Morgunblaðið - 21.08.1991, Side 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
187. tbl. 79. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mannfall í umsátri um þinghús rússneska lýðveldisins:
ENGIN MINNINGARORÐ -
ERUM EKKIFALLNIR ENN
- sagði Borís Jeltsín forseti rússneska sambandslýðveldisins í samtali í nótt
>*
Arás hrundið
Mannfall varð er skriðdrekar réðust til
atlögu við rússneska borgara er slegið
höfðu skjaldborg um rússneska þing-
húsið í miðborg Moskvu. Á stóru mynd-
inni sjást stuðningsmenn Jeltsíns hefta
för skriðdreka er stendur í ljósum log-
um. Á innfelldu myndinni draga
óbreyttir borgarar burt lík félaga síns.
SOVÉSKIR bryndrekar lögðu til atlögu við víggirðingarn-
ar umhverfis rússneska þjóðþingið í Moskvu klukkan 20
mínútur yfir tíu í gærkvöldi. Tíu mínútum síðar féll fyrsti
maðurinn í skjaldborginni, sem slegið hefur verið utan um
Borís Jeltsín, forseta Rússlands, og stuðningsmenn hans.
Rauða hernum tókst að rjúfa fremstu varnarsveitir Jeltsíns
áður en stillt var til friðar. Á meðan þessu fór fram sátu
þingmenn Rússlands inni í þinginu og lögðu á ráðin um
að skipa útlagastjórn, sem í fyrstu er ætlað að sitja í
Leníngrad, en erlendis þegar klærnar verða hertar. Ostað-
festar fregnir herma að Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, sé í haldi í herstöð ásamt fjölskyldu.
Vitað er að þrír menn krömdust
til bana undir skriðdrekum þegar
Rauði herinn reyndi að bijótast
gegnum víggirðingu úr sporvögnum
fyrir utan þinghúsið. Að minnsta
kosti tuttugu þúsund Moskvubúar
voru við þinghúsið þrátt fyrir út-
göngubann sem sett var á í Moskvu
í nótt. Mannfjöldinn varpaði bensín-
Sprengjum að skriðdrekunum og
stóðu þrír í björtu báli. Áhafnir
þeirra gátu ekið þeim á brott en
urðu að yfirgefa þá á götu skömmu
síðar. Rauði herinn dró sig til baka
eftir að menn með gjallarhom grát-
bændu hann um að úthella ekki blóði
samborgara sinna.
Jeltsín kvaðst telja að símtöl sín
við George Bush Bandaríkjaforseta
og John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefðu komið í veg fyrir
að neyðamefndin blési til stórsóknar
á þinghúsið. „Ekki skrifa minningar-
orð um okkur strax. Við emm ekki
fallnir enn,“ sagði Jeltsín í viðtali
við bandarísku sjónvarpsstöðina
ABC í nótt. Þetta em fyrstu átökin,
sem bijótast út eftir að harðlínu-
kommúnistar steyptu Gorbatsjov
aðfaranótt mánudags.
í Leníngrad sátu andstæðingar
áttmenninganefndarinnar í ráðhús-
inu og hugðust eyða þar nóttinni.
Víetsjeslav Sjerbakov aðstoðarborg-
arstjóri bað borgarbúa á miðnætti
að halda til ráðhússins og slá um
það „skjaldborg af holdi og blóði“.
Borgarráðsmenn vom sendir í eft-
irlitsferðir út fyrir borgina og sneru
aftur með þær fregnir að mörg þús-
und hermenn á bandi valdaræningj-
anna væru skammt fyrir utan borg-
ina og byggjust til árásar.
Anatólíj Sobtsjak, borgarstjóri
Leníngrad, skoraði í sjónvarpsávarpi
í gærkvöldi á fólk að hunsa fyrirskip-
anir neyðarnefndarinnar og líta á
Jeltsín sem leiðtoga sinn. „Eg ætla
ekki að leyfa fasistunum að fara um
Leníngrad," sagði Sobtsjak.
Gífurlegur mannflöldi mótmælti
valdaráninu í tveimur stærstu borg-
um Sovétríkjanna í gærdag, 150
þúsund manns í Moskvu og 250
þúsund manns í Leníngrad.
Bush forseti hét Jeltsín stuðningi
í símtali við hann í gær og sagðist
styðja kröfu hans um að Gorbatsjov
sneri aftur sem löglegur forseti Sov-
étríkjanna. Bush kvaðst tvisvar hafa
árangurslaust reynt að ná símasam-
bandi við Gorbatsjov.
Sjá einnig fréttir og greinar á
blaðsíðum 2, 3, 12-21 og
baksíðu og leiðara á miðopnu.
Vígbúizt í þinghúsi Rússlands:
HÖRÐ OG BLÓÐUG ANDSPYRNA
- segir starfsmaður þing’sins í samtali við
„ÉG sé skriðdreka á Minskíj-götu, Kalínín-götu og við bandaríska sendiráðið. Þeir
eru komnir mjög nálægt, svo nálægt að ég heyri skothríðina. Þingmennirnir hafa
ákveðið að fara út úr húsinu og reyna að stöðva þá. Stór hópur þingmanna ætiar
að fara fyrir mannfjöldanum og mæta skriðdrekunum,“ sagði starfsmaður þing-
manna Kristilega demókrataflokksins, Artjamov að nafni, í samtali við Morgunblað-
ið um klukkan hálftvö í nótt að rússneskum tíma. Utvarpsstöð, sem rússnesk stjórn-
völd starfrækja í þinghúsinu, greindi frá því í gærkvöldi, að sögn Olafs Egilssonar
sendiherra íslands, að nokkrir þingmenn, sem gengu út á móts við hermennina,
hefðu verið handteknir. Morgunblaðið náði símasambandi við þinghúsið rétt í þann
mund er fyrstu fréttir bárust frá Moskvu uin að þrír borgarar hefðu verið drepnir
fyrir utan bygginguná.
Artjamov sagðist ekki hafa heyrt að neinn Blaðamaður Morgunblaðsins bað Artj-
hefði fallið. „Ég veit bara að þijú skriðdreka- amov að líta út um gluggann og lýsa því,
herfylki stefna á þinghúsið. Eg heyri skot- sem hann sæi. „Ég sé elda, blossa, urmul
hríðina héðan. Þetta eru sérsveitir KGB.“ af fólki, fjölda götuvígja, mikið ... mikið
Morgxtnblaðið
af öllu. Og mikinn reyk,“ sagði hann.
„Eg var að koma neðan af fyrstu hæð,
úr anddyrinu. Þar er fólk að vígbúast. Menn
eru að útbúa benzínsprengjur. Hermennirn-
ir, sem veija bygginguna, liggja á gólfinu
með skammbyssur og Kalasjníjkov-riffla og
miða á dyrnar. Það eru byssumenn á hverri
hæð. Andspyrnan verður mjög hörð og mjög
blóðug."
Artjamov sagðist engin vopn hafa sjálf-
ur. „Ég hef aðeins gasgrímu. í gær hafði
ég orðið mér úti um járnstöng, en í dag hef
ég ekkert í höndunum. Það kemur í ljós
hvoit ég þarf að beijast,“ sagði hann.
Lyftur þinghússins hafa verið teknar úr
sambandi að sögn Artjamovs til þess að
innrásarmenn geti ekki notað þær. Menn
Jeltsíns Rússlandsforseta hyggjast siðan
veija hveija hæð fyrir sig, en þinghúsið er
mjög hátt, um tuttugu hæðir. Það gæti því
orðið erfitt fyrir þá, sem vilja ná til Jeltsíns,
að bijóta sér leið upp á efstu hæðirnar.
Artjamov sagði að tugir þúsunda al-
mennra borgara væru við húsið. „Ég má
því miður ekki vera að því að tala við þig.
Ég verð að fylgja þingmönnunum út á torg-
ið. Yfirmaður minn er þarna úti með gjallar-
horn og reynir að koma skipulagi á
manngrúann. Hver og einn einasti í mann-
þrönginni er tilbúinn að beijast við skrið-
drekana. Þeir, sem ekki eru reiðubúnir að
beijast, komu ekki hingað. Allir vita hvað
þeir eru að gera, til hvers þeir komu hingað.“