Morgunblaðið - 16.07.1991, Side 41
TCtí? IJITT. ,3'T STODAtTiram TJTC/uI'.-iV,-)T',JTO’W.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1991
41
IWk
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MSkJU
Ekki opna Austurstræti
Ég skil ekkert í þessum hug-
myndum sem nú eru upp um að
opna Austurstræti fyrir bílaumferð
á ný. Hvers konar hringlandaháttur
er þetta? Þegar Austurstræti var
gert að göngugötu fyrir tæpum 20
árum var talað um að hér væri á
ferðinni merkileg tilraun. Og hvern-
ig hefur hún tekist? Vel. Það er
enginn efi á því. Mannlíf hefur
blómstrað þar, ekki síst í blíðviðrinu
undanfarið og ég tel að ef hugur
Reykvíkinga væri kannaður kæmi
í ljós að yfirgnæfandi meirihluti
þeirra er hlynntur því að Austur-
stræti verði áfram göngugata.
Raunar hef ég engan hitt sem er
annarrar skoðunar.
Ég skil ekki að kaupmenn vilji
láta eyðileggja göngugötuna okkar
á þennan hátt. Ég veit ekki betur
en verslanir hafi dafnað vel í göngu-
götunni okkar áður en Kringlan
kom til sögunnar. Þá fór hins vegar
að halla undan fæti og einnig fyrir
verslunurp á Laugaveginum þar
sem ekki vantar bílaumferð. Síðan
hvarf Útvegsbanki úr götunni og
það hús stendur nú tómt. Þangað
var ætíð straumur fólks og missir
að honum.
í stuttu máli: Afar ólíklegt er að
verslun aukist við Austurstræti
enda þótt henni verði breytt í bíla-
umferðargötu. Ég skil ekkert í
kaupmönnum að láta svona og enn
síður átta ég mig á afstöðu borgar-
yfirvalda. Eru það kannski kaup-
menn sem stjórna borginni okkar?
. Borgari
Svar til Isaks
Stefánssonar
Ég_ sé mig tilneyddan að svara
bréfi ísaks Stefánssonar því viðhorf
hans til barna eru engum sæmandi.
I garði Isaks voru lítil böm að
leika sér við kött. Hleypur Isak þá
til og hrópar til þeirra: „Hypjið
ykkur af lóðinni þegar í stað og
takið kattarkvikindið með ykkur.“
ísak, hvemig áttu börnin að bregð-
ast við svona óhljóðum? Einnig not-
ar þú ljót orð síðar í greininni sem
eru varla mjög uppbyggjandi. Þú
segir „krakkaskammir“ og vilt helst
strýkja eitt barnanna, með öðrum
orðum beita það ofbeldi.
Háttvirtur Isak, neikvæðni kallar
á neikvæðni og ungur nemur hvað
gamail temur. Pálmi
Notaðar vinnuvélar
til sölu.
Notuð beltagrafa: JCB - 807 B
Árgerð 1982 - Þyngd 22 tonn
Gott ástand - Vinnustundir 5000 tímar.
Ráðgjöf - Sala - Þjónusta
Skútuvogur12A- Reykjavík - S 812530
Lítið dæmi um sparnað
í lyfjakaupum
Margar konur eru með bakteríur
í þvagi og þurfa mikið að nota blöð-
rubólgumeðul. Ég er ein af þeim og
hafði í. nokkur ár fengið Primasol,
en 30 töflur kosta nú kr. 806. Síðast-
liðin tvö ár hef ég hinsvegar fengið
Ciproxin, sem eru mjög dýrar og
20 töflur af þeim kosta nú frá kr.
3.915 til 11.377 eftir styrkleika.
Þegar að því kom að ég þurfti að
fara að borga þetta sjálf og gerði
mér þá fryst grein fyrir því hvað
Ciproxin-töflumar voru dýrar, bað
ég lækninn minn að láta mig fá ódýr-
ustu töflurnar. Þá fékk ég Monotrim
en 30 töflur af þeim kosta ekki nema
390 krónur. Þær hafa komið að sama
gagni og dýru töflumar og vil ég
þess vegna koma þessum upplýsing-
um á framfæri.
Sjúklingur
Kaupmannahöfn
KR. 19.750
Fast verð án flugvallarskatts og forfallatryggingar.
Til samanburðar: Ódýrasta superpex til
Kaupmannahafnar á 33.750 kr. Þú sparar 14.000 kr.
Flogið alla miðvikudaga og föstudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir.
— FIUGFERÐIR
= SDLHRFLUC
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
Þessir hringdu ...
Hávaði af herflugvélum
Kona hringdi:
Ég bý í Keflavík og á góðviðris-
dögum er hér ávallt ærandi hávaði
af bandarískum herflugvélum sem
eru að fljúga yfir bæinn. Ekki fæ
ég skilið hvers vegna þeir þurfa að
fljúga beint yfir bæinn með allt
þetta haf hér. Það er gagnslaust
að kvarta yfir þessu við flugvallar-
yfirvöld. En þetta er mjög þreyt-
andi í þessu góða veðri.
Regnúlpa
Silfurgrá regnúlpa í unglings-
stærð tapaðist á tjaldstæði við
Laugarvatn helgina 5-7. júlí.
Pinnandi vinsamlegast hafi sam-
band í síma 79288.
Síamsköttur horfinn
Súkkúlaðibrúnn síamsköttur með
stýfða rófu, fress, hvarf frá Hvera-
fold 2 aðfararnótt 11. júlí. Ef ein-
hver veit um afdrif hans vinsamleg-
ast hafi samband í s. 675711.
Úr í óskilum
Kvenúr fannst við Vesturberg í
námunda við 20. júní. Eigandi hafi
samband í síma 77925.
Dýravinir!
Fimm fallegir kassavanir kettl-
ingar fást gefins. Aldir upp með
hundi. Upplýsingar í síma 689192.
Hvað varð af Fjölskyldulífi?
Jóhanna hringdi:
Ég er með fyrirspurn til Sjón-
varpsins. Áströlsku þættirnir „Fjöl-
skyldulíf“ hafa verið sýndir þrisvar
í viku að undanförnu en nú hefur
sýningum á þeim verið hætt í miðju
kafi. A ekki að taka þá á dagskrá
að nýju og þá hvenær?
Berum virðingu fyrir fánanum
Þuríður hringdi:
Nýlega kom í blöðunum frétt um
að tvö ungmenni hafi verið tekin
vafin inn í íslenska fánann. Það er
í samræmi við fánalögin sem kveða
skýrt á um notkun Islenska fánans.
En gildir ekki hið sama um fóstrur
sem mála börn á leikskólum í ís-
lensku fánalitunum? Það er líka
hálfgerð óvirðing við fánann og
mér finnst að uppalendur ættu ekki
að sýna slíkt fordæmi.
Myndavél týndist
Olafur hringdi:
Ég týndi tævanskri myndavél
sem var svo til ný á leiðinni frá
strætisvagnaskýlinu gegnt Mjólk-
urstöðinni niður á Hlemm. Þetta
gerðist um fjögurleytið s.l. fimmtu-
dag. í vélinni var 36 mynda filma
sem lítið sem ekkert hafði verið
tekið á. Finnandi hafi samband í
síma 45537.
ÞEIR ERU
ÖÐRIMSI
ÞÝSRU VEQQSKÁPART1IR
Vlnningstöfur laugardaglnn (6)(s) 13. júlí 1991 |
ínifSBr
"7Í9K36) v.—' x—y 7 1 M \ 114 )
VINNINGAR | viNNINGSHAFA UPPH/EÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 I 2 2.860.157
2. 55.869
3. 4al5 | 196 5.408
4. 3af5 I 7.142 346
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 9.865.973 kr.
Ef þú ert öðruvísi ættir þú að líta til okkar
þvi við eigum aldeilis stórkostlegt úrval
af fallegum veggskápum, stórum og litlum,
í hinum ýmsu viðarlitum.
Komdu í stærstu húsgagnaverslun landsins
QÓÐ QREIÐSLUKJÖR
BÍLDSHÖFDA 20-112 BEYKJAVÍK - SfMI 91-681199 -FAX 91-673511
:
4 >