Morgunblaðið - 16.07.1991, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1991
35
Hróar Björnsson
frá Brún — Minning
Fæddur 14. október 1920
Dáinn 25. júní 1991
Hróar Björnsson frá Brún í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, síðast kennari
við Öskjuhlíðarskóla í Reykjavík,
varð bráðkvaddur að heimili sínu í
Kópavogi að kvöldi dags nú um
Jónsmessuleytið.
Hróar var sonur Björns, f. 1889
d. 1956, bónda á Brún í Reykjadal
Sigtryggsonar bónda á Hallbjarnar-
stöðum í sömu sveit Helgasonar
bónda á sama stað Jónssonar bónda
í Máskoti Jónssonar, og konu hans
Elínar, f. 1880 d. 1953, Tómasdótt-
ur bónda í Stafni í Reykjadal Sig-
urðssonar bónda sama stað Sig-
urðssonar.
Af sex systkinum var Hróar hinn
fjórði í röðinni. Þijú systkinanna,
Ingvar, Helga og Svavar, dóu barn-
laus. A lífi eru enn elsti bróðirinn,
Teitur, ög hinn yngsti, Gestur, og
eiga bájlir afkomendur.
Hróar ólst upp í föðurgarði.
Snemma varð hann vel að manni,
ágætur íþróttamaður og hagur til
smíða. Áhugamál hans var fremur
að finna á þessum sviðum en á
hefubundnu búskaparsviði. Hann
skorti ekki námsgáfur. í héraðs-
skólanum að Laugum í Reykjadal
var hann við nám veturna 1936-39.
Síðan kenndi hann við sama skóla
1941-44. Til marks um dirfsku hans
og fimi á þessum tíma er það, að
eitt sinn fann hann upp á því að
standa á höndum uppi á skorsteini
skólans, ofar þaki, en þetta er fjög-
urra hæða bygging. Þessari sögu
tryðu sennilega fæstir, hefði ekki'
atvikið verið fest á mynd.
Árið 1945 tók Hróar íþróttakenn-
arapróf að Laugavatni og næsta
ár var hann íþróttakennari á vegum
Hérðassambands Suður-Þingey-
inga. Því næst var hann fram til
1950 að mestu leyti heima á Brún
við búskap með foreldrum sínum
og yngri bræðrum.
Vegna nokkurra meinsemda í
fótum mun Hróar fljótlega hafa séð
að sér myndi ekki henta til lengdar
að vera íþróttakennari. Hann fór
því í Kennaraskólann í Reykjavík
1950 og lauk handavinnukennara-
prófi þaðan 1953, Næsta vetur var
hann við nám í Handíða- og mynd-
listarskólanum og lauk þar prófi
1954.
Hinn eiginlegi og samfelldi kenn-
araferill Hróars hófst haustið 1954,
er hann gerðist kennari við handa-
vinnudeild Kennaraskólans. Strax
næsta ár, 1955, þegar Samvinnu-
skólinn var fluttur frá Reykjavík
að Bifröst í Borgarfirði, réðist hann
að þeim skóla og hafði þar umsjón
með útivist og tómstundastörfum
nemenda. í þessari stöðu vann Hró-
ar athyglisvert brautryðjendastarf,
en aðrir sáu síðan um framhaldið.
Árið 1960 flutti Hróar sig aftur
um set og nú norður í fæðingar-
sveit sína, Reykjadalinn, þar sem
hann kenndi á ný við héraðsskólann
á Laugum næstu sextán ár smíðar
og teikningu. Skammt frá skólanum
byggði hann yfir sig og fjölskyldu
sína prýðilegt einbýlishús sem heit-
ir Tröð.
Árið 1976 flutti fjölskyldan til
Kópavogs og settist að í einbýlis-
húsi við Selbrekku 24. Húsið var
ekki fullbyggt, en Hróar gekk frá
því næsta vetur. Haustið 1977 gerð-
ist hann síðan kennari við Öskju-
hlíðarskóla í Reykjavík og gegndi
því starfi til loka skólaárs nú í vor.
Hann naut þess jafnan að kenna
og hlakkaði til kennslunnar, enda
var hann ætíð mikils metinn af
nemendum. I Öskjuhlíðarskóla var
til þess tekið, live gott lag liann
hafði á þeim.
Hróar Björnsson var verktaki,
verkstjóri eða yfirsmiður við bygg-
ingar víða um Norður-, Vestur- og
Suðurland sumrin 1947-66 og
1972-80. Mest fékkst hann við að
byggja skóla og félagsheimili. Á
árunum 1977-80 var hann verk-
stjóri við byggingu laxastiga í Laxá
við Laxárvirkjun á mörkum Aðal-
dals og Laxárdals. Árin 1966-73
stundaði hann á sumrin jarðskorpu-
mælingar viða um land ásamt
frænda sínum Eysteini Tryggvasyni
j arðskj álftafræðingi.
Frá árinu 1981 fékkst Hróar
einkum við það á sumrin að skipu-
leggja og laga garða og lóðir við
hús á höfuborgarsvæðinu. Hann var
einkar eftirsóttur tii þessara starfa.
Að öllu því, sem Hróar tók að
sér að gera, vann hann ætíð af
útsjónarsemi, hagsýni og ýtrasta
kappi, jafnvel svo að öðrum þótti
nóg um. Sjálfum féll honum yfir-
leitt aldrei verk úr hendi. Vel hélst
honum á aðstoðarmönnum í sumar-
vinnunni, því suma hafði hann í
fjölda ára, jafnvel áratugi.
Þegar Hróar var við byggingar-
vinnu í Biskupstungum í Árnessýslu
sumarið 1953 kynntist hann Ingi-
björgu Sigurðardóttur, glæsilegri
tvítugri stúlku þaðan úr sveitinni.
Þau voru trúlofuð er hann kom
norður að jarðarför móður sinnar
um haustið.
Ingibjörg er fædd 7. janúar 1.933,
dóttir Sigurðar bónda í Úthlíð
Jónssoanr bónda að Ferstiklu Ein-
arssonar og konu hans Jónínu Þor-
bjargar Gísladóttur bónda í Úthlíð
Guðmundssonar. Ingibjörg hafði
alist upp í stórum systkinahópi. Þau
Hróar voru gefin saman í hjónaband
í Reykjavík hinn 16. maí 1954.
Sambúð Hróars og Ingibjargar
var ástrík og farsæl til hinsta dæg-
urs. Börn þeirra eru fjögur: Elín f.
1955, geðhjúkrunarfræðingur í
Basel í Sviss, Sigurður f. 1956,
cand. mag. í íslensku og bókmennt-
um, nú leikhússtjóri við Borgarleik-
húsið í Reykjavík, Björn f. 1962,
jarðfræðingur, og loks Þorbjörg f.
1969, háskólanemi. Barnabörn eru
fjögur.
Hróar Björnsson var að eðlisfari
hjartahlýr maður og mjög hjálp-
samur og mátti í engu vamm sitt
vita. Hann var ákaflega reglusam-
ur, enda bindindismaður bæði á
áfengi og tóbak. Venjulega var
hann léttur í máli, gamansamur og
skemmtilegur. Hann hafði mjög
mikla ánægju af ferðalögum, eink-
um innanlands, og þekkti með ein-
dæmum vel landið, örnefni þess og
sérkenni. Þá var garðrækt honum
mikið hjartans mál, enda er garður
þeirra hjóna til stakrar fyrirmynd-
ar. Framar öðru var honum þó sér-
staklega annt um að börnin sín
hlytu góða menntun. Hann vildi
sannarlega vinna að ræktun lýðs
og lands.
Hróar hafði átt við nokkra van-
heislu að stríða hin síðari ár, m.a.
var hjartað ekki í góðu lagi. Hann
vissi að hveiju fór og hafði gefið
fyrirmæli um að útför sín skyldi
gerð í kyrrþey. Hinn 3. júlí fór bál-
för hans fram eftir að gamall nem-
andi hans, sr. Sigurður H. Guð-
mundsson hafði flutt stutta líkræðu.
Blessuð sé minning Hróars
Björnssonar. Ingibjörgu og börnun-
um eru hér með sendar innilegar
samúðarkveðjur.
Björn Teitsson
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
SVALA SIGRÍÐUR AUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Grenigrund 2,
Akranesi,
lést í Brompton sjúkrahúsinu í London
5. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Snorri Olafsson,
Nikólína Th. Snorradóttir, Smári Kristjánsson,
Sigurvin Ó. Snorrason,
Anna Marý Snorradóttir,
Jón Freyr Snorrason,
Þorbjörg Snorradóttir
og barnabörn.
Kristrún Kristinsdóttir,
Sigmundur Jóhannesson,
Svava Huld Þórðardóttir,
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
ÁSDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR,
Hegranesi 24,
Garðabæ,
sem andaðist í Landspítalanum 7. júlí, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 16. júlí, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
V
Jón Guðmundsson,
Arnar Þór Jónsson, Guðmundur Theodór Jónsson,
Sigríður Ásdis Jónsdóttir.
Útför móður langömmu, + okkar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og
GRÓU ÞORLEIFSDÓTTUR,
Skjólbraut 1A,
Kópavogi
(áður Óðinsgötu 16B),
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. júlí kl. 13.30.
Kristín Þ. Gunnsteinsdóttir,
Sigurður Gunnsteinsson, Adólf Sigurgeirsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÁSGEIRSSON
stórkaupmaður,
Efstaleiti 14,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 16. júlí,
kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlegast bent á að
láta Sólheima í Grímsnesi njóta þess. Símar 331 29 og 98-64430.
Valgerður Stefánsdóttir,
Stefán Gunnarsson,
Þórhildur Gunnarsdóttir,
Gunnar Gunnarsson,
Valgerður Gunnarsdóttir,
Árni Gunnarsson,
Agla Marta Marteinsdóttir,
Guðlaug Konráðsdóttir,
Magnús Jónsson,
Stefán Ólafsson,
Elín Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR,
Hverfisgötu 39,
Hafnarfirði,
fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 17. júlí kl. 15.00.
Björn O. Þorleifsson,
Þorleifur Björnsson,
Ragna B. Björnsdóttir, Garðar Halldórsson,
Guðrún Björnsdóttir, Guðmundur R. Gunnarsson,
Guðbjörg Björrsdóttir, Sigurður Sveinbjörnsson,
Sturlaugur Björnsson,
Elín Björnsdóttir,
Björn Gretar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkærir foreldrar mínir, tengdaforeldrar, amma, afi, langamma
og langafi,
SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
°9
SIGURÐUR OTTÓSSON,
Baldursgötu 19,
Reykjavík,
sem létust þriðjudaginn 9. júlí, verða jarðsungin frá Fríkirkjunni
miðvikudaginn 17. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast þeirra, er bent á Krabbameinsfélagið og Hjartavernd.
Margrét S. Sigurðardóttir,
Sigurður Jónsson,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Atli S. Jónsson,
Sigríður Jónsdóttir,
Marta Sigurðardóttir,
og aðrir vandamenn.
Jón H. Gíslason,
Fanney Pétursdóttir,
Magnús Ólafsson,
Gréta Guðmundsdóttir,
Sara Sigurðardóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður og ömmu,
VALGERÐAR JÓNSDÓTTUR.
Ragnhiidur Guðmundsdóttir.Guðlaugur Sæmundsson,
Reynir Guðlaugsson, Gerður Guðlaugsdóttir.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug og veittu okkur stuðning við andl^t og útför eigin-
manns míns og fósturföður,
JÓNS HAFLIÐA MAGNÚSSONAR
bónda,
Fornusöndum,
Vestur-Eyjafjallahreppi.
Guðrún Ingólfsdóttir,
Ingvar Sigurjónsson.
+
Innitegar þakkir sendum við öllum þeim,
er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför sonar okkar, bróður,
sonarsonar og vinar,
ÞÓRS GUÐMUNDSSONAR,
Fagrabergi 44,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur H. Eyjólfsson, Sigurrós F. Elíasdóttir,
Bryndis F. Guðmundsdóttir,
Eyjólfur Júlfusson,
Stefán Sigurðsson.