Morgunblaðið - 10.08.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
17
Morgunblaðið/Júlíus
Inga María Friðriksdóttir, íbúi við Grundarás, stendur hér í garðinum sem grjóti rigndi yfir á fimmtudag vegna sprenginar í
nágrenninu. Með henni á myndinni eru börn sem voru þar að leika sér þegar sprengingin varð. Þau eru Svala, Iris, Viktor og Ingi og
í fangi Ingu Maríu er Katrín.
Mesta mildi
að ekki skyldi
neitt koma
fyrir börnin
- segir íbúi við Grund-
arás í Grafarvogi
„OKKUR brá auðvitað mjög mikið
þegar sprengingin heyrðist," segir
Inga María Friðriksdóttir, íbúi við
Grundarhús í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Börnin úr húsunum
hér voru öll úti þegar þetta gerðist
og það var mesta mildi að ekkert
skyldi koma fyrir þau, því grjótið
dreifðist yfir garðinn, þar sem þau
voru að leika sér.“
Að sögn Ingu Maríu hafa verið stöð-
ugar sprengingar á svæðinu frá morgni
til kvölds að undanförnu. „Okkur skilst
að það eigi alltaf að gefa viðvörunar-
merki áður en sprengt er. Það var gef-
ið viðvörunarmerki fyrst eftir að byijað
var á framkvæmdunum, en frá því þá
höfum við ekki heyrt þannig merki fyrr
en nú í morgun, daginn eftir að þetta
óhapp varð. Það er auðvitað betra að
vita fyrirfram hvenær von á sprenging-
unum,“ segir hún.
Inga María segir að húsið sem hún
býr í sé byggt á sömu klöpp og verið
sé að sprengja í grunni íþróttahússins.
„Það hefur allt skolfið hér síðan þessar
framkvæmdir byijuðu og við höfum
hreinlega beðið eftir að húsið klofnaði.“
Sprengingin í Grafarvogi:
Vinnueftirlit hefur
ekki heimilað fram-
hald framkvæmda
VINNUEFTIRLIT ríkisins er
nú að kanna orsakir þess að
grjóti rigndi yfir hús og garða
í Húsahverfi í Grafarvogi á
fimmtudag, þegar verið var að
sprengja fyrir grunni íþrótta-
húss og sundlaugar þar. Fram-
kvæmdir voru í gær stöðvaðar
og hefur framhald þeirra ekki
verið heimilað enn. Jens Andr-
ésson hjá Vinnueftirlitinu segir
að að óhappið hafi sennilega
orðið vegna þess, að ekki hafi
verið byrgt nægilega yfir stað-
inn þar sem sprengt var miðað
við hvað hleðslan hafi verið
öflug.
Óhappið varð á sjöunda tíman-
um á fimmtudag þar sem starfs-
menn Hagvirkis voru að sprengja
fyrir grunninun. Sprengingin or-
sakaði grótflug og þeyttust
stærstu hnullungarnir um 200
metra frá staðnum þar sem verið
var að sprengja. Steinar féllu á
hús við Grundarhús næst við
grunninn, á húsagarð, bílastæði
og knattspyrnuvöll. Eitthvert tjón
varð á húsinu og nokkrum bílum
og eru fulltrúar tryggingafélaga
nú að meta það. Enginn slasaðist
vegna gijótflugsins en á svæðinu
voru mörg börn að leik.
Starfsmenn Vinnueftirlits ríkis-
ins stöðvuðu í gær framkvæmdir
og framhald þeirra hefur ekki
verið heimilað. Þeir eru nú að
rannsaka orsakir óhappsins, þeir
skoðuðu aðstæður í gær og vitna-
leiðslur munu fara fram, væntan-
Morgunblaðið/Júlíus
Starfsmenn Vinnueftirlits ríkisins skoðuðu í gær aðstæður í grunn-
inum í Húsahverfi þar sem sprenging orsakaði grjótflug á fimmtu-
daginn, auk þess sem þeir ræddu við starfsmenn.
Ibúðarhús við Grundarhús standa við grunninn þar sem sprenging-
in varð og þeyttist gijót yfir þau og í garðinn milli þeirra.
lega eftir helgi. Jens Andrésson
hjá Vinnueftirlitinu sagði í sam-
tali við Morgunbiaðið í gær, að
helst væri talið að óhappið hefði
orðið vegna þess að ekki hefði
verið byrgt nægilega vel yfir holu,
þar sem sprengiefninu hefði verið
komið fyrir, miðað við hleðslu-
magn þess. Hann segir að menn-
irnir, sem við verkið unnu, hafi
réttindi til að vinna við sprenging-
ar og hafi því átt að vita hvernig
með það ætti að fara.
Jens segir að frá því hann hafi
farið að vinna við rannsóknir á
sprengingum á vegum Vinnueftir-
litsins fyrir þremur árum hafi
hann rannsakað 4 til 5 mál af
þessu tagi. Notkun sprengiefnis í
byggð hafi farið vaxandi á undan-
förnum árum og stafi það líklega
af því að það sé orðið bæði ódýr-
ara og betra, þannig að auðveld-
ara sé með það að fara. Hann
segir að í gildi séu lög um með-
ferð sprengiefnis og í dómsmála-
ráðuneytinu sé verið að semja
reglugerð þeim til fyllingar.
■ JAQUES MELOT sveppa-
fræðíngur mun í dag, laugardag,
aðstoða fólk við að greina sveppi
sem það hefur tínt, segir í fréttatil-
kynningu frá Náttúruverndarfélagi
Suðvesturlands. Jaques verður hjá
NVSV í Hafnarhúsinu að vestan-
verðu frá kl. 17.00-19.00.
hýtt símanúmer
auglýsingadölg^^
ann
HEIL EÐA HALF
HAPPAÞRENNA
hefur vinninginn
ARGUS/S f A