNhf
Foxofen 14, Sími 679505
viðbótar koma svo lán til bóka-
kaupa, ferðas^yrkir og lán vegna
skólagjalda). Er það ekki þvert á
móti ósanngjamt að einstæð móðir
sem er að ljúka riámi skuli þurfa
að sætta sig við verri kjör eftir nám
heldur en í námi? Og Ögmundur
sendir námsmönnum stuðnings-
kveðju frá BSRB. Mótmælir.
Þáttur fyrrverandi
menntamálaráðherra
í stúdentafréttum 4. tbl. 1991
er Svavar Gestsson fyrrverandi
menntamálaráðherra og ritstjóri
Þjóðviljans leiddur til vitnis. Það fer
vel á því að kynna vitni: Svavar vary
frá unga aldri félagi í Sósíalista-
flokknum, lærði til verka hjá Einari
Olgeirssyni og fleiri samstarfs-
mönnum Stalíns, Zhikovs, Caus-
escus og fleiri „góðra félaga“. Sjálf-
ur var Svavar sendur til „náms“ í
landi Ulbrichts, Austur-Þýskalandi.
Það var væntanlega þar sem Svav-
ar náði þessum góðu tökum á sann-
leikanum. Hann hefur sannarlega
verið Einari Olgeirssyni til sóma.
í öðrum löndum tíðkast ekki að
stúdentar leiði slíka menn til vitnis.
En Svavar vitnar og sakar núver-
andi stjórnendur LÍN um að ganga
til verks með sleggju, haka og
skóflu. Sjálfur gekk hann þar um
ganga með hamar og sigð og braut
hvort tveggja (að því er virðist á
hinu nýja merki Alþýðubandalags-
ins). Því svo sannarlega var Svavar
fullnuma í fjármálastjórn frá félaga
Honecker; Lánasjóðurinn stefndi
beint niður þegar Svavar fór frá
(eins og raunar flest annað þegar
þeir fóru frá félagarnir). Hvers
vegna létu stúdentar Svavar ekki
vitna um framlög hans til LÍN?
Hvers vegna í ósköpunum ekki?
Framtíð námslána
Lánasjóður íslenskra náms-
manna á undir högg að sækja.
Hann hefur ekki stuðning almenn-
ings. Þess vegna hafa alþingismenn
verið tregir til að styrkja undirstöð-
ur sjóðsins. Það þarf því að haga
þessum málum þannig að það sé
ekki í hróplegri andstöðu við heil-
brigða skynsemi. Þetta þýðir ein-
faldlega þetta: 1. Lánin þurfa að
vera í samræmi við laúnin í land-
inu. 2. Það dugir ekki að einstakir
námsmenn geti verið ár eftir ár á
hæstu lánum sem enda með tug-
milljónaskuld án þess að sjóðurinn
fái nokkru ráðið. 3. Það er ófært —
hefur hvergi gengið í neinu að-
stoðarkerfi að það letji til vinnu.
Að afkoman batnaði ekkert þótt
námsmenn „legðu á sig“ sumar-
vinnu var óalandi og ófeijandi.
Og síðast en ekki síst þurfa
námsmenn að haga málflutningi
sínum öðruvísi en þeir höfðu gæfu
til í þetta sinn. Ef fólk fær á tilfinn-
inguna að baráttan sé ekki réttlát
og sanngjörn heldur óvægin sér-
hagsmunabarátta þá endar þetta
með að stuðningurinn við námsað-
stoð gufar alveg upp. Að lokum
þetta: Málfiutningur sem þarfnast
falsana hlýtur að vera námsmönn-
um til tjóns, þegar fram í sækir.
Að þykjast vera með sparnaðartil-
lögur sem aldrei hafa þó verið lagð-
ar fram opinberlega í stjórn LÍN
og þar af leiðandi ekki hægt að
ræða er eitt dæmi. Annað er for-
eldrareglan svokallaða sem náms-
mönnum var gefinn kostur á. Sá
Einar Hálfdánarson
„Og síðast en ekki síst
þurfa námsmenn að
haga málflutningi
sínum öðruvísi en þeir
höfðu gæfu til í þetta
sinn. Ef fólk fær á til-
finninguna að baráttan
sé ekki réttlát og sann-
gjörn heldur óvægin
sérhagsmunabarátta þá
endar með að stuðning-
urinn við námsaðstoð
gufar alveg upp.“
kostur hefur verið aðalpúðrið í
málflutningi námsmanna (og Svav-
ars) þótt frá byijun hafi fulltrúum
þeirra verið Ijóst að þeir höfðu völ-
ina. Þeir réðu sjálfir hvort reglan
yrði tekin upp.
Höfundur erfulltrúi ístjórn LIN.
Sérfargjöld okkar til allra heims-
homa hafa vakið óskipta athygli
langföralla íslendinga!
Dœmi um verðfrd Reykjavík og til baku:
EVROPA:
Aþena... 63.270kr.
Barcelona... 67.700kr.
Brussel... 52.750kr
Budapest... 56.400 kr.
Lissabon... 70.300kr.
Madrid... 70.300kr.
Malaga... 70.300Vx.
Milano... 63.120kr.
Moskva... 63.120 kr.
Róm... 67.700 kr.
Varsjá... 53.230kr.
Vín... 53.230kr.
Zurich... 53.230kr.
Athugið:
Flug og ferja á alla áfangastaði Flugleiða í Evrópu.
Ævintýratilboð til Lúxemborgar og Amsterdam
Sumartilboð til Kaupmannahafnar, Amsterdam, Vínar,
Kynnið ykkur verðiðlll
ASIA:
Bangkok... 81.000kr.
Colombo... 102.750kx.
Delí... 108.000 kr.
Hong Kong... 126.840kr.
Karachi... 102.750Vx.
Singapore... 89.000 kr.
Taipei... 144.650 kr.
Tokyo... 116.840Vx.
SIJÐIJR-AMERIKA:
Caracas... 98.550kr.
Mexikóborg... 121.650 kr.
Ríó... 120.120 kr.
Salzburg og Luxemburg.
PShEssz flugleiðir
S4S
Sami/iiwuferúir
Lanúsj/n
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 1010 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70
• Símbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 39 8'
Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Simbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195