Morgunblaðið - 16.07.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1991
19
Orsakir meng'iiiiarinnar á
Ströndum enn ekki fundnar
Skipaferðir fyrir norðan kannaðar í gegnum alþjóðlegar fjarskiptamiðstöðvar
Starfsmenn umhverfisráðuneytisins leggja í dag af stað vestur
á Strandir til að ræða við heimafólk um grútarmengunina þar.
Eiður Guðnason umhverfisráðherra segir að Landhelgisgæslan
bíði færis að fljúga yfir svæðið, en þar hefur verið svartaþoka
undanfarna daga. Umhverfismálaráðherra segir að haldið verði
áfram að rannsaka sýni frá svæðinu en þær niðurstöður sem nú
liggja fyrir eru úr sýnum frá togaranum m/b Hilmi úti fyrir
Húnaflóa. Sennilega verður rannsókn á sýnum af svæðinu lokið
á miðvikudag. Segir ráðherra að gerð verði grein fyrir mengunar-
slysinu hjá alþjóðlegum stofnunum. Grúturinn er hvorki talin hafa
komið frá hollenska tankskipinu Stella Lyra, sem sást úti fyrir
Kögri 30. júní, né olúskipinu o/s Kyndli. Rannsóknir benda til að
grúturinn sé ekki heldur kominn frá birgðaskipi sem sótti lýsi til
Djúpuvíkur á stríðsárunum og var skotið niður útaf Húnaflóa.
Morgunblaðið/Bjarni
Magnús Jóhannessson, siglingamálastjóri, og Eiður Guðnason, um-
hverfismálaráðherra, á blaðamannafundi í gær.
Þessar upplýsingar komu fram
á blaðamannafundi umhverfis-
málaráðuneytisins í gær. Á fund-
inum var lögð fram skýrsla Ey-
jólfs Magnússonar, deildarstjóra
hjá Siglingamálastofnun, en hann
kannaði mengunarsvæðið á
fimmtudag.
í niðurstöðum skýrslunnar segir
orðrétt:„Á því svæði sem skoðað
var af sjó [frá Norðurfirði til Furu-
Qarðar] virtist mengunin að mestu
leyti komin á fjörur og því augljós-
lega nokkuð liðið frá því að meng-
unin var í hámarki. Erfitt er að
meta á grundvelli þessarar skoð-
unar magn mengunarefnis en af
ummerkjum í þeim fjörum sem
skoðaðar voru verður ekki ráðið
að um stórfellt magn hafi verið
að ræða. Erfitt er að segja til um
áhrif mengunarinnar á fuglalíf.
Undirritaður sá á þeim svæðum
sem skoðuð voru allt milli 40-50
dauða fugla. Það er álit undirrit-
aðs að mengunin á þeim svæðum
sem skoðuð voru sé nú þess eðlis
að erfitt eða nánast ógerlegt sé
að hreinsa fjörurnar nema með
ærnum tilkostnaði sem tæpast
myndi svara kostnaði. Æskilegt
er hins vegar að reynt verði að
meta orsakir mengunar á fugl-
alíf.“
Um sýnið úr m/b Hilmi segir
að bráðabirgðaniðurstöður sýni að
um sé að ræða lýsi og olíu. Lýsið
sé hvorki loðnu- né síldarlýsi og
ekki sé vitað hvers kyns olíu um
sé að ræða. í skýrslunni, sem lögð
verður fyrir ríkisstjórnina í dag,
segir að vegna gruns um að erlent
skip hafi valdið menguninni verði
á næstu dögum reynt í gegnum
alþjóðlegar fjarskiptamiðstöðvar
að kanna hvaða erlend skip hafi
verið í siglingu af Vestfjörðum
fyrir Norðurlandi og norður af á
tímabilinu 15. júní til l.júlí. Einn-
ig verði málið eins fljótt og kostur
sé kynnt hjá Alþjóðasiglingamála-
stofnuninni í London.
Tilkynnt um mengunina á 4.
degi
Nokkrar ábendingar fylgja
skýrslunni. Meðal annars er bent
á að tilkynning um mengunina
hefði ekki borist Siglingamála-
stofnun fyrr en á 4. degi eftir að
menn vissu um óhappið. Þá segir
að mögulegt sé að á næstunni
muni fleygir fuglar drepast en
hugsanlegt sé að eitthvað af æðar-
fugli hafi getað forðað sér af svæð-
inu og komi svo aftur samanber
fjölgun fugla milli daga í Ingólfs-
firði. Bent er á að nauðsyn þess
að fuglalíf verði athugað af sér-
menntuðu fólki.
Meðal þeirra sem sátu blaða-
mannafundinn var Magnús Jó-
hannesson, siglingamálastjóri, og
sagði hann miður að ekki hefði
verið tilkynnt um grútarmengun-
ina fyrr því auðveldara væri á
vinna á grút á sjó en í fjöru. Á
sjó væri hægt að nota sömu að-
ferð og notuð væri til að hreinsa
olíu. Hann sagði að nauðsynlegt
væri að herða eftirlit með erlend-
um skipum hér við land en nú
væri þess ekki krafist að þau
gæfu upplýsingar um ferðir sínar
innan landhelginnar. Einnig væri
nauðsynlegt að auka eftirlit úr
lofti. Magnús sagði að mengun
kæmi verst niður á þeim tegundum
í sjónum sem ekki væru hreyfan-
legar og benti sérstaklega á skel-
fisk. Fram kom að marhnútur
væri í álíka mikilli hættu og æðarf-
ulgl. Siglingamálastjóri sagði að
allt beqti til að mengunin kæmi
úr skipi og reynt yrði að ná til
sökudólgsins sem brotið hefði
bæði íslensk- og alþjóðleg lög.
500 þúsund æðarfuglar við
landið
Arnþór Garðarsson, hjá Nátt-
úrufræðistofnun, sagði að óvíst
væri hve fugladauðinn við Strend-
ur væri mikill en fram kom að
ástandið yrði kannað, annað hvort
á vegum Umhverfisráðuneytisins
eða Náttúrufræðistofnunar. Hann
sagði að 1/2 miljón æðarfugla
væri við landið en sennilega væri
ekki há prósenta á grútarsvæðinu.
Þá sagði hann að æðarungar væru
afar viðkvæmir og lítil von til að
hægt væri að hreinsa þá. Sömu-
leiðis væri erfitt að hreinsa full-
orðna fugla en þó væri hreinsun
einna helst möguleg á þessum
árstíma því fuglinn hefði enn ekki
skipt um fiður. Hann sagði áhrif
grútsins annars vegar eitrunar-
áhrif en hins vegar ynni hann á
einangrun fuglanna.
í máli Eiðs Guðnasonar, um-
hverfismálaráðherra, kom fram að
vart hefði orðið við grút í Sunda-
höfn á mánudag. Sagði ráðherr-
ann að verið væri að kanna málið
sem heyrði undir Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur en fulltrúi frá Holl-
ustuvernd hefði farið á staðinn.
^ -g Ásubúö, Búöardal • Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfiröi • Bjarnabúð, Tálknafiröi • Edinborg, Bíldudal • Verslun Gunnars Sigurössonar, Þingeyri • Einar Guöfinnsson, Boiungarvík • Straumur, ísafiröi 3
« Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar, Hólmavík • Kf.V-Hún.Hvammstanga • Kf. Húnvetninga, Blönduósi • Kf. Skagfiröinga, Sauöárkróki • KEA, Akureyri • KEA, Dalvík • Bókabúö Rannveigar, Laugum • Sel, Mývatnssveit g P!
0 CD
O)
S.B
0) o
cr cq
É*
rtJ •
E '(/)
O) 0)
41
E<
CU
'<D
O
il
«o -0-
.i= rtj
tr cd
rtJ c
£ £
rtJ .03
?i
II
OC .
-X.
rtJ >
p ca
.£ -o
ts c
'<D ‘C
c O
C -
‘5 £
•rtJ o
C -Q
'2 m
CQ CC
u
AEG
BRAUÐRIST AT 23L Verð áður kr. 3.088.-
kr. 2.590.- $tgr.
AEG
• HRÆRIVÉL KM 21 Verð áður kr. 10.722,-
kr. 8.990.- st9r.
AEG
• ÖRBYLGJUOFN MC 720-W 27 LÍTRA Verð áður kr. 28.758.
kr. 22.950.- stgr
VELDU ÞER TÆKI SEM ENDAST!
Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér góð og örugg tæki, á sérstöku sumarverði. Umboðsmenn um allt land.
BRÆÐURNIR
Bræöurnir Ormsson hf. Umboösmenn Reykjavík og nágrenni: BYKO, Kópavogi • BYKO, Hafnarfiröi •
Byggt og búiö, Reykjavfk • Hagkaup, Reykjavík • Mikligaröur, Reykjavík • Brúnás innréttingar, Reykjavík
DJ ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
P a
II
ro l
T"-1— ........J. ■ -■ J - -