Morgunblaðið - 10.08.1991, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
+
ÓLAFUR E. B. ÞÓRARINSSON
frá Sanddalstungu,
lést í Landspítalanum 4. ágúst.
Jarðarförin ferfram frá kapellunni í Fossvogi 14. ágúst kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Olga Þórarinsdóttir.
Eiginkona mín,
ÁSDÍS KRISTINSDÓTTIR,
Hamraborg 26,
Kópávogi,
andaðist á heimili sínu þann 7. ágúst.
Árni Jóhannesson.
+
Móðir okkar,
ELÍSABET ALBERTSDÓTTIR
frá Hesteyri,
Bræðraborgarstig 24a,
andaðist í Hafnarbúðum 8. ágúst.
Sigurjón Ingi Hilaríusson,
Hans Hilaríusson.
+
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR KRISTINN GUÐMUNDSSON,
áðurtil heimilis á
Suðurgötu 36,
Keflavík,
lést á dvalarheimilinu Garðvangi, Garði, 30. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram.
Kristín Guðmundsdóttir,
Júlia Guðmundsdóttir,
Laufey Guðmundsdóttir,
Dagbjartur Geir Guðmundsson,
Jón Guðmundsson.
+
Sambýlismaður minn,
JÓN STEFÁNSSON
frá Skagaströnd,
Blikahólum 10,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. ágúst
kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Ingibjörg Axelsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HENDRIK RASMUS,
Hlíðarvegi 62A,
Kópavogi,
lést þann 4. ágúst síðastliðinn.
ðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
kum auðsýnda samúð.
Hrefna Þórarinsdóttir,
Margrét Heinreksdóttir,
Hugó Rasmus, María Játvarðardóttir,
Tómas Rasmus, Hlíf Erlingsdóttir,
Steinunn Rasmus, Jón Árni Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Brekkustíg 12,
Reykjavík.
Dætur, tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir sencjum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ÓLAFAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Gunnarsdóttir,
Margeir Sigurðsson.
Minning:
Jónasína Þ. Sigurðar-
dóttir — Hrauni
Fædd 28. maí 1903
Dáin 5. ágúst 1991
Svæfillinn minn og sængin mín
sé önnur mjúka höndin þín
en aðra breið þú ofan á mig
er mér þá værðin rósamlig.
(Sig. Jónsson)
Þessi bæn er ein af kvöldbænun-
um henpar ömmu sem hún las oft
með okkur og signdi okkur svo á
eftir. Með þessari bæn viljum við
senda henni kveðju okkar og þökk
fyrir allar góðu stundirnar.
Jónasína amma var fædd í
Hrauni í Aðaldal 28. maí 1903 og
bjó þar alla sína tíð. Foreldrar henn-
ar voru Sigurður Jónasson og Krist-
ín Þorgrímsdóttir. Amma átti þijú
systkini, Sólveigu sem dó á barns-
aldri, Pétur sem bjó í Hrauni en
dó 1935, og Hólmgrím bónda í
Ystu-Vík sem lést fyrir 4 árum.
27. júlí árið 1929 giftist amma
Kjartani Sigtryggssyni frá Jarls-
stöðum. Börn þeirra eru Hólmgrím-
ur, fæddur 29. mars 1932, kvæntur
Kristbjörgu Steingrímsdóttur og
eiga þau tvær dætur; Kristín, fædd
21. febrúar 1940, giftTrausta Jóns-
syni og eiga þau tvö börn.
Langömmubörnin eru orðin fimm.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
(Vald. Briem.)
Vissulega höfum við systurnar
margs að minnast og margt að
þakka ömmu frá bernskudögum
okkar heima í Hrauni.
Þær eru svo ótalmargar minning-
arnar sem sækja á hugann, — minn-
ingar um löngu liðna daga sem þó
virðast svo skammt undan í hug-
skotinu.
Með ömmu fórum við í ótal leið-
angra, — suma raunverulega, —
vestur í Fjósstíg, upp á Hundshaus,
suður á Hellur eða Kerlingarkofa,
út að Baklæk eða upp í Lindarhol-
ur. Stundum byggðum við hús eða
rétt úr steinvölum, tíndum blóm eða
ber eða leituðum að hreiðrum. Allir
þessir staðir voru ömmu kærir,
tengdir bernskuleikjum hennar og
margar sögur sagði hún okkur um
þá. Aðrir leiðangrar voru óraunver-
ulegri í okkar huga, það voru leiðan-
grar aftur í tímann til bernskudaga
ömmu, í sögunum hennar urðu þeir
sveipaðir ævintýraljóma og aldrei
þreyttumst við á að hlusta á frá-
sögn hennar af fyrstu kaupstaðar-
ferðinni, — það var nú meira ævin-
týrið.
Þær voru líka ófáar stundirnar
sem við sátum uppi hjá ömmu og
afa og stríddum vð heklunál, pijóna
eða saumuðum út. Amma sá líka
oft til þess að brúðurnar okkar
færu ekki í jólaköttinn. Bókahillurn-
ar voru líka freistandi og ávallt
hvatti amma okkur til 1 estrar, enda
bera margar bækurnar þess merki
að hafa verið mikið lesnar.
Kakóið hennar ömmu og rúsínu-
lummurnar eða nýsteiktu kleinum-
ar brögðuðust dásamlega og tengj-
ast í minningunni sérstökum ann-
ríkisdögum á heimiiinu. Daginn
áður en hún dó, bauð hún í kaffi,
en afsakaði það að hún hefði ekki
hitað kakó, það væri bara mjólk og
kaffí.
Amma hafði mjög gaman af því
að taka á móti gestum. Oft var
þröngt setið í litlu stofunni og glatt
á hjalla, enda lögðu margir leið sína
til hennar og þáðu kaffí. Samband-
ið við bræðrabörn hennar og fjöl-
skyldur þeirra var mjög náið og
naut hún innilega þeirra samfunda.
Hún fylgdist vel með hópnum og
gladdist yfír hveijum nýjum ein-
staklingi sem í hann bættist.
Síðastliðið vor varð henni þáð
sérstakt gleðiefni þegar stór hluti
af afkomendum Hólmgríms, eða
„bróður“ eins og hún kallaði hann
oft, birtist á hlaðinu hjá henni.
Börnin okkar urðu þeirrar gæfu
aðnjótandi að vera samvistum við
„ömmu lang“ um lengri eða
skemmri tíma og sóttust eftir því
að fara upp til hennar, hlusta á
sögur, skoða myndir eða kíkja í
dótakassann í gömlu saumavélinni
sem hefur að geyma sýnishorn af
leikföngum nokkurra kynslóða.
Fyrir tæpum tveimur árum héld-
um við jólin heima í Hrauni með
litla hópinn okkar og fundum að
amma gladdist innilega yfír að njóta
jólanna með langömmubörnunum.
Á jóladag komu líka Stína og fjöl-
skylda og þá hafði amma allan
hópinn sinn hjá sér.
Amma og afi voru mjög samhent
í öllu og alltaf fannst okkur að þau
væru jafn ástfangin eins og þau
væru nýtrúlofuð. Þau áttu hlýlegt
heimili þar sem alltaf var gott að
koma. Ámma hafð yndi af blómum
og oft var blómskrúðið mikið í stof-
unni hennar. Hún átti líka fallegan
garð sem henni þótti vænt um og
síðast í sumar greip hún til hrífunn-
ar til að raka þegar afí hafði slegið
garðinn.
Einn af þeim stöðum sem amma
hafði mestar mætur á voru hólm-
arnir í tjörninni og var það lengi
venja að á afmælisdegi hennar var
farið út í hólmana til að leita eggja
og tína hvönn og hófsóleyjar. Síð-
astliðið vor voru henni færðar hóf-
sóleyjar úr hólmunum á afmæl-
isdaginn. Betri gjöf gat hún varla
hugsað sér. Hún gladdist líka alltaf
yfír fyrstu beijum sumarsins og
nokkrum dögum áður en hún dó
voru henni færð fyrstu bláberin úr
hrauninu.'
Það er svo margt sem hægt
væri að telja upp og sjóður minning-
anna er okkur dýrmætur. Við erum
þakklátar fyrir að hafa fengið að
njóta samvistanna við ömmu í öll
þessi ár. Langömmubörnin þakka
líka „ömmu lang“ allar ljúfu stund-
irnar. Við biðjum góðan guð að
styrkja afa í sorg hans.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Adda Heiða og Harpa
Okkur systkinin langar í örfáum
orðum að minnast ömmu, Jónasínu
Sigurðardóttur, sem lést á heimili
sínu 5. ágúst sl.
Hún elsku amma er dáin, amma
sem alltaf var svo gott að heim-
sækja. Þó að ferðirnar í sveitina
hefðu mátt vera fleiri, fannst ömmu
alltaf yndislegt að fá fjölskylduna
til sín og ekki síst eftir að yngsta
langömmubarnið fæddist, hún Kara
Rún, sem var augasteinninn hennar
„ömmu-lang“. En amma fékk ekki
að vera nálægt henni lengi, því elsk-
uleg amma kvaddi þennan heim
þegar sú litla var 8 mánaða. En
við systkinin viljum kveðja ömmu
og þakka henni fyrir allar þær
stundir sem við áttum með henni
heima í sveitinni.
Elsku afí, mamma og frændi, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Kjartan og Björk
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður og ömmu,
HELGU GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Sólgötu 5,
ísafirði.
Geir Guðbrandsson,
Sigrún Bergsdóttir, Lars Frank Jörgensen,
Þorsteinn Geirsson,
Halldór Geirsson, Jónína Karvelsdóttir,
Margrét Geirsdóttir, Marsellíus Sveinbjörnsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður
og afa,
SIGURJÓNS JÓNSSONAR
bónda,
Smjördölum, Sandvíkurhreppi.
Stefán Sigurjónsson, Svanbjörg Gísladóttir,
Eiríkur Sigurjónsson, Guðbjörg Hulda Albertsdóttir,
Jón Kristinn Sigurjónsson, Kristín Alda Albertsdóttir,
Grétar Sigurjónsson,
Margrét Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt ér með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.