Morgunblaðið - 18.08.1991, Side 19
MORGUNjBIiAÐip SGNNUDAGUR 18. AGUST dffúl
19
SOGULEG HEIMSOKN FYRIR HALFRI OLD
CHURCHILL
ÍREYKJA VÍK
Churchill kveður 1 Reykjavik með V-
merkinu og í baksýn
má sjá Esjuna.
HÁLF öld var liðin sl. miðvikudag frá því að Winston Church-
ill sté á land í Reykjavík. Breskir forsætisráðherrann var þá
að koma af leynilegum fundi með Franklin D. Roosvelt Banda-
ríkjaforseta, þar sem þeir sömdu Atlantshafssáttmálann, sem
markaði stefnubreytingu Bandaríkjamanna í síðari heims-
styrjöldinni og er af mörgum talinn einn helsti vendipunkt-
urinn í styrjöldinni.
Það blés hins vegar ekki byrlega hjá Bandamönnum þeg-
ar Churchill hafði hér viðkomu. Það var þó engan
bilbug að finna á Churchill í Reykjavík, og hann
kvaddi með sigurmerkinu fræga þegar hann sigldi út úr
höfninni. í ræðu af svölum Alþingishússins sagði hánn að
Bretar og Bandaríkjamenn hefðu tekið að sér að bægja
ófriðnum frá Islandi því ella hefðu aðrir orðið til þess.
„Eftir að þeirri viðureign er lokið, sem nú stendur yfir
munum við ásamt Bandaríkjamönnum sjá um, að Island
fái sitt fullkomna frelsi. Við sækjum ykkur heim sem
menningarþjóð, og það er takmark að menningarfortíð
ykkar megi tengjast framtíðarmenningu ykkar sem
fijálsrar þjóðar.“
Með nokkrum sanni má segja í þessum orðum Winst-
on Churchills hafi verið innsigluð utanríkisstefna íslendinga frá
þeirri stundu.
Churchill um borð
í orustuskipinu Prince
ofWales, horfir inn Hvalfjörðinn.
Churchill veifar til yfirmanna breska herliðsins og íslenskra ráðamanna á hafnarbakkanum í Breski forsætisráðherrann stígur á land í Reykjavík. Franklin
Reykjavík. Delano Roosevelt, sonur Bandaríkjaforseta gengur niður land-
ganginn að baki hans.