Morgunblaðið - 09.08.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1991
19
Aldrei fleiri hestar
en nú á Hestamóti
Skagfirðinga
Varmahlíð.
HESTAMOT Skagfirðinga fór fram um verslunarmannahelgina þetta
árið svo sem fjölmörg undanfarin ár. Veður var sérstaklega blítt á
Vindheimamelum svo sem víða annars staðar á landinu. Um 300
hross voru skráð til sýningar og keppni og hafa aldrei verið svo
mörg áður á Hestamóti Skagfirðinga.
Dagskráin hófst á föstudag með
sýningu eða dómi á um 60 kynbóta-
hrossum. Sagði Kristinn Hugason,
að ásókn væri vaxandi í að fá dóm
á kynbótahross síðsumars og lét
hann vel yfir þeirri þróun. Undan-
keppni fór fram í gæðingaflokkum,
hestaíþróttum og kappreiðum á
laugardag og úrslit svo á sunnudag.
Nokkur undanfarin ár hafa
skagfirsku hestamannafélögin boð-
ið með til þátttöku í móti þessu
félögum í hestamannafélögum í
Vestur- og Austur-Húnavatnssýslu
og Ólafsfirði og Siglufirði og auk
þess hefur verið alveg opin þátttaka
í hestaíþróttunum svo og kappreið-
unum.
Hápunktur allra hestamóta eru
úrslit í A- og B-fl. gæðinga. í A-fl.
varð í 1. sæti Eysteinn Steingríms-
son á Hersi 7 v. gráum Kjarvals-
syni, en í B-fl. varð efstur Bergur
Gunnarsson á Hausta frá Hofstaða-
seli. Hausti er 13 v. og hefur áður
komið fram á sýningum en vart
eins glæsilegur áður sem hann var
nú.
í hestaíþróttunum sigruðu þeir
feðgar Sigurbjörn Bárðarson og
Steinar sonur hans í öllum þeim
greinum sem keppt var í.
Hér fara á eftir helstu úrslit.
A-fl. gæðinga:
1. Hersir frá Laufhóli,
kn. Eysteinn Steingrímsson.
2. Sporður frá Sauðárkróki,
kn. Guðmundur Sveinsson.
3. Katla frá Miðsitju,
kn. Jóhann Þorsteinsson.
4. Prins frá Grófargili,
kn. Jóhann Skúlason.
5. Stjarna, kn. Páll B. Pálsson.
B-fl. gæðinga:
1. Hausti frá Hofstaðaseli,
kn. Bergur Gunnarsson.
2. Daði frá Skörðugili,
kn. Björn Jónsson.
3. Glaumur frá Vindheimum,
kn. Bjöm Sveinsson.
4. Draumur frá Holtskoti,
kn. Árni Friðriksson.
5. Vinur frá Varmalæk,
kn. Ingólfur Helgason.
Eldri fl. unglinga:
1. Anna Ingimarsd. á Blesu frá Garði.
2. Guðm. Elíass. á Vin frá Laugarnesi.
3. Halidór J. Einarsson á Flosa.
4. Alma Ágústsdóttir á Blæ.
5. Haukur Guðm.s. á Skjóna frá Vallanesi.
Yngri fl. ungl.:
1. Isólfur Þórisson á Ljúfi.
2. Steinbjörn Skaftason á Mána.
3. Jóhanna Friðriksdóttir á Glóblesa.
4. Brynjólfur Jónsson á Léttfeta.
5. Brynjar Elefsen á Lukku.
Finungangur:
1. Sigurbjörn Bárðarson og Höfði.
2. Jóhann Skúlason og Prins.
3. Rúna Einarsdóttir og Þráinn.
4. Erling Sigurðsson og Týr.
5. Þóra Brynjarsdóttir og Fiðringur.
Tölt fullorðinna:
1. Sigurbjörn Bárðason og Vignir.
2. Berglind Árnadóttir og Snjall.
3. Rúna Einarsdóttir og Þokki.
4. Erling Sigurðsson og Krummi.
5. Jens Óli Jespersen og Krummi.
Fjórgangur fullorðinna:
1. Sigurbjörn Bárðarson og Vignir.
2. Berglind Árnadóttir og Snjall.
3. Rúna Einarsdóttir og Þokki.
4. Sigurður Sigurðsson og Drottning
5. Jens Óli Jespersen og Krummi.
Fjórgangur ungl.:
1. Steinar Sigurbjömsson og Oddur.
2. Marta Jónsdóttir og Sóti.
3. Eyþór Einarsson og Rauðskjóni.
4. AnnaSiflngimarsdóttirogGlampi.
5. Guðmundur Elíasson og Blanda.
Tölt ungl.:
1. Steinar Sigurbjömsson og Oddur.
2. Marta Jónsdóttir og Sóti.
3. Eyþór Einarsson og Rauðskjóni.
4. Þóra Brynjarsdóttir og Fiðringur.
5. ísólfur Þórisson og Ljúfur.
Hlýðnikeppni:
1. Sigurbjöm Bárðars. og Hæringur.
2. Rúna Einarsdóttir og Dimma,
(ekki frá Gunnarsholti).
3. Jens Óli Jespersen og Brella.
Hindrunarstökk:
1. Sigurbjöm Bárðars. og Hæringur.
Páll Stefánsson ljósmyndari.
Morgunblaðið/Sverrir
Páll Stefánsson sýnir
ljósmyndir í Nýhöfn
FYRSTA einkasýning Páls Stefánssonar, ljósmyndara, verður opnuð
í Listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, í dag klukkan 17. Þar verða
til sýnis 20 litmyndir sem Páll hefur tekið á siðustu tveimur árum.
Sýningin er sölusýning. Henni lýkur 22. ágúst.
Að sögn Páls eru myndirnar sýn-
ishorn úr bók sem hann leggur
síðustu hönd á um þessar mundir
og gefin verður út af Iceland Revi-
ew. „Eiginlega má segja að megin-
þema sýningarinnar sé Island í
stóru samhengi. Flestar myndanna
em teknar af landslagi en aðrar eru
af fólki sem er jú líka landslag,"
segir ljósmyndarinn. „Þetta eru
stemmningar en liturinn bindur
myndirnar saman.“
Páll hefur tekið þátt í samsýning-
um heima og erlendis en sýningin
sem opnuð verður í dag er hans
fyrsta einkasýning. Hann er mennt-
aður í Svíþjóð en hefur starfað sem
ljósmyndari frá árinu 1982.
Sýningin verður opin milli klukk-
an 10 og 18 virka daga en 14 og
18 um helgar.
Verðlaunaafhending fyrir yngri flokk unglinga.
Verðlaunaafhending fyrir B- flokk gæðinga. Talið frá hægri: Bergur Gunnarsson á Hausta, Björn Jóns-
son á Daða, Björn Sveinsson á Glaum, Árni Friðriksson á Draum, Ingólfur Helgason á Vin, Anna Sigurð-
ardóttir á Þór, Erling Sigurðsson á Snót og Sigurður Sigurðsson á Illuga.
Morgunblaðið/Páll Dagbjartsson
2. Jóhann Skúlason og Þytur.
3. Hanne Korsgaard og Kroppur.
Gæðingaskeið:
1. Sigurbjöm Bárðarson og Höfði.
2. Bjöm Þorsteinsson og Eitill.
3. Rúna Einarsdóttir og Þráinn.
íslensk tvíkeppni fullorðinna:
Sigurbjöm Bárðarson.
íslensk tvíkeppni unglinga:
Steinar Sigurbjömsson.
Kappreiðar:
150 m skeið:
1. Snarfari, 14,2 sek.
kn. Sigurbjöm Bárðarson.
2. Glæsir, 15,0 sek.
kn. Sigurbjöm Bárðarson.
3. Reykjajarpur, 15,6 sek.
kn. Jón Árnason.
250 m skeið:
1. Leistur 22,4 sek.
kn. Sigurbjöm Bárðarson.
2. Þróttur, 23,6 sek. '
kn. Erling Sigurðsson.
3. Vinur, 25,2 sek.
kn. Björn Jónsson.
300 m brokk:
1. Daði 33,4 sek.
kn. Bjöm Jónsson.
2. Bleikur, 41,5 sek.
kn. Hrönn Björnsdóttir.
3. Dropi, 42,5 sek.,
kn. Bjöm Þorsteinsson.
300 m stökk:
1. Kólfur, 22,5 sek.,
kn. Ágúst Ásgrímsson.
2. Pálínu-Blesi, 23,0 sek.,
kn. Eyþór Einarsson.
3. Vinur, 23,4 sek.,
kn. Jón Guðmundsson.
- P.D.