Morgunblaðið - 18.08.1991, Side 12

Morgunblaðið - 18.08.1991, Side 12
I KYNNI KYNJANNA Kirsten Kruch: Ef konan hefur áhuga finnast fleiri mynstur og þau efu endurtekin oftar. Magnús S. Magnússon: Við getum litið á þetta atferli sem ómál- rænar setningar. að rannsaka almennt fyrstu kynni fólks og leitar að sérstökum teg- undum af endurteknum tíma- mynstrum, sem ég álít að séu sér- staklega mikilvæg til að unnt sé að finna reglu í atferli okkar. Við erum mjög ómeðvituð um allt sem við gerum og gildir það jafnt um það að finna mynstur í eigin at- ferli jafnt sem annarra. Gagnvart þessu tungumáli, það er að segja liinu ómálræna, erum við meira eða minna mállaus.“ Magnús segir að það krefjist gífurlegra útreikninga að finna þessa tegund tímamynstra og hef- ur hann þróað sérstök forrit til þess að finna þau og greina. „Draumurinn er að finna einhvers konar atferlismálfræði, finna reglu í því hvernig við höfum áhrif hvert á annað með atferli okkar. Menn hafa rannsakað þetta atferli hjá dýrum, og hefur meðal annars sá sem stjórnar rannsóknum Kirsten rannsakað þetta atferli hjá mönn- um.“ Falin myndavél Kirsten byijaði að vinna eftir aðferðum Magnúsar árið 1987 og beindust rannsóknir hennar að því að finna tímalega samhæfingu atferlis þegar um fyrstu kynni karls og konu er að ræða. „Um hundrað pör tóku þátt í rannsókn- inni,“ segir Kirsten. „Voru þetta allt stúdentar, 84 pör sitt af hvoru kyni og 12 pör af sama kyni. Rannsóknin fór þannig fram í stuttu máli, að par sem þekkti ekki hvort annað, var beðið um að dæma myndband og taka síðan þátt í smákönnun. Voru þau leidd inn í herbergi þar sem allt var til reiðu, en síðan beðin um að bíða aðeins meðan sá sem könnuninni stjómaði skryppi aðeins fram. í næsta herbergi sátu myndatöku- menn sem síðan kvikmynduðu parið í tíu mínútur í gegnum speg- il á veggnum meðan þau biðu. í þessari aðstöðu kemur ýmis- legt fram, bæði eru þama pör sem sýna hvort öðru áhuga og pör sem sitja stíf allan tímann og skipta sér ekki hvort af öðru. Að þessum tíma liðnum fengu þau spurningalista í hendumar, þar sem þau voru til dæmis spurð hvort þau vildu fara í bíó með hin- um aðilanum, eða hvort þau inundu vilja gefa honum eða henni símanúmerið sitt, og gaf hvert svar stig á bilinu frá einum og upp í sjö. Síðan var samhengið milli þess atferlis sem sást á myndband- inu og svaranna við spurningunum sem þau gáfu rannsakað.“ — Hvemig brást fólkið við þeg- ar það uppgötvaði að það hafði aðeins verið platað? „Mjög vel,“ segir Kirsten, „auð- vitað gat það neitað að vera með, en allir hafa verið meira en fúsir til að taka þátt í þessari rann- sókn. Hins vegar fengum við leik- ara til að koma fram á mynd- bandi, sem með þeirra leyfi verður sýnt fjölmiðlum. En þeir voru á sama báti og hinir, vissu ekki bet- ur en að þeir væru að bíða eftir að sjá myndband sem þeir ættu síðan að tjá sig um.“ Mögnuð spenna Kirsten rannsakar hverja upp- töku ótal sinnum og leitar í fyrsta lagi að ákveðnu mynstri í þvf hvernig parið hegðar sér innbyrð- is, þ.e. gagnvart hvort öðm. Er þá athugað hvort um sé að ræða einhver tengsl sem endurtaka sig og em ekki tilviljanakennd. í öðru lagi leitar Kirsten að ákveðinni samstillingu, lítur fram hjá þvi hvernig parið gerir ákveðn- ar hreyfingar, en einbeitir sér að því hvenær það gerir þær. Kirsten er nú með 45 þúsund atburði á myndbandi sem eru tímasettir nákvæmlega, eða um 1/25 úr sekúndu. Hreyfingarnar sem fram koma hjá fólkinu á þessum skamma tíma em margvíslegar. Til dæmis fóta- hreyfingar, höfuðhreyfingar, handahreyfingar og staða hand- leggja. Oft er það svo að í hvert sinn sem maðurinn hreyfir sig hreyfir konan sig líka eftir ákveð- inn tíma, eða öfugt. Er þá á fag- máli talað um tímalega samstill- ingu. „Ef karlmaðurinn hallar sér fram hreyfír konan sig ef til vill ekkert fyrst í stað, en eftir fjórar sekúndur gerir hún einhveija hreyfingu, lagar hárið eða annað, og síðan kannski aftur eftir 20 sekúndur. Slík mynstur finnum við oft.“ Kirsten er nú með 68 myndbönd af mismundandi atferli, en sjón er sögu ríkari og sýnir hún okkur fjórar upptökur af ungum pörum. Horfum við einungis á atferli þeirra en látum hljóð og samtöl lönd og leið. Ekki þarf að taka fram að unga parið er að sjá hvort annað í fyrsta sinni. Fyrsta parið, bæði ljóshærð og lagleg, sitja í homsófanum bros- andi og vinsamleg og á pilturinn í mestu vandræðum með að fela augljósa hrifningu sína á stúlk- unni. Er íjóður í vöngum og á í vandræðum með hendurnar á sér. Hann lætur samt lítið fyrir sér fara í fyrstu. Stúlkan er ákaflega dömuleg en veit greinilega upp á hár af áhuga piltsins. Hann skipt- ir um stellingu, hún hreyfir hvorki legg né lið en eftir nokkrar sek- úndur lagar hún belti sitt. Þegar yfir lýkur er hann farinn að sitja nokkuð valdsmannlega í sófanum og hún farin að tala ákaft með höndunum. Yfír þessu pari er eitt- hvað létt og skemmtilegt en áhorf- andi skynjar þó vel spennuna sem er á milli þeirra tveggja. Hjá næsta pari verður spennan bókstaflega mögnuð. í því tilviki sem hinu fyrra eru bæði stúlkan og pilturinn ákaflega aðlaðandi, en hann virðist þó ekki sýna henni hinn minnsta áhuga. Þau spjalla að vísu saman en hann er kaldur og rólegur, japlar á tyggigúmmí og til að kóróna allt saman stend- ur hann upp og færir sig þar með langt frá stúlkunni. Hún kann þessu illa, verður í fyrstu óörugg með sig, en síðan hefjast hinir ýmsu tilburðir af hennar hálfu. Hún ýmist sækir á eða dregur sig í hlé og brúkar hin ýmsu brögð. Eitt skiptið er hann lítur undan notar hún tækifærið og skiptir um stellingu. Er hann lítur á hana aftur hefur hún tekið hárið frá andlitinu og situr ákaflega kven- lega. Undir lokin hefur hún dregið hann að sófanum aftur, svipur hans hefur breyst og nú er það hann sem sækir aðeins á brattann. Hjá þriðja parinu myndast eng- in spenna og minnir andrúmsloftið á það sem fyrirfinnst á biðstofu læknis á rigningardegi. Þau sýnast bæði afskaplega gáfuð að sjá.'ef marka má útlit og klæðaburð, en það sém er eftirtektarvert er stell- ingin sem þau sitja í. Hann situr í döinustellingu og hún í dæmi- gerðri karlastellingu. Þau hreyfa sig lítið og mætti ætla af látbragð- inu, sem er mjög af skornum skammti, að þau ræddu um veð- urfar eða myndvefnað. Hjá fjórða parinu finnast fá merki um mannlegar tilfinningar. Ungi maðurinn gerir að vísu hinar ýmsu tilraunir með því að skipta um stellingar og skjóta að stúlk- unni einni og einni setningu, en daman situr teinrétt með bók í hönd og hreyfir hvorki legg né lið. Og þannig gengur það fyrir sig í tíu mínútur. Það skemmtilegasta er þó, að þegar spurningalisti var síðan lagður fyrir þessa umræddu dömu, hafði hún ekkert á móti því að fara með piltinum í bíó. Fallegur dans Tvennt hefur komið Kirsten á óvart eftir að hún fór að vinna úr rannsóknum sínum. „Því hefur verið haldið fram að samstilling hreyfínga komi aðeins fyrir hjá pörúm sem eru að daðra hvort við annað,“ segir hún, „en það er ekki rétt. Hún kemur einnig fyrir hjá pörum af sama kyni og pörum sem höfðu ekki áhuga hvort á öðru. Einnig hefur verið sagt, að ef pör eru hrifin hvort af öðru gerist samstilling fyrr. Það er rangt, því það er samhengi milli áhuga kon- unnar og þess hversu flókin mynstrin eru sem finnast. Ef kon- an hefur áhuga finnast fleiri mynstur og þau eru endurtekin oftar. Um þetta er ekki að ræða hjá karlinum. Skiptir engu máli hvort hann hefur áhuga eða ekki, allt sem kann að gerast þeirra á milli ákvarðast af áhuga konunn- ar.“ Þá vita menn það. Ef kona lítur lengi í augu karlmanns er líklegt að eitthvað búi undir og hjólin fari að snúast, en karlmaður getur aftur á móti mænt í augu kven- manns allan guðslangan daginn án þess að það beri nokkurn ár- angur. „Ef konan fer hins vegar að laga hár sitt eða föt er möguleiki á að hún hafi áhuga,“ segir Kirst- en. „Tíminn hefur allt að segja,“ segir Magnús, „og parið verður að hreyfa sig á samhæfðan hátt. Þetta getur verið eins og fallegur dans. Oft stjórnar karlmaðurinn dansinum og konan verður að bregðast við á ákveðinn hátt til að samræmi verði í hreyfingum þeirra. Við getum litið á þetta at- ferli sem ómálrænar setningar." Myndbandið sem Kirsten notar er tengt tölvu og oft fínnur tölvan atferlismynstur sem sjást ekki með. berum augum. „Um það bil 10 til 15 mismundandi atferli endurtaka sig oft þrisvar til fjórum sinnum innan tíu mínútna," segir Kirst- en.„Ég get nefnt sem dæmi, að hjá einu parinu fór konan ætíð höndum gegnum hár sitt í hvert sinn sem maðurinn hallaði sér aft- ur á bak. Það endurtók sig þrisvar sinnum á tíu mínútum! Ég get líka nefnt það, að ef konunni finnst karlmaðurinn vera orðinn of öruggur með sig, oft gefur hann þá öryggi sitt til kynna með ákveðinni stellingu, þá hreyf- ir konan sig ekki í 20 sekúndur, en lagar síðan hár sitt eða föt að þeim tíma liðnum. Eins og hún hugsi með sér: hann er of öruggur með sig en ég læt hann ekki sjá að ég hafi séð það. Þegar karlmaður setur hendur á hnakka og hallar sér aftur á bak sýnir það öryggi hans gagnvart konunni, en þegar hún setur sig í þessa sömu stellingu er það merki um að karlmaðurinn sé ekki nógu góður fyrir hana. Að hún geti stjórnað honum að vild.“ — Eru hreyfíngar eitthvað frá- brugðnar þegar um fólk af sama kyni er að ræða? „Þá eru mynstrin styttri og eru endurtekin oftar. Hárhreyfingar koma til að mynda oftar fyrir þeg- ar um tvær konur eru að ræða.“ Atferli og einangrun Þetta er í fyrsta sinn sem Kirst- en Kruh ræðir opinberlega um atferlisrannsóknir sínar, og hefur hún í hyggju að birta niðurstöð- umar fyrst meðal vísindamanna áður en fjölmiðlar erlendis fá upp- lýsingar. Vitað er að þýska press- an hefur mikinn áhuga á vinnu hennar og að sjónvarpsstöð muni ef til vill gera mynd byggða á rannsóknum hennar. Kirsten hefur nú þegar haldið fyrirlestra og talað um vinnu sína á ráðstefnum. Hún hefur síðan í hyggju að skrifa bók um það atferli sem hún hefur ver- ið að rannsaka og á hún að vera leikmönnum aðgengileg. Franska sjónvarpið hefur nú þegar rætt við Magnús um aðferð- ir hans, og þess má geta að ís- lenska tölvufyrirtækið „Fjarhönn- un“ hefur þróað samtengda mynd- banda- og tölvutækni í samráði við Magnús, sem Sorbonne- háskóli hefur í hyggju að kaupa. En hver er tilgángurinn með öllu saman og gætu þessar rann- sóknir ef til vill breytt einhveiju fyrir hinn venjulega mann? „Tilgangurinn er sá að skilja betur hvernig kynni fólks fara fram og hversu atferlið skiptir miklu máli í samskiptum fólks,“ segir Kirsten. „Ef til vill er einnig hægt að benda á ákveðna kórvillu í fari einstaklingsins sem verður til þess að hann einangrast,“ segir Magn- ús. „Einmanaleiki er alls staðar að verða mikið vandamál og það er ólíklegasta fólk sem einangr- ast. Það kom til dæmis fram í franska sjónvarpinu ekki alls fyrir löngu að hundrað þúsund kvenna í París búa einar og eru alls ekki ánægðar með það. Oft eru þetta vel útlítandi konur og flestum óskiljanlegt hvers vegna þær kynnast engum.“ Kirsten upplýsir einnig að helm- ingur allra íbúa í Miinchen séu einhleypir og og gildir það jafnt um konur sem karla. „Atferli er ekki bara eitthvað," segir Magnús, „atferlið skiptir meginmáli. Það er mjög mikilvægt að rannsaka mannleg samskipti, komast að því hvers vegna sumir ná sambandi við fólk en aðrir ekki. Og ég tel rannsóknir sem þessar mikilvægar fyrir íslendinga sem verða nú að byggja upp æ meiri samvinnu við aðrar þjóðir." Kirsten og Magnús eru undir lokin spurð hvort þau sjálf séu ekki farin að rannsaka hveija ein- ustu hreyfíngu samferðamanna sinna, og segja þau að svo hafí að vísu verið fyrstu mánuðina. „Ég fór að stúdera hið ólíklegast fólk,“ viðurkennir Kirsten og kímir, „en það var aðeins í stuttan tíma. Hins vegar fer maður að fylgjast meira með sjálfum sér og að sjálfsögðu hefur maður lært heilmikið um sjálfan sig.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.