Morgunblaðið - 10.08.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 10. ÁGÚST 1991
Litháen:
Vopnasjóður til
eflingar varna
Moskvu. Reuter.
LITHÁAR tilkynntu í gær að þeir hefðu stofnað „vopnasjóð" sem í
ætti að safna vopnum, skotfærum og sprengiefnum sem svo yrðu
notuð til að styrkja varnir á landamærum lýðveldisins. Ákvörðun
þessi fylgir í kjölfar árásar á litháíska landamærastöð þar sem sjö
verðir voru drepnir.
Tilkynningin var birt í dagblöðum
í Vilníus, höfuðborg Litháens, og
þykir hún endurspegla auknar
áhyggjur Litháa af því hvernig skuli
haldið áfram í átt til sjálfstæðis en
þeir ákváðu að segja skilið við Sov-
étríkin fyrir 18 mánuðum.
Vytautas Landsbergis, forseti
Litháens, og aðrir stjórnmálaleið-
togar hafa gefið í skyn að hugsan-
lega þurfi að grípa til vopna til að
sjálfstæði náist. Hingað til hefur
rík áhersla verið lögð á að viðskiln-
aðurinn við Sovétríkin fari friðsam-
lega fram.
í vopnasjóðinn á að leggja öll
löglega skráð vopn í lýðveldinu „til
að bregðast við aðgerðum OMON-
sveitanna og annarra kúgunarafla,"
eins og sagði í tilkynningunni, og
hafa Litháar einnig verið hvattir til
að afhenda ólögleg vopn.
Flestir Litháar eru þeirrar skoð-
unar að OMON, sem eru sérstakar
■ MAGDEBURG - Gerd Brunn-
er, aðstoðarforsætisráðherra í
Sachsen-Anhalt, sagði af sér í
gær eftir að á hann sannaðist að
hann hafði starfað fyrir austur-
þýsku öryggislögregluna, Stasi,
frá því á námsárum sínum á sjötta
áratugnum þar til Stasi var leyst
upp árið 1989. Þá viðurkenndi
háttsettur lögreglumaður í Berlín
að hafa njósnað fyrir leyniþjónustu
austur-þýska hersins frá 1968 þar
til seint á níunda áratugnum. Hann
veitti yfírvöldum í Austur-Berlín
upplýsingar um stefnu lögreglunn-
ar í Vestur-Berlín og rannsóknir
mála sem hún hafði með höndum.
Fyrir þetta fékk hann greiddar um
3,5 milljónir ÍSK.
hersveitir sovéska innanríkisráðu-
neytisins, beri ábyrgð á dauða land-
amæravarðanna sjö sem drepnir
voru 31. júlí sl. Innanríkisráðuneyt-
ið og sovéska öryggislögreglan
(KGB) neita að hafa átt aðild að
morðunum.
Morðið á Bakhtiar:
Reuter
*
I minningu
fallinna
flóttamanna
Þýsk ungmenni hirða hér lít-
inn garð við minnisvarða, sem
reistur hefur verið þeim, sem
létu lífið er þeir voru að reyna
að flýja frá Austur- til Vest-
ur-Berlínar. í forgrunni sjást
steinar, sem í hafa verið
höggvin nöfn látinna flótta-
manna, en á veggnum í bak-
sýn stendur hve mörgum
austur-þýskir landamæra-
verðir urðu að bana árlega
þau ár sem Berlínarmúrinn
stóð. 15. ágúst verða þijátíu
ár liðinn frá því að múrinn
var reistur.
Lögreg’lan gerir dauða-
leit að þremur mönnum
París. Reuter.
FRONSK lögregla leitar nú þriggja manna, sem grunaðir eru um
aðild að morðinu á Shapour Bakhtiar, fyrrum forsætisráðherra Ir-
ans, og ritara hans. Lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir að gefa
morðingjunum færi á Bakhtiar.
Meðal mannanna þriggja er þrít-
ugur maður, sem lögregla nefnir
„Boyerhamadi." Hann hafði um-
sjón með landi Bakhtiars í íran.
Lögregla telur að morðingjamir
hafí komist inn í hús Bakhtiars í
Suresnes vegna þess að þeir voru
í fylgd hans.
Mennimir þrír komu að húsi
Bakhtiars á mánudagskvöld. Lög-
regla skoðaði skilríki þeirra og leit-
aði á þeim. Bakhtiar hafði búist
við þeim.
Lögreglan í Frakklandi liggur
nú undir ámæli vegna þess að
henni tókst ekki að koma í veg
fyrir morðið á Bakhtiar aðstoðar-
manni hans. Enn fremur þykir
gagnrýni vert lík þeirra lágu í blóði
sínu í 36 klukkustundir áður en
lögreglan fann þau.
Sennilegt þykir að morðingjam-
ir hafi á þessum tíma fengið nægi-
legt forskot á lögreglu til að kom-
ast undan. Tólf sérþjálfaðir lög-
regluþjónar stóðu vörð um húsið
undir forystu sonar Bakhtiars, Guy
Bakhtiars yfirlögregluþjóns.
Stjórnarandstöðuflokkur gaul-
lista (RPR) hefur skorað á stjóm
sósíalista að veita rækilegar skýr-
ingar á því hvers vegna Bakhtiar,
sem talinn var í stöðugri lífshættu,
var „leyft að deyja.“
Irönsk stjórnvöld lýstu í gær
yfir því að þau hefðu engan þátt
átt í banatilræðinu. Hins vegar
mætti ekki útiloka að hér væru
andstæð öfl írönsku stjómarand-
stöðunnar að gera upp sakirnar.
Ónafngreindur maður hringdi á
fimmtudag í alþjóðlega fréttastofu
í París og sagði að tilræðismenn-
irnir hefðu farið til Belgíu.
„Nú hefur verið gengið frá Bak-
htiar,“ sagði maðurinn. „Við erum
í Brússel." Hann bætti við að fleiri
morð yrðu framin. Abolhassan
Bani-Sadr, annar háttsettur ír-
anskur útlagi í París, hefur lýst
yfír því að hann óttaðist um líf
sitt og teldi að sveit íranskra morð-
ingja biði færis á sér í París.
Bandaríkin:
Metsölubók um sjáifsvíg1
New York. Reuter.
Tyrkland:
BANDARÍSKA dagblaðið The New York Times sagði á fimmtu-
dag frá því að bókin Endanleg lausn („Final Exit“) væri söluhæst
allra leiðbeiningabóka í Bandaríkjunum. I bókinni er þeim sem
haldnir eru banvænum sjúkdómum veittar ráðleggingar um hvern-
ig fari best á því að fremja sjálfsvíg.
Kúrdískir mannr æningj ar
sleppa Þjóðverjum úr haldi
Ankara. Reuter.
TIU þýskum ferðamönnum, sem
rænt var af kúrdískum skærulið-
um um síðustu helgi, hefur verið
sleppt úr haldi. Skýrði talsmaður
þýska sendiráðsins í Ankara frá
að þeir væru við góða heilsu en
uppgefnir. Þjóðverjar segjast
enga samninga hafa gert við
mannræningjana.
Tyrkneska innanríkisráðuneytið
sagði að á fimmtudagskvöld hefðu
skæruliðamir sleppt Þjóðveijunum
tíu við fáfarinn þjóðveg í austur-
hluta Tyrklands og vísað þeim á
yfírgefið hús þar sem þeir höfðust
við næturlangt. í gær hefðu þeir
svo gengið að næsta vegi og tekið
rútu til bæjarins Tatvan. Ekki hef-
ur tekist að hafa upp á mannræn-
ingjunum enn en þeirra er mikið
leitað.
Talsmaður Þjóðfrelsisfylkingar
Kúrda (ERNK), sem er talin tengj-
ast hinum marxíska Verkamanna-
flokki Kúrda (PKK), sagði í gær
að hópur innan fylkingarinnnar
hefði framkvæmt mannránið upp á
eigin spýtur.
Tyrkir hafa á undanförnum dög-
um haldið uppi loftárásum á bæki-
stöðvar PKK í írak. Jalal Tala-
bani, einn helsti leiðtogi Kúrda,
kom til Ankara, höfuðborgar Tyrk-
lands, i gær. Hann vildi ekki tjá
sig við fréttamenri um þessar árás-
ir Tyrkja en gagnrýndi PKK. „Það
er hvergi pláss fyrir hryðjuverka-
menn innan hreyfingar Kúrda,“
sagði Talabani við Anatolian-írétt-
astofuna. Mohsen Dizay, aðstoðar-
maður Mazoud Barzani, leiðtoga
Lýðræðisflokks Kúrda, átti í gær
viðræður við Kaya Toperi, tals-
mann Tyrklandsforseta. Dizay
sagðist hafa farið þess á leit við
Tyrki að þeir létu af sprengjuárás-
unum þar sem óbreyttir borgarar
væru meðal fallinna.
í blaðinu segir að bókin, sem
skrifuð er af Briton Derek, muni
tróna efst á metsölulista þess yfir
bækur af þessari tegund sem birt-
ast mun þann 15. ágúst. Undirtit-
ill bókarinnar er „Hagnýtar ráð-
leggingar um hvernig á að bjarga
sér sjálfur og hvemig hinir deyj-
andi geta stytt sér aldur.“ Gefnar
eru ráðleggingar um hvernig
stytta megi sér aldur með svefnp-
illum, plastpokum og sjálfsvelti.
í grein blaðsins kemur fram að
bókin sé mikið auglýst og að panta
megi hana í gegnum síma. Auk
þess er sagt að margir sérfræðing-
ar telji að bókin geti orkað tvímæl-
is, þar sem hætta væri á því að
hún yrði misnotuð af þunglyndis-
sjúklingum eða einhveijum sem
nýta myndi sér upplýsingarnar til
að fremja morð.
Bóksalar tjáðu blaðinu að marg-
ir keyptu bókina af hreinni for-
vitni. Þá er því haldið fram að
velgengni bókarinnar eigi rót sína
að rekja til „mikillar óánægju með
heilbrigðiskerfið fyrir að láta
dauðvona sjúklinga þjást.“
Réttarhöldum frestað í nauðgun-
armáli Williams Kennedys Smiths
Washington. Frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TALIÐ er að um 500 blaðamenn, innlendir og erlendir, hafi þyrpst
til Palm Beach í Flórida í síðustu viku til að fylgjast með réttarhöldum
i „nauðgunarmáli aldarinnar" eins og það hefur verið nefnt. Ákærði
er systursonur Edwards M. Kennedys öldungardeildarþingmanns.
Réttarhöldin áttu að hefjast 5. ágúst en þeim hefur verið frestað um
skeið vegna þess að dómarinn taldi vafasamt að kviðdómur gæti fellt
réttlátan dóm sem stendur sökum æsifregna fjölmiðla. Einnig hafa
komið fram nýjar ásakanir á hendur ákærða um nauðganir.
Nauðgunin, sem hér um ræðir, á Henni segist svo frá að hún hafí
að hafa gerst síðla kvölds á föstu-
daginn langa á þessu ári. Lækna-
neminn William Kennedy Smith var
þá í heimsókn hjá Edward frænda
sínum í bústað Kennedy-fjölskyld-
unnar í West Palm Beach þar sem
auðkýfingar sækjast eftir að njóta
sólar á Atlantshafsströnd Flórida.
Konan, sem kærði nauðgunina, er
29 ára gömul, móðir ungrar stúlku.
hitt William Kennedy á öldurhúsi í
Palm Beach sem heitir „Au Bar“.
Hann hafí boðið henni að koma og
skoða ættaróðal Kennedy-fjölskyld-
unnar og hafí hún þekkst boðið.
En er þangað kom hafi pilturinn
ráðist á sig o g nauðgað sér á strönd-
inni við bústaðinn.
Fyrr um kvöldið hafði það gerst
að Edward Kennedy hafði hringt
til frænda síns og stungið upp á
því að þeir hittust til bjórdrykkju
fyrir svefninn. William tók boðinu
og mæltu þeir sér mót á umræddum
bar.
Nýjar ásakanir bætast við
Það er talin almenn og sjálfsögð
regla í Flórida að birta ekki nöfn
kvenna sem kæra nauðgun. í þessu
tilfelli var hún þó brotin. Æsi-
fregnablöð í New York og víðar í
Bandaríkjunum birtu nafn stúlk-
urnnar sem kærði nauðgunina en
þó þótti mörgum mælirinn fullur
er virðulegt dagblað eins og New
York Times birti nafn konunnar á
áberandi hátt.
Fyrir nokkrum dögum tilkynnti
saksóknari að hann hefði fengið
vitneskju um að þtjár stúlkur til
viðbótar væru reiðubúnar að bera
fyrir rétti að . William Smith
Kennedy hefði beitt þær kynferðis-
legu ofbeldi. Engin þessara ásakana
hefur komið fram í dagsljósið fyrr
og eru skiptar skoðanir um hvort
þær muni eiga við rök að styðjast.
Stúlkurnar segjast hafa talið að það
væri vonlítið að kæra vegna þess
að engin vitni hafi verið að verknað-
inum. Þar að auki væri Kennedy-
fjölskyldan svo áhrifamikil á þess-
um slóðum að það væri vafasamt
hvort það hefði nokkuð upp á sig
að kæra.
Það fer ekki á milli mála að nýju
ásakanirnar hafa aukið áhuga al-