Morgunblaðið - 10.08.1991, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
31
fclk i
fréttum
Pétur Hallgrímsson spilar á flygilinn góða.
SKEMMTANALÍFIÐ
Fjör á Borginni
Ástrós og Helena sýna „Frjósemidansinn" en gestir fylgjast með
af áhuga.
Isumar hefur skemmtanalíf í
Reykjavík verið fjölskrúðugt
enda fer krám og skemmtistöðum
ört fjölgandi og þá sérstaklega í
Miðbænum. Það virðist þó ekki
hafa komið niður á gömlum og
grónum stöðum á sama svæði og
er Borgin dæmi um slíkt en hún
er nú einn af vinsælustu skemmti-
stöðum höfuðborgarinnar
Föstudaginn 26. júlí leit blaða-
maður Morgunblaðsins inn á
Borgina og ríkti þar glaumur og
gleði að venju. Tilkynnt hafði ver-
ið að dansararnir Ástrós og He-
lena myndu sýna frumsamið dans-
atriði sem nefndist „Fijósemi-
dansinn.“ Von bráðar birtust þær
á dansgólfínu og sýndu dansinn
sem vakti óskipta athygli gesta
og var dönsurunum vel fagnað
að honum loknum. Síðan hófst
almennur dans í húsinu og reyndu
þá ýmsir, með misjöfnum árangri
þó, að tileinka sér dansspor þeirra
Ástrósar og Helenu. Margir kusu
þó að taka ekki þátt í dansinum
heldur fóru inn í svonefndan
Skuggasal. Þar er oft spiluð lif-
andi tónlist og að þessu sinni
hafði einn gesturinn snarað sér
að forláta flygli sem þarna var
og farið að spila af fingrum fram.
Þarna var kominn Pétur Hallgr-
ímsson, fyrrum gítarleikari hljóm-
sveitarinnar X-ins, og fékk hann
góðar viðtökur hjá öðrum gestum
sem sungu með af lífi og sál.
Dansgólfið var ekki lengi að fyllast eftir dansatriðið,
1
Það er engu líkara en Connery
ætli að gleypa Moore með húð
og hári.
Sean Connery og Roger Moore
glaðir á góðri stund í Monte
Carlo.
MONTE CARLO
Banvænn koss?
eir Roger Moore og Sean Conn-
ery eiga það sameiginlegt að
hafa verið í hlutverki njósnarans
James Bonds á hvíta tjaldinu. Aðdá-
endur Bond myndanna bera þær
oft saman og eru skiptar skoðanir
um það hvaða leikari hefur staðið
sig best í hlutverki hins breska
njósnara. Moore og Connery hafa'
aldrei tekið þátt í slíkum mannjöfn-
uði enda eru þeir góðir kunningjar.
Kempurnar hittast regiulega í tenn-
isklúbbi í Monte Carlos þar sem
þeir ræða um liðna tíma og keppa
í tennis. Ýmsum brá þó í brún þeg-
ar fundum þeirra bar saman fyrir
skömmu. Sáu menn ekki betur en
að Connery væri í óða önn að gæða
sér á nefi Moores en sem betur fer
var aðeins um vel útilátinn koss að
ræða. Leikararnir bregða ævinlega
á leik þegar þeir hittast og taka
þá upp á ýmsum hrekkjabrögðum.
Rod Stewart á tónleikum.
ROD STEWART
Þarf að spara röddina
Isumar hefur söngvarinn Rod
Stewart verið á hljómleikaferða-
lagi um Evrópu og komið víða við.
Góð aðsókn hefur verið að hljóm-
leikum hans hingað til en þrátt fyr-
ir það hafa margir aðdáendur kapp-
ans orðið fyrir miklum vonbrigðum
með hann. Ástæðan er sú að rödd
Stewarts er farin að gefa sig og
þolir ekki til lengdar hið mikla álag
sem fylgir söngnum. Líkamlegt
ásigkomulag söngvarans er ekki
heldur með besta móti og herma
fregnir að hann sé allt að því ör-
magna eftir hveija tónleika. Það
bætir þó nokkuð úr skák að áhorf-
endur þekkja flest laganna á tón-
leikunum og syngja með fullum
hálsi. Ef svo væri ekki er hætt við
að hin þekkta poppstjarna yrði púuð
niður á hverjum tónleikunum á eft-
ir öðrum.
í blaðaviðtali sagði Rod Stewart
að í sumar hefði hann sungið á
tónleikum sem um milljón manns
hefði sótt og hann vildi ekki bregð-
ast aðdáendum sínum með því að
aflýsa fleiri tónleikum en hann hef-
ur nú þegar gert. Stewart segir þó
að hann muni taka sér langt hlé
frá tónleikahaldi eftir þetta ferðalag
og spara röddina.